Vísir - 29.12.1972, Blaðsíða 11
Visir. Föstudagur 29. desember 1972
11
Fimm sinnum í röð fór
knötturinn í þverslá!
— Jón Hjaltalín Magnússon óheppinn með skot í leiknum við
Tékka í gœr — Tékkar sigruðu 15—12
— Viö vorum afar
óheppnir í lokakafla fyrri
hálfleiks i leiknum við
Tékka i heimsmeistara-
keppni stúdenta í hand-
knattleik, sagði Valdimar
örnólfsson, aðalfararstjóri
íslenzka liðsins, þegar Vísir
náði tali af honum í Sví-
þjóð. — Jón Hjaltalin, einn
mesti ógnvaldur islenzka
liðsins, átti þá fimm skot i
röð, sem lentu i stöngum og
þverslá tékkneska marks-
ins, og auk þess varði tékk-
neski markvörðurinn frá
honum vitakast í þessum
tima. Þarna réðust úrslit
leiksins og Tékkar höfðu
fjögur mörk yfir í hálfleik,
8-4, sagði Valdimar enn-
fremur, og þeir sigruðu i
leiknum með 15-12.
Heimsmeistarakeppni stúdenta
i handknattleik hófst i Sviþjóð i
gærkvöldi. Þar keppa 16 lönd um
heimsmeistaratitilinn og er raðað
i fjóra riðla. Þetta er i fyrsta
skipti, sem islenzkt stúdentalið
tekur þátt i keppninni og fékk
ekki mótherja af verri endanum i
fyrsta leik — Tékka, sem leikið
hafa til úrslita i keppninni i tvö
siðustu skiptin.
í tékkneska liðinu léku fjórir
leikmenn, sem léku i úrslitaleikn-
um á Olympiuleikunum i Munch-
en — meðal annars markvörður
liðsins, sem átti mjög góðan leik i
gærkvöldi.
Leikurinn var jafn framan af.
Einar Magnússon skoraði fyrsta
mark leiksins, en Tékkar jöfnuðu
og voru þá sjö minútur af leik.
Þéir náðu forustu, en Vilberg Sig-
tryggsson jafnaði með linuskoti —
tvivegis siðar i leiknum sendi
hann knöttinn i mark Tékka af
linunni, en var óheppinn. Steig
aðeins á linuna og mörkin voru
dæmd af. Einar skoraði þriðja
mark islenzka liðsins á 17,min. og
staðan var jöfn — en lokakafla
hálfleiksins tóku stangirnar alveg
við markvörzlunni hjá Tékkun-
um!!
— Mér fannst dómarar leiksins
afar tregir til að dæma á Tékka,
þrátt fyrir augljós brot og þeir
sluppu oft við viti, sagði Valdi-
mar, og Karl Jóhannsson, dóm-
ari, sem dæma mun i úrslita-
keppninni, bætti þá við. — Já, þeir
dæmdu viti á okkur á brot, sem
þeir dæmdu aðeins aukakast á
Tékka. Hins vegar voru þeir
ákveðnir, dómararnir, visuðu
fimm Tékkum af leikvelli, en ekki
nema tveimur Islendingum.
Tékkar neyttu lika allra bragða
til að stöðva langskyttur islenzka
liðsins — einkum Jón Hjaltalin
Magnússon.
Jón var einu sinni i dauðafæri —
sagði Valdimar — þegar slegið
var hörkulega á hönd hans, en
ekkert var dæmt.
Siðari hálfleikurinn var mjög
skemmtilegur og Islendingarnir
fóru smám saman að vinna upp
forskot Tékka, hélt Valdimar
áfram. Jón Hjaltalin skoraði
fyrsta markið i siðari hálfleikn-
um og siðan skoraði ólafur H.
Jónsson þrjú mörk, en Tékkar
skoruðu aðeins tvö mörk þessar
fyrstu 12 min.hálfleiksins,
Staðan breyttist i 10-8. Tékkar
komust i 11-8, en Jón skoraði — og
svo kom Einar með þrjú mörk.
Staðan varð 13-12 og aðeins tvær
minútur til leiksloka.
Tékkar reyndu að tefja leikinn.
Það var dæmd töf á þá og Is-
lendingar fengu boltann. Ólafur
komst i gott færi, en tékkneski
markvörðurinn varði skot hans —
Tékkar brunuðu-upp og skoruðu.
14-12 og úrslit leiksins voru ráðin.
Tékkar skoruðu svo siðasta mark
leiksins á siðustu sekúndunum.
— Leikurinn var þokkalega
leikinn hjá okkur, en skotanýting
var þó ekki nógu góð, sagði Karl
Jóhannsson eftir leikinn. Mark-
varzlan var prýðileg. Birgir
Finnbogason var lengur i mark-
inu og var mjög góður, og siðan
kom Geir Thorsteinsson i markið
og varði einnig vel — meðal ann-
ars eitt vitakast.
— Við reyndum að láta þá Ein-
ar Magnússon, Jón Hjaltalin og
Ólaf H. Jónsson leika eins lengi og
þeir frekast þoldu — enda
máttarstólpar liðsins. Einar var
markhæstur með fimm mörk
(eitt viti), Ólafur skoraði þrjú,
Jón einnig og var eitt úr vitakasti
og Vilberg skoraði eitt mark.
1 dag leikur Island við Júgó-
slaviu. Þar sem þetta er siðasta
blað Visis fyrir áramót getur við
ekki sagt frá úrslitum fyrr en i
fyrsta blaði eftir áramót 2. janú-
ar, en 31. desember leikur Island
við Alsir.
A Þoriáksinessu sigraði Tottenham Sheffieid Utd. 2-0 á White Hart Lane. Martin Chivers skoraði fyrra
mark Tottenham i leiknum og sést hér lengst til hægri á myndinni senda knöttinn framhjá markverði
Sheffield.
Úrslit í
gœrkvöldi
Átta leikir voru háöir
i riölunum fjórum i
heimsmeistarakeppni
stúdenta i gær i Svíþjóö
og uröu úrslit þessi:
A-riðill
Sovétrikin—Noregur 29-14
Sviþjóð—Búlgaria 23-17
B-riðill
V-Þýzkaland—Spánn 17-10
Frakkland—Belgia 20-8
C-riðill
Tékkóslóvakia—Island 15-12
Júgóslavia—Alsir 38-15 '
D-riðill
Húmenia—Danmörk 16-10
Pólland—Italia 18-5
Keppnin heldur áfram i
kvöld og leikur islenzka liðið
þá við júgóslava.
Njósnuðu um
Júgóslavana
Tveir leikmanna islenzka
stúdentaliðsins, þeir Ililmar
itagnarsson og Gunnar
Gunnarsson, léku ekki gegn
Tékkum i gærkvöldi, heldur
voru sendir til Málmeyjar til
að fvlgjasl með leik Júgó-
slava og Alsirhúa. Þessar
tvair þjóðir eru i sama riðli
og island og Tékkóslóvakia.
-"iúgósla vneska liðið var
mjög sterkt i sóknarleik sin-
um gegn Alsir og skoraði
livorki meira né minna en 38
mörk, sem var hæsta
markatala einstaks liðs i
ga'r. Ilins vegar var varnar-
leikurinn ekki alltaf sem
beztur. En greinilegt er, að
islen/ka liðið á mjög erfiðan
leik I vrir höndum i dag gegn
Júgóslövum, sem liafa sjö
landsliðsmenn i liði sinu —
þar á meðal nokkra
Olympiu m eistara.
Enn skozkur landsliðs-
maður til Manch. Utd.
— og Docherty leystur frú
störfum sem einvaldur Skotlands
Enn er Manch. Utd. á
höttunum eftir leikmönn-
um og i gær keypti liöiö
skozka landsliðsbakvörðinn
Alex Forsyth frá Partich
Thistle í Glasgow fyrir 100
þúsund sterlingspund, en
hann — eins og George
Graham, sem Manch. Utd.
keypti frá Arsenal í fyrra-
dag — hefur veriö i skozka
landsliðshópnum undir
stjórn Tommy Docherty,
núverandi framkvæmda-
stjóra United.
Manch. Utd. hefur þvi á tveim-
ur dögum lagt út 220 þúsund ster-
lingspund fyrir tvo leikmenn og
átta hundruð þúsund sterlings-
pund siöustu 12 mánuði. Á þvi
timabili hafa sex leikmenn verið
keyptir Ian Moore, Martin Buch-
an, Wyn Davies, Ted McDougall,
og nú þeir Graham og Forsyth.
Vörnin hefur verið aðalvanda-
mál Manch. Utd. frá þvi leiktima-
bilið hófst i ágúst og virðist nú
loks sem farið sé inn á rétta braut
hvað kaupum á leikmönnum viö-
kemur — leikmenn keyptir til að
fylla þar i skörðin.
Þá leysti skozka knattspyrnu-
sambandið Tommy Docherty frá
störfum i gær sem landsliðsein-
vald Skotlands. Hann mun þvi
einbeita sér að hinum miklu verk-
efnum, sem framundan eru hjá
Manch. Utd. Ekki var tilkynnt i
gær hver yrði eftirmaður Doch-
erty hjá Skotlandi.
Leikur Chelsea og Everton á
laugardag var einkennilegur að
þvi leyti, að ekkert mark var
skorað fyrr en að 90 inin.Iokn-
um. Fyrst skoraði Harper fyrir
Everton, cn leikmenn Chelsea
hrunuðu strax fram og Ian
Hutchinson skallaði i mark.
Hann er þarna nr. 9 og var John
Ilurst aðeins of seinn að koma i
veg fyrir markið.