Vísir - 29.12.1972, Side 1
62. árg. — Föstudagur 29. desember 1972 — 298. tbl.
ÞRÍR MENN RÆNDIR Á GÖTUM
BORGARINNAR I NÓn
SJÁ BAKSÍÐU
FARSÆLT NÝTT ÁR!
Nœsta blað Vísis
kemur þriðjudaginn
2. janúar
Bretar virðast beita þrýstingi til að knýja fram samninga
„Herskip komið anzi nœrri"
— segir utanríkisráðherra
Menn óttast, að land-
helgisdeilan sé að fara i
sama farið og fyrri land-
helgisdeilan. Bretar
beita hörðum þrýstingi,
að þvi er virðist til að
knýja islendinga til
samninga.
Herskipið Rhyl F-129 er aðeins
2-3 milur utan við landhelgislin-
una. ,,Ég get ekki sagt, hvað er að
gerast þarna”, segir Einar
Agústsson utanrikisráðherra.
„Mér skilst, að herskipið sé enn
utan markanna, en vist er það
komið andsk... nærri”.
,,Ég er ekki búinn að fá
nákvæma skýrslu um atburðina”,
segir ráðherrann, ,,en þessir sið-
ustu atburðir eru ekki góðir fyrir
samkomulag i deilunni”.
Eru Bretar að beita þrýstingi til
að knýja okkur til samninga?
Það getur verið, telur
utanrikisráðherra.
Ráðherra taldi hugsanlegt, að
þessi atburðir gæfu til kynna, aö
Bretar hygðust senda herskip inn
fyrir mörk til verndar togurum
sinum. Yrði þá komið i sama far-
ið og 1958.
„Bretar telja, að það standi upp
á okkur i samningunum”, segir
Einar Agústsson. Þeir telja, að
við eigum að leika næsta leik og
koma til móts við þá. „Við teljum,
að samningamáliö sé i kyrr-
stöðu”, segir hann. Bretar hafi
ekki komið til móts við okkur og
viðræður legiö algerlega niðri um
töluvert skeið.
Utanrikisráðherra kvaddi
brezka sendiherrann, McKenzie,
á sinn fund klukkan ójlefu i morg-
un og mótmælti þvi, að brezki
togarinn Brucella H-291 sigldi i
gær á varðskipið Óðin.
Varðskipsmenn höfðu sagzt
mundu skjóta, ef togarinn reyndi
ásiglingu á varðskipið. Engu að
siður sigldi togarinn á varðskipið,
nokkuð aö óvöru. Skemmdir á
Óðni eru sagðar litlar.
Mætti segja, að varðskip hafi
verið á undanhaldi i gær? Ráð-
herra kvaöst ekki geta svarað
þvi.
Hafsteinn Hafsteinsson,
blaðafuUtrúi Landhelgisgæzlunn-
ar bendir I viðtali við blaöið á, að
Landhelgisgæzlan hafi stöðugt
unnið að þvi að hrekja brezku tog-
arana úr landhelginni. Þaö hafi
að visu gengið misjafnlega, en
samt gefið góða raun, eins og ljóst
sé af fréttum um brottför togara
úr landhelgi á ýmsum timum. Nú
hafi verið unnið að þessu, þar til I
fyrradag, aö togarinn Benella
neitaði fyrirmælum varðskips og
skorið var á togvira hans. f fram-
haldi af þvi urðu svo atburðirnir i
gær.
Landhelgisgæzlan telur, aö al-
menningur muni skilja réttmæti
þeirrar stefnu að forðast beri i
lengstu lög átök, sem kynnu aö
stofna mannslifum i hættu. Þvi
muni almenningur ekki lita" svo
á, að einstakir atburðir eins og
þeir, sem urðu I gær, séu nokkur
sigur fyrir Breta.
Atburðum i gær er svo lýst, að
togarinn hafi lónað kringum óð-
in , eftir að hann fékk viövörun,
og ekki virzt liklegur til ásigling-
ar. Þá hafi togarinn skyndilega
sveigt að Óðni, sem reyndi að
sigla undan, en stefni togarans
hæfði skáhallt skut varðskipsins.
Þetta varð aðeins um 4 milur inn-
an markanna.
Nokkru siðar gerðu togarar
margir saman „aðför” að varð-
skipum og gerðu sig liklega til
ásiglingar, en hættu við.
— HH.
Milljónamœringurinn
Hughes, var
í Managua
— sjó bls. 6
Jóta
mannótið
— sjó erlendar
fréttir á bls. 5.
Allir með
eldspýtur
milli handanno
sjó INN-síðu bls. 10
Hvernig gekk?
Hvað var
minnisstœðast?
— sjó bls. 2, 3, 8 og 9