Vísir - 16.03.1973, Síða 8
Nýju flóOIjósin I Kópavogi reyndust vel eins og sjá má af mynd Bjarnleifs. Óskar Valtýsson hefur skailaO knöttinn (lengst til hægri). Til vinstri er Harald-
ur gullskalli Júliusson, sem skoraOi bæOi mörkin. Magniis Steinþórsson og Haraldur Erlendsson (nr. 6) eru á miOri myndinni.
Tryggðu sér sigurinn með
sannkölluðum gullskalla!
r.
— Agœt tilþrif Vestmannaeyinga og Breiðabliks og 2:0 var sanngjarnt fyrir eldeyinga
nýuppgengir leikmenn, sem áreiöan-
lega eiga eftir a6 láta mikiö að sér
kveöa. Beztu leikmenn Eyja voru þó
Arsæll Sveinsson i markinu með frá-
bær úthlaup og sannaði hann hvað eftir
annað að hann „átti” vítateiginn og
enginn annar. Þá var óskar Valtýsson
mjög góður og Kristján Sigurgeirsson
einnig, báðir stöðugir og uppbyggjandi
miðjumenn.
Haraldur Júliusson og Asgeir Sigur-
vinsson báru af I framlinunni, en
vörnin stóð sig mjög vel gegn Blika-
framllnunni, sem gaf þó ekkert eftir.
Breiöabliksliðiö er tvimælalaust á
uppleið, — og ég spái þvl að þeir verði
ekki lengur orðaöir við botninn I 1.
deild. Vörnin hefur lagast og kannski
er það eina sem finna má virkilega að,
að það vantar nægilega afgerandi
skotmenn I framllnuna.
Það var kveikt á nýjum og ágætum
flóðljósum á Vallargerðisvellinum I
gærkvöldi og I hálfleik lék skólahljóm-
sveitin ágæta undir stjórn Björns
Guðjónssonar. Sannkölluð hátlða-
stemning, og líklega hafa þeir Ibúar
viö Vallargerði, sem ætluðu snemma I
háttinn, oröið að fresta þvl, endavoru
hundruð áhorfenda á götunni þeirra og
hvatningarópin mikil. Liklegt má telja
að milli 1500 og 2000 áhorfendur hafi
séð leikinn og er greinilegt að Eyja-
menn munu trekkja vel á leiki sina i
sumar.
Úrslit leiksins voru nokkuð sann-
gjörn. Eyjamenn áttu góð tækifæri,
skot I stöng af löngu færi frá Kristjáni
Sigurgeirssyni, Breiöablik átti sin
tækifæri,-og skoruðu reyndar mark,
sem dæmt var af vegna rangstöðu.
Annars verður völlurinn I Kópavogi
alltaf erfiður liðum, sem reyna að ná
samleik. Völlurinn er af minni gerð-
inni og þrenglsin verða þess valdandi
að erfitt er fyrir leikmenn aö leika sig
fria. Eillfar takklingar og pústrar, en
á milli hoppar boltinn á allt of hörðum
vellinum stjórnlaust og óviðráðan-
legur. Grasvellir af hæfilegri stærö
dempa allt slíkt svo óstjórnlega mikiö.
Magnús Pétursson dæmdi leikinn
vel, en Einar Hjartarson línuvörður lét
áhorfendurna (sem voru allt of
margir) fara um of i taugarnar á sér.
—JBP
ólafur Hákonarson, markvöröur Kópavogs, gripur knöttinn, rétt áöur en Haraldur Júlfusson komst f færi. Bakvöröur
Kópavogs er tilbúinn ef eitthvaö bregöur út af og lengst til hægri er Tómas Páisson. Ljósmynd Bjarnleifur.
Það var sannkallaður
„gullskalli”, sem endanlega
tryggði sigur Vestmanna-
eyinga i gærkvöldi i Kópa-
vogi, þegar liðin tvö reyndu
með sér i bæjarkeppni i
knattspyrnu. Hárnákvæm
sending utan af kanti frá
Ásgeiri Sigurvinssyni, og
boltinn var negldur i net
Kópavogsmanna. Þetta var
á hinni hættulegu 43. minútu
seinni hálfleiks.
hittust margir þeirra, og I áhorfenda-
hópnum mátti sjá fyrirmenn úr
Eyjum, m.a. bæjarstjórann, Magnús
Magnússon, sem fagnaði ekki minna
en aðrir, þegar mörkin komu. Þegar
þess er gætt að keppnistimabil getur
vart talizt hafið hjá knattspyrnu-
mönnum, marznepja að kvöldi til
framkallar ekki beztu tegund knatt-
spyrnu, þá var leikurinn I gærkvöldi
góður hjá báðum liðum. Mér fannst að
þessi leikur lofaði góðu um framhaldið
I sumar.
Eyjamenn komu mér á óvart með
getu sinni, enda þótt i lið þeirra
vantaði góða leikmenn. Upp I skörðin
fylltu ágætir leikmenn úr 2. flokki, eða
Fyrra markið hafði komið
á 22. minútu seinni hálf-
leiksins, og var svipað að
þvi leyti að sömu menn áttu
þar lokaorðið, Haraldur
skoraði af stuttu færi eftir
fyrirgjöf Ásgeirs.
Mörkunum I Kópavogi var fagnað
rétt eins og strákarnir frá eldeynni
væru heimamenn. Engin furða, þvi I
áhorfendaskaranum voru geysimargir
Eyjamenn. Líklega hafa þeir ekki
komið svo margir saman á mannamót
eftir að eldgosið brauzt út, en hér
— Nofn Keflavíkur fer enn einu sinni í hattinn í drœtti í Evrópukeppni
Keflvíkingar leika enn
einu sínni í sumar í
Evrópukeppni í knatt-
spyrnu -UEFA-bikar-
keppninni — og glæsimark
Steinars Jóhannssonar í
leiknum við Akumesinga í
gærkvöldi á Melavellinum,
verðskuldaði sannarlega að
Keflvíkingar komust í
UEFA-keppnina. Það var
mark, sem hver atvinnu-
maður hefði mátt vera
stolturaf— jafnvel sjálfur
ftalinn
formaður
UEFA
Formaður ítalska
knattspyrnusambands-
ins, Artemio Franchi,
sem er 51 árs að aldri,
var i gær kjörinn
formaður Knattspyrnu-
sambands Evrópu
(UEFA) á þingi þess i
Róm.
Franchi verður þriðji formaður
sambandsins og var kjörinn til
eins árs. Hann hlaut 21 atkvæði,
Bares frá Ungverjalandi hlaut sjö
atkvæði I formannskjörinu, og
Dennis Follows, Englandi, fjögur.
Hollendingurinn Coler dró sig til
baka. Artemio Franchi var áður
kunnur dómari og talið er, að
miklar llkur séu á þvf, að hann
verði endurkjörinn formaður,
þegar kosið verður aftur á næsta
ári, og þá til fjögurra ára. Kosið
var nú vegna þess, að hinn
svissneski formaður UEFA lézt á
slðasta ári.
A þinginu var rædd tillaga frá
Sir Stanley Rous, formanni FIFA,
um fjölgun liða I úrslitakeppni
HM 1978 úr 161 20. Greidd voru at-
kvæði og voru 25 á móti henni, en
aöeins sjö þjóðir Austur-Evrópu
studdu tillöguna.
Pele „konungur knatt-
spyrnunnar", Eusebio eða
Bobby Charlton. Aðals-
mark.
Þaö var liðin stundarfjórö-
ungur af síöari hálfleiknum og
litið útlit fyrir, að liðunum tækist
að koma knettinum i mark á
þungum og blautum Mela-
vellinum, Mest miðjuþóf, þar sem
Keflvikingar voru þó greinilega
sterkari aðilinn. Og svo kom
markið eins og þruma úr heið-
skýru lofti.
Knettinum var spyrnt fram að
vitateig Akurnesinga og Steinar
Jóhannsson, sem hafði komið inn
sem varamaður i byrjun hálf-
leiksins, hljóp af sér varnarmenn
Akraness — sigraði Hörð Helga-
son, markvörð Akurnesinga, út
við vitateigslinuna og spyrnti
knettinum yfir hann I háum boga I
átt að markinu. Siðan geystist
Steinar með Þröst Stefánsson
miðvörð Akraness, á hælunum
inn I vítateiginn — stökk hátt upp i
markteignum og skallaði knött-
inn I mark með miklum tilþrifum.
Knötturinn var þá að koma niður
aftur eftir bogaskotið og virtist
stefna framhjá marki.
Þetta mark réð úrslitum leiks-
ins. Fleiri voru ekki skoruð, en á
siðustu min. leiksins munaöi þó
sáralitlu að Akranes jafnaði.
Matthias Hallgrimsson, langbezti
maður Akurnesinga, sigraði þá
hina sterku vörn Keflvikinga —
komst frir að markinu, en ný-
liðinn Jón Sveinsson I marki IBK,
tókst að koma fingurgómunum á
skot Matthiasar og lyfta knett-
inum yfir þverslá.
Annars var litið um knatt-
spyrnu i þessum þýðingarmikla
leik, þar sem liðin léku um 3ja
sæti Islandsmótsins 1972, og um
leið réttinn i UEFA-keppnina.
Þau voru jöfn að stigum i fyrra.
Völlurinn var lika eitt forarsvað
— pollar viða og erfitt að sýna
einhver tilþrif. En lið Keflvikinga
virkaði þó mun sterkara við
þessar erfiðu aðstæður — leik-
menn liðsins voru likamlega
miklu sterkari. Jón Ólafur Jóns-
son, útherji IBK, hefði einfald-
lega átt að koma i veg fyrir að
spenna hélzt til loka. Tvivegis i
siðari hálfleiknum komst hann i
„dauðafæri” við mark Akurnes-
inga, en tókst ekki að skora —
skaut fyrst yfir, siðan framhjá.
Akurnesingar fengu fá tækifæri
og þegar þeir komust eitthvað
áleiöis var markvöröur IBK
ofjarl þeirra. Matthias bar af I
liðinu, en Teitur Þórðarson sást
varla —■ slapp aldrei úr gæzlu
Guðna Kjartanssonar, sem átti
stórgóðan leik sem miðvöröur,
þarna á Melavallarsvaðinu. Kefl-
vikingar réðu að auki miðju
vallarins — GIsli Torfason,
Grétar Magnússon og einkum þó
Karl Hermannsson, voru þar
hinir sterku menn. Steinar lék
aðeins siðari hálfleikinn — Frið-
rik Ragnarsson lék miðherja I
fyrri hálfleik — og átti skinandi
góðan leik. Þaö var ekki aðeins
markið hans fallega — heldur lék
hann oft vörn Akurnesinga grátt,
en þar var Þröstur eini
maöurinn, sem reis upp úr
meðalmennskunni.
Þaö er auðvitaö erfitt að dæma
liðin eftir þessum leik. Kefl-
vikingar virkuðu þó sterkir — lið
IBK veröur áreiðanlega erfitt i
sumar. Ungu piltarnir hjá
Akranesi nutu sin ekki i
gærkvöldi — skiljanlegt á
þungum velli — en þegar Eyleifur
Hafsteinssonar kemur af loðn-
unni og byrjar að leika á ný, þurfa
Akurnesingar ekki að kviöa
sumrinu. Siöur en svo meö
Matthias i þessu formi.
Dómari var Hinrik Lárusson.
—hsim.
Ensku knattspyrnu-
liðin Fulham og
Plvmouth, sem léku við
Santos frá Braziliu nú i
vikunni, hafa kært
Braziliumennina til
enska knattspyrnusam-
bandsins vegna ,,fjár-
kúgunar” i sambandi
við leikina. Hardaker,
formaður sambandsins,
sagði i gær, að svo kunni
að fara, að Santos fái
ekki leyfi til að leika
framar i Englandi, og
málið verður látið ganga
áfram til FIFA.
Þegar Santos lék við Plymouth
á miðvikudag komu leikmenn
liðsins 30 min. fyrir leik til for-
ráðamanna enska liðsins og
sögðust ekki leika nema tvö
þúsund sterlingspundum væri
bætt við greiðslu fyrir leikinn.
Þetta var fjárkúgun af versta
tagi, sagöi formaöur Plymouth,
og við gátum ekkert annaö gert,
en að borga, þar sem tug-
þúsundir hefðu annars orðið að
halda heim án þess að sjá
nokkurn leik.
SANTOS I KEPPNIS-
BANN Á ENGLANDI?
Kæra Fulham byggist á deilum,
sem komu upp i sambandi við
áhorfendafjöldann, en greiðslan
til Santos byggist að nokkru á
fjölda áhorfenda.
Landslið
KSI gegn
KR-ingum
Landslið Knattspyrnu-
sambands Islands leikur
við KR á sunnudag á Mela-
vellinum. Leikurinn hefst
kl. þrjú. Þessir leikmerín
skipa landsliðið.
Sigurður Dagsson, Val
Diðrik Ólafsson, Viking
Ólafur Sigurvinsson, I.B.V.
Guðni Kjartansson, l.B.K.
Marteinn Geirsson, Fram
Dýri Guðmundsson, F.H.
Asgeir Eliasson, Fram
Gisli Torfason, l.B.K.
Guðgeir Leifsson, Fram
Þórir Jónsson, Val
Matthias Hallgrimsson, I.A.
Örn Óskarsson, I.B.V.
Teitur Þórðarson, t.A.
Tómas Pálsson, I.B.V.
Þröstur Stefánsson, l.A.
Ólafur Júliusson, l.B.K.
Asgeir Sigurvinsson, I.B.V.
Gleöi — vonbrigði. Gunnar Jónsson, bakvörður Keflavikur, lyftir höndum fagnandi eftir að Jón Sveins-
son hafði varið skot Matthiasar Hailgrimssonar á lokaminútu leiksins. Karl Þórðarson, til hægri, og
Hörður Jóhannesson grfpa hins vegar um höfuðin. Ljósmynd Bjarnleifur.
ING
STJÖRNU ★ LITIR s/f
Ármúla 36 Sími 84780
Gisli Torfason, hinn sterki framvöröur IBK, varð að yfirgefa völlinn
eftir samstuö við Björn Lárusson, bakvörð, IA. Hér aðstoðar Sigurður
Steindórsson hann af veilinum. Ljósmynd Bjarnleifur.
18 í unglinga-
landsliðshópi
Unglinganefnd K.S.I. hefur
valiö eftirtalda leikmenn til að
skipa Unglingalandslið K.S.Í.
1973.
Arsæll Sveinsson, ÍBV
Janus Guðlaugsson, FH
Björn Guömundsson, Viking
Þorvarður Höskuldsson, KR
Otto Guðmundsson, KR
Guðmundur Ingvason, Stjarnan
Kari Þórðarson, 1A
Höröur Jóhannesson, 1A
Leifur Helgason, FH
Gunnar örn Kristjánsson, Vik-
ing
Asgeir Sigurvinsson, IBV
Ólafur Magnússon, Val
Logi Ólafsson, FH
Magnús Þorsteinsson, IBV
Grimur Sæmundsen, Val
Stefán Halldórsson, Viking
Ingibergur Einarsson, IBV
Leifur Leifsson, IBV
Siðasti áfangi i þjálfun og vali
endanlega liðsins, sem leika á
við Luxembourg 18. april n.k.
hér á Melavellinum er nú hafinn
og æfir liðið tvisvar i viku á
Melavellinum, tvo tima i senn.
Æfingatimunum er skipt niður á
i æfingar og æfingaleiki, en
einnig kemur hópurinn saman á
þriðjudagskvöldum, þegar
fundur er haldinn með liðinu, og
eru þeir að Frikirkjuvegi 11.
Unglingalandsliðið lék á mið-
vikudag við 2. deildarlið Selfoss
á Melavelli og sigraði meö 3-1.
MARK STEINARS VERD-
SKULDADI EVRÓPULEIK