Vísir - 27.09.1972, Side 6

Vísir - 27.09.1972, Side 6
6 Vísir Miðvikudagur 27. september 1972. vísm Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson ) Ritstjóri: Jónas Kristjánsson ( y Fréttastjóri: Jón Bihgir Pétursson ) Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson 1 ( Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson ) Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 ( Afgreiðsla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 ) Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 86611 (5 linur) ( Askriftargjald kr. 225 á mánuði innanlands ( i lausasölu kr. 15.00 eintakið. ) Blaðaprent hf. ( Barnavernd með brauki og bramli Forsvarsmenn barnaverndarnefndar komu fram ) af siðlausu offorsi, þegar þeir fengu fógetaúrskurð ) um að þeir mættu siga lögreglunni inn á heimili ( konu til að ná i barn hennar. Hverjir svo sem mála- / vextir eru i sambandi við umráðarétt barnsins, þá| ) eru vinnubrögð nefndarinnar i málinu óafsakanleg. ) Sumir forsvarsmenn og starfsmenn barna-A) verndarnefndar virðast hafa tilhneigingu til að lita (( holt og bolt á fólk það, sem þeir hafa afskipti af, sem /) geðsjúklinga og fáráðlinga. Þessir menn eru sann- ) færðir um, að þeir viti, hvað þessu fólki sé fyrir \ beztu. / Samt eiga prestar og félagsráðgjafar að veral ( nógu vel menntaðir til að skilja, að þekking þeirra ) veitir ekki sérstaka, visindalega innsýn i mannlegt ) eðli. Og ótal dæmi sýna, að slika innsýn skortir oft ( hjá barnaverndarnefnd. / Það getur engan veginn talizt eðlilegt ástand, að / hópur fólks skuli hafa myndað samtök tii að gæta ) hagsmuna sinna gagnvart barnaverndarnefnd. j Margt af þessu fólki hefur nefndina sjálfsagt fyrir ( rangri sök. En tilvist samtakanna sýnir þó, hve / áfátt nefndinni er i mannlegum samskiptum. ) Aðgerðin gegn konunni virðist bera vott um þröngsýna formsatriðahugsun. Hún hafði náð barni sinu með ólöglegum hætti og þess vegna vildu for- svarsmenn nefndarinnar koma barninu umsvifa- ( laust aftur á barnaheimilið, þótt það kostaði brauk i og braml. Þetta eru eins og naut i postulinsbúð. | Svipuð þröngsýni felst i þvi, þegar opinberir , aðilar safna gömlum lögregluskýrslum um fólk, ' sem misstigur sig, og nota þessar skýrslur til að / móta viðhorf til þessa fólks löngu siðar. Slikt eii ) örugglega óvisindalegt og getur stundum verið j ómannlegt. ( Starf forsvarsmanna og starfsmanna barna- ( verndarnefndar er vandasamt og vanþakklátt. Það ( er svo erfitt, að mistök hljóta annað veifið að komai , upp. En samt er ljóst, að þessir aðilar verða að bæta ' ráð sitt. Þeir verða að hætta að lita á sig sem al-< ( vitur, æðri máttarvöld. Þeir verða að leggja niður | þann ruddaskap, sem konunni var sýndur i fyrra- dag. Og þeir verða að reyna að bægja allri þröng- ( sýni frá sér. ( Einkum þó verða þeir að hætta að lita á sig sem ( pislarvotta, er séu ofsóttir af geðbiluðum foreldrum ) og fjölmiðlum. Sú imyndun er sennilega rótin að ) sumum vandamálum nefndarinnar. Sú imyndun ( leiðir nefnilega til þess að mönnum hættir til að lita i ( hneykslun á umhverfi sitt og sjá ekki bjálkann i ) eigin auga. j Visir hefur ekki aðstöðu til að taka afstöðu til, ) málstaðar þess, sem liggur að baki innbroti lög- \ reglunnar og barnaverndarmanna i hús konunnar. ( Það er offorsið sem slikt og hugarfarið að baki þvi, ) sem er greinilega ámælisvert. j Barnaverndarnefnd hefur lent i þvilikum úti- ) stöðum á undanförnum árum, að hinum deilu-! ) aðilunum verður ekki kennt um það allt. Meiri ( kunnátta i mannlegum samskiptum og meiri ) skilningur á mannlegu eðli er gróður, sem rækta þarf i garði nefndarinnar. J) Þaö voru stuðningsmenn EBE, sem voru hinir raunverulegu „byltingarmenn”. Fundur þeirra fyrir kosningar. Eftir kosningarnar um EBE: NORSKA FLOKKA- KERFIÐ í GRAUT Menn minnast þess, að Per Borten, forsætisráðherra i Noregi var sekur fundinn um „leka” i sambandi við viðræður Norö- manna við EBE, og Borten varð að segja af sér. Stjórn borgara flokka Noregs, hin fyrsta cftir strið, féll við, og við tók siðar minnihlutastjórn Verkamanna- flokksins, sem nú er að falla. Borten þessi er hins vegar sigur- vegari þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar nú. Flokkur hans, mið- flokkurinn, áður bændaflokk- urinn, er talinn hafa sigrað, einn flokka þingsins. Borten gerðist nefnilega upp úr „hneykslismáli” sinu forsvars- maður andstæðinga aðildar að Efnahagsbandalaginu. Borten var spottaður úti um heim fyrir „lekann” alræmda, en hann missti • ekki stuðning og traust norskra bænda. Aðrir komu þó sannarlega við sögu i glimunni við EBE. Hávær „fylking” vinstri sinna var mest áberandi i baráttunni. Sósialistiski þjóðarflokkurinn, sem fékk engan þingmann kjör- inn i siðustu kosningum, og kommúnistaflokkurinn norski, sem ekki hefur lengi átt mann á þingi, fögnuðu úrslitunum ákaft. Margir létu og láta eins og „al- þýðubylting” sé á næstu grösum i Noregi og landið muni skipa sér i flokk þeirra rikja sem kallast „alþýðulýðveldi”. Þvi fer auð- vitað fjarri. Sigur andstæðinga aðildar að EBE var ekki sigur hins háværa hóps, heldur æsinga- lausra norskra bænda og fiski- manna, sem greiddu atkvæði samkvæmt þvi, er þeir töldu hagsmuni sina, með þjóöernis- stefnu gegn samruna i bandalagi við framandi þjóðir, með útfærslu landhelgi og verndun fiskimiða gegn þröngri afturhaldsstefnu Efnahagsbandalagsins i beim málum. 1 rauninni sigruðu hinar „hefðbundnu” atvinnugreinar Noregs, eins og sumir kalla land- búnað og fiskveiðar á Islandi eins og i Noregi. Aldrei slíkur klofningur milli stétta. ekki milli eyrarvinnumanna og vinnuveitenda, heldur stóðu fiski- menn annars vegar og iðnverka- menn hins vegar. 1 sveitum og fiskiþorpum höfðu andstæðingar EBE yfirgnæfandi sigur, i hinum „þróaðri” bæjum sigruðu stuðn- ingsmennirnir yfirleitt. Verkalýðssamtökin höfðu beitt sér fyrir aðild eins og Verka- mannaflokkurinn. Vissulega var klofningurinn mikill meðal hinna óbreyttu. Sumir segja, að,úrslitin hafi byggzt á þvi, að mikill fjöldi kjósenda Verkamannaflokksins hafi setið heima, enda var kjör sókn talsvert undir 80%, sem er litið i sliku hitamáli, sem hreif hjörtun frekar en flest eða öll önnur. En þeir hafa þá setið heima, af þvi að þeir voru ósammála bar- áttu forystu Verkamannaflokks og rikisstjórnar fyrir inngöngu i EBE. Illlllllllll Umsjón: Haukur Helgason Þingmaður úr Verka mannaflokknum Þegar hugsað er til stuðnings forystu flokkanna við inngöngu, verður að telja úrslitin meiri háttar umbrot i stjórnmálakerf- inu. Verkamannaflokkurinn, sem hefur haft hreinan meirihluta eða þvi sem næst siðan fyrir strið, studdi aðild. Það gerði hægri flokkurinn jafnvel fremur. Þessir tveir flokkar höfðu samtals 103 þingmenn af 150, sem á þingi eru. Tveir aðrir flokkar, vinstri flokkurinn og kristilegi þjóðar- flokkurinn, munu helzt vilja við- skiptasamning við EBE, en mið- flokkurinn stóð einn gegn aðild með virkum hætti. Miðflokkurinn hefur aðeins 14 af 150 þingmönn- Klofningur flokkanna náði vissulega inn i þingmannaraðir þeirra, en engu að siður lagði stjórn Verkamannaflokksins til- veru sina að veði. Vinstri sinnar gera sér vonir um, að úrslitin verði til að efla sósialistiska þjóðarflokkinn og kommúnista og samstaðan, sem tókst i baráttunni við EBE, muni geta haldið áfram. Þeir beina spjótum sinum að forystu Verka- mannaflokksins og segja hana hafa svikið „alþýðu” Noregs og ætlað að ofurselja hana auðmagni meginlandsins. Fjölmargir kjósendur Verka- mannaflokksins hafa gert meira en að sitja heima með hendur i skauti. Flokkurinn hafði 46,5 af hundr aði atkvæða i siðustu kosningum. sem er álika mikið og já-atkvæðin voru i þjóðaratkvæðagreiðslunni Ringulreið rikir innan flokksins og i norskum stjórnmálum. Færu þingkosningar fram nú, mætti bú ast við ýmsu óvenjulegu, enda þótt skoðanakannanir hafi ekki gefið það til kynna að undan förnu. En nú mætti búast vif klofningi vitt og breitt og margs konar nýjum „kosningabanda lögum”. Einn þingmaður Verkamanna flokksins frá Syðri- Þrændalögum gekk úr flokknum i gær og sagðist mundu verða þingmaðui sósialistiska þjóðarflokksins þaf sem eftir væri kjörtimabilsinst Fleiri munu ekki fjarri þvi að gera hið sama. Stuðningsmenn EBE vori byltingarmennirnir. Hvað tekur við? Væntanlega munu Norðmenn leita fyrir séi um viðskiptasamninga við EBE sérsamninga af svipuðu tagi og Islendingar hafa gert við banda lagið. Margir tala um, að utan þingsstjórn taki við, þar sem flokkarnir séu of „ringlaðir” og sundraðir sem stendur til að geta aðhafzt eitthvað. Einnig ei minnzt á hugsanlega stjórnar samvinnu miðflokksins, vinstr: flokksins og kristilegra, en þessii flokkar hefðu aðeins 47 þingmenr eða tæpan þriðjung og yrðu að lifa á náð annarra. En þeir gætu' kannski bezt farið bónarveg ti! EBE um samninga. EBE segir, að það verði varla fyrr en „á næsta ári”, að slikii samningar gætu verið gerðir. Menn voru i gær sammála um að stuðningsflokkar aðildar Verkamannaflokkurinn og hægri flokkurinn mundu ekki vera i næstu rikisstjórn. Norðmenn kusu þrátt fyrir alll gegn iðnvæðingunni. En kosningarnar sýna, að Norðmenn eru ekki iðnvæddari en svo, að þjóðernisstefna moldar- innar rikir enn. Það voru stuðningsmenn EBE, sem boðuðu byltinguna, en ekki andstæðingarnir. Aldrei hefur Noregur klofnað með þessum hætti milli stétta, nú um stórþingsins norska. Bratteli leiðtogi Verkamannaflokksins sér nú nýja tegund stéttabar- áttu: Fiskimenn gegn iðnverkamönnum.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.