Vísir - 18.08.1972, Page 16
Föstudagur 18. ágúst 1972
Sigra einn
erfiðasta
hjallann!
— 166 metra brú byggð 6
þurru yfir Breiðdalakvísl
Framkvæmdir við
vegalágningu og brúa-
byggingar austur undir
Núpsstað er nú senn
lokið, en stærsta brúin
er yfir Breiðdalakvísl
sem er Geirlandsá og
Stjórn sameinaðar. Er
sú brú 166 metrar á
lengd og byggð á þurru.
Verður ánni siðan veitt
undir brúna, en það
verður væntanlega gert
i haust.
Pétur Ingólfsson verk-
fræðingur hjá Vegagerðinni
teiknaði brúna og sagði hann
blaðinu i morgun að brúin væri
stálbitabrú með steyptu gólfi,
en um þessar mundir er verið að
byrja aö steypa gólfið. Siðan á
að brúa Núpsvötn og Súlu, en
þau verða sameinuð, þá Sand-
gigjukvisl og að lokum Skeiöar-
á.
Þá sagði Steingrimur
Ingvarsson, verkfræöingur,
blaðinu að vegalagningin þarna
fyrir austan væri langt komin og
ætti að vera lokið i september i
haust. Er þetta allt hluti af hinu
mikla Skeiðarársandsverki sem
miðar að þvi að opna vega-
leiðina austur i öræfin.
Núpsvötnum verður veitt i ána
Súlu og er fyrirhugað að byrja
að byggja undirstööur undir brú
þar i haust.
—ÞS
Nú er verið að byrja að sleypa gólfið á brúnni yfir Breiðdalakvisl, en brúin er byggð á þurru eins og sést
á myndinni, cn siðan verður ánni vcitt undir brúna.
Finnst gullskip-
ið um helgina?
Nýr hamar kominn í borinn
Nú ætti ekki aö vera langt
þangað til tekst að fullkanna,
hvort leitarmenn á Skeiöarár-
sandi hafa fundið gullskipið. 1
nótt fór Lárus Siggeirsson á
vatnabil sinum austur á sandinn
til leitarmanna með nýjan ham-
ar og ýmis viðbótartæki i bor-
inn. Á þessi hamar að vera mun
haröari, en sá sem hingað til
hefur verið notaður, og standa
vonir til þess að hann komist i
gegnum hin hörðu leirlög i sand-
inum. Mcð hamrinum fóru ýmis
tæki, alls um 5 tonn.
Svo framarlega sem ekkert
óvænt gerist ætti þvi að fást úr
þvi skorið næstu dægur, hvort
þetta verðmæta skip er fundið,
en fundur þess myndi án efa
skyggja á allar aðrar stórfréttir
ársins, jafnvel heimsmeistara-
einvigið. Skipið er einstætt i
sinni röð og hlaöið dýrasta
farmi, sem komið hefur hér að
ströndum landsins, en það
strandaði árið 1667.
— ÞS
Heimsmeistarahjónin
hin vinsamlegustu
— en höfnuðu viðtali
Larissa Spasskaya opnaði
dyrnar og horfði brosmildum
spurnaraugum á blaðamann
Vfsis, sem hafði gerzt svo djarfur
að hringja dyrabjöilunni. Eftir
stiröar samræður á blönduðum
tungumálum kom heims-
meistarinn fram í anddyrið og
blandaöi sér i samfalið.
Spasskaya og Spasski dvöldu i
einbýlishúsinu i Garðahreppi i
gær fram undir það að einvigið
hófst. Þegar Visir bankaði þar
uppá seinnihluta dagsins kom
Larissa til dyra eins og hver
önnur Islenzk húsmóðir og sjálfur
var Spasský sportklæddur og gat
þess vegna hafa verið að dunda
við að snyrta lóðina. Þau hjónin
voru vinsamleg i viðmóti en
höfnuðu eindregið að eiga viðtal
við blaðamenn. Slikt væri úti-
lokað að sinni, sagði heims-
meistarinn og brosti alúðlega.
Ekki vildu þau heldur leyfa
myndatöku og virtist það frekast
stafa af meðfæddri hlédrægni.
Þau veifuðu i kveðjuskyni þegar
haldið var brott og hurfu siðan
inn i húsið.
I vikunni fóru þau i búðir og
keypti Larissa sér þá meðal
annars kápu. Virtust þau leika á
alls oddi.Ungir aðdáendur heims-
meistarans sem búa i nágrenni
við einbýlishúsið hafa árætt að
berja uppá og biðja um eigin-
handaáritun og hefur hún verið
fúslega veitt. Eru nágrannarnir
hinir ánægðustu með að hafa
fengið hjónin i hverfið, jafnvel
þótt þeirsjái ekki mikið afþeim.
—SG.
Ók niður 4 umferðarmerki
ó stolnum bil
Fjögur umferðarmerki lágu i
valnum utan vegarins og svo
loks bifreiðin sjálf, þegar lög-
reglumenn komu að Vestur-
landsvegi rétt neðan við Höfða-
bakka i nótt.
Ungur ölvaður maður fannst
skammt frá þessum verksum-
merkjum og var hann grunaður
um að hafa ekið bilnum, sem
kom i ljós að hafði verið stolið frá
Tjarnargötu.
Hann vildi þó ekki við það
kannast, og var færður til
geymslu til frekari yfirheyrslu
meðan stórskemmdur billinn var
dreginn af staðnum af kranabil.
Skömmu siðar fannst annar bill
i Tjarnargötu ekki langt þaðan
sem hinum hafði verið stolið, og
kom i ljós, að þeim bil hafði
einnig verið stolið og það úr
Borgartúni. En bilþjófurinn hafði
yfirgefið þann bil i Tjarnar-
götunni, vegna þess að eitt dekkið
hafði sprungið.
Grunar menn, að sami
þjófurinn hafi tekið bilinn i
Tjarnargötunni til þess að geta
haldið áfram akstrinum eftir að
sprakk á hinum. —GP.
„Hinzta kveðja” við Lógafell
„Nei ég kviði ekkert fyrir
þessu. enda hef ég ekki fyrr tekið
þátt i kvikmyiiduninni og veit þvi
kannski ekki alveg hvernig þetta
er.” Svo sagði Alfgrimur 12 ára,
þar sem liann stóð skammt frá
Jóhanni dómkirkjupresti i regn-
úðanum og beið eftir að syngja i
fyrsta sinn við jarðarför.
Byrjað var að kvikmynda úti-
senur Brekkukotsannáls i gær að
Lágafelli. Þar i og við verða tekn-
ar 5-6 senur frá þremur jarðar-
förum. Sá sem leikur Álfgrim 12
ára heitir Þorgils Þorvaröarson
og er hann einnig 12 ára að aldri.
Þá koma statistar i fyrsta sinn
við sögu i þessari myndatöku
þarna að Lágafelli. Það eru fjórir
likmenn, Elias Mar, Jón Leós,
Friðrik Gislason og Guömundur
Guðmundsson. Þá mátti sjá Kaf-
tein Hogensen þarna á stjái og er
hann leikinn af Sveini Halldórs-
syni.
,,Þetta er óþekktur aumingi
sem á að grafa núna, höfuðlaus
stubbur” sagði Garðar Hólm sem
Jón Laxdal leikur. Allt er gert til
að það sem fram kemur i mynd-
inni liti sem eðlilegast út. Sagði
Troels Bentsen að Þjóðverjarnir
væru mjög nákvæmir um slikt.
Þýzki leikstjórinn og hans aðstoð-
armenn stjórnuðu undirbúningi
tökunnar og var m.a. lögð teina-
braut eftir heimreiðinni að kirkj-
unni. Var þetta ekki ólikt járn-
brautarteinum, en eftir þessari
braut rennir kvikmyndatöku-
maður vél sinni og situr áfastur
við hana.
Kirkjugarðurinn að Lágafelli
hefur tekið nokkrum breytingum
um stundarsakir. Búið er að setja
upp talsvert af gervilegsteinum
og krossum. A þá eru letruð nöfn
fólks sem vinnur við kvikmynda-
gerðina og eru ekki allir sem geta
klappað á legsteininn sinn. En nú
átti að fara að hefja athöfnina,
likmenn settu upp virðulegan
svip, Alfgrimur ræsk;ti sig og
Jóhan'n gamli irikirkjuprestur
lagaöi hempukragann. Hinn
óþekkti aumingi skyldi nú lagður
til hvildar við söng Alfgrims, sem
söng Allt eins og blómstrið eina af
hjartans tilfinningu.
— SG
Ókunnugir liefðu ábyggilega
orðið djúpt snortnir af þessari
athöfn, cf ekki hefðu komið til
suðandi kvikmyndavélar a Ut
um kring.