Vísir - 16.03.1973, Blaðsíða 3

Vísir - 16.03.1973, Blaðsíða 3
Vlsir. Föstudagur 16. marz 1973. 3 „Ást og umburðarlyndi eru mín mottó" — segir séra Halldór S. Gröndal „Kirkjan er svo sterk, að það er sama, hvað dynur á þeim kletti, hann stendur óhaggaður. Þetta er rétt eins og spörfugi settist á klettinn og brýndi nefið,” segir Halldór S. Gröndal, annar fram- bjóðendanna i dómkirkju- prestakalli, þegar við spyrjum hann um deilur innan kirkjunnar og rótleysi nútimans. ,,Ég tel mig ekki til neinnar sérstakrar hreyfingar innan kirkjunnar,” segir hann. „Fólk hefur tilhneigingu til að draga prestana I bás i þeim efnum, en ég tel mig hafa stuðning þvert yfir allar hreyfingar. Ég get aðeins sagt, að fólk verði að hlusta á mig predika, ef það ætlar að skipa mér á bekk. Ég varð fyrir sérstæðri trúar- reynslu fyrir nokkrum árum. bað er ekki hægt að setja slika trúarreynslu i formúlu, en henni fylgir löngun til að lofa öðrum að taka þátt i henni með sér. Llfsviðhorf og gildismat manns gjörbreytist við slfka reynslu. Halldór sem rak veitinga- húsið Naust, segir, að algengt, sé, að lifsviðhorf manna breytist við trúarreynslu. Til dæmis sé það svo algengt á Englandi, að kirkjan hafi skóla til að kenna mönnum til prests eftir slika reynslu. Kirkjan leitast þar við að komast að raun um, hve mikla viðbótar- menntun menn þurfi. Halldór hafði til dæmis háskólapróf fyrir, og hann telur, að i Eng- landi hefði hann ekki þurft að verja sex árum til að hljóta prestsréttindi. „Ég reyni aðeins að predika guðsorð eins og ég get,” segir hann, ,,og ég hef mætt góðum skilningi, ekki sizt meðal presta, sem hafa boðið mér að koma i kirkjurnar hjá sér og predika.” Fanginn mest þurfandi eftir að hann er laus Séra Halldór þjónar nú að Borg á Mýrum, en hann starfar einnig mikið að aðstoð við fanga og áfengissjúklinga. „Fanginn þarfnast mestrar hjálpar, eftir að hann kemur út úr fangelsinu,” segir hann. „Þetta er erfitt starf, þvi að maður verður að vera viðbúinn á nótt og degi að hjálpa fangan- um. Maður verður að vera vinur fangans i raun og sannleika og má ekkert til spara. Með mér starfar margt ónafngreindra manna að þessu. Hver einn getur varla aðstoðað raunhæft nema 2-3 fanga. betta er starf, sem ber árangur, en hörmulega oft verður skyndileg breyting til hins verra á breytni hins fyrr- verandi fanga, og hann sækir á sina fyrri braut. Þessir menn eru skaddaðir á lifi og sál og erfitt að bæta það mein,” segir hann. ,,Guðs orð snýr aldrei til baka án þess að hafa gert eitthvað” ,,Ég lit svo á, að prests- „Kirkjan er klettur, sem ekkert haggar”, segir séra Halidór S. Gröndal. kosningar séu ekki svo afleitar, segir hann. Þetta er að sumu leyti skemmtun fyrir fólk, til- breyting i hversdagsleikanum. Ég er ákaflega opinn fyrir unga fólkinu, á sjálfur börn af „poppkynslóðinni” svokölluðu. Ég skil þeirra afstöðu mætavel, en ég ætlast til þess jafnframt að unga fólkið viðurkenni og beri virðingu fyrir eldri kyn- slóðinni. Ég blessa hvern dag, sem Jesúbylting stendur, eða „Súperstar”. Guðsorð snýr aldrei til baka frá neinum án þess að hafa gert eitthvað. bessar hreyfingar hvetja til dæmis marga til að lesa Bibliuna.” Kosningarnar verða á sunnu- daginn, harla spennandi. 5.396 eru á kjörskrá. -HH. „KAUPUM STUNDUM MJÓLKINA SJÁLFIR Riddarar ömurleikans Á SMÁSÖLUVERÐI, til þess oð geta sent hana neytandanum" „Það linnir ekki kröfum frá neytandanum að fá mjólk senda heim með öðrum vörum. Ég veit það, að við höfum margir hverjir keypt sjálfir mjólkina á smásölu- verði, og höfum siðan sent hana með hinum vörunum. Þvi að öðruvisi er mjólkin ekki send”. Þetta sagði formaður félags matvörukaupmanna, Hreinn Sumarliðason þegar hann ræddi við blaðið i morgun viðvikjandi mjólkursölu i matvöru- verzlunum. „Og hvað er á móti þvi, að kaupmaðurinn selji mjólk og skyr, þegar hann selur alla aðra mjólkurvöru. Þannig er það þegar orðið á öllum öðrum Norðurlöndunum. Við höfum ekki farið fram á annað en að gætt verði ýtrustu varkárni og bjóðumst til að uppfylla öll þau skilyrði sem heilbrigðisyfirvöld setja”. „Fyrir stuttu var hafin sala á ávaxtasafa i fernum, sem seldur er meðal annars i matvöruverzl- unum. Ég minnist þess ekki, að nokkrum hafi dottið i hug að setja upp sérstakar verzlanir fyrir sölu á honum. Ávaxtasafinn er þó dagstimplaður, en nú á timum höfum við yfir að ráða mikilli og góðri aðstöðu, húsnæði, áhöldum, mannafla og sölutækni”. „Við teljum, að það sé meiri ástæða fyrir bændur að leita samstarfs heldur en að vera i andstöðu. Við höfum góða að- stöðu og getum annazt þessa þjónustu fyrir sama verð og bændurnir sjálfir. Og við erum færir um að staðgreiða mjólk- ina”. „Það hefur verið sagt, að hætta væri á mjólkurskorti, ef mjólkin yröi dreifð á fleiri aðila. En við vitum ekki um nema 29aðila, sem hafa óskað eftir þvi að selja mjólk i verzlunum sinum. bær verzlanir eru þegar með góða aðstöðu. „En við gerum okkur grein fyrir þvi, að það eru að sjálfsögðu heilbrigðisyfirvöld, sem ráða, hvar er seld mjólk og hvar að- staða er ekki fyrir hendi. En við getum þó nefnt dæmi um lélega aðstöðu þar er seld er mjólk. Til dæmis á bensinsölustað i Kópa- voginum, þar sem leyfð er mjólkursala og þar sem seldar eru aðrar söluturnsvörur”. „Annarri verzlun, sem er til húsa i mjög litlu húsnæði, hefur einnig verið leyfð mjólkursala, en þar verður stundum að geyma mjólkurgrindurnar fyrir utan verzlunina, þar sem ekki er pláss fyrir þær inni”. „Það virðist svo sem það sé ekkert kerfi, sem gildi, heldur aðeins geðþótti”. —EA ingar hafa að geyma allt sem ég sagði þarna um „stuðning” Sjón- varpsins við islenzka kvikmynda- gerðarmenn: ,,... Ég held, að það sé sam- hljóða álit forráðamanna Sjón- varpsins, að fyrsta skylda þess er náttúrlega að útvega sinum áhorfendum góða dagskrá. Það er að visu sjálfsagt, að það á lika að styðja við bakið á kvikmynda- gerðarmönnum, eftir þvi sem tök og föng eru á, og vonandi fer_það saman sem oftast, að kvik- myndagerðarmenn fái sinn stuðning, og þeir láti Sjónvarpið hafa góða dagskrá. ...” Með þökk fyrir birtinguna. Jón Þórarinsson, dagskrárstjóri. Matvörukaupmenn telja sig geta boðið upp á alla þá aðstöðu, sem til þarf til þess að verzla með mjólk. Þeir verzla með flesta aðra mjólkurvöru en skyr og mjólk. RiYNDI ALLT TIL AÐ AFSTÝRA SLYSI „Ég gat ekki með nokkru móti gert að þessu, — ég var á 35-40 km hraða, en bremsuslangan sprakk”, sagði ökumaður Mustangbílsins, sem ók á mann á mótum Hafnargötu og Faxa- brautar í Keflavik. „Ég sá hvað verða vildi. Maðurinn gekk yfir götuna og horfði I öfuga átt. Billinn er sjálfskiptur og reyndi ég þvi að koma honum I aftur- ábak-girinn, en þá drap hann á sér og rann á manninn’. Kvaðst maðurinn hafa heim- sótt hinn slasaða á sjúkrahúsið. Kvaðst hann harma það að hafa orðið valdur að slysi, slíkt væri hin hræðilegasta reynsla. En aftur á móti teldi hann sig ekki geta hafa spornað á móti að slys yrði. — JBP Óhlutvandir menn hafa falsað orð, sem ég lét falla i umræðu- þætti um kvikmyndina „Brekku- kotsannál” i Sjónvarpinu fyrir nokkru á þann hátt, að merking þeirra hefur snúizt við. Til viðbót- ar eru mér gerð upp hugsanir og viðhorf, sem enginn fótur er fyrir. Þannig breytt hafa svo þessi um- mæli verið gerð að árásarefni á Sjónvarpið og forráðamenn þess. Á þá riddara ömurleikans, sem slikan vindmylluslag stunda, er engum orðum eyðandi. En ef verða mætti öðrum til glöggvun- ar, skulu hér birt orðrétt þau um- mæli i fyrrnefndum sjónvarps- þætti, sem virðast hafa komið gerningaveðrinu af stað. bað skal tekið fram að eftirfarandi setn-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.