Vísir - 18.10.1972, Page 1
MAFÍAN HEFUR TANGARHALD Á
100 LÖGLEGUM FYRIRTÆKJUM
— sjá bls. 5
«2. árg. — Miðvikudagur 18. október 1972. — 238. tbl.
Ríkisstjórnin boðar samdrátt
— sjá baksíðu
Togari bakkaði á varðskip
— minni háttar skemmdir ofanþilja, — en Aldershot verður að
sigla heim ítrekaðar tilraunir til að sigla skipið niður
— Auðvitað dauðlangar mig
lika til að taka þessa Breta. En
það eru bara aðrir sem ráða, ég
er bara stýrimaður hér um borð
eins og þú veizt, hvislar Pálmi
lllöðversson að verndargrip
sinum urn borð i flugvél Land-
helgisgæzlunna r. Tröllið
kinkaði kolli nieð samúð i svip
og starði dreymandi á svip út i
lnftið yfir gleraugun.
lJað er engin hætta á að tröllið
segi frá neinum þeim leyndar-
málum, sem Gæzlan býr yfir
enda eru gúmmidýr þögul með
afbrigðum. l>að er þvi óhætt i
liingu og tilbreytingarlausu
flugi að rabba við dýrið, vitandi
að það fer ekkert lengra.
Sjá frásögn á bls. 3 af átökum
við landhelgisbrjóta. -SB
Brezkur togari bakkaði á
fullri ferð á varðskip í
morgun norður við Hraun-
hafnartanga, en nokkur
brezku veiðiskipanna gerðu
sig líklega til að sigla á
varðskipið nokkru siðar, en
því tókst að komast undan
þeim. Skemmdir á varð-
skipinu urðu litlar, sagði
Hafsteinn Hafsteinsson hjá
Landhelgisgæzlunni um
hádegi i morgun, en togar-
inn, sem er Aldershot GY
612 verður að halda heim á
leið með minni háttar leka,
Sex brezkir togarar hifðu strax
upp vörpur sinar i morgun, þegar
varðskipið skipaði þeim að hætta
veiðum, en Aldershot þrjózkaðist
við þrátt fyrir itrekaðar aðvaran-
ir.
t>á var gerð aðför að togaran-
um. Þegar varðskipið nálgaöist
Aldershot setti togarinn Ross
Revenge GY 718 á fulla ferð á
varðskipið. Revenge var þá nýbú-
inn að taka upp vörpu sina.
Þrengdi togarinn nú svo aö varð-
skipinu, að þegar Aldershot setti
á fulla ferö aftur á bak, bakkaði
hann á varðskipið og kom með
afturendann nokkuð aftan við
miðju varðskipsins og fór aftur
með þvi.
Skemmdirnar urðu eins og fyrr
greinir minni háttar og ofan þilja,
en ekki var að sjá neinar
skemmdir á skrokk skipsins.
Engin slys urðu heldur á mönnum
að sögn þeirra i Landheglisgæzl-
unni.
Kftir atburðinn varð mikill at-
gangur i togurum þeim, sem
þarna voru að veiða, og voru
gerðar itrekaðar tilraunir til að
sigla varðskipið niður.
Kréttastofa AP sagði i hádeginu
að togarinn hefði fcngið 4 feta rifu
á kinnunginn nálægt stefninu rétt
fyrir ofan sjólinu. Atburðurinn
átti sér staö klukkan 9 i morgun,
en ekki var ljóst hvort varpan
hefði verið skorin frá togaranum.
— JBP —
Lukkutröllið þegir um hernaðarleyndarmálin
Tveggja USA-
þingmanna saknað
Einkaflugvélar með tveim
bandariskum þingmönnum
innanborðs er saknað, en
hennar var leitað i gær fram
á nótt i fjalllendi vestur af
Juneau i Alaska. Prátt fyrir
að leitarflugvélar greindu
hljóðmerki neyðarsendis,
tókst ekki að miða út, hvar
flugvélin væri niðurkomin.
Sjá nánar á bls. 5
★
Heróínsmyglarar
fœlast orðið
Miami
Eiturlyf jadeildir tollþjón-
ustunnar og lögreglunnar i
Bandarikjunum telja sig nú
sjá fram á einhvern árangur
af baráttu sinni gegn smygli
og dreifingu á eiturlyfjum.
Heróin verður smám
saman vandfengnara, enda
hefur tollgæzlan i Miami —
aðalflutningsæð eiturlyfja
inn i Bandarikin — hremmt
nær 800 pund af heróini á
siðustu 2 árum.
Sjá nánar á bis.6
★
Guðfaðirinn
sjá gagnrýni á bls. 7
★
Fremur
áhorfendur
en þátttakendur
í eiturlyfjasvallinu
islendingar eiga sina
fulltrúa i gömlu Kristjaniu i
Kaupniannahöfn, hippa-
hverfinu, þar sem eitur-
lyfjasjúklingar halda mest
til. En islenzku unglingarnir
eru miklu fremur
áhorfendur en þátt-
takendur og stunda vinnu
sina af mestu kostgæfni,
segir Ómar óskarsson úr
hljnmsveitinni Icecross i við-
tali við Visi, en hann og
félagar léku i hippahverfinu i
sumar.
Sjá bls. 4.
★
Stórhœtta á að
þrjú skip sykkju
— segja œfir
brezkir skipstjórar
l>að var þungt i þeim hljóðið
hrezku togaraskipstjórunum,
þegar við ræddum við þá,
þar sem þeir voru að
bardúsa á miðunum út af
Vestfjörðum i gærdag. „Við
höldum veiðum áfram, —
höfum nóg af veiðarfærum”,
sagði Spcarpoint skipstjóri,
sem var þá nýbúinn að missa
600 þús. króna vörpu i hafið.
— Við flugum lika yfir
togarana og mynduðum þá
og horfðum á aöfarir þeirra,
þegar reynt var að sigla Ægi
niður. — Bretinn kvað
aðgerðir Ægis hafa verið fifl-
djarfar og 3 skip og áhafnir
hafa verið i stórhættu.
—Sjá bls. 2.
AP um hádegi:
„Skotið
að
togara"
Ap-fréttastofan segir,
að heimildir í London
fullyrði, að íslenzkt
varðskip ,,hafi skotið"
að einum brezkum
togara.
Varðskipið Óðinn
hafi skipað togaranum
Wyre Vanguard að
stöðva og skotið
þremur skotum í
grennd við togarann,
þegar þvi var ekki
hlýtt.