Vísir - 27.09.1972, Qupperneq 9
..f)vikudagur 27. september 1972.
i/:c:r 1V1 iftvilríiíin anr 97
,Vonandi ekkert
þorskastríð ó
White Hart Lane'
— sagði Magnús Pétursson, knattspyrnudómari, sem dœmir
leik í Evrópukeppninni í Lundúnum í kvöld
— Ég vona, að áhorf-
endur á leikvelli Totten-
ham i Lundúnum, White
Ilart Lane, láti þorska-
striðið ekki bitna á mér
— fari ekki að klippa á
buxnastrenginn minn
eða eitthvað þviumlikt
— sagði Magnús Péturs-
son, knattspyrnudóm-
ari, þegar blaðið náði
tali af honum áður en
hann hélt til Englands,
en hann mun i kvöld
dæma leik í UEFA-bik-
arkeppninni milli
Tottenham Ilotspurs og
norska liðsins Lyn frá
Osló. Það er siðari leik-
ur liðanna og hinn fyrri i
Osló vann Tottenham
með 6-:}. Línuverðir
Magnúsar i leiknum
verða Einar Hjartarson
og Guðjón Finnbogason.
Þetta er i fyrsta sinn siðan
landhelgin var stækkuð að
tslendingar koma fram í meiri
háttar hlutverki á Englandi —
vissulega er það stórt hlutverk að
dæma leik i Lundúnum frammi
fyrir tugþúsundum áhorfenda.
Þorskastriðið, Magnús?
— Þegar öllu gamni er sleppt,
þá held ég, að landhelgismálið
þurfi ekki að spila neitt inn i
þarna á White Hart Lane — ég ef-
ast um, að áhorfendur muni
nokkuð eftir þorskastriðinu,
þegar leikur Tottenham og Lyn er
hafinn. íslendingar hafa rétt fyrir
sér i landhelgismálinu og brezkir
vita, að það þýðir ekkert að deila
við dómarann — hann hefur alltaf
rétt fyrir sér!!
Þú ert þá ekkert hræddur við að
dæma þarna?
— Hræddur! Maður er alltaf
spenntur, þegar slíkir leikir eru
dæmdir og brezkir áhorfendur
gera miklar kröfur til dómar-
anna. Þeir geta það lika — dóm-
arar á Englandi eru hálaunaðir
menn.
Þú hefur oft dæmt erlendis
áður?
— Já, þeir eru orðnir nokkrir,
leikirnir. Ég hef dæmt einn leik i
Wales, annan i Skotlandi, tvo i
Sviþjóð, einn i Noregi og einn i
Finnlandi. Auk þess hef ég tvi-
vegis verið linuvörður i leikjum á
Skotlandi.
Og hvaða leikur er þér minnis-
stæðastur?
— Það er hiklaust leikurinn i
Helsinki. Hann var milli úrvals-
liðs frá Norðurlöndunum og
Sovétrikjanna. Enginn islenzkur
leikmaður komst i Norðurlanda-
liðið og þess vegna var ég valinn
sem dómari. Þessi leikur var
háður 10. júni 1967 og var
stórskemmtilegur. Jafntefli varð
2-2 og þess má geta, að sá frægi
kappi, Jashin, lék i marki Sovét-
rikjanna og það voru allir ánægð-
ir eftir leikinn.
Þú ert nú búinn að dæma lengi.
— Já, ég er búinn að dæma i 22
ár i knattspyrnu — þar af 16 ár i
fyrstu deild.
Og mikið dæmt i sumar?
— Já, ég hef dæmt mikið i
sumar — allt niður i fjórða og
fimmta flokk, og það eru jafnvel
skemmtilegustu viðfangsefnin.
Ég tók eftir þvi, að þú varst
gagnrýndur talsvert i blöðunum
um daginn fyrir að hafa ekki
dæmt viti á KR i bikarleik Fram
og KR. Nú sá ég ekki þann leik,
en hvað skeði þarna eiginlega, og
er ekki vont að fá slika gagnrýni
áður en farið er út i stórleiki ytra?
— Ég er ekki hörundsár fyrir
gagnrýni — en viðvikjandi atvik-
inu i leik Fram og KR get ég sagt
að dómari dæmir ekki vitaspyrnu
á algjörlega óviljandi atriði, eins
og þarna átti sér stað. t>ar var
leikmaður KR að spyrna knettin-
um og leikmaður Fram kemur
skáhalt á fót hans og dettur. Ég
var rétt hjá þessum leikmönnum,
þegar atvikið átti sér stað og það
hvarflaði aldrei að mér — kom
ekki upp i hugann — að dæma
vítaspyrnu. Alls ekki. Áhorfendur
voru flestir i stúkunni og þaðan
var erfitt að dæma um atvikið.
Þeir sáu ekki leikmann Fram —
vegna annarra leikmanna — fyrr
en hann datt yfir fót KR-ingsins.
Þetta var algjört óviljaverk.
Svo þú stendur fastur á þinu?
— Já, þegar maður er alveg
viss um að hafa gert rétt þá
hvarflar engin efasemd að
manni. Hins vegar fannst mér leið
inlegt hvað ýmsir forustumenn
Fram voru hörundssárir eftir
leikinn. Þarna var rétt dæmt að
minum dómi — og menn þurfa
lika að kunna að tapa eins og að
sigra. Það getur verið erfitt að
sætta sig við tap eftir langa sigur-
göngu.
En sleppum þvi — nokkuð sér-
stakt um stórleikinn á White Hart
Lane?
— Nei, það held ég ekki. Ég
vona að það gangi vel og ég er
með góða menn með mér.
— hsim.
Spjallað um getraunir:
Efstu liðin ó útivöllum og
varla aftur 10 heimasigrar
Á 27. getraunaseðlinum
með leikjum 30. september
eru mörg af beztu liðunum
á útivöllum og það er því
ekki að búast við sömu
osköpunum og sl. laugar-
dag, þegar heimaliðin
töpuðu ekki leik. En
erfiður verður seðillinn og
skemmtilegur og við
skuium aðeins líta á
leikina.
Það er fyrst og fremst leikur
Leeds og Liverpool, sem athygli
vekur. Bæði liðin eru með
Evrópuleiki i þessari viku —
Liverpool lék reyndar i Þýzka-
landi i gær — en Leeds leikur
heima i kvöld gegn tyrknesku liði.
Eitt stig skilur liðin að i fyrstu
Alan Gilzean, skozki landsliðs
maðurinn, er alitaf hættulegur
meö skalla, þó árin færist yfir
hann og hárið þynnist. En á þess-
ari mynd hefur markvörður West
Iiam, Peter Grotier, betur og
hirðir knöttinn af skalla Gilzean.
Myndin var tekin i viðureign
Lundúnaliðanna sl. laugardag,
þegar Tottenham sigraði 1-0.
deild, en Leeds er þó sigurstrang-
legra, þar sem liðið hefur unnið
fjóra leiki heima og gert eitt jafn-
tefli — engum tapað, en Liverpool
er engan veginn sannfærandi á
útivelli. Einn sigur, tvö jafntefli
og tvö töp.
Þá ætti leikur Derby og Totten-
ham að bjóða upp á mikla spennu
— einnig leikur Everton og
Newcastle. Arsenal hefur ekki
gengið allt of vel með Dýrlingana
frá Southampton, en leikmenn
liðsins hafa fyrir miklu að berj-
ast og sigur gegn Dýrlingunum
þýðir sennilega efsta sætið i 1.
deildinni, og það gefur af sér tals-
verða peninga fyrir leikmenn.
Leikirnir á seðlinum eru þessir
og fyrir framan þá er lausleg spá
blaðsins.
1 Arsenal—Southampton
2 Coventry—Chelsea
x C. Palace—Norwich
2 Derby—Tottenham
x Everton—Newcastle
1 Ipswich—Leicester
1 Leeds—Liverpool
1 Manch. City—WBA
x Sheff.Utd.—Manch.Utd.
1 West Ham—Birmingham
1 Wolves—Stoke
1 Q.P.R.—Cardiff
Þýzku meistarornir
í handknattleik
leika hér 3 leiki!
Göppingen kemur hingað á fimmtudag
Þá er handknattleikurinn
að hefjast á ný og það verða
ekki neinir smáleikir, sem
leiktimabilið hefst á að
þessu sinni. Þýzku meistar-
arnir Göppingen eru að
koma i heimsókn og leika
þrjá leiki um helgina — við
íslandsmeistara Fram, FH
og islenzka Olympiuliðið.
Það er handknattleiksdeild Fram,
sem stendur að þessari heimsókn og
hún hefur ekki ráðizt á garðinn þar
sem hann er lægstur — fengið hingað
til keppni eitt kunnasta handknatt-
leikslið heims. Göppingen hefur tvi-
vegis orðið Evrópubikarmeistari og
hefur oftsinnis orðið þýzkur meistari
og er það nú — vann hið fræga lið
Gummersbach með 14-12 i úrslita-
leiknum I vor.
I liði Göppingen eru margir frægir
leikmenn og nokkrir, sem léku i vest-
ur-þýzka Olympiuliðinu i Munchen.
Má þar til dæmis nefna Uwe Rathien
markvörð sem leikið hefur 30 lands-
leiki og átti mesta heiðurinn af þvi, að
lið hans varð þýzkur meistari i vor,
Peter Bucher með 46 landsleiki og
Max Muller, fyrirliða liðsins, sem leik-
ið hefur 51 landsleik fyrir Vestur-
Þýzkaland. Einnig er i liðinu leikmað-
ur, sem þunnur er hér — Austurrikis-
maðurinn Christian Patzer, sem leikið
hefur 62 landsleiki fyrir Austurriki,
meðal annars gegn íslandi i heims-
meistarakeppninni 1969 og i
undankeppni Olympiuleikanna á Spáni
i ár.
Þetta þýzka meistaralið mun leika
hér þrjá leiki. Hinn fyrsti verður á
úföstudagskvöld við tslandsmeistara
:Fram, sem þar fá góða æfingu fyrir
Evrópuleikina við danska meistara-
liðið Stadion siðast i október. Eins og
kunnugt er þá er fyrirhugað, að báðir
leikirnir við Stadion verði hér i
Laugardalshöllinni. Leikur Fram og
Göppingen hefst kl. 20.30.
Á laugardag leikur Göppingen svo
við hið léttleikandi lið FH-inga og ætti
það einnig að geta orðið skemmtileg
viðureign. Siðasti leikur þýzka liðsins
verður svo við islenzka Óíympiuliðið,
sem lék i Miinchen og að þvi bezt er
vitað verða allir Olympiufararnir með
nema Gisli Blöndal, sem verður jafn-
vel frá handknattleik i allan vetur.
Nánar verður sagt frá heimsókn þýzka
liðsins i föstudagsblaðinu.
Peter Bucher, þekktasti leikmaður Göppingen, sem leikið hefur 46 landsleiki og var
í Olympiuliði Vestur-Þýzkalands í MUnchen. Hann er örvhentur linuspilari og er
þarna annar til vinstri á myndinni.
Arsenal með 14 stig
Arsenal skauzt upp að hliðinni á
Liverpool og Tottenham i gærkvöldi,
þegar liðið sigraði Birmingham í 1.
deildarleik á Highbury i gærkvöldi
með 2-0.
Charlie George kom nú loks inn i iið
Arsenal á ný og átti stórgóðan leik.
Hann skoraði annað mark liðsins, en
hitt skoraði Peter Storey. Arsenal hef-
ur nú 14 stig.
i UEFA-bikarkeppninni tryggði
Liverpool sér sæti i 2. umferð með þvi
að gera jafntefli við Eintracht, Vestur-
Þýzkalandi i gærkvöldi i Frankfurt.
Ekkert mark var skorað i leiknum en i
fyrri leiknum i Liverpool sigruðu
brezku leikmennirnir með 2-0.
Þá er svissneska liðíð Grasshoppers
frá Ziirich einnig komið i aðra umferð.
Það sigraði franska liðið Olympique
frá- Nimes í gærkvöldi i Sviss með 2-1.
Fyrri leikinn vann svissneska liðið
einnig með sömu markatölu.
Valur íslandsmeistari
Valur varð tslandsmeistari < fjórða
aldursflokki i knattspyrnu i gær-
kvöldi. Þá mætti Valur liði Breiða-
bliks úr Kópavogi og var leikið á
Melavellinum.
Eftir allskemmtilegan leik nokkuð
jafnra liða urðu úrslit þau, að
strákarnir úr Hliðunum skoruðu eina
markið i leiknum og nýr bikar bættist
þvi við safnið i Hliðarenda. Nú er að-
eins eftir að fá úrsiit i 2. aldur'sflokki i
islandsmótinu.
1972
9
Víkingur
í Varsjá
Þeir frœgu leika í dag
Þá er komið að siðasta stór-
leiknum við erlent lið hér heima
á þessu sumri — og það er leikur,
sem margir hafa beðið eftir, leik-
urinn við Real Madrid, frægasta
knattspyrnufélag heims.
Síðari leikur liðsins við Keflvik-
inga i Evrópukeppni meistaraliða
hefst kl. 5,30 á Laugardalsveli-
inum og verður leikurinn að byrja
svo snemma vegna þess hve
birtu er farið að bregða snemma.
Laugardalsvöllurinn hefur að-
eins lagazt siðustu daga og ef
veður helzt þurrt í dag ætti að
vera allt i lagi með völlinn — hann
cr betri en verið hefur i siðustu
leikjum.
Bæði. liðin verða með sitt
sterkasta lið og eftir lciknum i
Bikarmeistarar Vikings leika
siðari leik sinn i Evrópukeppni
bikarhafa gegn Legia i Varsjá I
Póilandi i kvöld.
Legia er eitt af sterkustu liðum
Evrópu og verður þvi við erfiðan
reip aö draga fyrir Vikinga. Þeir
héldu utan á sunnud og komutil
Varsjá daginn eftir. Allir þekkt-
ustu ieikmenn Víkings eru með i
förinni nema fyrirliöinn Gunnar
Gunnarsson, sem komst ekki
vegna anna. Þetta er fyrsti leikur
Vikings á erlendri grund I fjöl-
mörg ár og ef liðinu tekst jafn vel
upp og i fyrri leiknum gegn Legia
ættu úrslit ekki að veröa mjög
óhagstæð — þó svo leikurinn sé
mjög hættulegur.
Madrid á dögunum að dæma ætti
að geta orðið um mjög skemmti-
lega viðureign að ræða. Keflvlk-
ingar eru ákveðnir i að selja sig
dýrt i leiknum — ná jafnvel stigi
af hinum frægu mótherjum
sinum. Forsala á aðgöngumiðum
cr við Útvegsbankann i dag.
HEKLA hf.
Laugavegi 170—172 — Simi 21240.
Volkswagen bilarmr at ,,gerö I" eru
óvenjulegastir en þó þekktustu og eftir-
sóttustu Dilar heims.
tnn þá einu sinni hafa þeir skarað fram
ur; - þegar 15.007.034 þíllinn af sömu
gerð kom úr framleiðslu, þá var sett
heimsmet.
Leyndarmálið á bak við þennan heims-
meistaratitil, er uppbygging bilsins, sem
þegar er ævintýri likust; traustleiki hans,
ending - örugg þjónusta, og siðast en
ekki sizt, hin marg-reynda grundvallar-
stefna Volkswagen: „Endurbætur eru
betri en breytingar".
SÝNINCARBÍLAR Á STAÐNUM
KOMIÐ - SKOÐIÐ REYNSLUAKIÐ
Enn þá einu sinm hafa endurbætur átt
sér stað. Sérstaklega á V. W. 1303 (t. h.).
Að utan: Stærri og kúptari framrúða,
stærri og hringlaga afturljósasamstæða.
Að innan: Nýtt, glæsilegt mælaborð.
I öllum „gerðum I" - (1200, 1300 og
1303) er ný gerð framstóla, með sérstak-
lega bólstruðum hliðum, sem falla þétt að
og veita aukið öryggi í beygjum. Fjöl-
margar og auðveldar stillingar.
Nýtt fersklofts- og hitunarkerfi, og betri
hljóðeinangrun frá vél.
V. W. ,,gerð 1“ erfáanleg með þremur
mismunandi vélarstærðum:
V. W. 1200 (til vinstri) 41,5 h.a.
V. W. 1300 (i miðju) 52 h.a.
V. W. 1303 (til hægri) 52 h.a.
V. W. 1303 S 60 h.a.
Það er sama hvaða V. W. ,.gerð I" þér
veljið. - þér akið á framúrskarandi bíl
ryi
ALLTAF FJOLCAR (\X/) VOLKSWACEN
ÁRGERÐ 1973 er KOMIN
VOLKSWAGEN
CERÐ I ' - 1200, 1300, 1303