Vísir - 11.11.1972, Blaðsíða 16

Vísir - 11.11.1972, Blaðsíða 16
Laugardagur 11. nóvember 1972 Brezkir í vari við Grœnuhlíð Brezkir togarar hafa ekkert getað aðhafzt undanfarna daga vegna óveðurs. llafa þeir oröið að leita landvars. — en þeir eru flestir úti af Vestfjörðum. Þannig var i gærkvöldi, að yfir 20 brezkir togarar lágu i vari undir Grænuhlið i Isafjarðar- djúpi. Varðskip munu lítt hafa amazt við þeim þar. Vegna veðurs hefur ekki verið hægt að fara i eftirlitsflug og þvi ekki vitað um heildarfjölda erlendra togara við landið. -SG. Vegir flestir fœrir ó Suðurlandi Að sögn vcgagerðarinnar voru vcgir á Suðvcsturlandi flestir vel færir seinnipartinn i gær, en tals- verð hálka var á vegunum. Á Norðurlandi var hins vegar mikil ófærð. Brattabrekka og Svinadalur eru lokaðir. Vegurinn um Gilsfjörð var einnig ófær. Erfiðlega gekk að aðstoða bila á Holtavörðuheiðinni, en veður var þar mjög vont. Opnað var á Holtavörðuheiðinni um kl. 3 i gær, en þar er aðeins fært stórum bilum. Sæmileg færð er um Skaga- fjörðinn. öxnadalsheiði er rudd og er þvi fær. Var þar mikill lausasnjór og snjóaði þar mikiö. Logn var þar, en ef hvessti, mundi vegurinn lokast sam- stundis. Erfið færð var á milli Húsavikur og Akureyrar. Möðru- dalsöræfi eru ófær öllum bilum. Vegir i byggð á Austfjörðum voru flestir færir, en fjallvegir ófærir. - Þm Nafnlaus gefur 100 þúsund Ekki hrjáir sýndarmennskan óþckktan mann, sem sendi 100 þúsund króna gjöf til Krabba- nieinsfélags tslands. Enginn, nema gefandinn sjálfur, vcit hvcr hann er, þvi að peningarnir voru sendir nafnlaust. Það furðulega er, að þetta er i annað skiptið á skömmum tima, sem þetta kemur fyrir. — Það er ef til vill svartsýni á mannlega gæzku að segja, að þetta se'furðu- legt, en allavega er svona lagað ekki algengt. Margur gefandinn, með allri virðingu fyrir þeirra góða tilgangi, hugleiðir sjálfsagt, að þetta sé frádráttarbært til skatts, og svo er það nú ekki beinlínis skemmandi fyrir mannorðið. Krabbameinsfélag Islands vill koma á framfæri þökkum til þessa örláta vildarvinar sins. -Ló. Týnda telpan Var í strœtó Telpan, sem lýst var eftir i gærdag, cr nú komin fram. Hún fannst eftir tilvisun, scm lög- reglunni harst. klukkan rúmlega átta i gærkvöldi. Þegar telpan, sem er tólf ára, fannst, hafði hún verið að heiman frá sér i rúman sólarhring. Nú er komið i ljós, að hún var heima hjá vinkonu sinni um nótt- ina. I gærdag kom svo stúlka til lögreglunnar og tilkynnti, að þá týndu myndi að finna i al- menningsvagni uppi i Árbæjar- hverfi. Lögreglan i Arbæ var látin vita um þetta og stóð það heima, telpan var I almenningsvagnin- um. Að sögn lögregluþjóns i Ár- bæjarhverfi, sem talaði við telpuna á stöðinni, sýndist honum, að ekkert væri athuga- vert við barnið. -Ló. Ýsa og karfi hœkka veru- lega á Bandaríkjamarkaði Þorskblokkin stendur í stað, sennilega mest fyrir óvœntan afla Dana Verð fyrir frysta ýsu og karfa hefur farið mjög hækkandi á Bandarik ja markaði undanfarna mánuði og er nú t.d, svo komið, að meira verð fæst fyr- ir karfablokkina en þorskblokkina, eða um 50 sent fyrir pundið. Þvi miður hefur þetta ekki veruleg áhrif á verðmæti útflutnings okkar til Bandarikj- anna, þar sem magn af þessum fisktegundum þangað flutt hefur ver- ið sáralitið. Hækkunin, sérstaklega á karfanum, ætti þó að hafa áhrif, þegar til lengri tíma er litið. Þannig má búast við þvi, að meira verði nú verkað af karfa fyrir Bandaríkjamarkað. Einnig hlýtur mikil hækkun þar að hafa áhrif á það verð, sem samið verður um við Rússa, en þeir kaupa stærsta hlutann af frystum karfa. Ósennilegt er, að unnt verði að auka mikið útflutninginn af frystri ýsu, þar sem litill ýsuafli berst að. Um 10% af útflutningi okkar á Bandarikjamarkað er ýsublokk. Hún hefur nú hækkað á einu ári úr 46 sentum hvert pund i um 60 sent, eða um 25%. A sama tima hefur þorsk- blokkin aðeins hækkað um 2 sent, eöa úr 45 sentum i 47 sent. Mjög sennilegt má teljast að ýsan eigi eftir að hækka enn meir. Hún hefur að öllu óbreyttu veriðmun hærri en þorskblokk- in. Þannig fengust t.d. 36-37 sent fyrir pundið i ýsublokkinni i janúar 1970, en þá fengust að- eins 26-27 sent fyrir þorskblokk- ina. Eftir þetta fór verð á þorsk- blokk mjög ört hækkandi allt ár- ið 1970 og 71. Ýsan hækkaði hinsvegar mun minna, þannig að þorskblokkiri var um tima i hærra verði en ýsublokkin, sem var mjög óeðlilegt, enda er nú komið i ljós, að þaö tók ýsuna aðeins lengri tima að hækka i veröi en þorskinn. Ýmsir aðilar hafa orðið fyrir nokkrum vonbrigðum með, að þorskblokkin sky.ldi ekki hafa hækkað meira að undanförnu en raun er á. Helzta ástæðan fyrir þvi, að það hefur ekki gerzt, mun sennilega vera sú, að Danir hafa alveg óvænt fengið óvenju- mikinn afla i Eystrasalti. Þetta hefur orðið til þess, að útflutn- ingur Dana af frystri þorsk- blokk á Bandarikjamarkað hef- ur tvöfaldazt frá þvi i fyrra á fyrstu 9 mánuðum þessa árs, og eru þeir nú sú þjóðin, sem mest hefurflutt á Bandarikjamarkað af þorskblokk, hafa skotið bæði Kanadamönnum og Norðmönn- um aftur fyrir sig. Með útflutn- ingi Dana er talinn útflutningur Færeyinga og Grænlendinga. — VJ. LÖGREGLAN FLYTUR „YFIR GÖTUNA" Nú hverfur miðbæjarvarðstofa lögreglunnar úr Hafnarstrætinu, liinu alkunna aðsetri tiðustu við- skiptavina hennar. Þeir flvtja sig að visu ekki langt, laganna verðir, þeir verða áfram i sjón- ináli við sina gömlu stöð, sem uppliuflcga var byggð sem fyrsti barnaskóli i Iteykjavik. Þetta nýja miðbæjarútibú lög- reglunnar, ef svo má nefna það, er i austurenda tollstöðvar- byggingarinnar. Það er eins gott að fólk leggi þetta á minnið ef það þarf skjóta aðstoð á leið sinni um gamla miðbæinn. Blaðamönnum var boðið að sjá þessi húsakynni i gær, og reyndust þau vera hin vistleg- ustu. Tuttugu manns munu að staöaldri vinna i miðbæjarstöð inni, verða fjórar vaktir, fimm manns á hverri. Auk þessara fimm manna á vakt, verða oft aukamenn ofan úr aðalstöðinni við Hverfisgötu. Þetta verður aðallega um helgar. Fjórir varðstjórar hafa verið settir yfir vaktirnar. Þetta eru þó ekki nýir varðstjórar, tveir koma ofan úr Árbæjarstöð, og tveir úr gömlu lögreglustöðinni. Þessir menn eru Jónas S. Jónasson, Gisli Jónsson, Haukur Matthiasson og Gisli Björnsson. Að sögn lögreglustjóra mun fyrirhugað meira samstarf milli tolls og lögreglu, og er nýja stöðin vel staðsett til að fást viö verkefni á hafnarbakkanum. Hafa lögregluþjónar hjá sér tæki til að bjarga fólki úr höfninni og ýmis önnur hjálpargögn, sem geta komið sér vel, þegar minnst varir. Umdæmi eða yfirráðasvæði þessarar nýju stöðvar er eins og áður sagði miðbærinn, eða nokkurn veginn frá Garðastræti til Þingholtsstrætis. -Ló. llér sjáum við Sigurjón Sigurðsson lögreglustjóra standa við liliðina á hirzlu, sem hefur að geyma nokkur af þeim hjálpar- tækjum, scm lögreglan getur alltaf þurft að gripa til, ef voöa af ýmsu tagi ber að höndum. Þarna sjáum við þrjá hinna nýju varðstjóra ásamt Sigurjóni Sigurössyni lögreglustjóra. Varð- stjóraruir cru taldir frá vinstri: Gylfi Jónsson, Haukur Matthiasson og Jónas S. Jónasson. Á myndina vantar Gisla Björnsson. Kröfðust 435 þúsunda fengu 63 þúsund — borgin viðurkennir þó ekki skaðabótaskyldu sína vegna vatnstjónsins að Eyjabakka 16 Jens Þorvaldsson sýnir þarna hæðina á vatninu, sem náði upp að hurðarhúni, cins og sjá má. Borgarráð féllst nýverið á að gefa íbúum að Eyjabakka 16 kost á bótagreiðslum vegna tjóns, sem ibúarnir urðu fyrir i febrúarinán- uði sl. af völdum vatnságangs. Ilafði kjallarinn fyllzt af lcys- ingavatni, sem rann af nærliggj- andi lóðum, en 30 prósent þeirra lóða var ófrágengið land i eigu borgarin nar. Skemmdist ýmislegt i sameign, en jafnframt nokkuö muna i geymslum ibúa. Fóru þeir i skaðabótamál og kröfðust sam- tals 435 þúsund króna bóta. Vanur tryggingamaður var fenginn til að vega og meta kröf- urnar, en þegar til átti að taka, voru hinir skemmdu munir ekki allir til taks. Þvi var farin sú leið, þegar bótagreiðslur voru ákveðn- ar, að taka til greina 50 prósent bótakröfunnar að hætti vátrygg- ingafélaga við þessar aðstæður. Þar af reiknaðist svo 30 prósent hlutdeild borgarinnar i skaðan- um, og upphæðin, sem út úr þvi dæmi fékkst, var 63 þúsund krónur. Þrátt fyrir að borgarráð féllist á að ,,ljúka málinu” með þessum bótum frá sinni hálfu, var það tekið skýrt fram, að skaðabóta- skyldan á hendur borginni væri ekki þannig viðurkennd. Að mati sérfróðra aðila var frekari hættu af vatnságangi i leysingum afstýrt, er ibúar blokkarinnar höfðu gengið endan- lega frá gerð girðinga um lóðir sinar. —ÞJM.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.