Vísir - 25.08.1972, Page 4
4
Visir Föstudagur 25. ágúst 1972
Willy Brandt
varð fyrir óheppni i sun>
arleyfi sinu i Noregi.
Mercedes Benz bifreiðin
hans bilaði á þjóövegi en
verksmiðjan lét strax senda
viðgerðamenn með þotu til
Osló og þaðan fór hann meö
þyrlu að bil Brandts.
Peter Fonda
Hann er farinn að feta i
fótspor systur sinnar, Jane
Fonda. Næsta kvikmynd
sem hann leikur i er stór og
mikill áróður á striðið i Viet-
nam. Hann leikur aðalhlut-
verkið, og kemur þar fram
stuttklipptur og án skeggs.
Geraldine Chaplin
Hún hefur tapað árslöngu
skattamáli við spönsku yfir-
völdin, og nú verður þessi
kvikmyndaleikkona að sjá af
480.000 krónum til skatta-
yfirvaldanna.
Boger Moore
og Tony Curtis gera þessa
dagana mikia lukku i Þýzka-
landi, er þar er verið að sýna
i sjónvarpinu framhalds-
myndaflokkinn, sem á is-
lenzku mundi heita Hinar
óheppnu hetjur. Sumir segja
að það sé reyndar ekki leikur
þeirra félaga sem veldur
allri lukkunni, heldur það að
þýzkt tal er sett inn á film-
una, og kemur það skemmti-
lega út.
Umsjón:
Edda Andrésdóttir
Lord Snowdon
veldur nú Elisabetu
drottningu i Englandi og
auðvitað konu sinni, Mar-
gréti Rósu, hinum mestu
vonbrigðum. Þessi ágæti
Tony er farinn að heimsækja
striplingabúðir alloft.
KARLMAÐUR
— en íklœðist kvenmannsfötum
Utan á dyrnar aö íbúð
hanser nafnspjald sem á er
nafnið: Bettina Barner, en
hann heitir í raun og veru
Jörgen Barner.
Hann er 30 ára gamall karl-
maður en hann hugsar eins og
kona, og hann klæðir sig eins og
kona. Hann er ballettdansari og
byrjaði að dansa fjögurra ára
gamall. Þá æfði hann sig alltaf
heima hjá sér, iklæddur kjól af
móður sinni og háhæluðum skóm.
Eftir þvi sem timinn leið fann
hann stöðugt sterkari löngun hjá
sér til þess að klæðast kven-
mannsfötum, og eftir eina æfing-
una i ballettinum tók hann fyrsta
skrefið. Hann fór i verzlun
og keypti sér kvenmannsföt og
sýndi sig i þeim. Fljótlega og án
mikilla erfiðleika var hann viður-
kenndur þannig af fjölskyldu
sinni og vinum.
Jörgen kemur einnig fram sem
söngvari, og hvar sem hann kem-
ur fram er hann iklæddur kven-
mannsfötum. En hann hefur
komið fram viðsvegar i Evrópu.
,,Ég er ekki feiminn við að sýna
mig eins og ég er. Þetta er nokkuð
sem fólk verður að sætta sig við,
og ef til vill á ég auðveldara með
það en margir aðrir, þar sem ég
vinn þannig vinnu. Ef ég til dæm-
is ynni venjulega skrifstofuvinnu
yrði þetta miklu erfiðara fyrir
mig.”
,,En ég kem fram eins og ég er,
og vinir minir og þeir sem ég um
gengst taka mig þannig.”
Það er ekki oft sem hann lendir
i erfiðleikum vegna þess, ekki
nema þegar hann fer út fyrir hinn
vanalega hring. Um daginn fór
hann til dæmis inn á pósthús, og
venga erindis sins þurfti hann
að sýna nafnskirteini. Myndin af
honumi skirteininu var tekin þeg-
ar hann iklæddist ekki kvenföt-
um, og hann fékk ekki afgreiðslu:
Þetta er ekki þú, var sagt.
Jörgen hefur ekki látið gera á
sér neina aðgerð eða látið breyta
limama sinum á nokkurn hátt. Þó
hefur honum oft dottið það til
hugar.
,,En ég held ekki að slik aðgerð
mundi gera mig hamingjusaman.
Ég held það geri ekki nokkurn
hamingjusaman. Ég hef svo oft
hugsað um þetta, en sifellt fælzt
frá þvi aftur. Ég þekki einn sem
lét gera þetta og hann þjáist si-
fellt af þunglyndi. Ég er
hamingjusamur svona eins og ég
er, fólk viðurkennir mig og ég bý
með vinkonu minni og vini. En ef
að fólk á að viðurkenna fólk eins
og mig, verðum við að koma fram
alveg eins og við erum, þetta er
nokkuð sem við getum ekkert við
gert, og við verðum að brjóta
múrinn.”
Paul þreyttur ó
aðgerðarleysinu
Lítill gróði af
Skandinavíuförinni
Paul McCartney, bítillinn
fyrrverandi, er að verða
þreyttur á aðgerðarleysinu.
Hann segist næstum vera til-
búinn til að gera hvað sem er.
hvaða vinnu sem er, jafnvel þó
hann fái ekki svo mikið borgað
fyrir hana. Þvi hann er vel f jáð-
ur fyrir lífstið.
En liklegt er þó að hann viki ekki
langt út fyrir músikhringinn, þó hann
hafi látið sér orð þessi um munn fara.
En eitt helzta dæmið um leiðann á að-
gerðarleysinu er ferð hans um Skandi-
naviu. Þegar hann hefur lokið ferð
sinni um Danmörku, Noreg, Finnland
og Sviþjóð mun hann leika á nætur-
klúbbum.
Fyrir þessa ferðsina um Skandinaviu
fær þessi popstjarna ekki mikið fé.
Ferð hans hefur ekki gefið nærri eins
mikið i aðra hönd og fyrri ferðir hans
með Bitlunum. Næturklúbbaskemmt-
anir munu heldur ekki gefa svo mikið af
sér.
McCartney hefur ekki komið fram á
hljómleikum siðan 1968, er Bitlarnir
hættu spili sinu og söng saman. Hann
hefur ekki verið sérstaklega iðinn við
plötuútgáfu, en þó hann hafi ekki grætt
á tá og fingri upp á siðkastið er hann
öruggur.
Eftir að hafa gengiö i hjónaband með
Lindu Eastmann er hann sagður annar
maður. Hann er að verða fjölskyldu-
faðir eins og þeir bezt gerast segja
kunnugir. Hann leyfir engar einka-
myndatökur og börn þeirra hjóna koma
aldrei fram opinberlega. Myndatökur
af þeim leyfir hann ekki.