Vísir - 16.12.1972, Blaðsíða 3
Visir. Uaugardagur 1 (>. desembcr 1!)72
3
„NÆSTA VERÐLAUNAHAFA
ÆTLA ÉG AÐ SENDA UM-
HVERFIS JÖRÐINA" -.............
— Kennslukona á Sauðárkróki vann Fiatinn í Winston-keppninni
,,Ég var fyrir iöngu búin að
gleyma þátttöku minni i Winston-
keppninni, þegar Rolf Johansen
hringdi i mig fyrir nokkrum
minútum og tilkynnti mér, að ég
hefði unnið Fiatinn,” sagði Disa
Dóra Hallgrimsdóttir, Sauðár-
króki, þegar Visir náði tali af
henni i gærkveldi.
,,Að sjálfsögðu er ég kát yfir
vinningnum og ætla að sækja bil-
inn suður á mánudaginn,” sagði
Disa Dóra — en bætti við, að hún
væri ekki alveg billaus fyrir. „Við
hjónin eigum Chevrolet Impala
frá i fyrra og hann hef ég að
mestu útaf fyrir mig, þvi hús-
bóndinn ekur flutningabil fyrir
Kaupfélagið á daginn.” —
Eiginmaðurinn, Gunnar B. Fló-
ventsson, er staddur i Ameriku
þ'essa stundina og má næstum
bóka það, að hvað svo sem hann
kanna að færa konu sinni frá út-
landinu, verður það frúin, sem
kemur honum meira á óvart við
heimkomuna.
Þau hjónin eiga tvö börn, sjö og
niu ára. „Eg sendi einnig inn
miða á þeirra nafni, en lét mig
aldrei dreyma um að eitthvert
okkar mundi vinna. Mér fannst
bara gaman að svara spurning-
unum. Maður spilar i svo mörg-
um happdrættum án þess að
vinna nokkrum tima, að maður er
hættur að leiða hugann að vinn-
insmöguleikum.”
Disa Dóra, sem er kennari við
bæði Iðnskólann og gagnfræða-
skólann á Sauðárkróki, fékk mið-
ana sina hjá Kjörbarnum á Sauð-
árkróki. Þar af leiðandi fellur
Mallorka-ferð fyrir tvo i skaut
Kjörbarsins.
Við spurðum Disu Dóru hvert
álit hennar væri á banninu við
sigarettuauglýsingum . Hún
kvaðst ekki hafa velt áhrifamætti
þeirra fyrir sér, en sagðist vera
fegin að vera hætt að sjá þær i
blöðum. „Þær komu svo viða irpi
á ósmekklegan hátt,” sagði hun.
Sjálf reykja þau bæði, hún og nús-
bóndinn. „Það hefur þó ekki verið
Winston,” svaraði hún aðspurð.
„Fast að sjö þúsund/ úrlausir
bárust i keppnina, eða sem næst
tiu prósent útsen'Öra miða,’’
upplýsti Rolf i viStali við Visi.
Fimm þúsund laúsnir kvað hann
hafa verið rétjÆir.
„Næstersyófyrirhugað að hafa
keppni uipr' hnattferðalag með
Pan Am,Ön það yrði um mánað-
arlöng ferð, og sú fyrsta, sem
veitt ej*' i verðlaun hérlendis, að
þvi eöég bezt veit,” sagði Rolf.
Auklverðlaun sagði hann verða
veitt þá, eins og nú.
, Og viðtalinu lauk ekki fyrr en
hann hafði farið orðum um aug-
lýsingabannið. „Ég viðurkenni,
að tóbak er skaðlegt, en mér
finnst samt sorglegt, að
Islendingar skuli fleygja frá sér
þeim 50 milljónum króna, sem
þeir gætu fengið í gjaldeyri, ef
blöð og iþróttafélög mættu aug-
lýsa tóbak. Sérhver tslendingur
hefur tóbaksauglýsingar hvort eð
er fyrir augunum i erlendum
timaritum, sem ekki eru lesin hér
i minna upplagi en innlend blöð og
timarit.”
— ÞJM
Fulltrúar borgarfógeta, þeir Jón Þóroddson og Ingólfur Sigurz lesa
nöfn vinningshafa á skrifstofu Rolf Johansen i gær. Með þvi fyigjast
skrifstofustúlkan, sem dró og Gunnlaugur Jónsson fulltrúi úr söludeild
umboðsins.
„STERKASTA
SKÁKMÓT
ÁRSINS"
„Kjúklingamótið” i San An-
tonio með görpum eins og Keres,
Petroshan, Karpov, Gligoric og
Portisch, svo fáir séu nefndir
verður að teljast eitt allra sterk-
asta skákmót ársins. Þó fannst
heimsmeistaranum Fischer held-
ur litið til þess koma og hafnaði
boði um þátttöku á þeirri for-
sendu að mótið væri of veikt. Ekki
jók verðlaunaféð (kr. 260.000.00)
áhuga meistarans, sem taldi það
smápeninga.
Spasský hafði þegið boð um að
teflá á mótinu, en af einhverjum
áiítæðum hætti hann við þátttöku.
Hann hefur litið teflt siðan hann
missti heimsmeistaratitilinn, allt
og sumt er klukkufjöltefli gegn
sovézkum unglingum.
Framan af mótinu beindist at-
hyglin mest að Petroshan sem
tefldi óvenju djarfan sóknarstil.
Skák hans við Gligoric var tefld
af festu og dirfsku, en jafnframt
dæmigerð fyrir næmt stöðumat
Armeniumannsins.
Hvitt : Petroshan
Svart : Gligoric Kóngsindversk
vörn.
1. C4 g6
2. e4 Bg7
3. d4 d6 ‘
4. Rc3 Rf6
5. f3 0-0
6. Be3 c6
7. Dd2 a6
(Gligoric velur mjög tvieggjað
framhald gegn Saemisch-árás-
inni. Að mati byrjanasér-
fræðingsins Boleslavsky, má
svartur ekki hróka svona fljótt.
Hvitur eigi þá of auðvelt með að
súiflwy
beina skeytum sinum að svarta
kóngnum.)
8. Bd3 b5
9. Hcl Rb-d7
10. Rg-e2 e5
11. d5 b4
(Svartur ákveður að loka mið-
borðinu og drottningarvængnum,
en það þýðir að úrslitin ráðast á
kóngsvæng. Til greina kom 11. . .
cxd5 12. cxd5 Rc5.)
12. Rdl c5
13. g4 h5
14. RÍ2! hxg4
(Svartur á óhægt um vik. T.d, 14. .
De8 15. h4 og Rg3 ásamt gxh5 er
sterk hótun.)
15. fxg4 Rh7
16. h4 f5
17. gxf5 gxf5
18. exf5 e4
(Svartur reynir að losa um sig
með fórnum, en Petroshan slepp-
ir ekki takinu.)
19. Bxe4 Re5
20. Rg3 Rf6
21. 0-0!
(Eftir að hafa unnið tvö peð fer
hvitur sér að engu óðslega og vill
vinna á liðsyfirburðum. Nú dugar
ekki 21. . . Rxe4 22. Rfxe4 Dxh4 23.
Bg5 með vinningsstöðu.)
21... Ha7
22. Bg5 Db6
23. b3 Haf7
24. De2 Dc7
25. Bbl Rh7
26. Kg2
(Stöður sem þessa teflir
Petroshan af fullkomnun. Hann
bætir hag sinn sifellt, þar til hann
leggur til lokasóknar.)
26. . . Rd7
27. Rg4 Rdf6
28. Hc-el Rxg4
29. Dxg4 Kh8
30. He6!
(Ekki er útlitið glæsilegt hjá Gli-
goric og það gildir raunár engu
hvort hann tekur skiftamuninn
eða ekki.)
30... Bxe6
31. dxe6 Rf6
32. Df3
33. Rh5
34. Rf4
35. Rd5
He7
Kg8
Hb8
Gefið
Jóhann örn Sigurjónsson.
Leit að kúnum hœtt
Flestir inuiia sennilega cftir kúnum, sem hurfu af túnum fyrir
norðan nú i haust. Var leitað mikið aðþeim, en ekkert hefur til
þeirra spurzt siðan og mun alveg verið hætt að reyna að hafa upp
á þeim.
Ekki er vitað hvar kýrnar lentu, hvort það var í fjósi, einhvers
annars en eiganda, ofan i skurði,eða einfaldlega í frystikistu
einhverrar húsmóðurinnar sem misst hefur af sláturtiðinni eða
ekki liaft efni á að kaupa kjöt i kistuna. — ÞM —
PIERPONT-ÚRIN
MAGNÚS E. BALVINSSON, úrsmiður
LAUGAVEGI 12 - SIMI 22804
handa þeim sem
gera kröfur um
endingu, nákvæmni
ogfallegt
útlit.
Kven- og
karl-
manns
úr af
mörgum
gerðum
og verð-
um.