Vísir - 22.03.1973, Side 5
Vísir. Fimmtudagur 22. marz. 1973.
5
AP/IMTB ÚTLÖNDÉ MORGUN ÚTLÖND I MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Verkfallið í Danmörku talið leysast
ÞCGAR ANNAR HVOR BROTNAR
Afleiðingar verkfalls-
ins i Danmörku voru
ekki farnar að segja al-
varlega til sin i morgun,
nema að samgöngur
voru strjálar og fólk átti
erfitt með að fá farar-
tæki til þess að komast
ferða sinna.
En vinnudeilan á eftir að
harðna enn, ef ekki semst bráð-
lega, þvi að daglega berast frétt-
ir um fleiri vinnustéttir, sem
ætla i verkfall. Þannig ætla véla-
menn SAS i verkfall, og mun þá
stöðvast öll flugumferð um
Kastrup. Bilstjórar oliufélaganna
ætla lika i verkfall.
Járniðnaðarmenn búa sig lika
undir langt og strangt verkfall, og
norræna járniðnaðarsambandið
hélt fund fyrir luktum dyrum i
gær i Kaupmannahöfn. Formenn
sambandsfélaganna frá Finn-
landi, Sviþjóð, Danmörku og Nor-
egi mættu til fundarins. — Danski
formaðurinn, Paulus Anderson,
sagði, að fundurinn hefði verið
haldinn i upplýsingaskyni, og til
þess að kanna, að hvaða leyti
bræðrafélögin á Norðurlöndunum
gætu orðið danska sambandinu að
liði i þessari vinnudeilu.
Það þykir ekki fara á milli
mála, að helzta málið á fundinum
hafi verið hugsanlegur fjárhags-
stuðningur frá norrænu samtök
unum til þess danska i deilunni.
Þvi að vinnudeilan ber öll merki
þess, að menn muni biða unz sá
aðilinn, sem minna hefur úthaldið
fjárhagslega, gugni og láti undan.
Að flestra mati stendur vinnu-
veitendasambandið fjárhagslega
betur.
Dönsku launþegasamtökin
greiða daglega út 25 milljónir
danskar krónur i verkfallsstyrki,
og eins og stendur eru 258.000
launþega komnir i ýmist verkfall
eða verkbann. En járniðnaðar-
sambandið telur 120.000 félaga
innan sinna vébanda, sem þegar
eru snortnir af vinnudeilunni á
einn eða annan hátt. Sambandið
er þvi fjárþurfi.
NJOSNARI
llettarhold eru hafin i máli
norska stúdentsins, sem var
næturvörður i norska sendi-
ráðinu i Moskvu, en sendur
heim, grunaður um njósnir.
Það var talið, að hann hefði
verið tældur til njósna af rúss-
neskri stúlku — Uér er hann að
ráðfæra sig við verjanda sinn.
Beittu neitunar-
valdi í Panama
Bandarikin beittu neitunar-
valdi sinu á fundi öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna, sent haid-
inn var i Panama i gærkvöldi,
þegar frant kom tillaga unt að
hraða þyrfti samningum milli
Bandarikjanna og Panama varð-
andi skipaskurðinn.
Þetta er i þriðja skipti, sem
Bandarikin beita neitunarvaldi
sinu, siðan Sameinuðu þjóðirnar
voru stofnaðar. Sagðist fulltrúi
Bandarikjanna, John Scali,
harma það að beita þvi, en hann
taldi hættu á, að samþykktin
mundi spilla fyrir væntanlegum
samningum milli Panama og
Bandarikjanna, sem hafa lofað að
endurskoða samninginn frá þvi
1903.
Reyndar hafa átt sér stað við-
ræður siðastliðin 9 ár milli Pan-
ama og Bandarikjanna um fram-
tið skipaskurðarins. — Panama
hefur krafizt nýrra samninga i
stað þess gamla, sem Panama-
menn fullyrða, að þeir hafi verið
þvingaðir til að gera.
A fundinum i gær var jafnframt
samþykkt tillaga um að Banda-
rikin, Stóra-Bretland og Frakk-
land gripu i taumana i þeim til-
vikum, þegar stórfyrirtæki
reyndu að þvinga Suður-Amé-
rikuriki til að láta að vilja þeirra.
Bauð eina milljón
til höfuðs Allende
Fyrrverandi foringi í
leyniþjónustu Bandaríkj-
anna (CIA) upplýsti rann-
sóknarnefnd öldunga-
deildarinnar, aö þaö væri
ekkert óvenjulegt, aö stór-
fyrirtæki bjóði CIA fúlgur
fjár til þess að grafa undan
stjórnum ríkja, sem fyrir-
tækjunum er í nöp viö.
John McCone, sem var foringi i
CIA upp úr 1960, er nú stjórnar-
meðlimur i ITT (International
Telephone and Telegraph Corp.).
— ITT sætir nr rannsókn af hálfu
öldungadeildarinnar vegna
gruns um afskipti af innanlands-
pólitik i Chile.
Sagði McCone rannsóknar-
nefndinni i gær, að CIA visaði
ávallt á bug öllum slikum pen-
ingatilboðum frá einstaklingum
og fyrirtækjum. — Jafnframt hélt
hann þvi fram, að það væri ekkert
óeðlilegt eða rangt við boð, sem
ITT létút ganga, þegar fyrirtækið
bauðst til þess að leggja fram
eina milljón doilara ,,til hvers
konar aðgerða’’, sem Banda-
rikjastjórn kynni að gripa til, svo
að Allende kæmist ekki til vaida,
eftir að hann hafði tryggt sér
nauman meirihluta i þriggja
manna úrslitum fyrir forseta-
kosningar 1970.
Eftir tveggja daga vitnaleiðslur
i rannsóknarnefndinni liggur það
orðið ljóst fyrir, að ITT bjóst við
öllu hinu versta, ef Allende kæm-
ist til valda i Chile. Voru gerðar
ýmsar tilraunir til þess að fá
Bandarikin til að koma i veg fyrir
það: En þær tilraunir strönduðu
allar á Bandarikjastjórn, sem
vildi ekki hlutast i innanrikismál
Chile og alls ekki forseta-
kosningarnar.
Orustuþotur skutu
á flutningavél USA
Tvær orustuþotur frá
Libýu skutu i gærkvöldi
á bandariska herflutn-
ingavél, sem var á ferð
yfir austurhluta Mið-
jarðarhafsins.
Flutningavélin, sem
var af gerðinni C-130,
var stödd á alþjóða flug-
leið — samkvæmt þvi,
sem talsmaður utan-
rikisráðuneytis Banda-
rikjanna sagði — þegar
orustuþoturnar réðust á
hana. Slapp vélin, án
þess að verða fyrir skoti.
Enginn vafi þykir leika á þvi,
að þoturnar hafi verið frá Libýu,
og voru báðar af gerðinni Mirage,
sem smiðuð er af Frökkum.
Bandarikin hafa mótmælt árás-
inni harðlega og bent á, að flug-
vélin hafi verið i erindum banda-
riska flughersins, þegar á hana
var skotið. Hún var óvopnuð.
C-130 vélin mun hafa verið
stödd um 110 kilómetra út af
ströndum Libýu, þegar Mirage-
þoturnar réðust á hana. Tökst
flugmanninum að forða sér úr
eldlinunni og fela sig á bak við
ský. Lenti hann vélinni iAþenu.
Ekkert stjórnmálasamband
hefur verið milli Libýu og Banda-
rikjanna eftir sex daga striðið
1967. Höfðu Bandarikjamenn áð-
ur flughöfn i Libýu, en henni var
lokað, þegar núverandi stjórn
Kadafi komst til valda.
r
vorð við Wounded Knee, aö þeir
liti ástandið þar alvarlegum
augum. Að minnsta kosti ekki
alvarlegra en svo, að þeir ley
sér að bregða sér á leik.
I Indíánaleik
Þaö er ekki ao sja a þessum
Indiánapiltum, sem eru á leið á
Her og lögreglu
lenti saman
Brynvagnar og herflokkar
ruddu sér braut i gærkvöldi inn
i aðalstöðvar lögreglunnar i bæn-
um La Plata i Argentinu. En fyrr
um daginn hafði um 2000 manna
lögreglulið bæjarins lagt hann
undir sig til þess að mótmæla
kjörum sinum
Til átaka kom, og var einn
óbreyttur hermaður drepinn, og
einn foringi herflokkanna særðist
— samkvæmt upplýsingum þess
opinbera. En sjónarvottar sáu,
margar sjúkrabörur bornar út, og
þykirþvi liklegt, að mannfall hafi
orðið töluvert meira.