Vísir - 25.08.1972, Side 9
Vísir Föstudagur 25. ágúst 1972
Vlsir Föstudagur 25. á£úst 1972
MeHcur ófangi
að hefjast í
knattspyrnu-
sögu íslands!
Leikir i fyrsta íslands-
móti kvenna i knatt-
spyrnu hafa nú verið
ákveðnir — mótið hefst
um helgina með fjórum
leikjum, en lið frá átta
féiögum taka þátt i mót-
inu.
Fyrsti leikur þessa sögulega
móts fer fram i Kópavogi og hefst
kl. tvö á laugardag. Þá leika
Breiöablik og Fram. Klukkan
fimm sama dag veröur annar
leikur mótsins. Þá mætast Ar-
mann og Haukar á Armannsvell-
inum.
Tveir leikir veröa i mótinu á
sunnudag. Kl. tvö leika á Kefla-
vikurvelli Keflavík og Grindavik
og veröur það forleikur aö 1.
deildarleiknum milli Keflavikur
og Akraness, en sá leikur hefst kl.
þrjú. — I Hafnarfirði leika FH og
Þróttur I kvennamótinu og hefst_
sá leikur kl. þrjú á Hafnarfjarö-
arvelli.
Metin falla í Munchen
Æfingamótin i frjáls-
um iþróttum eru i full-
um gangi i Múnchen, þó
svo leikarnir hefjist á
morgun, og mjög góður
árangur náðist þar i
nokkrum greinum i gær-
kvöldi — glæsileg met
voru sett og „nýjar”
Stjörnur skutust upp á
himin frjálsiþrótta —
menn, sem gætu unnið
tii gullverðlauna á leik-
unum.
Þjóöverjar uröu yfir sig hrifnir
i gær, þegar Klaus Wolfermann
setti nýtt, vestur-þýzkt landsmet i
spjótkasti — kastaði spjótinu
90.40 metra og er annar maður i
heiminum i ár, sem kastar spjóti
yfir niutiu metra. Þessi árangur
hans er 3.20 metrum betri en
eldra metið i spjótkastinu, sem
hann átti sjálfur.
Steve Prefontaine „hlaupa-
undrið frá Oregon”, sem Banda-
rikjamenn telja öruggan meö sig-
ur i 5000 m hlaupinu, þó hann sé
aðeins rúmlega tvitugur að aldri,
setti glæsilegt bandariskt met i
3000 metra hlaupi i gær — bætti
met Jim Beatty stórlega á vega-
lengdinni. Timi Steve var 7:47.6
min. glæsilegur árangur, sem
náöist i kulda og roki. Hann hélt
áfram og lauk við tvær milur og
náði þar betri tima, en banda-
riska metið á vegalengdinni er
8:22.0 min., en það verður ekki
viðurkennt sem met, þar sem
hlaupinu lauk raunverulega við
3000 m markið.
Tveir bandariskir hlauparar
náðu frábærum árangri i 400 m
hlaupi. Vince Matthews sigraði á
44.7 sek., en heimsmethafinn Lee
Evans hljóð á 44.8 sek. Evans
keppir ekki i 400 m hlaupinu á
leikunum — fær ekki tækifæri til
að verja Olympiutitil sinn frá
Mexikó — þar sem hann varð að-
eins fjórði á bandariska úrtöku-
mótinu, en hins vegar veröur
hann i bandarisku sveitinni i
4x400 metra boðhlaupi. Þriðji i
400 m i gær var Tommie Turner á
46.2 sek.
HitastigiðiMíinchen var aðeins
þrettán stig i gær — beinlinis
„kuldi” fyrir svertingjana og
kom þessi árangur Matthews og
Evans þvi mjög á óvart. t 100 m
hlaupi kvenna hlupu Barbara
Ferrel, USA, og Sylvia Chivas,
Kúpu, báðar á 11.2 sek., en Car-
men Valder, Kúpu, og R. Boyle,
Ástraliu, á 11.3 sek.
íslenzkt tré í
Olympíuskógi!
Tómas er nú mark
hœstur í deildinni
— og hefur skorað tvö mörk í leik í síðustu þremur leikjum
Miðherjinn i Vest-
mannaeyjaliðinu,
Tómas Pálsson, er nú
orðinn markhæstur i 1.
deildinni — hefur skor-
að ellefu mörk og
skauzt upp fyrir Eyleif
Hafsteinsson, Akra-
nesi, i gærkvöldi. Tóm-
as hefur vissulega ver-
ið á skotskónum að
undanförnu — skorað i
siðustu þremur leikj-
unum sex mörk. Fyrst
tvö i 6-1 sigri ÍBV gegn
Keflvikingum, þá bæði
mörkin, þegar ÍBV
sigraði KR 2-1 i Eyjum
og tvö mörk i gærkvöldi
— einnig gegn KR.
Nokkru meiri spcnna er i
sambandi við markakóng 1.
deildar i sumar en áður. Færey-
ingar gáfu bikar til minningar
um Ragnar Lárusson, þegar
þeir voru hér á dögunum, og
stjórn KSÍ ákvað nýlega, að i
framtiðinni skuli nöfn marka-
kóngal.deildarletruðá hann. Og
nú keppa þeir Tómas og Eyleif-
ur að þvi — og þar stendur Tóm-
as betur að vigi, hefur skorað
ellefu mörk i tiu leikjum, en Ey-
leifur er i öðru sæti með tiu
mörk i ellefu leikjum. Þriðji er
Atli Þór Héöinsson, miðherjinn
ungi i KR, með átta mörk i
ellefu leikjum. Markahæstu
leikmenn i deildinni
TómasPálsson, IBV 11
Eyleifur Hafsteinss., 1A 10
Atli Þór Héðinss., KR 8
Ingi Björn Albertss., Val, 7
Steinar Jóhannss., IBK 7
Teitur Þórðars., IA 7
Kristinn Jörunds. Fram, 6
Alexander Jóhanness., Val, 5
ErlendurMagnúss.,Fram, 5
Hörður Ragnarss., IBK 5
Eftir leikinn I gær er IBV
komið I þriðja sæti 11. deild með
12 stig. Fram er efst með 16, þá
Akranes nieð 13. Fram og IBV
hafa leikið 10 leiki — Akranes
ellefu.
Fer hann inn? Það má lesa spennuna úr svip Magnúsar Guðmunds-
sonar, markvarðar KR, eftir að hann hafði hálfvariö sko, Tómasar
Pálssonar, en hélt ekki knettinum og hann rann rólega i markið.
í tilefni 20. Olympiu-
leikanna i Múnchen i
Háskólalið
Liverpool
vann ÍBV!
— og leikur við lið
Háskóla íslands í dag
Þýzkalandi, ákvað
framkvæmdanefnd leik-
anna að gróðursetja tré
á Olympiusvæðinu í
Múnchen, með trjá-
plöntum frá hinum
ýmsu þátttökuþjóðum.
— Myndá sérstakan
Olympiuskóg.
Að höfðu samráði við islenzka
náttúrufræöinga valdi islenzka
Olympíunefndin birkiplötur i
þessu skyni, þar sem þær eru i
senn táknrænastar fyrir islenzk-
an trjágróður og von til að þær nái
þar góðum þroska.
Leikurinn var háður á malar-
vellinum i Eyjum og var mikil
reynsla fyrir háskólamennina,
sem ekki höfðu leikið á malarvelli
áður. Þeir sigruðu varaliöið
örugglega — meðan aðallið IBV
lék sér að KR-ingum — með 3-1 og
var sá sigur i minnsta lagi.
Leikurinn var harður og skoraði
háskólaliðið að auki tvö mörk,
sem dæmd voru af þvi.
Siðasti leikur Liverpool-liðsins
hér að þessu sinni verður i dag á
Melavellinum. Mætir það þá úr-
valsliði Háskóla íslands og hefst
leikurinn kl. fimm — ekki sex eins
og sagt er i einhverju morgun-
blaðanna.
Úrvalslið Liverpool-há-
skóla í knattspyrnu lék í
Vestmannaeyjum i gær-
kvöldi og sigraði varalið
IBV með 3-1.
Guenther Zahn, kornungur
þýzkur piltur, mun tendra
Oly mpiueldinn i Miinchen á
laugardag við opnunarhátið 20.
Olympiuleikanna. Myndin hér
að ofan var tekin i gær, þegar
lokaæfingin fór fram á leik-
vanginum. Zahn hleypur upp
tröppurnar að eldstæöinu, þar
sem Olympiueldurinn mun loga
meðan á leikunum stendur. Á
neðri myndinni er Haraldur
prins að bjástra við skútuna
sina, en hann vcrður einn af
keppendum Noregs á Olympiu-
leikunum.
Slikt færi má „gullskallinn” ekki fá i leik,það getur ekki endað nema á einn veg — með marki. Haraldur „gullskalli” Júliusson skoraði þriðja mark Vest-
mannaeyinga i gærkvöldi með fallegum skalla eftir fyrirgjöf Arnar óskarssonar — knötturinn sigldi yfir Magnús markvörð og beint á koliinn á Haraldi, sem
ekki var seinn að skalla hann I markiö — algjörlega frir. Ljósmyndir Bjarnleifur.
Fjögur mörk gegn KR og
fjórði sigurleikur ÍBV!
— og liðið hefur ekki tapað í 6 síðustu leikjunum
Það er sannarlega kominn
skriður á Vestmanneyinga í 1.
deildinni. í gærkvöldi léku þeir
hina ungu KR-inga grátt —
skoruðu f jögur mörk gegn engu
á Laugardalsveili — og það var
fjórði sigurleikur liðsins í röð.
Tvö jafntefli þar á undan og
Vestmannaeyingar hafa ekki
tapað leik í deildinni síðan 3.
júnf — þá gegn Fram 2-0 á
Laugardalsvelli. Þessi loka
sprettur þeirra kemur þó senni-
lega of seint til þess að þeir geti
gert sér vonir um sigur í deild-
inni — en annað sætið er í seil-
ingarfjarlægð og þar með
keppni í Evrópu aftur, ef þá
nokkuð lið fær stöðvað IBV í
Bikarkeppni KSí. Það verður
erfitt eins og framlína liðsins
leikur — liðið hefur skorað 21
mark í siðustu sex leikjunum.
Það var mikill munur á sóknarlotum
Vestmannaeyinga og KR I gærkvöldi
— i næstum hvert skipti, sem Vest-
mannaeyingar nálguðust KR-markiö
var hætta. Framlinumenn liðsins voru
fljótir og ákveðnir og stefndu allir aö
sama marki að skora mörk. Hins veg-
ar voru sóknarlotur KR sárasjaldan
hættulegar, litil sem engin ógnum, og
þvi fór sem fór og KR-ingar voru þó
litið minna með knöttinn i leiknum en
Eyjaskeggjar.
Þetta var langt frá þvi að vera neinn
sérstakur leikur. Mikið þóf á köflum —
mikiðspyrnt út af — og það var aðeins.
þegar framlinum. tBV fóru af stað,
drifnir áfram af stórgóðum leik Arnar
Óskarssonar, að skriður komst á mál-
in — þaö er gaman að sjá Orn, Tómas
og Asgeir leika saman. Allir eldfljótir,
leiknir og sterkir, þó ungir séu.
Mörkin létu ekki standa á sér. A 7.
min léku Haraldur Júliusson og Tómas
upp miðjuna — Tómas fékk knöttinn
nokkru utan vitateigs og spyrnti þegar
snöggt á markið. þetta var fast og gott
skot, út við stöng, en það kom á óvart,
að Magnús Guðmundsson, markvörö-
ur KR, skildi ekki gera neina tilraun til
að verja. Nokkru siðar lék Orn lagl.
upp kantinn — renndi sér framhjá Sig-
mundi einu sinni sem oftar — og gaf
vel fyrir til Tómasar, sem spyrnti yfir
i dauðafæri — siðan skallaði Tómas
framhjá einnig eftir fyrirgjöf Arnar,
áður en hann skoraöi annað mark
leiksins.
Hann fékk knöttinn rétt fyrir framan
miðju — rangstæður að áliti KR-inga
— og lék hratt upp að vitateignum,
hljóp varnarmennina af sér. Magnús
kom á móti honum og Tómas spyrnti
fast á markiö nokkru utan vitateigs —
Magnús hálfvarði, en hélt ekki hinu
fasta skoti, knötturin.n rann áfram og i
markið 2-0. Og rétt fyrir hlé skoruðu
Vestmannaeyingar þriðja markið.
Enn var örn á ferðinni á kantinum, lék
á Sigmund, og gaf mjög vel fyrir — yf-
irMagnús og beint á kollinn á Haraldi
„gullskalla”, sem lætur slikt tækifæri
ekki ganga sér úrgreipum 3-0 og stað-
an var allt annað en glæsileg fyrir KR-
inga. Þeir höfðu varla átt færi i hálf-
leiknum — helzt, þegar Atli Þór fékk
knöttinn inn i markteig frá Herði
Markan, en fyrirgjöfin var alltof föst,
svo hægt væri með nokkurri sanngirni
að ætlast til þess, að Atli gæti hamið
þann knött.
Vestmannaeyingar léku undan
sunnangolunni i siöari hálfleik — en
skot þeirra geiguðu þá aö mestu. Þó
átti Óskar nokkrar fallegar tilraunir —
Hópferð til Madrid
Eins og skýrt hefur verið
frá áður hér á siðunni mun
íþróttabandalag Keflavikur
— i samvinnu við Ferða-
skrifstofuna útsýn — efna
til hópferðar á leik Keflavik-
inga við frægasta knatt-
spyrnuliö heims, Real Mad-
rid, sem fram fer 13.
september á hinum fræga
Bernabeu-leikvangi i Mad-
rid.
Farið verður héðan hinn 10. septem-
ber og dvalið i ellefu daga á Costa del
Sol — aðeins farið til Madrid keppnis-
daginn, en siðan haldið niður á strönd-
ina aftur að leik loknum. Leikvöllur
Real Madrid rúmar 125 þúsund áhorf-
endur og er talinn hinn mesti i Evrópu
— þó svo Hampden Park i Glasgow
rúmi fleiri áhorfendur, en hann er nú
að verða mjög úr sér genginn.
Nokkrir miöar eru enn lausir i þessa
hópferð Keflvikinga og þurfa þeir, sem
hug hafa á þvi að tryggja sér miða að
hafa sem fyrst samband við Hafstein
Guðmundsson, formann IBK, eða
ferðaskrifstofuna.
knötturinn skraukst hjá honum fram-
hjá stöngum, fór ofan á þverslá — áður
en hann skoraði fjórða mark leiksins.
Það kom á heldur óvæntan hátt. KR-
ingar fengu hornspyrnu á 36imin. og
þegar knötturinn kom fyrir mark IBV
tókst einum varnarmanninum að
hreinsa langt fram yfir miðju. Asgeir
Sigurvinsson náöi knettinum — átti i
höggi við bezta mann KR-liðsins i
leiknum, Árna Steinsson, tókst að
leika á hann og renndi svo knettinum
inn að vitateig, þar sem óskar
„þrumufleygur” kom á fullri ferð og
skoraði örugglega.
Tómas Pálsson yfirgaf leikvöllinn
um miðjan hálfleikinn, en þó þessi
mikli markakóngur færi útaf, var mik-
ill sóknarbroddur hjá IBV og loka-
minúturnar munaði sáralitlu aö bæði
Ásgeir og örn bættu enn við mörkum.
Sem áður voru tækifæri KR fá og strjál
— sóknarmenn liðsins léku jafnvel
hægar en þungir varnarmenn IBV
þegar Ólafur Sigurvinsson, bak-
vörðurinn snjalli hjá IBV, er undan-
skilinn, og ógnuðu sárasjaldan. Þó átti
Atli Þór fallegt skot neðst i markhorn-
ið eftir aukaspyrnu, sem hinn ungi
markvörður IBV, Ársæll Sveinsson,
varði snilldarlega — og honum urðu
ekki á mistök i leiknum.
Lið Vestmannaeyja er að verða
mjög skemmtilegt, þó enn séu of
margir veikir hlekkir i liðinu svo hægt
sé að tala um stórlið á Islenzkan mæli-
kvarða. Framlinan er sú bezta hér á
landi — en gegn sókndjörfum mótherj-
um og fljótum eru varnarmennirnir
flestir þungir og svifaseinir. Fram-
verðirnir þokkalegir — Óskar að ná
sér á strik aftur og Kristján Sigur-
geirsson einn athyglisveraðsti leik-
maður liðsins, þó ekki fari mikiö fyrir
honum á leikvelli.
KR-liðið var slakt i þessum leik —
meira að segja Atli Þór náði sér aldrei
verulega á strik. Arni var langbeztur,
og Þórður Jónsson traustur að venju,
en átti þó i erfiðleikum með framherja
IBV i fyrri hálfleik. I leikhléi kom Þor-
geir Guðmundsson inná hjá KR — en
hann var kunnur leikmaður áður i lið-
inu, en hefur ekki leikið i meistara-
flokki i nokkur ár. Dómari var Ragnar
Magnússon. —hsim.