Vísir - 18.12.1972, Blaðsíða 3
Vísir. Þriðjudagur 19. desember 1972
3
SAAB-bílarnir voru
teknir til bœna
Eigendur SAAB-bila mega fara
að vara sig. Þvi mi um helgina
urðu margir slikir bilar fyrir
skemmdum. Bilarnir voru allir af
sömu árgerð og flestir eins að lit.
A laugardagskvöld var ekið á
SAAB-bil árgerð 1972, þar sem
hann stóð á stæði og er hann mik-
ið skemmdur. Þá vaknaði kona
ein sem býr við Hofteig, við skark
ala mikinn og þegar að var gætt
kom i ljós, að strokizt hafði verið
eftir hliðinni á SAAB-bil og bíllinn
skemmdist mikiö. Þetta var á
milli kl. 21 og 24 á laugardagsnótt.
Þá brá manni einum, sem hafði
lagt bilnum sinum i stæði við
Ingólfsstræti 12 heldur betur i
brún, þegar hann kom að.bilnum
aftur. Billinn, sem var svo til nýr,
hafði verið skemmdur mikið.
Toppurinn lá niðri, en liklegast er
talið að vörubill hafi bakkað á
hann. Allir þeir sem gætu gefið
einhverjar upplýsingar um þessi
mál, eða hafa orðið vitni að
árekstrunum, eru beðnir að hafa
samband við lögregluna.
— ÞM.
Frostskemmdir
lagfœrðar
„Landhelgisgœzlon bannar
varðskipi að taka togaro"
Segir í frétt The Daily Mail um helgina. Landhelgisgœzlan neitar að fréttin sé rétt
Á laugardaginn var
birtist frétt á forsíðu
brezka stórblaðsins The
Daily Mail, þar sem sagt
var að varðskipið Týr
hefði verið komið á
fremsta hlunn með að
taka brezka togarann
Josena frá Fleetwood, en
hætt við samkvæmt fyrir-
mælum frá Landhelgis-
gæzlunni.
Visir hafði samband við Haf-
stein Hafsteinsson blaðafulltrúa
gæzlunnar og sagði hann, að
frétt þessi væri stórýkt ef ekki
alger uppspuni.
Aftur á móti segir blaða-
maður The Daily Mail hér á
landi, Mikael Magnússon, að
hann hefði ekki sent þessa frétt
til blaðsins, ef hann teldi sig
ekki hafa áreiðanlegar heimild-
irfyrir henni. Það hefðu tveir af
skipverjum á Tý staðfest sög-
una.
Sagan er á þá leið að togarinn
Josena hafi verið á siglingu
milli lands og eyja, á leið suð-
austur fyrir land. Varðskipið
Týr hefði verið á þessum slóö-
um og komið sér i þá aðstöðu að
létt hefði verið að taka togar-
ann. Sendi þá Týr skeyti til
Landhelgisgæzlunnar og spurði,
hvort ekki ætti að taka þennan
togara úr þvi að færið gæfist nú.
Svarið, sem kom var neitandi,
og urðu skipverjar, samkvæmt
heimildum Daily Mail, sárir
vegna þessa. Þeim hefur nefni-
lega þótt brenna við að gert væri
grin að þeim, þegar þeir koma i
sjávarpláss úti á landi, vegna
þess hvað þeim gangi illa að
klófesta útlenda togara i land-
helgi. — Nú þegar færið gefst,
að þeirra dómi, fá þeir svo
ekkert að aðhafast.
Taka ber fram, að öllum ber
saman um að skipiö var á sigl-
ingu en ekki á veiðum. Hitt er
annað, að skip þetta er að öllum
likindum á skrá Landhelgis-
gæzlunnar yfir landhelgis-
brjóta, að minnsta kosti er svo
sagt i frétt The Daily Mail.
Hafsteinn Hafsteinsson hjá
Landhelgisgæzlunni sagði, að
áður hefði borið við að maður á
Tý hefði brotið þá þagnar-
skyldu, sem á starfsmenn Land-
helgisgæzlunnar er lögð og væri
þessi saga sennilega frá sama
manni. Þetta væri allt stórýkt,
að visu væri satt að bæði skipin
hefðu verið stödd á þessum slóð-
um, en að varðskipið hefði verið
búið að króa togaranna af, það
væri vitleysa. Ekki sagðist Haf-
steinn geta sagt um hvort þessi
ákveðni togari væri á skrá yfir
landhelgisbrjóta, slik skrá væri
ekki til aflestrar fyrir almenn-
ing, enda væri ekki ráðlegt að
leyfa togurunum að vita
hverjum þeirra væri óhætt að
sigla einn að vild og hverjum
ekki.
Það má minna á það i þessu
sambandi, að Einar Agústsson
var að ræða við sir Alec Douglas
Home þessa sömu daga og enn-
fremur stóð fyrir dyrum mikil-
væg atkvæðagreiðsla hjá Sam-
einuðu þjóðunum um sömu
mundir. Ekki er fráleitt að það
hefði gert aöstöðu tslendinga
verri, ef togari hefði verið
færður nauðugur til hafnar á
sama tima og þessi mál voru i
gangi.
—Ló
afbrotaunglinga
fœst ó nœstunni
Raddir hafa heyrst undanfarið
um að húsnæði þyrfti að fá til að
geta lokað þá unglinga inni, sem
brjóta af sér hvað eftir anað, ef
þeir fá að ganga lausum hala.
Unglinga, sem ekki hafa þroska
til að bera, til að geta verið á hinu
opna upptökuheimili rikisins i
Kópavogi.
Undanfarið hafa viðkomandi
aðilar verið að kanna hvort ekki
væri hægt að fá bráðabirgðahús-
næði til þessara nota. Félags-
málastjóri og gatnamálastjóri
lögðu fram álit sit á borgarráðs-
undi nýlega, vegna umsóknar um
aö fá að nota bækistöð Skólagarð-
anna i Arbæ til þessara þarfa.
Var álit þeirra neikvætt varðandi
ástand hússins, of kostnaðarsamt
hefði orðið að gera það fullnægj-
andi til að geyma fólk.
inni
Kristján Sigurðss., forstöðu-
maður upptökuheimilisins i Kópa
vogi, sagði að verið væri að leyta
að bráðabirgðahúsnæöi ennþá, en
engin varanleg lausn fengist á
þessu máli, fyrr en keypt væri
hús. Kvaöst Kristján hafa auga-
stað á ákveðnu húsi til þessara
þarfa, en ekki fengjust peningar
til kaupa, enn sem komið væri að
minnsta kosti. Aftur á móti sagð-
ist hann vongóður um að bráðlega
kæmi bráðabirgðahúsnæði i leit-
irnar.
Þessari nýju stofnun verður
ætlað það hlutverk aö geyma
unglinga meðan verið er að vinna
að rannsókn i málum þeirra, og
gera þá hæfa til að vera á opna
upptökuheimilinu i Kópavogi.
— LÓ
Minnisvarði
um
séra Bjarna
afhjúpaður
Minnisvarði af Séra Bjarna
Jónssyni vigslubiskupi, heiðurs-
borgara Reykjavikur, var af-
hjúpaður við Dómkirkjuna i gær.
Stendur minnisvarðinn suðaustan
við kirkjuna, kórmegin. Minnis-
varðann gerði Sigurjón Ólafsson
myndhöggvari fyrir um það bil 24
árum, og fékk þá séra Bjarni
bronsafsteypu af honum i sinar
hendur. Mynd sú skemmdist þó i
eldi, en Reykjavikurborg hefur
látið gera nýja afsteypu.
—EA
Fyrirferðarminnsta ultrasonic-þjófavarnartæki í
heimi en jafnframt það kraftmesta og ódýrasta
þeirrar gerðar hér á landi. Skynjar hreyfingar
manns í breiðan geisla í allt að 10 m fjarlægð.
Tækið skynjar einnig eld. Einfalt í notkun,
auðvelt í uppsetningu.
SEM EINA SÉRHÆFÐA
FYRIRTÆKIÐ Á ÍSLANDI
I AÐVÖRUNARKERFUM
getum við bent yður á hvar ultrasonic-tæki eru
ákjósanleg og. hvenær annar útbúnaður er
heppilegri. SALA, LEIGA, ÞJÓNUSTA
VARI
ÞJÓFAVARNARKERFI
Rafmagnslaust í 4. sinn ó skömmum tíma
Verzlað við kerti og vasaljós í Glœsibœ
Menn, sem fóru akandi eftir
‘•Gjánni svoköliuðu, þar sem
vegurinn til Hafnarfjarðar liggur
igegnum Kópavoginn, urðu varir
við nokkuð hastarlegar holur,
sem komið höfðu i malbikið eftir
að frostin tók úr jörðu.
Væntanlega munu allir ánægðir
að heyra að þetta hefur verið lag-
fært og einnig er verið að vinna
við lagfæringar á öðrum götum i
Kópavogi. Að sögn þeirra manna,
sem með þessi mál fara mun sizt
meira um skemmdir af völdum
frosta nú, heldur en búast hefði
mátt við.
„Við höfum hérna þúsundir
kerta til að kveikja á, og það var
reglulega huggulegt þegar það
varð rafmagnslaust hérna hjá
okkur. Ég held ég vildi bara hafa
rafmagnslaust sem oftast”, sagði
Ringelberg eigandi Rósarinnar i
Glæsibæ i viðtali við blaðið, en á
laugardagskvöld i mestu jóla-
ösinni fór rafmagnið i öllum
verzlununum i Glæsibæ og einnig
þar i öllu hverfinu.
,,Það var ákaflega margt fólk i
búðunum, og allir virtust
skemmta sér hiö bezta. Það
skapaðist lika sérstaklega góð
jólastemning”, sagði Ringé.Iberg
ennfremur.
Ekki þykir það alls óvanalegt
að rafmagnið fari af i verzlun-
um þessum, þvi að þetta er i
fjörða sinn á skömmum tima,
sem það gerist. Verzlanirnar eru
þvi við flestu búnar og eru allar
vel búnar kertum, þrátt fyrir
gefið loforð um að rafmagnslaust
verði ekki á næstunni.
A laugardagskvöldið varð raf-
magnslaust um klukkan niu, en
verzlanir voru sem kunnugt er
opnar til 10. Rafmagnsleysið stóð
yfir i um það bil 30-40 minútur, að
þvi er Baldur Agústsson
verzlunarstjóri i Silla og Valda
tjáði okkur.
Það væri vissulega auðvelt að
itinga á sig einum litlum hlut i
stórum verzlunum, þar sem allt
sr rafmagnslaust en fullt affólki.
„Það er ómögulegt að segja um
ivort það hefur átt sér stað,”
>agði Baldur, en i verzluninni
voru íleiri hundruð manns þegar
rafmagnið fór af. „Við settum
upp kerti og lýstum með vasaljós-
um, og allt hélt áfram sinn vana-
gang. Það varð rafmagnslaust
uér i öllu hverfinu, en við höfum
'engið loforð um það að slikt muni
3kki koma fyrir aftur.”
-EA.
—LÓ
Aðstaða til að ioka