Vísir - 18.10.1972, Page 8
Uiif'linKalandslift islands i knaltspyriiu ásaml unglinganefnd KSi. Akurnesing arnir i liftinu koniust ekki á æfinguna i gærkvöldi. Ljósmynd Bjarnleifur.
Tekst þeim að komast í
úrslit Evrópukeppninnar?
- Unglingalandslidið heldur til Luxemborgar á föstudag og leikur þar á sunnudag
áhuginn skein úr hverju andliti. Þarna
voru margir piltar. sem þegar hafa
vakih verhskuldaða athygli meh liðum
sinum — flestir orðnir leikreyndir þó
ungir séu.
I hópnum sem fer til Luxemborgar,
eru t(i leikmenn allir fæddir siðari
hluta árs lf)54 eða 1955 - og nákvæm-
lega helmingurinn, eða átta þeirra,
léku i sigurkeppni Kaxaliðsins á Skot-
landi. Nokkrir nýir leikmenn bættust
svo við i hópinn. þegar leikið var i
Afmíismóti KSi með þátttöku erlendra
liða i sumar og þar sigraði islenzka
liðið þó svo unglingalið Celtic léki
þar. ()g siðan þá hefur tveim piltum
verið badt i hópinn. Fyrirliði islenzka
liðsins i sumar. Gisli Torfason. er einn
þeirra. sem getur ekki keppt gegn
Luxemborg vegna aldurstak-
markanna - varð 19 ára fyrir 1. ágúst
i sumar og fyrirliði landsliðsins nú
verður Gunnar Orn Kristjánsson.
Viking. sem verið hefur einn mark-
hæsti leikmaður liðsins undanfarin
sumur.
Kllefu piltanna. sem leika i Luxem-
borg. hafa áður leikið i unglingalands-
liðinu. k>eir eru — og hafa allir leikið
tvo leiki - nema markvörðurinn Ar-
sæll Sveinsson. IBV, sem hefur leikið
cinu sinni i unglingalandsliðinu. Janus
Guðlaugsson. FH. Horvarður
Höskuldsson KR. Björn Guðmunds-
son. \iking. Guðmundur Yngvason.
Stjarnan. Ottó Guðmundsson KR.
Gunnar Örn Kristjánsson. Viking,
llörður Jóhannesson. Akranesi. Ásgeir
Sigurvinsson. tBV. sem einnig hefur
leikiðþrjá A-landsleiki fyrir ísland. og
Stefán Halldórsson. Viking.
I>eir. sem leika nú i fyrsta sinn i
unglingalnadsliðinu. eru Sverrir Haf
steinssori. KR. Grimur Sæmundsen.
Val. Logi Ólafsson FH. Hannes Lárus-
son. Val. Karl Fórðarson. Akranesi. og
Leifur Helgason. FH.
Fararstjórar verða Albert Guð-
mundsson. formaður KSÍ, og
unglinganefndarmennirnir þrir, Árni,
Gunnar og Hreiðar. Farið verður frá
Keflavikurflugvelli kl. 7.45 á föstu-
dagsmorgun og komið til Luxem-
borgar um hádegi. Liðið mun skoða
keppnisvöllinn siðari hluta dags og
óskáð hefur verið eftir þvi að fá að æfa
á vellinum, sem leikið verður á. t>að
yrði þá á laugardag.
Leikurinn i undankeppni hins árlega
alþjóðlega unglingamóts UEk'A hefst
kl. i:i.:ioá sunnudagog verður leikið á
E. Mayrisch Stadium i Esch-sur-
Alzette. Leikurinn verður forleikur að
leik Luxemborgar og Tyrklands i 2.
riðli undankeppni heimsmeistara-
keppninnar 1974. 1 þeim riðli eru auk
þessara tveggja landa Italia og Sviss.
Aðeins einn leikur hefur farið fram i
riðlinum og það var i Luxemborg.
italia sigraði þá liö Luxemborgar 4-0.
Annar leikur verður i riðlinum á
laugardag. Þá keppa Sviss og Italia.
íslenzka liðið heldur frá Luxemborg
daginn eftir leikinn — það er mánudag
— og verður komið til Keflavikur kl.
16.30.
Þaö var mikiö fjör á Mela-
vellinum i gærkvöldi og margir
leiknir piltar léku sér þar aö
boltunum. Siöasta æfing
unglingalandsliðsins i knatt-
spyrnu — leikmenn átján ára
og yngri — áöur en haldið
veröur til Luxemborgar á
föstudag. A sunnudag leika
piltarnirþar fyrri leik sinn viö
lið Luxemborgar i Evrópu-
keppni ung linga landsliöa, en
siöari leikurinn milli landanna
veröurhérá landi i april næsta
ar. Þaö liöiö, sem fer meö
sigur af hólmi i þessum
leikjum, kemst beint i úrslita-
keppni Evrópusambandsins
sem veröur háö á Italíu næsta
sumar. Þaöerþvi tilmikilsað
vinna og ef aö likum lætur ætti
islenzka líöiö aö fá italiuferð-
ina. Liöiö hefur öölazt mikla
reynslu siöustu árin og uppi-
staóa þess er enn Faxaliðið,
sem vann frægan sigur i keppni
a Skotlandi sumariö 1970.
l>að var mikill hugur i strákunum
þarna á Melavellinum. l>eir æfðu
undir stjórn þjálfaranna Gunnars
l’éturssonar og Hreiðars Arsælssonar.
sem jalnframt eru i unglinganefnd
KSt. ()g lormaður nefndarinnar. Árni
Ágústsson lramkva'mdastjóri KSt var
a ælingunni i fullum æfingaskrúða
spenntur og áhugasamur eins og
ungur strákur. l>etta var góð æfing og
Guminr Orn Kristjánsson,
landsliðsins.
fvrirliði
Reykjanes-
mót í hand-
knattleik
Reykjanesmótið i handknatt-
leik hefst i kvöld 18. október.
Keppt verður i iþróttahúsinu i
Hafnarfiröi i meistara-. 1. og 2.
flokki. en á Seltjarnarnesi i 3ja og
4. flokki.
Ryður Fram ennþá
hindrun úr vegi?
- Reykjavíkurmótið í handknattleik heldur áfram í kvöld
Reyk javíkurmótiö í
handknattleik heldur
áfram i Laugardalshöllinni
i kvöld. Stóra spurningin i
sambandi viö leiki
kvöldsins er hvort íslands-
meisturum Fram tekst að
ryöja enn einni hindrun úr
vegi á mótinu — sigra lið
Vikings, sem er eins og
Fram, taplaust í mótinu.
Þetta ætti aö geta oröiö
hörkuspennandi leikur og
ef Vikingur nær sér a strik
eru leikmenn liðsins hættu-
legir hvaöa liði sem er.
Leikur Vikings og Fram er hinn
fyrsti á dagskránni i kvöld og
hefst k). 20.15. Tveir aðrir leikir
verða i kvöld. 1 öðrum leik keppa
Ármann og bróttur — lið, sem
hafa sýnt ágæta leiki á mótinu, en
samt ekki uppskorið mikið af
stigum enda leikið hingað til að
mestu við efstu lið mótsins. En
bæði liðin eru i greinilegri fram-
för og likleg til afreka i vetur á Is-
landsmótinu.
Siðasti leikurinn i kvöld verður
milli Reykjavikur-meistara Vals
og KR. Eins og lið KR hefur
leikið i siðustu leikjum kemur
ekkert annað til greina en sigur
Vals. En kannski hrista KR-ingar
af sér slenið og fara að sýna
eitthvað á ný.
Á laugardaginn hefst keppni i
yngri flokkunum á Reykjavikur-
mótinu og verður það mikið mót.
AIls verða ellefu leikir a laugar-
dag — en á sunnudag verða 14
leikir i yngri flokkunum og svo
þrir leikir i meistaraflokki karla
á sunnudagskvöld.
Á laugardag hefst keppnin i
Laugardalshöllinni kl. fjögur og
eru fyrst tveir leikir samtimis i 2.
flokki kvenna. bá leika Valur-tR
og Fram og Ármann. Einnig
verða tveir aðrir leikir i þessum
flokki milli KR-l->róttar. og Fylki-
Vikings. Siðan verða fjórir leikir i
2 flokki karla og þrir leikir i 1.
flokki karla. Á sunnudag hefst
keppnin kl. tvö og verða fyrst
fjórir leikir i 3. flokki kvenna. þá
i'jórir leikir i 4. flokki karla. fjórir
leikir i 3. flokki karla og að lokum
tveir leikir i meistaraflokki
kvenna. Um kvöldið leika svo
Valur-Vikingur. ÍR-Ármann og
Fylkir-KR i meistaraflokki karla.
VÍÐA HM-LEIKIR í
iVRÓPU í KVÖLD
Danir hefja þátttöku sína i
heimsmeistarakeppninni i
knattspyrnu i kvöld og leika þá
gegn Skotlandi á Idretsparken i
Kaupmannahöfn.
Danir og Skotar eru i áttunda
riðli i Evrópu ásamt Tékkósló-
vakiu. Danska liðiö kom á óvart
i fyrra og sigraði þá Skotland í
Kaupmannahöfn 1-0, en sá leik-
ur var liður i Evrópukeppni
landsliða. Hins vegar er varla
hægtað reikna með þvi, að Dön-
um — en með liði þeirra leika
nokkrir atvinnumenn — tekist
að endurtaka sigurinn nú.
irland og Sovétrikin leika i 9.
riðli i kvöld og verður leikurinn i
Dublin. í þeim riðli er Frakk-
land einnig og á föstudaginn
vann Frakkland Sovétrikin 1-0 i
Paris. Það var óvænt gegn úr-
slitaliðinu i Evrópukeppninni i
vor,en franska liöið náði góðum
árangri i „litlu heimsmeistara-
keppninni" i Brasiliu i vor. Það
er i mikilli framför, aðallega
vegna Chiesa, kornungs leik-
manns, sem er eitt mesta efni,
sem hcfur komið fram i Frakk-
landi.
í sjötta riðli leika Búlgaria og
Norður-írland i Sofia, en þetta
er cinn sterkasti riðillinn i
Evrópu, þar sein Portúgal er
einnig meðal þátttakenda.
Fjórða liðið er frá Kýpur. Þetta
verður fyrsti leikur landanna i
riðlinum, en Portúgal hefur
þegar sigrað Kýpur tvivcgis.
Á morgun leika Spánn og
Júgóslavia i Las Palmas og er
það talinn lykilleikurinn i
sjöunda riðli. Þar leikur Grikk-
land einnig. Þetta verður fyrsti
leikurinn i riðlinum og bæði
löndin liafa mikinn hug á að ná
langt að þessu sinni. Hvorugt
komst í úrslitakeppnina 1970 i
Mexikó, og var það hvað óvænt-
ast i sambandi við undankeppn-
ina þá, þvi Spánn og Júgóslavia
liafa löngum verið stórveldi á
knattspyrnusviðinu.
Æft i flóöljósunum á Melavelli i gærkvöldi
Ljósmynd Bjarnleifur
— Na'sta sumar muii ég bæta
hcimsmctiö i loo metra grinda-
hlaupi i 17.3 sekúndum — eða
uni liálfa sekúndu — sagði
Olympiumeistarinn John Akii-
Bua frá Uganda á hlaðanianna-
lundi i Paris i gær. Hann sagðist
ekki vera i nógu góðri æfingu til
að geta gert sér vonir um að
haúa heimsmetið á Afrikju-
leikjunum i Nigeriu i janiiar.
Ilann hefur keppt litillcga i
Frakklandi mi en ekki náð um-
talsverðum árangri. John Akii-
Búa er 22ja ára lögregluþjónn
og sagði, að það sem hefði háð
sér mest i Munchcn-leikjunum
liefði verið að venjast gadda-
skóntini. sem liann hljóp á. En
hann var ánægður cftir að liafa
sett heimsmetið eins og sésl á
myndinni liér að ofan. John
hefur verið ha'kkaður i tign i
liigregluliði Uganda og gata i
höfuöhorginni. Kampala, liefur
verið skirð i höfuð hans.
Bikarleikir KSÍ
um aðra helgi!
- Frestað vegna utanfarar unglingalandsliðsins.
Úrslit í 2. flokki á Melavellinum í kvöld.
Vegna utanfarar islenzku
unglingalandsliðsins í
knattspyrnu verður ekki
hægt aö koma undanúr-
slita leik junum i Bikar-
keppni KSi á um næstu
helgi. Þrjú liðanna, sem
leika í undanúrslítunum,
FH, Vestmannaeyjar og
Valur, eiga leikmenn i ung-
lingalandsliðinu. Leikirniri
bikarkeppninni verða um
aðra helgi.
i kvöld verður hins vegar úr-
slitaleikurinn i 2. aldursflokki á
i gær var háður ágóða- og
hciöurslc ikur fyrir Jimmy
Greaves á Wliite Hart l.ane i
Lundúnum. Þar lék Tottenham
gegn hollenzka meistaraliðinu
Fejenoord og lék Greaves með
liði Totlenham. Úrslit urðu þau,
að Tottenham sigraði 2-1 og skor-
uðu þeir Greaves og Evans fyrir
liðið. Jiminy Greaves hefur lagt
skóna á hilluna fyrir nokkru. en
íslandsmótinu. Það verður flóð-
ljósaleikur á Melavelli milli
tveggja stórskemmtilegra liða,
Vestmannaeyja og Akraness. í
leiknum verða fjórir leikmenn,
sem leika með unglingalandslið-
inu á sunnudag bráðsnjallir
leikmenn eins og Ársæll Sveins-
son og Ásgeir Sigurvinsson, ÍBV,
llörður Jóhannesson og Karl
Þórðarson, ÍA.
Leikirnir i undanúrslitum
bikarsins verða laugardaginn 28.
október. Þá leika IBV og Valur i
Vestmannaeyjum og hefst leikur-
inn kl. þrjú, og á sama tima leika
Fll og ÍÍIK öðru sinni i undan-
liann lék lengi mcð Tottenham og
('helsea — markaskorari, sem
um gelur i enskri knattspyrnu.
Þá voru tveir leikir luiðir i 2.
dcild á Englandi i gærkvöldi.
Blaekpool og Aston Villa gerðu
jafntelli 1-1 á vesturströndinni, en
i Lundúnum sigraði ()Plt Fulham
2-0 og náði við það öðru sæti i
deildinni. Lcikiö var á leikvelli
Fulliam.
úrslitunum. Sá leikur verður i
Hafnarfirði, en lyrri leikur lið-
anna var sem kunnugt er i Kefla-
vik. Ef allt gengur upp a'tti úr-
slitaleikur llikarkeppni KSÍ að
geta farið Iram laugardaginn 4.
nóvember eða sunnudaginn 5.
nóvember á Melavellinum.
FUNDIR
Aðalfundur handknattleiks-
deildar Ilauka verður sunnudag-
inn 22. þessa mánaðar kl. tvö eftir
hádegi i Sjálfsta'ðishúsinu i
llafnarl'irði. Venjuleg aðalfund-
arstörf.
iþróttakennaralelag lslands
heldur lelagslund n.k. fimmtudag
kl. 20.30 að Hótel Esju.
Á fundinum verður rætt um
leikfimi- og limleikasýningu ÍKFI
og FSI i desembermánuði n.k. og
réttindamál iþróttakennara.
Svavar Helgason, framkvæmda-
stjóri Sambands islenzkra barna-
kennara, og Stefán Kristjánsson,
iþrótta fulltrúi Reykjavikurborg-
ar. munu mæta á fundinum.
Tottenham sigraði Fejenoord
Roy Bentley sparkað
1 gær var Roy Bentley rekinn
sem framkvæmdastjóri Swansea,
sem er neðst i 3. deild. Bentley
var áður fyrr einn kunnasti leik-
maður enska landsliðsins — lék
þar marga leiki — og var beztur
sem leikmaður Chelsea upp úr
1950. Góökunningi islenzkra
knattspyrnumanna, Noel Cant-
well. hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Peterbro og liðið
vann strax sinn fyrsta leik undir
stjórn hans. Cantwell var áður
leikmaður hjá West Ham og
Manch. Utd. og fyrirliði irska
landsliðsins m.a. sem lék hér
1962. Hann var framkvæmda-
stjóri Coventry i þrjú ár, en var
Iátinn vikja úr þeirri stöðu i vor.
Þá hefur Stoke City boðið
Derby County um 100 þúsund
sterlingspund i Terry Hennessey,
annan miðvörð Derby. Derby
keypti Hennessey fyrir 110 þús-
und pund frá Nottm. Forest fyrir
nokkrum árum. en hann hefur
ekki unnið fast sæti i liði Derby
þar til nú — mest vegna meiðsla.