Vísir - 23.12.1972, Side 17

Vísir - 23.12.1972, Side 17
Yisir. Laugardagur 23. desember 1972 17 Sjónvarp: Aðfangadagur kl. 14.15 — Jóladagur kl. 18.00 Biðtíminn styttur! Sjónvarpiö verður þokkalega iðið viö það að hjálpa börnunum að láta aðfangadaginn liða sem skjótast. Aðfangadagur er jú ákaflega lengi að liða hjá þeim. Þau vakna fyrir allar aldir og vita þá litiö hvað þau eiga af sér að gera þar til klukkan er orðin sex. Spenningurinn er svo mikill, að i þeirra augum er hver klukku- stund eins og heil öld. Klukkan tvö á aðfangadag eru fréttir, en að þeim loknum, klukk- an fimmtan minútur yfir tvö, hefst dagskra fyrir börnin. Og þar er eftir öllu að dæma hið bezta jólaefni á dagskra. Dagskrain hefst á þætti um Þotufólkið, þá kemur teiknimyndin Hvolpajól, og loks eitt allra vinsælasta efnið sem fyrir börnin hefur komið i sjónvarpið, en það er hún Lina Langsokkur. ,Verður þá sýndur lokaþátturinn um hana. Að þvi loknu er Shari Lewis á dagskra með ýmiss konar jóla- efni og áreiðanlega gimbilinn sinn einhvers staðar lika. Þá er teiknimynd sem heitir Jóla- sveinninn og að siðustu leikritið Snædrottningin eftir H.C. And- ersen, og þáttur úr sýningu Litla leikfélagsins og Leikfélags Reykjavikur, ,,Einu sinni á jóla- nótt”. Nefnist þátturinn Jóla- sveinarnir. Barnadagskrain verður ekki lengri i það sinnið, en henni lýkur 16.25. Á mánudag er svo Stundin okkar i umsjón Ragnheiðar Gestsdóttur og Björns Þórs Sigurbjörnssonar. Þar verður meðal annars jólaskemmtun i sjónvarpssal, og nemendur úr Árbæjarskóla flytja Helgileik. Glámur og Skrámur spjalla svo loks saman. — EA Jóladagskvöld kl. 20.55 og 21.35: Hvorki kraftoverk, dans- né söngvamyndir Eplavin meö Rosie Undanfarin ár hafa verið kvik- myndir a jóladagskvöld, og hefur ýmsum þótt sem það væri kapps- mál að hafa eins væmna vellu þetta kvöld og hægt væri að fá, en að þessu sinni grunar okkur, að annað sannist varðandi jóladags- efnið. Við fáum nú að sjá sjónvarps- leikrit, sem var sýnt á jóladag i fyrra hjá brezka sjónvarpinu BBC. Að þvi sem næst verður komizt, er þetta mjög gott leikrit að flestra áliti. „Eplavin með Rosie” fjallar um ævi ungs drengs frá þvi að hann er þriggja ára að aldri og þangað til hann er búinn að fá „náttúruna”, eins ogþeir sögðu okkur hjá sjónvarpinu. Ekki er að efa, að mörgum finnst góð skipti að ársgömlu jólaleikriti frá BBC og tvitugum hollivúddmyndum. ólafur Helgi Norðmenn hafa gert sjónvarps- þátt um sinn forna konung, viking, striðsmann og siðar dýrling, Ölaf helga. Sem vonlegt er, notuðu Norðmenn mikið is- lenzkar bækur sem heimildir við gerð þáttarins. Karl Guðmundsson leikari þýddi textann við þáttinn, Mun Karl lesa með myndinni ásamt þeim Hrafnhildi Jónsdóttur og Höskuldi Þráinssyni, en i text- anum, sem þau lesa, eru margar beinar tilvitnanir i Heimskringlu og liklega hefur ólafssaga helga lika verið notuð við gerð þáttar- ins. — lö Aðfangadog kl. 11.00: Jól f jarri œttingjum Sumt fólk á þess ekki kost að vera lijá ættingjum og ást- vinum sinum um jólin. Þar á meöal er fólk, sem verður að dveljast á sjúkrahúsum vegna veikinda og slysa,sjómenn á liafi úti og ýmsir aðrir. Gamalt fólk á dvalar-og elli- heimilum á þess oft ekki kost að dveljast á einka- heimilum yfir hátiðina af ýmsum ástæðum. Það er cf til vill ol' lasburða til að vera ferðafært, ættingjar búa úti á laiuli, eða þá hreinlega að það er orðið einstæðingar og á i ekkert annað hús að venda, þó að þaö kæmist á milli. Jónas Jónasson fer á Hrafn- istu og spjallar við vistfólkið þar um þeirra jól á Dvalar- heimilinu. Illustendum gefst kostur á að heyra það i þættinum Hrafnistujól. —LÓ ÚTVARP UM JÓLIN Útvarp, jóladag kl. 19.20: „Verður flogið í dag?#/ Jökull Jakobsson með hljóðnemann í Eyjum „Verður l'logið i dag?”, heitir þáttur Jökuls Jakobssonar. sem fluttur verður i útvarpinu á jóla- dag klukkan 19,20. Verður flogið i dag má segja að sé spurning livern einasta dag i Vestmanna- eyjum, en einmitt þaðan er efnið i þátlinn l'engið. Samgöngur Eyjaskeggja hafa löngum verið ræddar fram og aft- ur, og það er ekki ósjaldan sem suðaustan áttin veldur þvi að ekki er hægt að komast flugleiðina á milli lands og eyja. Jökull tók sér ferð á hendur til Vestmannaeyja og rabbaði þar við nokkra Vestmannaeyinga. Hann bregður sér meðal annars á Litlu jól barnanna i Barnaskólan- um og við fáum tækifæri til þess að hlusta á leikrit sem þar var flutt. „Þetta er ósköp venjulegur þáttur með viðtölum frá Vest- mannaeyjum”, sagði Jökull þeg- ar við höfðum samband við hann. ,,Hann er ekki i neinu sérstöku formi og er rætt um allt annað en þorskinn”. Jökull rabbar einnig við vita- vörðinn i Vestmannaeyjum, sem býr á Stórhöfða og þeir rabba meðal annars um ástarlif lund- ans. Sigurður Rúnar Jónsson hljóm- listarmaður er búsettur i Eyjum ásamt fjölskyldu sinni og Jökull staldrar við hjá honum með hljóðnemann og loks ræðir hann við ung hjón sem eru að byggja, við skilyrði sem kannski eru dá- litið sérstök fyrir Eyjarnar. Það má svo geta þess, að Jökull varð veðurtepptur i Vestmanna- eyjum nokkra daga, og áreiðan- lega hel'ur spurningunni: ,,Verð- ur l'logið i dag", oft verið slegið fra m. — EA KULTAKESKUS OY IJR oé KbUKKUR Liiucjavegi 3 simi 13540 SUNNUDAGUR 24. desember Aófangadagur jóla 8.00 Mjörgunandakt. Séra Pétur Sigurgeirsson vigslu- biskup l'lytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög: Jólalög. Áke Jelving og félagar og hljómsveit Mantovanis ieika. 9.00 Fréttir. Útdráltur úr forustugreinum dag- blaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veðurfregnir) a. Orgelverk eftir Frescobaldi, Albinoni, Bach og Bossi. Egido Circelli leikur á alþjóðlegri orgelviku i Nurnberg i sumar. b. „Hodie Christus natus est” eftir Schutz og Jólalofsöngur eftir Purcell. Heinrich Schutz kórinn i London syngur. c. Sembal- konsert eftir Johann Gottlieb Goldberg. Eliza Hansen og Pfalz-hljóm- sveitin leika: Christoph Stepp stj. 11.00 Iirafnistujói. Jónas Jónasson talar við aldrað fólk á dvalarheimili aldraðra sjómanna i Reykjavik. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Jólakvcðjur til sjómanna á liali úti. Eydis Eyþórs- dóttir og Margrél Guð- mundsdóttir lesa kveöjurnar. 15.00 Jólahringsjá. Stefán Jónsson simar til fólks viðs- vegar um landið. Leikin jólalög á milli simtala. 16.00 Fréttir. 16.15 Stund fyrir hörnin.Séra Pétur Sigurgeirsson vigslu- biskup les frumsamda jólasögu, og leikin verða jólalög frá ýmsum löndum. Baldur Pálmason velur og kynnir. 16.55 Veðurfregnir. (Hlé) 18.00 Aftansöngur I I)óm- kirkjunni. Prestur: Séra Oskar J. Þorláksson. Organleikari: Ragnar Björnsson. 19.00 Ilátiðartónleikar Sin- fóniuhljómsveitar islands. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. Einleikarar: Lárus Sveins- son trompetleikari, Sigurð- ur I. Snorrason klarinettu- leikari, Snorri O. Snorrason gitarleikari og Manuel Wiesler flautuleikari. a. Konsert i D-dúr l'yrir trompet og hljómsveit eftir Leopold . Mozart. b. Klarinettukonsert nr. 3 i B- dúr eftir Karl Stamitz. c. Konsert l'yrir gitar og fóniuhljómsveitar islands. strengjaveit strengjasveit eftir Gudonio Nivaldi. d. konsert fyr- ir llautu og hljómsveit eflir Volfgang Amadeus Mozart. 20.00 Organleikur og ein- siingur i Dómkirkjunni. Páll lsólfsson leikur einleik á orgel. (af segulböndum). Elisabet Erlingsdóttir og Halldór Vilhelmsson syngja jólasálma við orgelundir- leik Ragnars Björnssonar. 20.20 Jólahugleiöing. Séra Heimir Steinsson skóla- stjóri i Skálholti talar. 20.40 Organleikur og ein- söngur i Dómkirkjuniii. framhald — 21.00 llátiö her að höndum ein. Guðrun Ásmundsdótlir og lijörtur Pálss lesa jólaljóð. 21.30 Barokk-tónleikar i út- varpssal. Jón H. Sigur- björnsson, Kristján Þ. Stephensen, Rut Ingólfs- dóttir, Pétur Þorvaldsson og Helga Ingóllsdótlir leika verk eftir Telemann og Vivaldi. 22.15 Veðurfregnir. P a r a d i s a r þá 11 u r i n n ú r „Friði á jiiröu” eftir Bjiirg- vin Guðmundss. Svala Nielsen, Sigurveig Hjaltested, Hákon Oddgeirsson og söngsveitin Filharmónia syngja með Sinfóniuhljómsveit tslands: Garðar Cortes stjórnar. 22.55 Jólasálmaforlcikir eftir .lohann Sehastian Bach. Walter Kraft leikur á orgel. 23.20 Guðsþjónusta á jólanótt. Biskup Islands, herra Sigurbjörn Einarsson, predikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Öskari J. Þorlákssyni. Guðfræði- nemar syngja undir stjórn dr. Róberts A. Ottóssonar söngmálastjóra. For- söngvari: Kristján Valur Ingólfsson stud. theol. Einnig syngja börn undir stjórn Þorgerðar Ingólfs- dóttur. Organleikari: Jón Dalbú Hróbjartsson, og leikur hann jólalög stundar- korn undan guðsþjón- ustunni. Dagskrárlok um kl. 00.30.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.