Vísir - 11.11.1972, Qupperneq 3
Vísir. Laugardagur 11. nóvember 1972
3
STUÐNINGUR VIÐ 50 MÍLURNAR
- EÐA ATVINNULEYSI ELLA?
Ungur Knglendingur isem styður 1
Islendinga i landhelgisbarátt-■
unni) óskar eftir vinnu. Talar I
islenzku. Margl kemur til greina. m
Svar merkt ..Nóvember" sendist ■
augl.d ■ Visis fyrir 10. nóvember. B
Ungur Englendingur, (sem
styður Islendinga i landhelgis-
baráttunni), óskar eftir vinnu.
Þannig hljóðaði ein smáauglýs-
inga Visis i fyrradag. Ekki vitum
við. hvort pilturinn hafi fengið at-
vinnutilboð frá landhelgisgæzl-
unni eða einhverjum öðrum enn-
þá — okkur fannst bara aug-
lýsingin athyglisverð.
Englendingur þessi, — sem i
auglýsingunni lætur þess getið, að
hann tali islenzku — hefur ef til
vill heyrt getið um islenzku stúlk-
una, sem skýrt var frá hér i Visi,
að hafi vertö „fryst úti” i Eng-
landi vegna 50 milnanna. Og þvi
viljað vera þess fullviss, að sama
mæti honum ekki hér. Það er ekki
gott að segja.
En meðal annarra orða: var
kannaður hugur brezkra
trommuleikarans i Rifsberja til
landhelgisdeilunnar, áður en hon-
um var veitt atvinnuleyfið hér-
lendis? Kannski ráð að ganga i
það, áður en það verður endur-
nýjað...
—ÞJM
4 þúsund breytingar
órlega í símaskrónni
Nú er unnið af kappi að undir-
búningi fyrir útgáfu nýrrar sfma-
skrár. Frestur til að tilkynna
flutning búferla rann út um síð-
ustu mánaðamót, en enn eru að
berast bréf til Pósts og sima um
flutninga.
Meðaltal búferlaflutninga með
sima mun vera um 2.000 tilfelli á
ári. Þá bætast við milli 14-17
hundruð ný simanúmer á ári.
Ekki er hægt að komast hjá þvi
að gefa út nýja simaskrá á hverju
ári, þvi breytingarnar eru það
miklar árlega, að skráin er orðin
úrelt eftir árið. 1 Sviþjóð er verið
að gefa út simaskrár allt árið um
kring. Sviðþjóð er skipt i 24 svæði
og þarf að gefa út tvær nýjar
skrár fyrir hvert svæði árlega.
Þar eru það þvi tvær nýjar sima-
skrár, sem eru gefnar út mánað
arlega.
Nýja simaskráin mun koma út i
marz næstkomandi, en þá á sjálf
virka simstöðin i Breiðholtshverfi
að vera komin i notkun, en
breytingarnar á skránni vegna
Breiðholtshverfis eru gifurlegar.
— ÞM
„HANN" er að gefa sig — og nú á að lygna
.]
-
Að öllum likindum verða
Iíeykjavikurbúar heppnir með
veður um helgina. Veðurharkan
virðist ætla að dvina, að þvi er við
fregnuðum á Veðurstofunni, og
það gildir um mest allt landið.
1 Reykjavik verður áfram
norðan átt, en nokkur kaldi, og
hiti verður nálægt frostmarki.
Ekki virðast börnin geta fengið
tækifæri til þess að bregða sér á
skauta enn sem komið er, og þó
að eitthvað frjósi, verður það ekki
nógu mikið til þess að skautafæri
gefist.
Á Austurlandi virðist nokkuð
hlýtt, og sums staðar má búast
við 2-3 stiga hita. Ef til vill er ekki
beinlinis hægt að tala um hita, en
þar er þó „heitast” á landinu. Þar
getur þó orðið nokkur rigning,
þegar liður á helgina.
A Norðvesturlandi snjóar, og
þar er sjálfsagt orðið hið ákjósan-
legasta skiðafæri. -EA.
JÁ, VÍST ER HÚN HEIMSFRÉTT!
Heimsfrétt? Kannski ekki
beinlinis, og þó. Þannig var jú
tizkan árið 1971, og til að sýna
fólki seinni tima það, birtist
myndin i bókinni um ARIÐ 1971
i myndum og máli, sem er nú
komin i 6. sinn i íslenzkri útgáfu.
i bókinni er að finna margar af
frábærustu fréttaljósmyndum
heimsins þetta ár, —og svo eiga
islenzkir ljósmyndarar sinn
kafla aftast i bókinni.
Ekki vitum við, hvað stúlkan
heitir, né heldur hverrar þjóðar
hún er. En hins vegar er þess
verið álitin óholl á þvi herrans
ári 1971 —
getiö i textanum, að stigvél eins
og hún ber svo tignarlega hafi
MJWm
MIKIL KEPPNISGLEÐI
TVEGGJA ÓLYMPÍUFARA
í fjölmennasta haustmóti T.R.
sem um getur tefla 116 keppendur
9 umferðir eftir svissneska kerf-
inu. Að 5 umferðum loknum var
röö efstu manna þessi:
1.-3. Bragi Björnsson, Bragi
Halldórsson og Sævar Einarsson
5 vinn. 4.-7. Björn Jóhannesson,
Haraidur Haraldsson, Jón
Kristinsson og Jón Torfason 4 1/2
vinn.
Tveir Olympiufaranna, Jón
Kristinsson og Björn Þorsteins-
son eru meðal keppenda og er
ekki hægt annað en dást að
keppnisgleði þeirra. Björn hefur
tapað einni skák gegn Birni
Jóhannessyni og Jón varð aö láta
sér nægja jafntefli gegn ögmundi
Kristinssyni. Haraldur Haralds-
son hefur velt tveim skákjöfrum,
Ingvari Asmundssyni og Þráni
Sigurössyni og á vafalaust eftir
aö láta að sér kveða i framtiðinni.
t 6. umferð urðu úrslitin hjá
efstu mönnum þessi:
BragÞ Halldórsson 1 Haraldur
Haraldsson 0
Jón Kristinsson 1/2 Jón Torfason
1/2
Biðskákir urðu hjá Braga Björns-
syni og Sævari Einarssyni, Birni
Jóhannessyni 'Og Magnúsi Ólafs-
syni.
Þá skulum við lita á skemmtilega
skák frá mótinu.
Hvítt: Gylfi Magnússon
Svart: Sævar Einarsson
Caro-Can vörn
1. e4 c6
2. d4 d5
3. Rc3 dxe4
4. Rxe4 Bf5
5. Rg3 Bg6
6. Rf3 Rd7
(Svartur má ekki leyfa Re5.)
7. h4 h6
8. Bc4
(Þessi uppbygging þykir ekki
vænleg til árangurs eftir að hvitur
hefur leikið h4. Betra er talið 8. h5
Bh7 9. Bd3 Bxd3 10. Dxd3 Dc7 11.
Bd2 og hvítur stendur örlitið
betur 8. .) Rgf6
9. De2 e6
10. c3 Bd6
11. Re5 Bxe5
12. dxe5 Rd5
13. f4 Rc5
14. Be3 Bd3!
15. Bxd3 Rxf4!
(Með skemmtilegum vend-
ingum vinnur svartur alla-
vega peð. Leiki hvitur 16. Bxf4
Rxd3+ 17. Kfl Rxf4 og veikleik-
arnir I hvitu stöðunni segja fljótt
til sin)
16. Bxc5 Rxd3+
(Eftir 16... Rxe2 17. Kxe2 hefur
hvitur þrjá menn fyrir drottn-
inguna og töluvert spil)
17. Kfl Rxc5
18. Hdl Dc7
19. Rh5 Hg8
20. Hh3 Rd7
21. Hh-d3 0-0-0
(Ekki 21... Rxe5? 22. Hd6 Rg6
23. Dg4 og hvitur hefur góða
stöðu, þar eð svartur getur ekki
hrókað.)
22. Hd6 Rb6
23. Rg3 De7
24. Hxd8+
(Ef 24. Re4 Dxh4 25. Hxd8+
Hxd8 26. Rd6+ Kc7 27. Rxf7 Hf8
og vinnur.)
24. Hxd8
25. Hxd8+ Dxd8
26. Re4 Dxh4
27. Rd6+ Kb8
28. Rxf7
(Or þvi sem komiö er verður
hvitur að fara út í endatafl með
peði minna).
34. Kd2 Rxa2
35. Kc2 c5
36. Kb2 Rb4
37. cxb4 cxb4
38. Kc2
(Eða 38. Rh8 Kc6 39. Rg6 Kd5
og svartur á ekki í erfiðleikum
með að innbyrða vinninginn.)
28 . Df4+
29. Df3 Rd5 —
30. Dxf4 Rxf4
31. g3?
(31. Rd6 Rd3 32. Re8 veitti
meiri mótspyrnu, þvi það er
hvitum i hag að fá uppskipti á
peðum.)
31 Rd3
32. b3 Kc7
33. Ke2 Rcl+!
(Mannsfórn, þvi riddarinn á
ekki afturkvæmt frá drottningar-
vængnum.)
38. b5
39. Kd3 a5
40. Kd4 a4
41. bxa4 bxa4
42. Kc4 b3
43. Rd6 b2
44. Rb5+ Kc6
45. Rc3 h5
(Fjarlæga fripeðið ræður rétt
einu sinni úrslitum.)
46. Kb4 g5
47. Kxa4 h4
48. Kb3 h3
Hvítur gafst upp
Jóhann örn Sigurjónsson.