Vísir - 16.01.1973, Síða 4
4
Visir. Þriðjudagur 16. janúar 1973
Umsjón: Þórarinn
Jón Magnússon
íbúar fjölbýlishúss I
liagenstua, einu úthverfi ósló-
borgar, hrukku illilega viö um
klukkan Uu siöastliðinn föstudag,
en þá kváöu viö skothvellir úr
einni ibúö hússins.
Lögreglan var þegar kvödd á
staðinn, en gat ekki nálgazt þann
skotglaða, sem haföi búiö um sig
i ibúðinni, þvi hann hélt uppi við-
stööulausri skothrið i hvert sinn
er einhverjir freistuðu inngöngu.
Gat hann þannig haldið
mönnum i hæfilegri fjarlægö i
samfleytt átta klukkustundir, og
biðu menn óttaslegnir allan þann
tima án þess að hafa hugmynd
um, hverju skothriðin sætti.
Ljóst var, að hinn 25 ára gamli
karlmaður, sem héll á skot-
vopninu, var ekki heill á
geðsmunum og var til alls vis.
Einhvern veginn tókst honum
að komast inn i aðra ibúð i
blokkinni, en þar varð fyrir
honum stúlka, sem lá þar vegna
SKOT-
GLAÐUR
OSLÓAR-
BÚI
veikinda og hafði hún óljósar hug-
myndir um það, hvað væri á
seyði.
Þar sem aökomumaðurinn
gerði sig ekki liklegan til að gera
henni mein og talaði rólega til
hennar, sá hún ekki beinlinis
ástæðu til að óttast hann.
Hindraði hún hann þvi ekki i þvi
að tylla sér niður á stól og kasta
mæðinni, en hann var mjög
þreyttur og úttaugaður að sjá.
Tóku þau tal saman, og sagði
hann henni þá frá atburðunum og
bað hana um að skýla sér fyrir
lögreglunni, sem sæti nú um
hann.
Vildi stúlkan fá hann til að gefa
sig fram af fúsum og frjálsum
vilja, en það þótti honumekki ráð-
legt, þar eð hann óttaðist að verða
skotinn niður strax og hann sýndi
sig.
Svo fdr þó að lokum, að hann
tæmdi skotvopnið, og lagði það
frá sér sem og skothylkin, sem
hann hafði i öllum vösum. Fór
hann siðan i skiðaúlpu hús-
bóndans á heimilinu og setti
sömuleiðis á sig húfu hans, dró
hana niður fyrir augu og gekk út
fyrir, þar sem lögreglan var fljót
að koma höndum yfir hann.
Enn hefur það ekki fengizt
upplýst, hvað kom manninum til
að hefja skothriðina — sem góðu
heilli sakaði engan.
VINSÆLDALISTAR
NEW MUSICAL
EXPRESS
pESSA VIKUNA
ENGLAND
Last This
Week
1 1
8
2
14
12
3
16
9
5
7
6
10
4
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
20
I •
14
LONG HAIRED LOVER FROM
LIVERPOOL
Little Jimmy Osmond (MGM)
THE JEAN GENIE
David Bowie (RCA)
SOLID GOLD EASY ACTION
T. Rex (T. Rex)
Hl Hl H1 ...Wings (Parlophone)
BALL PARK INCIDENT
Wizzard (Harvest)
GUDBUYT'JANE
Slade (Polydor)
YOU'RE SO VAIN
— ■ Carly Simon (Elektra)
SHOTGUN WEDDING
RoyC(UK)
CRAZY HORSES Osmonds(MGM)
BEN
Michael Jackson (Tamla Motown)
MY DING-A-LING
Chuck Bérry (Chess)
NIGHTS IN WHITE SATIN
Moody Blues (Deram)
HAPPY XMAS (WAR IS OVER)
John & Yoko/Plastic Ono Band
(Apple)
BIG SEVEN,
Judge Dread (Big Shot)
Last This
Week
8 6
10 7
YOU'RE SO VAIN Carty Simon
SUPERSTITION Stevie Wonder
ME AND MRS JONFS Billy Paul
CLAIR Gilbert O'Sullivan
ROCKIN' PNEUMONIA BOOGIE
WOOGIE FLU Johnny Rivers
SUPER FLY Curtis Mayfield
YOUR MAMA DON'T DANCE
13
14
11
12
9
19
Loggins & Messina
WHY CAN'T WE LIVE TOGETHER
Timmy Thomas
CROCODILE ROCK Ehon John
KEEPER OF THE CASTLE Four Tops
I WANNA BE WITH YOU Raspberries
FUNNY FACE Donna Fargo
OH BABE WHAT WOULD YOU SAY
Hurricane Smith
IT NEVER RAINS IN SOUTHERN
CALIFORNIA Albort Hammond
Lesiö i blaöi á meðan skó-
smiðurinn dyttar aö hælum
skónna...
FER í HNÚTl!
,,fíg skal segja ykkur, aö þaö
sem hefur reynzt mcr bezt viö
l»u rsabiti, er aö hnýta á mig hnút.
líg incina setja fæturna aftur
fyrir linakka. Sko— svona,” segir
iiinn 53ja ára gamii fjöllistamaö-
ur Poul Kaiper.
Hann viðurkennir raunar, að
þetta sé kúnst, sem sé ekki svo
auðvelt að leika eftir. En hann er
allur af vilja gerður til að leið-
beina fólki, sem vill læra af hon-
um, og þvi er það, að siðustu árin
hefur hann ferðazt' um og sýnt
listir sinar.
Fæstir áhorfendanna trúa sin-
um eigin augum — og læknar
þvertaka fyrir að bein hans og
vöðvar séu eðlileg.
Þannig var það t.d. með
egypzkan prófessor, sem sá Poul
eitt sinn sýna á næturklúbbnum
,,Abden Casino” i Kairo. Hann fór
þegar i stað fram á að fá að taka
röntgenmyndir af likama lista-
mannsiris. Myndirnar sýndu ekki
annað en að Poul hefði nákvæm-
lega sömu beinabyggingu og aðr-
ir, og allar aðrar rannsóknir pró-
lessorsins hnigu að sömu niður-
stööu .En prófessorinn egypzki
harðneitar að trúa. „Þetta er
ómögulegt,” muldraði hann á
meðan Poul sýndi honum enn
fleiri kúnstir en prógramm hans á
sviðinu samanstóð af.
Poul hefur gengið undir viður-
nefninu „slöngumaðurinn” allt
siðan hann fór að sýna mönnum
hæfileika sina 16 ára gamall.
Sjálfur segir hann, að þeir séu
honum meðfæddir. Engu að siöur
þarf hann að æfa sig minnst
klukkutima á dag til að halda sér i
góðu formi.
Poul Kaiper hefur aldrei fundið
til lasleika. Einu ónotin sem ég
hef haft, eru af völdum þursabits,
en það liður jafnan hjá, þegar ég
hef brugðið fótunum aftur fyrir
hnakka, segir hann.
Það varð ekki svo litið uppi-
stand, þegar meðfylgjandi mynd-
ir voru teknar af fjöllista-
manninum. Umferðaröngþveiti
rikti lengi á gatnamótum þeim, er
Poul hafði spássérað þar yfir
gangbraut á höndunum — og með
fæturna i kross fyrir aftan höfuð.
Hann fór inn til hárskerans á
horninu, settist þar upp i stól og
kom fótunum makindalega fyrir
upp eftir stólbakinu. Og þannig
sat hann allan þann tima, sem
hárskurðurinn stóð yfir.
Hvort það hafi verið nauðsyn-
legt að viðhafa þær kúnstir fyrir
eina klippingu? Nei, hann viður-
kenndi að það væri óþarfi. „En
það skiptir mig ósköp litlu máli,
hvort ég sit svona eða einhvern
veginn öðruvisi,” sagði hann
glottandi.
,,0g taka svolitið meira af hárinu á móts við skóhæl-
ana, takk."
Á handahlaupum yfir gangbraut—með fæturna
fyrir aftan bak.