Vísir - 16.03.1973, Blaðsíða 13

Vísir - 16.03.1973, Blaðsíða 13
Vísir. Föstudagur 16. marz 1973. u □AG | D KVOLD Q □AG | D KVÖL D □AG | Hér sjáum við stjórnanda Popphornsins I dag, örn Petersen, en hann er sá i miöið á myndinni. Hinir eru Björgvin Gislason, Karl Sighvatsson, Magnús Sigmundsson og Jóhann Helgason. Hljóðvarp í dag kl. 16.25 Neyðast íslenzkar popphljómsveitir til að gerast „útflutningsvara"? í Popphorninu að þessu sinni tekur stjórn- andi þáttarins, Örn Petersen, tali þá Karl Sighvatsson úr Náttúru og Pétur Kristjánsson úr Svanfriði. beir munu fjalla um hin ýmsu vandamál, sem hrjá islenzkar popphljómsveitir á íslandi um þessar mundir. Meðal annars eru islenzku stúdióin algjörlega ófull- nægjandi hvaö áhrærir aöstöðu til plötuupptöku. Hver af annarri leysast þær upp, popphljómsveitirnar, hætta ýmist alveg eða jafnvel flytjast til útlanda, þar sem aðstaða er betri og tekjumöguleikar ólikt meiri en hér. Til dæmis er hljómsveitin Rifsberja að hugleiða tilboð, sem hún fékk nýlega frá Bandarikjun- um. örn ræðir ennfremur við þá félaga, Magnús Sigmundsson og Jóhann Helgason úr Chande, en þeir hafa sem kunnugt er gert stormandi lukku um alllangt skeiö. bað er von, að íslenzkir poppar- ar hugsi sem svo: Hvar erum við staddir? LTH Þarfasti þjónninn hefur hann löngum veriö nefndur, hesturinn, en hlutverk hans er nti oröiö mjög frá- brugöiö því sem áöur var. Sjónvarp í kvöld kl. 21.20 Skipstjórar í Sjónaukanum að þessu sinni verður með- al annars sagt frá heim- sókn i tamningastöð, sem starfrækt er á Eyr- arbakka, og liklegt er, að brugðið verði upp nokkrum svipmyndum þaðan. ón fullra Rætt verður um gatnagerð og gatnaviögerðir, en ástand ýmissa vega á Reykjavíkursvæðinu er óvenju slæmt núna. í umræðum þessum taka þátt þeir Ingi tJ. Magnússon gatnamálastjóri, og dr. óttar P. Halldórsson, verk- fræðingur. bá eru umræður varðandi undanþágur þær, sem veittar hafa verið mönnum, er ekki hafa réttindi til skipstjórnar á fiskibát- réttinda um. Um það mál munu fjalla Kristinn Gunnarsson deildar- stjóri, Páll Guðmundsson skip- stjóri og Kristján Ragnarsson, formaður LÍO. Einnig veröur fjallað um þau mörgu vandamál, sem upp hafa komið vegna tilflutnings á vinnu- afli innan Efnahagsbandalags- rikjanna. Umsjónarmaður og stjórnandi þáttarins veröur Eiður Guðnason. LTH ^yi.V.W.ViV.W.W.ViW.V.'AWAW/.WMWiV.Wi D í r\n — : •i D l j ^ * :■ dj* Q :| / U M < J rspa Í Spáin gildir fyrir laugardaginn 17. marz. Hrúturinn, 21. marz-20. april. bér mun eflaust finnast laugardagurinn atburðasnauður hvað þig sjálfan snertir, þótt gangi á ýmsu i kringum þig, einkum er á liður. m "■■mL Nautið,21. april-21. mai. bað er ekki óliklegt, að þú hafir i huga vissar áætlanir i sambandi við helgina, en eins vist, að fátt af þess háttar standist vegna óvæntra atburða. Tviburarnir, 22. mai-21. júni. Ef til vill getur þetta orðið þér allerfiður dagur, vegna ein- hverra atburöa innan fjölskyldunnar, til dæmis, þótt fleira geti stuðlað að þvi. Krabbinn, 22. júni-23. júli. A ýmsu gengur i dag hjá þér, og eflaust fleiri. En stutt ferðalag getur reynzt vel og orðið þér og öðrum viðkomandi til mikillar ánægju. Ljóniö, 24. júli-23. ágúst. bað verður ætlast til nokkuð mikils af þér i dag, og þaö munar lika áreiðanlega um framlag þitt, þó að þú uppfyllir ekki kröfurnar að öllu leyti. Meyjan, 24. ágúst-23. sept. Sennilega gerirðu þér ekki viöhlitandi grein fyrir afstöðu annarra i harla viökvæmu máli, og getur þvi farið svo, að þú særir þá óafvitandi. Vogin,24. sept.-23. okt. betta verður sennilega góður dagur, en þó er hætt við, aö þér finnist, og með réttu, að þér sé ekki beinlinis þakkaður góöur greiði við þér nákomna. Drekinn, 24. okt.-22. nóv. bað getur hæglega orðið einhver stefnubreyting i einkamálum þinum, jafnvel breyting á högum þinum, i sam- bandi viö eitthvað það,sem gerist i dag. Bogmaðurinn,23. nóv.-21. des. bað litur út fyrir að dagurinn geti orðið þér aö einhverju leyti erfiður, og eiga nákomnir þér þar að meira eða minna leyti sökina. Steingeitin, 22. des.-20. jan. bó aö þú teljir þér trú um, aö þú sért aö yfirvinna eitthvað, samkvæmt áður teknum ásetningi, skaltu treysta þvi með nokkurri varúö. Vatnsberinn,21. jan.-19. febr. Taktu ekki allt það trúanlegt, sem þú heyrir I dag. Ekki ættirðu heldur að fullyrða of mikið i sambandi við það, sem þú veizt ekki til hlitar. Fiskarnir, 20. febr.-20. marz. bað litur út fyrir að helgin verði þér góð, en kvöldið I kvöld dálitið varasamt. Haföu hægt um þig, ef þú lendir i hópi þeirra, sem ekki kunna sér hóf. 5; WAV.W.V/.V.V.VAV.W.V.V.V.V.'.V.V/.VAV.V, iítvarp • Föstudagur 16. marz 13.15 Með sinu lagi. Svavar Gests kynnir lög af hljómplötum. 14.15 Búnaðarþáttur: (Jr heimahögum (endurtekinn) Gisli Kristjánsson ritstjóri talar viö Inga Antonsson bónda á Hrisum i Svarfaöa- dal. 14.30 Slðdegissagan: ,,Jon Gerreksson” eftir Jón Björnsson. Sigrlður Schiöth les sögulok (32) 15.00 Miðdegistónleikar: 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. 16.15 Veöurfregnir. Tilkynningar. 16.25 Popphornið. 17.10 bjóðlög frá ýmsum löndum. 17.40 Tónlistartfmi barnanna. Rúnar Friðleifsson sér um timann. 18.00 Eyjapistili. Bænarorö. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar.. 19.20 Fréttaspegill. 19.35 bingsjá. Ingólfur Kristjánsson sér um þáttinn. 20.00 Kirkjutónieikar. 21.30 Hvað sögðu þeir við sfðasta merkjasteininn? As- mundur Eirfksson greinir frá hugsunum og fyrir- mælum nokkurra nafn- kenndra manna skömmu fyrir andlátiö, — fyrra erindi. 22.00 Fréttir. 22.15 Veöurfregnir. Lestur Passiusálma (22) 22.25 Ctvarpssagan: „Ofvitinn” eftir bórberg bórðarson. borsteinn Hannesson les (17) 22.55 Létt músik á sfökvöidi. 23.45 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok. SJÚNVARP • Föstudagur 16. marzl973 20.00 Fréttir 20.25 Veöur og auglýsingar 20.30 Karlar I karpinu Banda- riskur kúrekamyndaflokkur I léttum tón. Arfurinn býöandi Kristmann Eiðs- son. 21.20 Sjónaukinn Umræðu og fréttaskýringaþáttur um innlend og erlend málefni. 22.05 Sjö atriöi um Orfeus báttur frá danska sjónvarpinu, þar sem leitazt er við aö fella saman einkenni ballets og óperu. Efnið er sótt I sögnina um Orfeus og Evredlku, sem hér birtist I allnýstárlegri útgáfu. (Nordvision — Danskas sjónvarpið) 22.45 Dagskrárlok

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.