Vísir - 27.01.1973, Blaðsíða 10

Vísir - 27.01.1973, Blaðsíða 10
10 Vísir. Laugardagur 27. janúar 1973 l i I VIKULOKIN Vestur-Þjóðverjinn Christian Neureuther var mjög sigursæll I Mevege i Frakklandi í keppn- inni um heimsbikarinn. Fyrst sigraði hann i svigi, rétt á undan heimsmeistaranum Gustavo Thoeni, ttaliu. Þá var myndin hcr að ofan tekin, en keppnin var háð sl. sunnudag. Síðar sigraði Þjóðverjinn einnig i stórsviginu. Baráttan er nú geysihörð i keppninni um heimsmcistaratitilinn. Collombin, Sviss, er efstur i stigakcppninni með 10(1 stig, en Zwilling, Austurriki, er aðcins tveimur stigum á eftir. t þriðja sæti cr Thocni, heimsmeistar- inn tvö siðustu árin. Það hefur komið fyrir að snjó- leysi hefur gert framkvæmda- aðilum heimsbikarkeppninnar erfitt fyrir. Myndin á miðri siðunni er frá Wengen í Sviss, cn þarvarkeppt lt.janúar Brautin var færð upp I 2061 metra hæð, en samtscm áður eru brekkurn- ar viða brúnar, þar sem venju- lega er snjór I metravis á dýpt. Fjallið i baksýn er Wetterhorn. Efsta myndin á siðunni er frá innanhússmótinu I frjálsum Iþróttum í Los Angeles, þar sem [)ly piumeistari sigraði [)ly mpíumcista ra. Þaö er landarikjainaöurinn David rVottle, meistarinn i 800 m ilaupinu i Múnchen, sem slitur inúruna á undan Keino, )lympfumeistara i 3000 m lindrunarhlaupi i Múnchen og 500 m i Mexíkó 1968. David eyndist miklu harðari i miklu ‘invígi á lokasprettinum. Um siöustu helgi var háð 'yrsta Evrópumeistaramót at- i'innumanna i skautahlaupum, ;n nær allir beztu skautamenn leims hafagengið yfir i raöir at- iinnumanna. Olympiumeistar- inn margfaldi, Art Schenk (til lægri á ncðstu myndinni) sigr- aði örugglega, hlaut 174.913 stig. Annar varö Roar Grönvold, Noregi, til vinstri.og hlaut hann 176.996 stig. Jan Bols, Hollandi, varð þriðji og Wiliy Olsen, Noregi, fjórði. i verðlaun lilaut liollendingurinn frægi 10 þús- und dollara, eða eina milljón is- len/.kra króna. Grönvold hlaut sjö þúsund dollara fyrir annað sætiö i keppninni, svo talsverðir peningar virðast vera í skauta- hlaupunum. Tekjurnar eru aðallega frá sjónvarpi, en kcppninni var sjónvarpað beint til fjölmargra landa í Evrópu. Ljósmyndir NTB.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.