Vísir - 18.08.1972, Blaðsíða 6

Vísir - 18.08.1972, Blaðsíða 6
6 Visir Föstudagur 18. ágúst 1972 VISIR Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjórí: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingastjóri: Auglýsingar: Afgreiösla: Ritstjórn: Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Valdimar H. Jóhannesson Skúli G. Jóhannesson Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Hverfisgötu 32. Simi 86611 Siðumúla 14. Simi 86611 (5 linur) Askriftargjald kr. 225 á mánuði innanlands i lausasölu kr. 15.00 eintakið. Blaðaprent hf. AFTOKUSVtlTIN Haag á hálum ís Úrskurður Alþjóðadómstólsins i Haag var ís- lendingum eins óhagstæður og hann gat verið. Dómstóllinn var nærri einróma um, að íslendingar skyldu ekki færa út fiskveiðilögsögu sina 1. septem- ber og ekki beita brezk og vesturþýzk skip neinu valdi i þvi sambandi, auk þess sem þessum skipum var af hálfu dómstólsins heimilað að veiða næstum þvi sama magn og þeir hafa veitt við ísland á und- anförnum árum. Það kom á daginn, sem raunar var vitað fyrir- fram, að dómstóllinn vék sér alveg hjá þvi að úr- skurða neitt efnislega i málinu. Úrskurðurinn er eins konar lögbann um, að íslendingar aðhafist ekki neitt i málinu, meðan beðið er eftir efnislegum úr- skurði um lögmæti útfærslu fiskveiðilögsögunnar. Liklega hafa brezk stjórnvöld spilað betur á sin lögfræðispil en við höfum gert. Jóhann Hafstein hafði varað við þvi, bæði i landhelgisnefnd okkar og i utanrikismálanefnd alþingis, að við höguðum mál- um okkar þannig, að formsatriðaúrskurður kæmi fyrir 1. september. Ef unnt hefði verið að hindra það og fá dómstólinn til að fjalla beint um efnisatriði málsins, hefði sú málsmeðferð tekið langtum lengri tima og sá úrskurður ekki fallið fyrr en eftir haf- réttarráðstefnuna á næsta og þar næsta ári. Og við reiknum með, að sú ráðstefna muni snúa málum okkur mjög i hag. Stundum hefur það komið fyrir, að riki hafi ekki viljað fallast á lögsögu Alþjóðadómstólsins i ákveðnum málum. En þau hafa samt sent fulltrúa til að skýra mál sitt og haldið uppi sókn og vörn með þvi að senda dómstólnum ýmsan rökstuðning og skýrslur i málinu. En þetta gerðum við ekki og höfðum þvi ekki aðstöðu til að hindra, að brezk og vestur-þýzk stjórnvöld fengju knúið fram bráða- birgðaúrskurð um formsatriði. Vafalaust mun þessi úrskurður stappa stálinu i brezk stjórnvöld og minnka likurnar á eftirgjöfum af þeirra hálfu i viðræðum þeirra við islenzk stjórn- völd. Hins vegar munum við halda okkar striki og hafna þessum dómi, enda vorum við búnir að segja fyrirfram, að Alþjóðadómstóllinn hefði ekki lögsögu i málinu, og við mundum ekki taka mark á neinum úrskurði hans, á hvaða lund sem hann félli. Einn dómaranna, Mexikaninn L.P. Nervo, var andvigur meirihlutanum og skilaði séráliti, sem er mjög i samræmi við skoðanir íslendinga. Hann sagði, að i þessu máli væri ekki tilefni til sliks úr- skurðar gegn þjóð, sem ekki viðurkenndi lögsögu dómstólsins. Hann sagði einnig, að engar sannanir væru fyrir þvi, að útfærsla fiskveiðilögsögunnar væri andstæð alþjóðalögum, og að ekki hefði verið kannað til fulls, hvort dómstóllinn hefði lögsögu i málinu. Dómstóllinn i Haag hefur hætt sér út á hálan is með þvi að taka að nærri öllu leyti undir kröfur and- stæðinga okkar. Hann hefur stuðlað að eyðingu fiskistofna hér við land. Og hann kveður upp bráða- birgðaúrskurð i viðkvæmu máli, þótt öllum sé ljóst, að 200 milna fiskveiðilögsögustefna er sem óðast að ryðja 12 milna stefnunni úr vegi meðal rikja heims- ins. Við munum hafa þennan dóm að engu. Þaö var einn góðan morgun hér á dögunum, aö fólk var á leið i vinnuna, kom labbandi niður Laugaveginn eða fyrir hornið á I/ Skólavörðustignum, og þá urðu menn þess varir, að aftakan hafði fariö fram, gamla amtmannshús- inu hafði veriö slátrað. Aftöku- sveitin hafði laumazt til snemma morgunsárið, engin tilkynning hafði verið gefin út, engu likara en morgungjöfin til borgaranna ætti að koma algerlega á óvart. Það tók svo ekki langan tima að fella hið aldna hús að velii, stái- kúlunni var sveiflað meistaraiega nokkru sinni fram og aftur, þar með var aftakan framkvæmd, en um leið hafði verið framinn enn cinn menningariegi glæpurinn i gömlu Reykjavik, merkilegar sögulegar minjar afmáðar I einu vctfangi, áöur en fólkið kom á fætur. Eftir lá aðeins brakið, nokkrar sögulegar spýtur, sem tók heldur ekki nema dagstund að moka burt út á hauga. Amtmannshúsið við Ingólfs- stræti var eins konar gömul höll. Það var heldrimannahús, nokkurs konar Schimmelmanns Palais, Windsor Castle eða Elysee. Eini munurinn var að það var úr timbri og hafði verið farið skammarlega með það, orð- ið fyrir þeirri ógæfu að láta for- skala sig. Og það var svo ógæfu- samt að standa ekki i réttri húsa- linu, úr þvi að svo var, skipti engu máli sögulegt minjagildi. Fyrst féll það fyrir fallöxi reglustrik- < unnar á skrifborði einhvers rétt- \\ linu arkitektsins, siðan kom fall- hamar stálkúiunnar og minjarn- ar eru þurrkaðar út á einu augnabliki. Nú verður grunnur þess sjálfsagt um langa stund notaður sem ófrágengið bila- stæði, siðan kvað eiga að koma þarna gata til að auka og auð- velda umferðina til miðborgar- innar. Kannski fær þessi nýja bilabraut að geyma siðustu minjarnar um gamla höfðingja- tið, skyldu ráðamennirnir verða svo göfuglyndir að halda áfram að kalla breiðbrautina ,,Amt- mannsstig”? Gamla amtmannshúsið var á sinni tið ein allra glæsilegasta bygging i Reykjavik. Það var heldrimannahús, sem átti sér merkilega sögu og rikt minja- gildi. Það var teiknað og smiðað af Helga Helgasyni, snikkara og tónskáldi og smiði þess var á ýmsan hátt tengt byggingu Alþingishússins. 1 grunn þess var notað grjót, sem hafði verið höggvið veturinn áður og átti að nota i nýtt Alþingishús uppi á brekkubrúninni, þar sem nú er verzlun J. Þorlákssons og Norð- manns. Amtmannshúsið var reist á islenzkum árdegi, þegar fram- tiðarvonir þjóðarinnar risu hátt eftir þjóðhátiðina miklu, eftir að tslendingar höfðu fengiö viður- kenningu meö stjórnarskrá úr kóngsins hendi að þeir væru sér þjóð út af fyrir sig. En það mætti lika oröa það svo, aö þessi höfðingjahöll var reist eftir að ný launalög embættismanna höfðu verið samþykkt og alþingi verið svo höfðinglynt að borga embættismönnum hærri laun en þeim höföu verið greidd sem dönskum embættismönnum. Það var fyrsti árangur þess að alþingi fékk i sinar hendur forræði inn- lendra fjármála. Bein afleiðing þess varð að þeir embættismenn- irnir og mágarnir Magnús Stephensen og Theódór Siemsen treystu sér til og höfðu efni á að ,reisa sér þetta lika litla slot. Kannski hjálpaði það lika, að þeir fengu ónýta alþingisgrjótið fyrir 'litinn pening, og ennfremur var kki hætta á þvi á þeim árum að /breiðu bökin væru sliguð með háum sköttum. Hér má segja að upp hafi hafizt framaferill og uppgangur Magnúsar sem siðar varð frægastur sem landshöfð. Þeir voru kjarni i höfðingjaþjóð- félagi hins nýsjálfstæða tslands. Niður við lækinn, þar sem nú er stjórnarráð bjó sjálfur þáverandi sýningargripum i tveimur eða þremur svokölluðum „húsalin- um”. Og menn spyrja, hvar verð- ur slaghamarinn næst látinn kremja og mylja, bang og krass og eftir blaktir i kvöldgolunni aðeins niðurbælt kvein gamalla borgarbúa, sem alltaf koma of Gamla amtmannshúsið meðan það var höll og höfðingjasetur. landshöfðingi Hilmar Finsen. Svolitið ofar i brekkunni, þar sem nú er Timinn og ferðaskrifstofan Sunna var Bergur Thorberg amt- maður sem bráðlega átti að taka við landshöfðingjaembættinu. Uppi á brúninni, þar sem nú er verzlunin Visir bjó Jón Pétursson háyfirdómari, og hér sem sagt reistu þeir mágarnir Magnús Stephensen yfirdómari og bráð- lega amtmaður og siðar lands- höfðingi og mágur hans Theódór Siemsen bæjarfógeti og siðar amtmaður sitt slot. Og ennþá hærra upp með Skólavörðustign- um i Steininum var sjálfur æðsti innanlandsdómstóllinn, lands- yfirrétturinn og bæjarþing Reykjavikur. Þeir voru að reyna, að koma sér upp heldrimanna- hverfi nokkurs konar snobbhill þeirra tima, þar sem útsýnið þótti fegurst vestur yfir flóann og roðagullið sólarl. i vestri.Og þar voru haldnar margar veizlur með kampavini og konjaki, sem sögur fara af, ekki voru nú háir tollar eða rikiseinkasala á þeim vörum i þann tið og risnugjöld rifleg. Og siðar kom amtmannshúsið við sögu i sjálfri sjáfsstæðis- og fána- baráttunni. Það var eftir alda- mótin, þegar Július Havsteen siö- asti amtmaðurinn bjó þar á neðri hæðinni, en uppi á loftinu Guð- mundur Magnússon læknaskóla- kennari og siöar prófessor. Hjá þeim siðarnefnda bjó þá upp- eldissonur Jón Sivertsen, ungur skólapiltur, brennandi af þjóð- ernislegum eldmóði og dró blá- hvita fánann að húni og tókst þá mikil og fræg rimma við hinn gamla danska embættismann á neðri hæöinni, sem vildi rifa niður hvitbláinn. Þá risu tilfinningár hátt. En svo er byrjaö aö afmá hinar sögulegar minjar ekki aðeins uppi á brekkubrúninni, heldur viðsvegar i gamla bænum. Ot- þurrkun minninganna verður nú æ hraðari, þar til svo verður kom- ið, að ekkert verður eftir, nema einhver óþekkt straumlinuborg með átta hæða kaupsýsluhúsum, breiðum bilabrautum og ekrum af bilstæðum, borg sem talið er að verði flott og fin i linum, en ekki i neinum tilfinningalegum tengsl- um við ibúana, gersamlega rúin sögulegum minningum og minja- gildi , nema sem bakstiu- seint á siðasta aftökustaðinn og gráta aðeins innra með sér i magnþrota úrræðaleysi, hvernig stöðva megi þennan óskiljaniega barbarisma. Hér koma nokkur sár sem enn kveina til okkar i minningunni, svo við lokum augunum i inni- byrgðri gremju, þegar við förum um bilastæðin þar sem áður voru helgir minjastaðir tengdir við gamla borgarstjóra, forustu- menn og framtaksmenn og fjör- legt mannlif. Eitt hið allra versta verk aftökusveitanna var þegar gamla Sjóbúð, hús Geirs Zoéga við Vesturgötu var rifið. Hús eins helzta höfundar og uppbyggjanda Reykjavikur, sem hefði sann- arlega átt að gera upp og mynda glæsta minningu um forna upp- gangstima. En húshorniö kvað hafa staðið út i götuna og varð að rýma fyrir einhverri feykilegri framtiðar bilaumferð, sem þó hefur enn ekki birzt, þvi að enginn samgöngugrundvöllur er fyrir mikilli bilaumferð um Vestur- götuna. Raunverulega hefur gamla Sjóbúð þvi einungis verið látin vikja fyrir bilastæði undir eitthvaðtólf bila, þannig er rýmið enn notað og veröur um langan aldur. önnur hörmungin var þegar af- tökusveitin kom lika skyndilega og öllum að óvörum að Ingólfs- hvoli á horni Hafnarstrætis og Pósthússtrætis. Þar var laumazt til aftan að minningum borgar- anna, þegar fólk kom á fætur var að mestu búið aö mola húsið. Siðan fengum við i heilt ár að hafa stillaðsa utan um þennan forláta marmaravegg, sem er einstæöur i islenzkri bygg- ingarsögu og blasir nú viö okkur sviplaus og kaldur sem veggur hinnar kölkuðu grafar, eins og ráðandi arkitektar sýnast hugsa sér Reykjavik framtiöarinnar. Ingólfshvoll, sem hvarf svo fyrir augum borgarb. á einni morgun- stund var tvimælalaust ein af merkustu söguminjum. Hann var ein allra fyrsta steinsteypubygg- ing borgarinnar, frægur i iönsög- unni, steyptur meö frumstæðum aðferðum. Hann var fyrsti ráð- herrabústaður tslands með svöl- um utan á, sem ráðherra gekk nokkrum sinnum út á til aö ávarpa mannfjölda á gamlaárs- kvöld, og þar bjó lika bankastjóri

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.