Vísir - 09.11.1972, Blaðsíða 9
Vísir. Fimmtudagur 9. nóvember 1972
Visir. Fimmtudagur 9. nóvember 1972
iBMM
Haukar með annan
fótinn í 1. deild
— sigruðu Gróttu i gœrkvöldi með ótta marka mun, 17-9
Steión Jónsson, landsliösmaburinn i Haukaliöinu, hefur komizt framhjá Kristmundi og skorar eitt af mörkum Hauka i gær. Ljósmynd Bjarn-
lcifur.
386 skráðir iðkendur í
handknattleik í USA!
— en í heiminum eru virkir
taldir tœplega tvœr
þátttakendur í handknattleik
og hálf milljón manna
í þeim 47 löndum, sem
aðild eiga að Alþjóða-
handknattleikssam-
bandinu, eru tæplega
tvær og hálf milljón
virkir þátttakendur i
handknattleiksiþróttinni
— kaiiar og konur. Karl-
menn eru 921.794, en
konur 212.242, sem
stunda iþróttina og ung-
lingar eru 1.236.140.
Kélög i þessum 47
löndum, sem handknatt-
leik hafa á stefnuskrá
sinni, eru 121.014.
1 Sovétrikjunum iðka flestir
handknattleik. Þar eru félög
20.600 og virkir þátttakendur
790.000 eða næstum einn þriðji
þeirra, sem iðka handknattleik i
heiminum.
Vestur-Þýzkaland er i öðru sæti
með 469.000 þátttakendur, en þar
eru félögin flest eða 23.017.
Siðan kemur Spánn með 150.000
iðkendur, Kina með 145.000, Dan-
mörk 114.000, Austur-Þýzkaland
með 108.000, Frakkland 81.000,
Japan 69.000, Holland 67.000,
Sviþjóð 57.000 og Kanada með
fimmtiu þúsund iðkendur i hand-
knattleik.
LEIKFIMI
búningar
Ballettbúningar kvenna
Verð frá kr. 340,00
Stutterma og langerma
Margir litir
Strigaskór
Stuttbuxur — Bolir
Sokkar.
SP0RTVAL
HLEMMTORGI simi 14390
I
Allt til íþrótta
Júgóslavia, sem hlaut
Olympiumeistarana i handknatt-
leik á leikunum i Munchen i
sumar, en i tólfta sæti meö 47
þúsund virka þátttakendur i
handknattleik.
Minnsta sambandið innan al-
þjóðasambandsins er Brazilia.
Þar eru iðkendur handknattleiks
266 talsins. 1 Bandarikjunum
Norður-Ameriku er aðeins
skráðir 386 handknattleiksiðk-
endur.
Hér á Islandi voru iðkendur i
handknattleik 6161 árið 1971 sam-
kvæmt skýrslu Iþróttasambands
Islands. Það ér önnur fjöl-
mennasta iþróttagreinin hér á
landi.. Knattspyrnan er i fyrsta
sæti með 10,407 iðkendur.
Leikurinn i gærkvöldi var
slakur. Haukar þó áberandi
sterkari aðilinn — einkum i vörn
— en það er greinilegt, að
margir leikmanna Hauka verða
að ná af sér nokkrum auka-
kilóum ef þeir ætla að gera sér
von um árangur i 1. deildinni i
vetur.
Lið Gróttu á enn ekki erindi i
1. deild. Liðið er i mótun — ungir
leikmenn, sem margt eiga ólært
i handknattleiknum, en undir
stjórn landsliðsmannsins
Sigurðar Einarssonar þarf það
varla að kviða framtiðinni.
Leikmenn Gróttu voru meira
með boltann i leiknum i gær, en
sáralitill broddur i sóknar-
lotunum. Aðeins einn leikmaður
sem eitthvað verulega gat
ógnað með skotum, Halldór
Kristjánsson, áður leikmaður i
yngir flokkum Vikings.
Fyrri hálfleikurinn var jafn i
gær. Haukar komust þó nokkuð
fljótt i 3-1, en með þremur
mörkum i röð tókst Halldóri að
jafna þann mun og koma Gróttu
yfir i eina skiptið i leiknum 4-3.
það var á 16 min, og áður hafði
Grótta misnotað vitakast.
Haukar voru ekki beint heppnir
á þessum kafla — áttu nokkur
stangarskot. En Sigurður Jóa-
kimsson jafnaði og Haukar
sigu svo fram úr, 6-4. Þá tókst
Kristmundi að skora fyrir
Gróttu 6-5 og fékk rétt á eftir
tækifæri til að jafna. Þá komust
tveir Gróttumenn friir upp i
hraðupphlaupi. Skotið brást.
Haukar náðu knettinum og
7-5 i hálfleik.
Grétar Vilhelmsson skoraði
fyrsta markið-i siðari hálfleik
fyrir Gróttu, en síðan náði
Agnar Friöriksson —- einn af
landsliösmönnum tR i körfu-
boltanum.
Magnús og Valur dœma
tvo leiki erlendis!
PÓSt-
sendum
HLEMMTORGI simil4390
Handknattleiks-
dómararnir kunnu,
Magnús V. Pétursson
og Valur Benediktsson,
eru á förum til
Sviþjóðar og Noregs,
þar sem þeir munu
dæma tvo landsleiki-
Hér er um að ræða tvo lands-
leiki leikmanna 23ja ára og
yngri. Fyrri leikurinn verður á
sunnudaginn 12, nóvember i
Halmstad i Sviþjóð og leika
þar Danmörk og Sviþjóð. Hinn
leikurinn verður i Sandefjord i
Noregi á þriðjudag og mætir
danska liðið þar hinu norska.
Þeir Magnús og Hannes Þ.
Sigurðsson áttu að dæma þessa
leiki að þvi er upphaflega var
ákveðið, en Hannes getur ekki
farið utan vegna anna, og
kemur Valur i hans stað.
Samkvæmt samningi Hand-
knattleikssambands íslands við
önnur sambönd á Norður-
löndum dæma islenzkir dóm-
arar tvo leiki á Norðurlöndum
árlega og falla þessir tveir leikir
undir það samkomulag.
„Gerum okkar bezta
gegn Real í kvöld"
— Evrópuleikur ÍR og Real Madrid í Laugardalshöllinni
— iR-liöið í körfuboltan-
um hefur æft vel frá því í
sumarog ég held við getum
náð góðum árangri gegn
hinum þekktu leikmönnum
Real Madrid í Laugardals-
höllinni i kvöld. Allir eru
ákveðnir i að gera sitt bezta
sagði Agnar Friðriksson,
einn af landsliðsmönnum
ÍR, þegar blaðið náði tali af
honum í gær. Evrópuleikur
ÍR og Real Madrid i
meistarakeppninni i körfu-
bolta hefst kl. 20.15 í Laug-
ardalshöllinni í kvöld.
Agnar Friðriksson, sem er leik-
reyndastur IR-inga með 23 lands-
leiki, bætti við, að hann hefði
hrifizt mjög af leikmönnum
spánska liðsins á æfingu hér i
Laugardalshöllinni. — „Þetta eru
menn, sem kunna sitt fag, enda
ber árangur liðsins það með sér.
Það verða engir aukvisar,
Evrópumeistarar i körfuboltan-
um fjórum sinnum á nokkrúm
árum”.
I liði IR — núverandi íslands-
meistara — eru fjórir landsliðs-
menn auk Agnars — þeir Birgir
Jakobsson, sem leikið hefur 13
landsleiki, Sigurður Gislason með
9landsleiki, Kristinn Jörundsson,
fyrirliði, sem bæði er Islands-
meistari i knattspyrnu og körfu-
bolta, hefur leikið tiu landsleiki
og Anton Bjarnason er með fimm
landsleiki. Anton gekk yfir i raðir
lR-inga i sumar, en hann lék áður
með Héraðssambandinu Skarp-
héðinn. Anton var einnig hér áður
fyrr landsliðsmaöur i knatt-
spyrnu, þegar hann lék sem
miðvörður með Fram.
Leeds-málið
til dómara!
Stjórn enska knattspyrnusam-
bandsins ákvað i gær aö láta
Leeds-máliö svonefnda fara fyrir
dómstóla. Eins og skýrt hefur
verið frá hér i opnunni birti eitt
ensku sunnudagsbiaöanna á sin-
um tima frásögn og viötöl viö
leikmenn Úlfanna, sem boöið
hafði veriö fé fyrir aö tapa
deildaleiknum við Leeds sl. vor.
Sigur i þcim leik fyrir Leeds
hefði þýtt sigur I deild og
bikar, cn scm kunnugt er tapaði
Leeds siöasta leiknum á leiktima-
bilinu i Wolverhampton. Mjög fá-
titt er aö slik mál komi til kasta
dómstóla — hefur reyndar ekki
gerzt siðan 1964, þegar nokkrir
leikmenn voru dæmdir i fangelsi
fyrir „svik i sambandi viö get-
raunaleiki”.
Aðrir leikmenn IR i kvöld verða
Kolbeinn Krstinsson, Þórarinn
Gunnarsson, Þorsteinn Guðna-
son, Finnur Geirsson, Einar
Sigfússon, Jón Jörundsson og
Pétur Böðvarsson, en Pétur skipti
einnig um félag i sumar eins og
Anton.
1 liði' Real Madrid eru nokkrir
af kunnustu leikmönnum Evrópu
— leikmenn, sem leikið hafa i
úrvalsliðum Evrópu með ágætum
árangri. Má þar nefna Emiliano
Rodriguez, sem oft hefur verið
valinn „bezti leikmaður Evrópu-
keppninnar”. Hann hefur 175
landsleiki að baki og oft verið i
úrvalsliðum Evrópu. Hann
verður nr. 10 i kvöld og talan 10
loðir talsvert við hann, þvi
Rodriguez skoraði að jafnaði 10
stig i leik á siðasta keppnistima-
bili.
C. Luýk hefur leikið 99 lands
leiki og er merktur tölunni 13 og
er 2.03 metrar á hæð. Hæsti
maður liðsins er hins vegar
Rafael Rullan, 2.11. metrar og
hann hefur leikið 50 landsleiki
fyrirSpán. Luyk er yfirleitt mesti
skorari liðsins með 20 stig að
jafnaöi á siðasta leiktimabili. Þá
má nefna Vincente Ramos, sem
ekki er hávaxinn i þessum félags-
skap, 1.80 metrar, en afar skæður
leikmaður. Hann hefuroft leikið i
úrvalsliði Evrópu og hefur að
baki 75 landsleiki fyrir Spán.
þar ættu þó að vera fyrir hendi,
ef vel er á málum haldið.
Mörk Hauka i gær skoruðu
Stefán og Þórður 4 hvor,
Sigurður 3, Elias Jónasáon 3,
Ólafur Ólafsson 2 og Guð-
mundur Haraldsson eitt. Fyrir
Gróttu skoruðu Halldór 3, Krist-
mundur og Grétar 2 hvor, Þór
og Sigurður Pétursson eitt hvor.
Dómarar voru Magnús Péturs-
son og Valur Benediktsson og
komust vel frá leiknum.
Vetrarleikarnir
1976 ekki hóðir
í Bandaríkjunum
Vetrar-Olympiuleikarnir 1976
veröa ekki haldnir I Denver, Colo-
rado, í Bandarikjunum eins og
ákveöiö hafði vériö. t kosningun-
um á þriðjudaginn felldu ibúar
fylkisins tillögu um fjárveitingar
til Ieikanna. Eftir þaö ákvaö
fylkisstjórnin i Colorado aö hætta
viö framkvæmd leikanna.
Borgirnar Grenoble í Frakk-
landi, þar sem leikarnir voru
haldnir 1968, og Innsbruck i
Austurriki, en þar voru vetrar-
eikarnir 1964, hafa boðizt til aö sjá
um framkvæmd leikanna 1976.
Einnig hefur Vancouver i Kanada
endurnýjaö tilboð sitt, en á þingi
Alþjóöaolympfunefndarinnar var
Denver tekin framyfir Vancouv-
er, þegar vetrarleikunum var út-
hlutan á sinum tima. Þá hefur
einnig borizt tilboö frá Sviþjóö að
sjá um leikana 1976.
Vörn Gróttu mátti ekki lita augnablik af Þórði Sigurðssyni i gærkvöldi.
— þá mátti eins reikna meö knettinum i markinu Hér skorar hann eitt
af fjórum mörkum sinum. Ljósmynd Bjarnleifur.
Haukaliðið algjörum yfir-
burðum. Það skoraði næstu
fimm mörkin og markamunur-
inn jókst siðan jafnt og þétt. Sex
marka munur var eftir 13 min.
12-6 og munurinn komst mest
upp i tiu mörk. Þá voru aðeins
örfáar minútur til leiksloka og
Grótta skoraði tvö siðustu mörk
leiksins, Þór og Kristmundur.
I Haukaliðinu átti Stefán
Jónsson, landsliðsmaðurinn
kunni, þokkalegan leik og
Þórður var skotharður, en
þungur. Mesta athygli vakti
leikur Gunnars Einarssonar i
marki siðari hálfleikinn. Þó
Haukar sigruðu með yfir-
burðum á liðiö enn langt i þann
leik, sem það sýndi á siðasta
leiktimabili, og sá leikur nægði
ekki til að halda sæti i deildinni.
Það þarf þvi róttækar breyt-
ingar nú ef vel á að fara i vetur.
Grótta á fyrir höndum erfiða
baráttu i 2. deildinni i vetur —
en einhverjir sigurmöguleikar
Þó ekki sé hægt að
hrósa Haukaliðinu i
Ilafnarfirði fyrir þann
leik sem það sýndi i gær
i fyrri leiknum gegn
Gróttu um réttinn til að
leika i 1. deild næsta
keppnistimabil, má
telja vist, að það haldi
sæti sinu i 1. deildinni.
Ilaukar unnu stóran
sigur gegn hinum ungu
Seltirningum i iþrótta-
húsinu i Hafnarfirði 17-
9. Átta marka munur —
og það verður erfitt
fyrir Gróttu að sigra
Ilauka i siðari leik
liðanna á sunnudag á
Seltjarnarnesi, hvað þá
að vinna upp þennan
átta marka mun.
Celtic féll í Búdapest
Ungverski landsliðsmaðurinn
frægi hjá Ujpesti Dosza, Bene,
greiddi Glasgow Celtic rothögg á
upphafsminútum leiksins i
Búdapest i gær, þegar hann
skoraði tvivegis.
Skömmu siðar fékk Dosza vitaspyrnu, sem
skorað var úr og eftir aöeins 22 min. var staö-
an orðin 3-0. Þar með haföi ungverska liðið
unnið upp vel muninn frá fyrri leik liðanna i
Evrópukeppni meistaraliða. Celtic sigraði þá
2-1.
Skozka liðið sótti nær stanzlaust allan sið-
ari hálfleikinn, en tókst aldrei að koma knett-
inum i mark. Celtic, eitt bezta lið Evrópu sið-
ustu 6-7 árin, og Evrópumeistari 1967, er þvi
úr leik og má segja, að það sé ekki óvænt eftir
úrslitum fyrri leiksins að dæma. Albert Guð-
mundsson var eftirlitsmaður UEFA á hon-
um.
Erfitt hjó norsku
Víkingunum í Köln
Norsku Vikingarnir frá Staf-
angri — mótherjar ÍBV i UEFA-
bikarkeppninni — fengu heldur
betur skell þegar þeir léku siðari
leikinn gegn Köln i gær. Viking
sigraði i heimaleiknum 1-0, en nú
skoraði þýzka liðið niu mörk hjá
Erik Johannessen og úrslit urðu
9-1.
Þó segir hinn „frægi” íréttamaður NTB,
Egil Dietrich, að norska liöið hafi á löngum,
köflum i fyrri hálfleiknum haft algjöra yfir-
burði og s.taðan i leikhléi, 4-1 fyrir Köln, gefi
þvi „hárreisandi mynd af þvi, sem átti sér
staö”.
Hins vegar segir hann svo, að þýzka liðið
hafi skorað strax fimmta mark sitt á fyrstu
min. siðari hálfleiks og eftir það aðeins verið
spurning hve sigur liðsins yrði stór. Lokatöl-
ur hans frá leiknum voru 9-2 fyrir Köln og
lentu heimamenn NTB i hinum mestu erfið-
leikum með þá tölu þvi „allar aðrar frétta-
stofur sögöu 9-1” að sögn þeirra. Erik mark-
vörðurog bakvörðurinn Aamondt eru eirikum
skammaöir af NTB og kennt um tapið mikla.
Derby varðist Ben-
fica og Eusebio
Markvörður Derby County,
Colin Boulton, sýndi frábæra
markvörzlu i Lissabon i gær-
kvöldi og átti allan heiður af
þvi,að Derby hélt jöfnu við Ben-
liea 0-0. Úrsíitin frá fyrri leik lið-
anna.l-Ofyrir Derby nægðu þvi
ensku meisturunum vei til að
komast i 3. umferð.
Boulton bjargaði tvivegis á undraverðan
hátt skotum Eusebio, og auk þess komu mörg
djörf úthlaup hans i veg fyrir mörk. Leikir
Derby gegn Benfica hafa verið mikil upp-
reisn eftir lélegt gengi liðsins i 1. deild
heimafyrir.
Tottenham tapaði
en komst ófram
Án Martin Peters tókst Totten-
ham ekki að skora gegn griska
liðinu Olympiakos i Aþenu i gær i
UEFA-bikarnum. Griska liðið
sigraði með 1-0, en Tottenham
vann heimaleikinn 4-0 og heldur
þvi áfram i keppninni.
I keppni bikarhafa sigraði Leeds austur-
þýzka liðið Karl Zeiss Jena i Leeds með 2-0 i
gær. Nú sótti Leeds nær allan leikinn, öfugt
við það, sem var i Berlin á dögunum, þegar
liðin gerðu jafntefli 0-0. Alan Clarke fór hins
vegar illa með auðveldustu tækifæri og það
var ekki fyrr en i siðari hálfleik, að Leeds
skoraði. Fyrst bakvörðurinn Cherry og siðan
Mike Jones.
Mest kom á óvart i UEFA-keppninni i gær,
að hið fræga, hollenzka lið Fejenoord var
slegið út úr keppninni af OFK Belgrad. OFK
sigraði 2-1 i Belgrad i gær og eftir báða leik-
ina var markatalan jöfn 5-5, en OFK komst
áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.