Vísir - 06.09.1972, Blaðsíða 1
VÍSIR
62. árg. — Miövikudagur 6. september 1972 — 202 tbl.
DJÖFULÓÐUM ER HOSSAÐ
„Viö megum til með aö hafa
siöferðilegan kjark til að láta
harmleikinn i Munchen veröa
okkur þá herhvöt, sem dugi til
þess, að hinum djöfulóöu veröi
ekki lengur hossað, heldur verði
þeir knésettir”. Svo segir i dag i
leiöaranum, sem fjallar um lin-
kindina gagnvart vitfirringum i
stétt skæruliða, flugvélaræn-
ingja og þjóðarieiðtoga, sem
sveipa sig skikkju hugsjóna.
Sjó bls. 6
Átján fallnir í
OL-leikiunum haldið áfram
Ólympíuleikunum veröur
haldiöáfram meðeinsdags
frestun, þótt átján hafi
látið lifið.
Avery Brundage for-
maður ólympíunefndar-
innar tilkynnti þetta laust
fyrir hádegið.
„Við megum ekki leyfa nokkr-
um hryðjuverkamönnum að eyði-
leggja þann kjarna alþjóðlegs
samstarfs og góðvildar sem
ólympiuhreyfingin er”, sagði
hann.
Brundage lýsti þessu yfir við
minningarathöfn um israels-
mennina ellefu, sem féllu fyrir
hendi skæruliða.
Leikunum áttiað Ijúka á sunnu-
dag, en nú verður þeim haldið
áfram til mánudags.
„Ég fullvissa ykkur, að
iþróttamennirnir frá israel munu
halda áfram þátttöku i ólympiu-
leikunum i anda bróðernis og
sanngirni”, sagði Brundage.
„Við biðum ósigur fyrir naktri
pólitiskri kúgun i Ródesiu-
málinu”, sagði hann, ,,en ekki
nú”.
Átján biðu bana i átökunum
samkvæmt fréttastofufregnum.
NTB segir, að annar þyrluflug-
maður hafi látizt i morgun af sár-
um sinum.
Hafa þá 11 iþróttamenn frá
Israel látið lifiö, tveir fiugmenn,
einn lögregluþjónn og fjórir
skæruliðar.
Þrir skæruliðar voru hand-
teknir, en einn komst undan til
skógar, að sögn NTB.
Þjóðverjar voru sagðir vilja
hætta við leikana eftir atburðina,
en ólympiunefnd er talin vilja
halda þeim áfram á þeim for-
sendum, að það yrði „sigur” fyrir
hryðjuverkamenn, ef þeir gætu
stöðvað leikana.
Ólympiuþorpið var enn i
morgun umkringt lögreglu, sem
leitaði fleiri samsærismanna.
Einn skæruliða var garðyrkju-
maður i þorpinu, og aðstoðaði
hann félaga sina i árásinni.
t ólympiuþorpinu eru menn
sem lamaðir. Rikisstjórnir og
samtök „lýsa yfir harmi og for-
dæmingu, nema Sýrlandsstjórn,
sem kallar föllnu skæruliðana
„hetjur”. Fleiri Arabariki tóku
treglega málaleitan þýzku
stjórnarinnar um aðstoð i gær.
Mörg lið frá Arabarikjum tóku
ekki þátt i minningarathöfninni.
1
Heimur harmi sleginn — Fánar blakta I hálfa stönd f Laugar-
dal i morgun til að minnast iþróttamannanna frá tsrael.
Sjá bls. 5 og íþróttir
Landhelgisgœzlan herðir aðgerðir gegn Bretum:
KLIPPA AFTAN ÚR ÖLLUM
ÓMERKTUM TOGURUM
Eru erlendir
ferðamenn
hœttulegir?
Þessari spurningu veltir
Vaidimar Kristinsson fyrir
sér I rabbi sinu i blaðinu i
dag. Hann bendir á margvis-
lega kosti, sem fylgja aukn-
um straumi ferðamanna til
landsins og fjallar um,
hvernig fást megi við þau
vandamái, sem þessum
straumi fylgi.
Sjá bls 8
Slœr
Víkingaskákin
manntaflið út?
Sjá bls. 4 og skákfréttir bls. 3
■ ■■■■
Senda
njósnaskipin inn
á Miðjarðarhaf
Rússar eru ekki af baki
dottnir I njósnastriði risa-
veidanna, en nú verða þeir
aö senda þyrlumóðurskip og
njósnatogara með ákefö inn
áMiðjarðarhaf. til að bæta
fyrir missi flugstöðva á
Egyptalandi. „Eftirgrennsl-
an” er sáiuhjálp risaveldun-
um. Sovétmenn eflast á
höfnum, og þeir smiða tvo
kjarnorkukafbáta fyrir
hvern einn sem Bandarikja-
menn smiða.
SJABLS. 6
„Hér eftir verður hispurs-
laust klippt á togvíra allra
ómerktra togara sem fiska
innan landhelgi", sagði
Hafsteinn Hafsteinsson hjá
Gæzlunni í samtali við Vísi
i morgun.
Sagði Hafsteinn, að ekki
yrði lengur látið sitja við
myndatökurog uppskriftir.
Það yrði umsvifalaust
klippt á togvira þegar
ástæða þætti tiLAðspurður
um hvaða aðstæður þyrftu
að skapast sagði Hafsteinn,
að þeir togarar sem reyndu
að dyljast fengju að kenna
á klippunum.
Skipstjórinn á brezka hjálpar-
skipinu Miranda hefur opinber-
lega sent út aðvörun og sagt, að
sjómennirnir á brezku togurun-
um séu æfir af bræði yfir aö-
gerðum varðskipanna i gær. Það
sé ómögulegt aö segja til hvaöa
ráöa þeir muni gripa, ef
varðskipin halda klippingunum
áfram. Vestfirzkir bátar hafa
verið varaðir viö að koma nálægt
brezku landhelgisbrjótunum, þar
sem þeir hafa hótað árásum á þá.
Brezku rikisstjórninni er oröið
órótt af þvi ástandi sem er að
skapast á Islandsmiðum. 1 gær
gekk brezki sendiherrann I
Reykjavik á fund utanrikisráð-
herra og ræddu þeir saman dá-
góða stund. Benti sendiherrann á,
að hættulegt gæti verið aö klippa
á strengda vira og óskaði eftir þvi
að rikisstjórnin stöövaði þessar
aðgerðir varðskipanna. Jafn-
framt sagði hann, að brezka
stjórnin myndi senda þau skiia-
boð til togaraskipstjóra að þeir
forðuðust öll átök og bað um að
tslendingar gerðu hiö sama. Er
áætlaður annar fundur sendiherr-
ans og utanrikisráöherra seint i
dag.
Þegar blaðið fór i prentun höfðu
ekki borizt fregnir um átök á miö-
unum en þau virðast óhjákvæmi-
lega yfirvofandi á hverri stundu,
ef brezku togararnir halda upp-
teknum hætti og mála yfir nafn og
númer. —SG
Vinsœldalistar
Englands og
Ameríku
— Sjá bls. 12
Hvernig er líðanin, þegar dauðinn nálgast
Að setjast við rúm dauð-
vona sjúklings og ræða við
liann um dauöann og þaö
ástand sem hann er i, voga
sennilega fæstir. Læknar og
starfslið sjúkrahúsa um-
gengst þann sjúkling með
feimni og gifurlegri nær-
gætni.
En eftir rannsókn sem gerð
var á 200 dauðvona sjúkling-
um i Bandarikjunum hefur
það komið i Ijós, að það sem
dauðvona sjúklingur hefur
mestaþörf fyrir er að tala
opinskátt um dauðann og
þær aðstæður sem hann er i.
Sjá Innsiðu bls. 7.