Vísir - 18.10.1972, Blaðsíða 13
Yisir Miðvikudagur 1S. október. 1972 __________ .______________ 13
| í DAG | í KVÖLP | í DAG | í KVÖLD | í DAG |
Kannski á þessi ungi maður eftir að verða siðhærður bitill
Sjónvarp í kvöld kl. 20.30:
HÁR ER HÖFUÐPRÝÐI
Mikið hefur verið fárazt út i
siða hárið hjá ungu mönnunum
siðan lubbinn komst i tizku. En oft
er það, að þeir sem hæst láta, eru
aðeins öfundsjúkir út i þessa með
siða hárið, vegna þess að ekkert
cða litið sprettur á hausum
þeirra sjálfra. Nú munu samt
flestir vera orðnir sammála um,
að sitt hár getur verið mjög
fallegt, jafnt hjá körlum sent
konum, ef það er vel snyrt og
hreint. Siða hárið hjá karl-
mönnum er nú samt ekkcrt nú-
timafyrirbrigði, allavega höfðu
flestir kappanna i islendingasög-
unum myndarlegan hárvöxt.
i kvöld er á dagskrá sjónvarps
þáttur, sem fjallar um hár-
vöxtinn og hártizkuna i léttum
dúr. Myndin er bandarisk og
nefnist ,,Hár er höfuðprýði”. i
myndinni er rabbað við sköllótta
menn og siðhærða og sýnt,
hvernig jafnt karlar sem konur
leggja sig fram við að halda hár-
vextinum og hárinu sjálfu í rækt.
Þá verður þróun hártizkunnar
rakin og hjátrú i sambandi við
hárið og hárvöxtinn rifjuð upp.
—ÞM
Sjónvarp í kvöld kl. 21,25:
Heigull í hórri
stöðu...
Allir kannast við Lce Marvin,
enda liefur hann leikið i fjölda
mynda sem sýndar hafa verið hér
á landi. bæði i bióutn og sjón-
varpi. Má þar nefna myndina
..Paint your wagon”, (Málaðu
vagninn þinn), en hún naut mik-
illa vinsælda, þegar hún var sýnd
hér. i þeirri mynd söng Lee
Marvin lagið ..Wondering star”,
sem hann söng seinna inn á plötu
og varð gifurlega vinsælt, aðal-
lega vcgna þess hve hann söng
falskt.
Lee Marvin fer með eitt af aðal-
hlutverkunum i myndinni
„Árásin”, sem sjónvarpið sýnir i
kvöld. Er það bandarisk biómynd
frá árinu 1965. Með hin aðalhlut-
verkin i myndinni fara þeir Jack
Palance og Eddie Albert.
Myndin gerist i seinni heims-
styrjöldinni og greinir frá þvi,
hvernig foringi nokkur ieiðir
menn sina úr i dauðann vegna
heigulsháttar sjálfs sin. Um leið
kemur hann fram hefndum á
þeim, sem hann telur sig'eiga
grátt að gjalda. —ÞM
i sumum hlutverkum sinum lék Lee Marvin hrotta og kaldrifjaða
glæpamenn, gagnstætt því sem við sjáum i kvöld. Þessi mynd er úr
kvikmyndinni,, The big heat” (1953). í þessari mynd drap hann í siga-
rettum á berum handleggjum stúlkna eöa skvetti sjóðandi heitu kaffi
framan i vinkonur sinar.
Útvarp kl. 21,30:
Hugsun
og sólar-
óstand séra
Böðvars
Útvarpssagan, „Bréf séra Böð-
vars” er á dagskrá útvarpsins i
kvöld kl. 21.30 og er það fimmti
lestur. Lesandinn er Þorstcinn
Gunnarsson leikari, en höfundur
sögunnar er Ólafur Jóhann
Sigurðsson.
Ilöfundurinn tjáði blaðinu, að
hann hefði lokið við að skrifa sög-
una i janúar 1965, en þá hafði
hann verið búinn að vinna að sög-
unni i igripum i ein fjögur ár.
Sagan var upphaflega mikið
lengri en hún er nú, og hafði höf-
undurinn oft breytt henni og
stytt.
i kvöld greinir frá hugsunum og
sálarástandi sr. Böðvars, þegar
hann kemur heim til sin að lokinni
gönguferö með konu sinni.
Ólafur lýsti ánægju sinni með
lestur Þorsteins á sögunni, enda
mun það vera samróma álit
þeirra, sem á söguna hafa
hlustað, aö lestur hans sé sérstak-
lega lifandi og skemmtilegur.
Siðasti lestur sögunnar er næst-
komandi föstudag. — ÞM
SJÓNVARP m~
MIÐVIKUDAGUR
18. október 1972
18.00 Teiknimyndir
18.15 Chaplin
18.25 Pétur og úlfurinn Ballett
eftir Colin Russel við tónlist
eftir Sergei Prókoffieff. Sin-
fóniuhljómsveit Islands
leikur undir stjórn Václavs
Smetáceks. Söguna segir
Helga Valtýsdóttir. Frum-
sýnt 22. marz 1970.
18.50 Hlé
I ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■
■ ■■■■■■ I
Spáin gildir fyrir fimmtudaginn 19. okt.
m
é
Nl
.... . rn
S-É
Tw
U
Hrúturinn, 21. marz—20. april. Góður dagur á
margan hátt, en þó vissara að fara gætilega og
láta ekki uppskátt um fyrirætlanir sinar við
hvern sem er, sizt i peningamálum.
Nautið, 21. april— 21. mai. Þér bjóðast einhver
viðskipti, að öllum likindum, girnileg á yfir-
borðinu, en einhverra hluta vegna er með öllu
óvist, að þú hafir nokkurn ábata af þeim.
Tviburarnir, 22. mai—21. júni. Flest virðist
ganga sæmilega i dag, en ef til vill verða ein-
hverjir erfiðleikar innan fjölskyldunnar, gallar
á samkomulagi eða þess háttar.
Krabbinn, 22. júni—23. júli. Mikið annriki i dag,
einhver mannfagnaður eða merkilegur atburður
ekki langt undan, og þú virðist á báðum áttum
hvað þátttökuna snertir.
Ljónið, 24. júli—23. ágúst. Eitthvað, sém þú
hefur gert þér nokkrar vonir um, virðist fara á
annan veg en þú gerðir ráð fyrir, þó ekki svo að
það verði eingöngu neikvætt.
Mcyjan, 24. ágúst—23. sept. Þú ættir ekki að
hafá þig mikið i frammi i dag, en fylgjast þvi
betur með öllu i kringum þig. Láttu ekki neinn
hagnast á þér peningalega.
Vogin,24. sept—23. okt. Góður dagur að mörgu
leyti, en ekki allt sem sýnist hvað við kemur
framkomu einhverra kunningja þinna við þig.
Hafðu augu og eyru hjá þér.
Drekinn, 24. okt—22. nóv. Mikiö annriki, en
öryggið ekki að sama skapi hvað peningahliðina
snertir. Gakktu vel frá öllum samningum og
skilmálum, sem snerta þau mál.
Bogmaðurinn,23. nóv.—21. des. Það gengur allt
fremur greiðlega i dag, en þó er eitthvað eitt,
sem^ekki er i lagi og ekki kemst i lag. Leitaðu að-
stoðar gamalla og reyndra vina.
Steingeitin, 22. des,—20. jan. Góður dagur, en
samt vissast að tefla ekki of djarft, að minnsta
kosti ekki þar sem um peninga er að ræða.
Gakktu tryggilega frá öllum samningum.
Vatnsberinn,21. jan,—19. febr. Gerðu ekki mikið
veður út af smámunum og reyndu að greina að-
alatriðin i sambandi við þau mál, sem þú þarft
að taka afstöðu til.
Fiskarnir20. febr.—20. marz. Þú virðist eiga um
eitthvað tvennt að velja og þarft að hugsa þig vel
um, áður en þú tekur ákvöröun. Þvi miður mun
timinn naumur.
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 llár er höfuðprýði
Bandarisk fræðslumynd,
þar sem fjallað er i léttum
tón um hárvöxt og hártizku.
Rætt er við sköllótta menn
og lokkaprúða og sýnt,
hvernig bæði karlar og kon-
ur leggja sig fram um að
halda „höfuðprýði” sinni i
rækt. Rakin er þróun hár-
tizkunnar á siðari timum og
rifjuð upp hjátrú i sambandi
við hárvöxt. Þýðandi Óskar
Ingimarsson.
21.25 Árásin (Attack) Banda-
risk biómynd frá árinu 1956,
byggð á leikriti eftir
Norman Brooks. Leikstjóri
Robert Aldrich. Aðalhlut-
verk Jack Palance, Eddie
Albert og Lee Marvin. Þýð-
andi Björn Matthiasson.
Myndin gerist i heimsstyrj-
öldinni siðari og lýsir þvi,
hvernig heigull i hárri stöðu
kallar dauða yfir liðsmenn
sina — og hefnd yfir sjálfan
sig.
23.10 Ilagskrárlok
ÚTVARP «T
MIÐVIKUDAGUR
18. október
14.30 Siðdegissagan „Draum-
ur um Ljósaland” eftir Þór-
unni Elfu Magnúsd.
Höfundur les (3).
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
15.15 islen/.k tónlist:
16.15 Veðurfregnir- Siðasta
ferð min yfir Smjörvatns-
heiði.Árni Benediktsson les
minningarþátt eftir Bene-
dikt Gislason frá Hofteigi.
16.40 Lög leikin á trompet.
17.00 Fréttir. Tónleikar.
17.30 Sagan: „Fjölskyldan i
llrciðrinu” eftir Estrid ött
Sigriður Guðmundsdóttir
les (9).
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Daglegt mál. Páll
Bjarnason menntaskóla-
kennari flytur þáttinn.
19.35 Alitamál Stefán Jónsson
stjórnar umræðuþætti
20.00 Pianósónata nr. 28 i A-
dúr op. 101 eftir Beethoven
Artur Schnabel leikur.
20.20 Sumarvaka-
21.30 Útvarpssagan: „Bréf
séra Böðvars” eftir Ólaf Jó-
hann Sigurðsson-Þorsteinn
Gunnarsson leikari les (5).
22.00 Fréttir.
22.15 Veöurfregnir. Kvöldsag-
an: „Oskasteinninn”, smá-
saga eftir Rósu Einarsdótt-
ur frá Stokkahlöðum. Sig-
riður Schöth les.
22.30 Djassþátturf umsjá Jóns
Múla Árnasonar.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.