Vísir - 27.09.1972, Blaðsíða 3

Vísir - 27.09.1972, Blaðsíða 3
Visir Miðvikudagur 27. september 1972. 3 er aö vera hjá Trúbroti 'h'inu nýja. Það æfir nú sem sextett myrkranna á milli og bregður nú svo við, að i þessari til þessa raddlausu hljómsveit eru allt i einu sex raddir. Allir hafa þeir sungið til þessa, Gunnar Þórðarson, Magnús Kjartansson og Rúnar Július- son, þó aldrei hafi þeir beinlinis hlotið mikla viðurkenningu fyrir það framlag sitt til islenzka poppsins. Nú vex þeim þó vafalaust ásmegin við að fá sér við hlið þá þrjá, Vigni Berg- mann og Ara Jónsson úr Roof Tops, og svo aldavin sinn Engil- bert Jensen, sem þeir Gunnar og Rúnar áttu svo eftirminni- lega samvinnu með i Hljómum. Allir hafa nýliðarnir þrir i Trúbroti sungið við góðar undir- tektir um langt skeið. Ari meira að segja einsamall á plötu. Það er þvi ekki nema eðlilegt, að hresst skuli hafa verið upp á söngkerfi hljómsveitarinnar. Og það hefur verið gert svo um munar — Trúbrot hefur komið sér upp söngkerfi fyrir liðlega 400 þúsund krónur, eða með öðrum orðum kerfi, sem er dýrara en allur útbúnaður sem margir keppinautar hljóm- sveitarinnar notast við. Það kom fæstum á óvart þegar það fréttist, að Engilbert Jensen væri á leiðinni i Trúbrot. Þáttur hans i siðustu LP-plötu hljómsveitarinnar þótti boða eitthvað slikt, ótvirætt. (Skyldi hann koma út sóló-plötu sinni úr þessu, hann Engilbert?) Þá má minna á kunningsskap þeirra Vignis Bergmann og Magnús Kjartanssonar i Trú- broti. En þeir spiluðu saman i Keflavikurhljómsveitinni Júdas frá upphafi til enda, eða þangað til Magnús innlimaðist i Trú- brot. Það verður um þar næstu helgi, sem Trúbrot hættir störfum i núverandi mynd, en hljómsveitin tekur sennilega ekki til starfa eftir breytingar- nar fyrr en i lok næsta mánaðar. ROOF TOPS ÆFA INN NÝJA MENN Roof Tops ætlar ekki að láta blóðtökuna miklu verða sér að aldurtila. Og það er alveg eins möguleiki á þvi, að hljómsveitin taki til starfa að nýju um likt leyti og þeir Vignir óg Ari i nýja Trúbroti. Æfingar hafa nú farið fram i grið og erg fyrir luktum dyrum með nýjum mönnum við trommurnar og gitarinn. Innganga þeirra tveggja i hljómsveitina er þó ekki fast- ákveðin ennþá, en um þau mál var þingað i búðum Roof Tops i nótt og i morgun. Þar eð endan- legar ákvarðanir lágu ekki fyrir þar að lútandi nú i morgun, fengust ekki nöfn hinna hugsanlegu ,,nýliða” gefin upp. Það hefur aftur á móti kvisazt, að þar séu jafnvel á ferðinni spilarar, sem orðnir eru gamlir i hettunni, en kræfari en margir. En við sem sé biöum og sjáum hvað setur. NÁTTÚRA TIL PLÖTUGERÐAR Og ekki má gleyma Náttúru, en hljómsveitin heldur af stað til London 15. október n,k. þar sem hljóðrituð verða tólf lög fyrir plötu, sem meiningin er að koma á markaðinn fyrir jól. Þetta er raunar ekki i fyrsta skipti, sem útkoma Náttúru- plötu er boðuð, en nú leikur vist ekki lengur nokkur vafi á þvi, að fyrsta plata hljóm- sveitarinnar er á leiðinni. Platan veröur hljóðritúð i ,,Orange”-stúdiói og verða öll lög hennar frumsamin. Eitt laganna, sem upphaflega var ráðgert að setja á plötuna, er eftir Jóhann G. Jóhannsson, sem spilaði með hljómsveitinni um skeið. Frá þvi hefur nú verið horfið og fer lagið þvi að likindum á sóló-plötu höfundar- ins sjálfs, en komum að þvi siðar. Þess má geta, að Náttúru stendur til boða skipulagt hljómleikaferðalag um Bret- land, og er nú verið að kanna möguleika á að taka þvi boði. Þá hefur Náttúra annað tilboð til ihugunar, en það kemur neðan frá Tjörn. Leikfélag Reykjavikur hefur óskað eftir að fá hljómsveitina til að annast undirleikinn við fyrirhugaða uppfærslu á pop-óperunni JESUS CHRIST SUPERSTAR. Er slik spila- mennska þeim i Náttúru ekki með öllu ókunn. Hún annaðist einmitt undirleikinn við upp- færsluna á HÁR á siðasta vetri. Náttúra hefur ekki gefið Leik- félaginu neitt svar ennþá við málaleitan þess, en helzt mun það standa i þeim hljómlistar- mönnum, hvort hið umdeilda Iönó taki nógu marga i sæti tíl að svo umfangsmikil sýning sem á Superstar geti nokkurn tima skilað hagnaði. ,,En við metum mikilsviðleitni Leikfélagsins i þá átt, að koma til móts við unga fólkið með uppfærslu þessarar pop-óperu, og viljum þvi ekki útiloka með öllu þann möguleika, að veita okkar liðsinni,” segja þeir i Náttúru — hugsandi. JÓHANN G. MEÐ TVÆR PLÖTUR Jóhann G. Jóhannsson var sá er siðast hlaut útnefninguna „lagasmiður ársins” og var hann þá um leið spilandi i hljómsveitinni Óðmenn, sem hlaut viðurkenningu fyrir ,,beztu plötur” þessa sama árs. Þvi mætti ætla, að fengur verði i plötunum, sem væntanlegar eru á markaðinn, önnur næstu daga, en hin með næsta vori. Fór Jóhann til London með sinar fyrir skömmu og kynnti þær hl jóðfæraleikurunum brezku, sem munu aðstoða hann við undirleik þá er LP-plata hans verður hljóðrituð i marz. Eru það allt þekktir hljóðfæra- leikarar og islenzkum popunn- endum að góðu kunnir. t þessari ferð sinni til fundar við þá brezku fékk Jóhann hljóðritaða tveggja laga plötu, sem sett verður á markaðinn inna tiðar. Ekki vitum við gjörla hvað hún hefur að flytja. Vitum bara að það verður eitt- hvað virkilega óvenjulegt. Og liklega „vafasamt" um leið, að minnsta kosti telji útgefendurn- ir vissara að innsigla plötuum- slögin vandlega fyrir dreifingu til að platan verði ekki spiluð i plötuverzlunum eöa annars- staðar við óhagstæð skilyrði. ,,Og óvist er að platan hljóti náð fyrir augum útvarpsins,” bæta útgefendur við — glottandi. Dave Duford: Brezki trommar- inn, sem kominn cr hljómsveit- inni Rifsberja til hjálpar.... RIFSBERJA MEÐ BREZKAN TROMMARA Það er vist mörgum pop- unnendum gleðiefni, að hljóm- sveitin Rifsberja skuli vera komin á kreik að nýju. Það sem stöðvaði hljómsveitina i fyrra i allri velgengni hennar, var trommuleikaraskortur. „Það var enginn nógu góður i faginu á lausu, svo endirinn varð sá, að við neyddumst til af fara á „veiðar” til London,” segja þeir i hljómsveitinni. Úr Lundúna- ferð sinni komu þeir svo með Dave Duford, en hann er svo frægur að hafa verið einn stofn- enda hljómsveitarinnar East of Eden, sem meira að segja hefur komið lagi á vinsældarlistann hér á Fróni. Dave hefur einnig leikið með þeim furðulega en geysivinsæla Arthur Brown, sem einnig hefur átt lög á list- anum hér, eins og t.d. lagið „Fire”. Verður nánar getið um endur- komu Rifsberja hér i blaðinu á næstunni — og þá jafnframt borin fleiri tiðindi frá þeim miklu pop hræringum, sem nú eiga sér stað. — ÞJM. „Kórónan var mér þungt — segir Boris Spasskí 1(110 í viðtali við Dimitrijé Bjelica „Þaö var ekki fyrr en í siöustu skákinni (21.) að ég missti alla von um sigur i einviginu, ég fann þá að öllu var lokiö,” segir Boris Spasski, fyrrverandi heimsmeist- ari i skák, i nýlegu viðtali við Júgóslavann Dimitrijé Bjelica. „Mér liður betur núna en fyrir þremur árum þegar ég vann titil- inn af Petrosjan. Siðan hefur kórónan verið mér þungt farg —- og ég er feginn að losna undan ok- inu sem hvilt hefur á mér.” Spasski segist gera sér nokkrar vonir um að tefla aftur við Fisch- er i heimsmeistaraeinvigi og þá verði sú keppni erfiðari fyrir Fischer. Hann telur 19. skákina þá beztu i einviginu, en erfiðasta augnablik keppninnar hafi verið i 13. skákinni þar sem hann varð að þola tap eftir að hafa átt kost á jafntefli. „Ég ætla að hvila mig eftir átökin og býst ekki við að fara á neitt stórmót i bráð,” segir Spasski að lokum i viðtali sinu við Bjelica. GF „Okkar er þörf á miðunum" — segir skipherra Þórs og siglir heim í nœstu viku „Ætli maöur reyni ekki að fylgja þeim fyrirmælum sem sett verða” sagði Þröstur Sigtryggs- son, skipherra á varðskipinu Þór, þegar Visir náði tali af honum I Alaborg i morgun. Þröstur sagði að reiknað væri með prufukeyrslu á laugardaginn og kvaðst vona að skipiö gengi 17 til 18 milur. Auk nýrrar vélar var sett þyrluskýli á skipið og ennfremur gerðar breytingar á ankerisfestingum. Skipherrann kvaðst ekki hafa neinar klippur um borð ennþá, ,,en við fáum þær sjálfsagt þegar til Reykjavfkur kemur” bætti hann við. Aætlað er að Þór sigli frá Alaborg næstkom- andi miðvikudag og er áhöfnin að tinast til Danmerkur þessa dag- ana. Hvaða aöferðum ætlið þið að heita við landhelgisbrjótana? „Ja, það er ýmislegt hægt að gera. Til að byrja með er ágætt að fá klippur um borð og siðan sjá- um við hvað setur” sagði Þröstur. Hann sagði að Danir væru mjög rólegir þegar landhelgismálið bæri á góma og vonlitið væri að fá þá til að gerast stóryrta. „En við komum til Reykjavikur i næstu viku, en það veröur sko ekki til að liggja þar við hafnar- garða. Okkar er þörf á miðunum” sagði Þröstur að lokum. — SG HJÓNIN BÆÐI í FREMSTU RÖÐ Það er liklcga ekki algcngt að þekktir söngvarar séu hjón. Þannig er það þó um þau Söndru Wilkes og Ncil Jenkins. Gagnrýnendur hafa lof- að þessi ungu hjón einróma og telja þau I fremstu röð. Hafa þau víða ferðazt og sungið einsöng og tvisöng, og annaö kvöld er röðin komin að Reykjavik. Þá syngja þau i Austurbæjarbiói kl. 7. Myndin var tekin af þeim hjónunum þegar þau voru á ælingu meö undirleikara sinum, Olati Vigni Albcrtssyni. Sandra Wilkes er sópran, en Neil Jenkins hefur tenórrödd. ergilegf þegar varahlutir eru ekki til Hjó okkur er varahlutaþjónustan 99% 1% sem ó vantar bætum við upp með góðu viðmóti og hollróðum. TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI H.F. AUÐBREKKU 44-46 SÍMI 42600 KÓPAVOGI SÖLUUMBOD A AKUREYRI: SKODAVERKSTÆÐID KALDBAKSG. 11 B SlUI 12520

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.