Vísir - 05.02.1973, Side 6

Vísir - 05.02.1973, Side 6
6 Vlsir. Mánudagur 5. febrúar 1973. VÍSIR Útgéfandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Afgreiðsla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi í)6611 (7 linur) Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands i lausasölu kr. 15.00 eintakið. Blaðaprent hf. Tekið mark á gagnrýni Talsmenn rikisstjórnarinnar á dagblöðunum skrifa nú af vanstillingu um þá gagnrýni, sem stjórnin hefur sætt fyrir meðferð ýmissa þátta Vestmannaeyjamálsins. Nota þeir grófara orð- bragð en lengi hefur sézt i islenzkri pólitik. Má af þessu orðbragði ráða, að það jaðri við landráð og drottinsvik að gagnrýna stjórnvöld, þegar jafn al- varlega standi á og núna. Þessi vanstilling skiptir litlu máli. Hitt er mark- verðara, að raunverulega hefur verið tekið tillit til gagnrýninnar. Ýmsu hefur verið breytt til betri vegar, siðan hún kom fram. Þar með er tilgangin- um náð, jafnvel þótt það særi stolt ýmissa tals- manna rikisstjórnarinnar. Visir hélt þvi fram nokkrum sinnum um daginn, að rikisstjórnin hefði tekið „fremur kudlalega” i er- lend tilboð um aðstoð. Rikisstjórnin og talsmenn hennar segja nú, að engri erlendri aðstoð hafi verið hafnað. Það er sjálfsagt rétt, þótt Þjóðvjiljinn hafi dag eftir dag rekið áróður gegn erlendri aðstoð og krafizt þess, að þjóðin borgaði sjálf „eldskattinn”. Rikisstjórnin. neitaði ekki aðstoð, en meðhöndlaði tilboðin á svo kuldalegan hátt, að erlendis var það túlkað sem kurteisleg afþökkun, svo sem erlendar fréttir bera með sér. Þegar rikisstjórnin hafði sætt gagnrýni fyrir þetta, snéri hún eða meirihluti hennar við blaðinu. Forsætisráðherra og utanrikisráðherra fóru að keppast við að koma þvi á framfæri innanlands og erlendis, að öll aðstoð væri vel þegin. Hefur málið þvi komizt inn á farsælli braut, og Þjóðviljinn hefur einangrazt i áróðrinum gegn erlendri aðstoð. Visir gagnrýndi einnig á dögunum, að varnarlið- inu væri „haldið utan við björgunaraðgerðir”, þótt þar væru bæði tæki, menn og reynsla, sem að gagni gæti komið. Þessu var svarað með þvi, að stöðugt samband hefði verið haft við varnarliðið og það hefði verið til taks til að sinna útkalli. En slik varð- staða er að sjáifsögðu ekki sama og bein þátttaka i aðgerðum. Þegar rikisstjórnin hafði verið gagnrýnd fyrir vannotkun á varnarliðinu, fór mjög að bera á þvi, að varnarliðið væri kvatt til björgunaraðgerða. Flugvélar þess tóku þátt i loftbrú til Eyja og yfir 100 varnarliðsmenn tóku þátt i hreinsun húsþaka i Eyj- um. Með þessari auknu þátttöku varnarliðsins hafa Þjóðviljaráðherrarnir beðið ósigur og skynsemin orðið ofan á. Þriðja atriðið, sem Visir hefur gagnrýnt, eru til- raunir rikisstjórnarinnar, einkum Þjóðviljaliðsins, til að hengja vandamál sin á Vestmanaeyinga. Það var gert með þvi að blanda saman þeim efnahags- vanda, sem var i þjóðfélaginu fyrir eldgosið, og þeim vanda, sem eldgosið sjálft olli. Þetta gerði Lúðvik Jósepsson strax á fyrsta degi gossins. Og rikisstjórnin öll hefur slegið á sama streng með frumvarpi sinu um ráðstafanir i sambandi við gos- ið. Enginn er á móti þvi, að rikisstjórnin reyni að leysa efnahagsvandamálin. En hún á að láta af þvi siðleysi að kenna Eyjamönnum um þau. Þess vegna á að taka hin sérstöku vandamál vegna eldgossins út af fyrir sig og leggja almennar tillögur i efna- hagsmálum fram i öðru frumvarpi. Og þessi gagnrýni leiddi einmitt til þess, að hið ill- ræmda frumvarp var dregið til baka, og i þess stað skipuð nefnd allra flokka til að gera tillögur um útvegun fjár i Vestmannaeyjasjóð. Fossaaflið gœti flýtt endurreisn S-Víetnam // Það/ sem Suður-Víetnam ) þarnast öðru fremur til að ( geta með árangri snúið sér ) að endurreisn landsins úr l stríðsrústunum, er að frið- / arsamningarnir hafi í för \ með sér raunverulegan frið ( fyrir hina striðshrjáðu þjóð. / En í Saigon álita menn ) almennt, að skæruhernaði ( kommúnista verði haldið ) áfram eftir samningana, \ þótt með minni fyrirgangi /j verði en hingað til. / Það mundi hafa I för meö sér, ') að ógnarástandið og óttinn verða / áfram viðloöandi ibúana í land- ) inu og að yfirvöld fái aldrei frið Ítil þess að einbeita sér að þeim verkefnum, sem framundan blasa við í endurreisn efnahags- lifsins. Þrátt fyrir tillitslausar eyöi- / leggingar striðsins á jörðinni, l borgunum og ibúðarhlutunum á / Suður-Vietnam alla möguleika á l að risa upp úr öskunni og eitur- / efnunum. ) Siðustu sprengjuárásir Banda- (' rikjamanna og eyðileggingin á ) borgunum Hanoi og Haiphong i ( Norður-Vietnam hefur komið \ mönnum til að gleyma, að stærsti ( hluti þeirra 7,4 milljóna smálesta \ af sprengjum, sem rignt hefur Íyfir Indó-Kina á árunum frá þvi 1965 til 1972, hefur komið niður á Suður-Vietnam. Bæir eins og An Loc og Quang Tri hafa verið jafn- aðir við jörðu af sprengjuvörpum \ Norður-Vietnama og flugher Suð- / ur-Vietnama og Bandarikja- \ manna. Plöntueyðandi efni hafa / lagt i auön um það bil helminginn \ af hinum þykku mangrove-skóg- / um láglendisins. Skógarnir i há- lendinu hafa orðið fyrir svipuöum skaða, þótt meö öðrum hætti væri. Stórum landbúnaðarsvæð- um hefur verið breytt i eyöimörk með eiturefnum, og sérfræöing- arnir eru ekki vissir um hve lengi áhrif efnanna munu vara, svo að fyrir þær sakir er ekki séö fyrir endann á eyöileggingunni af þeirra völdum. Hún gæti þess vegna haldið áfram nokkur ár til viðbótar, eftir að friður er kominn á. Suður-VIetnam á þó enn stór flæmi af auðræktuðu landi, sem er óspillt af styrjaldarrekstrin- um, að öðru leyti en þvi, að þar hefur átt sér stað offjölgun ibúa, eins og er svo einkennandi fyrir önnur lönd I Asiu. Nema að i Suð- ur-Vietnam stafar það ekki fyrst og frémst af barneignum, heldur meira af flótta ibúanna undan bardögunum annars staðar i landinu. En við fríðsælli og öruggari aðstæður mundi landið aftur framleiða nóg hrjsgrjón til þess að brauðfæða ibúana. Það tæki ekki nema tvö eða þrjú ár að ná framleiöslunni svo upp. En það mundi krefjast hreinsunar á öllum ósprungnum sprengjum, sem liggja um allt, og laga til önnur ummerki bardaganna. Það þarf margar hendur til aö vinna slik verk, eins og plægja upp sprengjur og flugskeyti, og hreinsunin verður sennilega ekki framkvæmd öðru visi en meö að- stoð hers landsins, sem telur um það bil 1,1 milljón manna. Þannig fengjust ungir og hraustir menn til þeirra verka, sem börn, konur og gamalmenni hafa orðið eftir beztu getu að leysa. Suður-Vietnamar verða að byggja sitt á landbúnaðinum, skógarhögginu og fiskveiðunum á komandi árum, enda eru mögu- leikarnir þar óteljandi, sem þeim býöst — jafnvel þótt tekið sé tillit til eyðilegginga striðsins. Aðalvandamálin verða I borg- unum, þar sem rikir ringulreið vegna flóttamannanna utan af landsbyggðinni — og var þó varla bætandi á ástandiö fyrir. Suður- Vietnam er landbúnaöarriki, þar sem 80 prósent ibúanna bjuggu úti á landsbyggðinni, en rúmlega helmingur ibúanna hefur þjapp- azt samani borgunum, jafnt stór- um semsmáum.vegna striðsógn- anna. Eftir brottflutninga banda- riskra hermanna á siðustu þrem- ur og hálfu ári hefur myndazt mikið atvinnuleysi i borgum eins og Da Nang, sem er næststærsta borg landsins. Engar ákveðnar áætlanir liggja fyrir um.hvernig menn hyggjast leysa þann vanda. Ein lausnin væri sú að senda aftur út á landsbyggðina þá, sem þaðan komu. En það er ekki vist að allir kæri sig um það. Fjöl- skyldur, sem áður bjuggu úti i sveit svo kynslóðum skipti, hafa eignazt börn i þéttbýlinu, og þau börn eru að komast á legg án þess að hafa nokkurn tima komið i sveit. Þau vita ekkért um bú- skap og hafa engan hug á að yrkja jörðina. Þau láta sig engu skipta, þótt feður þeirra, afar, langafar og langalangafar hafi allt sitt lif búið á einhverri jörð. Þau þekkja einungis borgarlifið og væru illa á vegi stödd, ef þeim væri fyrirskipað að hefja búskap uppi i sveit. En þar sem Suður-Vietnam fær sanngj^rnan hluta af þeim 7,5 milljörðum dollara sem Richard Nixon, forseti Bandarikjanna hefur lofaö, aö Bandarikin muni leggja til endurreisnarstarfsins I Indó-Kina eftir striðið, gæti það orðið drjúgt búsilag þeim hundruðum þúsunda flótta- manna, sem standa nú uppi rót- lausir, — og til viðgerða á vegum og járnbrautum um land allt. En það er einmitt mjög þýðingar- mikið með tilliti til fólksflutning- anna aftur i heimabyggðina. En allar áætlanir um endur- byggingu Suður-Vietnam leggja mikla áherzlu á erlent fjármagn til fjárfestingar i Vietnam. Það gæti leitt til uppbyggingar iðnaöarins, sem ali'rei hefur verið mikill i landinu. Einn af landkostunum er vatnsaflið, sem gæti verið grundvöllur stóriðju- uppbyggingar, þvi að bæði eru þar til raforkuver knúin af vatnsafli, og ótal möguleikar liggja ónýttir til þess að reisa fleiri slik. Hins vegar verður sliku ekki komið i kring, nema friður hald- ist.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.