Vísir - 26.03.1973, Side 14

Vísir - 26.03.1973, Side 14
Vlsir. Mánudagur 26. marz. 1973. Þrjú skot á mark gáfu Arsenalliðinu tvö mörk — og Lundúnaliðið hlaut bœði stigin gegn Manch. City — Leeds tapaði stigi á heimavelli gegn Úlfunum og möguleikar á meistaratitlinum eru nú sáralitlir „Heppna, heppna Arsenal-liðiö" er við- kvæðið alls staðar á Eng- landi og kannski aldrei meir, en eftir sigurleik liðsins á Maine Road í Manchester á laugardag. Eftir nær stöðuga sókn mest allan leikinn skoraði Manch. City aðeins eitt mark — misnotaði víta- spyrnu — en Arsenal átti aöeins þrjú skot á mark í leiknum. Tvö þeirra höfn- uðu í netmöskvum City- marksinsog Lundúnaliðið fékk enn tvö stig i stiga- safnið sitt mikla. Liver- pool vann einnig og heldur tveggja stiga for- ustu, en Leeds gerði aö- eins jafntef li á heimavelli gegn úlfunum og mögu- leikar á sigri liðsins i deildinni feru nú orðnir sáralitlir. Við skulum hverfa aftur á Maine Road. Allan fyrri hálf- leikinn var Manch.City stöðugt i sókn, en allt kom fyrir ekki. Knötturinn vildi ekki i mark ,,The Gunners” en tækifærin voru þó nóg til þess. Vörn byssu- manna vopnabúrsins var að veniu sterk, en hefur þó varla lent i ööru eins á leiktimabilinu. 1 siðari hálfleiknum virtist sama einstefnan ætla að halda áfram og svo var dæmd vita- spyrna á Arsenal. Mike Doyle tók spyrnuna og viti menn — ekki var hann frekar á skot- skónum en aðrir leikmenn City, spyrnti knettinum yfir þverslá. Við þessi ósköp fór leikur Manch. City að riðlast — Kenn- edy og George lóku sig i gegn, Ray gaf til Charlie, sem renndi knettinum i mark. 1-0 fyrir Arsenal. Það stóð ekki lengi. Manch. City tókst að jafna og það var miðvörðurinn Tommy Booth, sem sýndi framherjum sinum hvernig á að skora 1-1 og aftur City-pressa. En fimm minútum fyrir leikslok var Kennedy á ferðinni og skoraði sigurmark Lundúnaliðsins og furðulegur sigur var i höfn. En við skulum nú lita á úr- slitin i 1. og 2. deild á laugardag. 1. deild Birmingham—Coventry 3-0 C. Palace—West Ham 1-3 Ipswich—Everton 0-1 Leeds-Wolves 0-0 Leicester—Stoke 2-0 1. DEILD VL . » J George Graham er þarna i Arsenal-búning I viðureign við (Jlfana. Hann skoraði fyrsta mark sitt fyrir Manch.Utd. á laugardag, og bakvið hann er Ray Kennedy, sem skoraði sigurmark Arsenal gegn Manch.City. Liverpool—Norwich 3-1 Manch.City—Arsenal 1-2 Newcastle—Chelsea 1-1 Sheff.Utd.-—Derby 3-0 Tottenham—Manch. Utd. 1-1 WBA—Southampton 1-1 2. deild Brighton—Swindon 3-1 Burnley—Millvall 2-1 Fulham—Sunderland 1-2 Luton—Bristol City 1-3 Middlesbro—Aston V. 1-1 Nottm.For.—Sheff.Wed. 3-0 Orient—Huddersfield 3-1 Oxford—Hull City 5-2 Portsmouth—Carlisle 0-0 Preston—Cardiff 0-0 QPR—Blackpool 4-0 Gifurlegur munur var á Liver- pool og Norwich og reyndar ótrúlegt — eftir leiknum að dæma — að liðin skuli leika i sömu deild. En þó vann Liverpool ekki nema 3-1. Varnarmennirnir kunnu, Chris Lawler og Emlyn Hughes, skor- uðu tvö fyrstu mörk leiksins með fjögurra min. millibili og svo virtist sem Liverpool stefndi aö stórsigri. En það varð ekki — að visu góður sigur. Ian Mellor skoraði fyrir Norwich — fyrsta mark hans siðan hann var keyptur frá Manch. City. Þrem- ur min. fyrir leikslok skoraði framvörðurinn Hall þriðja mark Liverpool. Leeds sótti miklu meira i leiknum gegn (Jlfunum, en tókst ekki að nýta yfirburði sina i mörk. Þar vantaði illa marka kónginn Alan Clarke, sem er i keppnisbanni ásamt Trevor Cherry, auk þess, sem Billy Bremner er meiddur. Miðherj- arnir kunnu hjá Úlfunum, John Richards og Derek Dougan, máttu sin litils gegn sterkri vörn Leeds, en eitt er vist. Leikur lið- anna i undanúrslitum bikarsins 7. april verður tvisýnn. Crystal Palace lék sinn 30. leik gegn Lundúnaliði sem 1. deildarlið og hefur enn ekki náð sigri i fjögur ár. Það sama var uppi á teningnum gegn West Ham á laugardag. Palace sótti miklu meira i fyrri hálfleik, en Bobby Ferguson átti hreint snilldarleik i marki West Ham — varði stórkostlega skot frá Blyth og Whittle. En hinu megin urðu John Jackson á mistök —■ missti boltann eftir skot Clyde Best, og Pop Robson poppaði upp og skoraði. 24. deildamark hans á leiktimabilinu. Brooking kom West Ham i 2-0 á 57. min., en Derek Poosee gaf áhangend- um Palace von um stig með góðu marki. Svo reyndist þó ekki. Ted McDougall skoraði hreint frábært mark i lok leiks- ins og sigur West Ham var öruggur. George Graham skoraði þegar á 6. min. fyrir Manch. Utd. gegn Tottenham, sem lék án nokkurra lykilmanna eins og Mike England, Steve Perryman og Alan Gilzean. Eftir markið lagðist United i vörn og notaði öll meðöl til að halda forskotinu. Það var ekki falleg knattspyrn- an, sem liðið sýndi, og leikmenn voru undir stöðugum óánægju- hrópum áhorfenda. En stigin eru dýrmæt i fallbaráttunni og svo virtist sem leikaðferð Manch. Utd. ætlaði að heppnast — og vissulega var gott að ná stigi. Fimm minútum fyrir leikslok tókst Martin Chivers að jafna fyrir Tottenham eftir gróf mistök varamarkmanns Unit- ed, John Rimmer. Lögreglan varð að hafa sig talsvert i frammi. Slagsmál brutust út á áhorfendapöllunum meðan á leiknum stóð og eftir hann. Eftir leikinn sagði Matt Busbý, hinn kunni aðalframkvæmdastjóri United. „Þetta var gott stig og baráttuvilji mikill hjá leik- mönnum United. Ég er viss um að liðið heldur sæti sinu i 1. deild. Hinn ungi miðvörður liðs- ins, Jim Holton, sem aðeins er 21 árs, átti frábæran leik — hann á eftir að verða frábær leik- maður, minnir mjög á Jackie Charlton”. Óvæntustu úrslitin urðu i Ips- wich, þar sem Everton vann sinn fyrsta sigur á útivelli siðan i október. Ipswichliðið hefur misst af strætisvagninum að þessu sinni og greinilegt, að leikmenn liðsins léku ekki af sama áhuga og áður. Joe Harp- er skoraði eina markið i leikn- um, Sheff. Utd. vann góðan sigur gegn Derby, sem setti Davies úr liðinu. Jim Bone, nýi leikmaðurinn frá Norwich skor- aði enn eitt mark fyrir Sheff. Utd. i þessum leik. Peter Shilton var hreint frábær hjá Leicester gegn Stoke — aðalmaðurinn bakvið sigurinn Varði hörkuskot frá Greenhoff og Ritchie — og John Hurst misnotaði viti fyrir Stoke. Þeir Thomplin og Birchenall skoruðu fyrir Leicester. Gordon Banks lék i varaliði Stoke — sýndi hreint frábæran leik og varaliðið vann Nottm. Forest 1-0. WBA náði ekki nema jafntefli gegn Southampton, svo litið lagaðist staðan hjá liðinu. Tony Brown skoraði fyrir WBA, en Dýrling- arnir jöfnuðu. Barrowclough skoraði úr vitaspyrnu fyrir Newcastle gegn Chelsea, en Lundúnaliðinu tókst að jafna með marki Garner. Hatton, Latchford og Taylor skoruðu fyrir Birmingham og staða liðs- ins i deildinni lagast stöðugt. 1 3. og 4. deild urðu úrslit þessi. 3. deild Bournemouth—Grimsby 1-1 Bristol Rov,—Watford 2-1 Charlton—Blackburn 1-2 Chesterf.—Shrewsbury 2-0 Halifax—Plymouth 2-1 PortVale—NottsCoutny 1-1 Rochdale—Brentford 0-1 Scunthorpe—Rotherham 2-1 Southend—Bolton i-i Swansea—Oldham 0-0 Walsall—York o-0 Wrexham—Tranmere 0-0 4. deild Barnsley—Aldershot 2-0 Bury—Hartlepools 1-1 Cambridge—Chester 1-0 Crewe—Northampton 1-0 Hereford—Peterbro 3-0 Lincoln—Stockport 5-3 Mansfield—Exeter 2-0 Reading—Bradford C. 2-0 Workington—Gillinham 1-1 Doncaster—Darlington 2-0 Staðan i deildunum er nú þannig: 3. DEILD 4. DEILD C.Palace. LU Á. UEILU Bolton Notts. County ... .. 37 .. 39 20 19 9 8 8 12 57-32 51-43 49 46 Southport Hereford .. 38 .. 40 22 20 9 11 7 9 64-41 52-33 53 51 35 22 8 5 64-36 52 Burnley .. 35 19 13 3 59-31 51 Bournemouth... .. 39 15 14 10 60-38 44 Mansfield .. 39 18 12 9 68-42 48 35 21 8 6 50-32 50 QPR . . 34 18 12 4 66-35 48 Bristol Rov .. 40 16 12 12 65-49 44 Cambridge .. 40 16 16 8 58-51 48 32 18 9 5 56-33 45 Blackpool .. 36 15 10 11 48-43 40 Oldham .. 38 17 10 11 46-39 44 Newport .. 38 19 9 10 52-36 47 34 16 10 8 48-34 42 Sheff. Wed .. 36 15 9 12 54-48 39 Blackburn .. 38 17 10 11 46-39 44 Aldershot .. 39 18 9 12 50-35 45 35 15 10 10 54-42 40 AstonVilla .. 34 14 11 9 41-38 39 Grimsby .. 39 18 7 14 60-48 43 Reading .. 36 14 13 9 41-28 41 34 15 9 10 52-42 39 Fulham .. 34 14 10 10 51-40 38 PortVale .. 37 17 9 11 43-52 43 Stockport .. 38 15 11 12 46-42 41 35 14 9 12 56-45 37 Middlesbro .. 36 13 12 11 35-38 38 Tranmere .. 38 14 13 11 50-39 41 Exeter .. 38 16 9 13 49-46 41 33 13 9 11 45-36 35 Oxford .. 34 15 6 13 40-33 36 Charlton .. 39 16 8 15 60-53 40 Workington .. 39 15 10 14 51-53 40 35 14 7 14 43-51 35 Luton .. 33 13 10 10 41-39 36 York .. 39 12 14 13 37-33 38 Lincoln .. 39 12 15 12 55-49 39 35 9 16 10 35-39 34 Millwall .. 35 14 7 14 50-42 35 Plymouth .. 37 15 7 15 57-52 37 Gillingham .. 38 14 11 13 51-47 39 33 12 9 12 35-37 33 Bristol City .. 35 12 11 12 47-45 35 Chesterfield .... .. 38 14 9 15 47-45 37 Hartlepool .. 39 12 14 13 29-37 38 33 9 14 10 42-42 32 Nott. Forest .... .. 35 12 11 12 39-40 35 Rochdale .. 38 11 15 12 37-43 37 Bradford .. 38 14 9 15 50-51 37 35 9 13 13 37-42 31 Hull .. 32 11 11 10 49-42 33 Shrewsbury .... .. 38 12 13 13 37-44 37 Barnsley .. 39 12 12 15 48-55 36 34 11 9 14 46-53 31 Sunderland . . 30 11 9 10 43-47 31 Southend .. 39 13 10 16 43-46 36 Chester .. 38 11 13 14 51-44 35 33 11 8 14 32-34 30 Portsmouth .... .. 35 10 10 15 38-47 30 Walsall .. 38 15 6 17 48-56 36 Doncaster .. 38 12 11 15 40-41 35 35 11 8 16 38-50 30 Preston ..35 10 10 15 33-55 30 Wrexham .. 38 10 15 13 41-48 35 Peterborough .. .. 38 12 11 15 64-68 35 35 9 11 15 40-48 29 Carlisle ..34 10 9 15 43-41 29 Rotherham .. 40 14 7 19 44-58 35 Bury . . 37 9 17 11 37-43 35 34 8 11 15 35-55 27 Orient ..34 9 11 14 38-42 29 Watford .. 38 10 13 15 35-40 33 Torquay .. 38 9 14 15 34-40 32 34 8 9 17 46-49 25 Swindon . . 36 8 13 15 42-57 29 Brentford .. 38 14 5 20 43-55 33 Crewe . . 38 8 16 14 33-49 32 33 7 11 15 34-43 25 Huddersfield ... ..35 6 15 14 32-47 27 Swansea .. 39 12 9 18 44-62 33 Northampton ... .. 39 9 10 20 35-58 28 34 8 9 17 29-52 25 Cardiff ..33 10 6 17 34-48 26 Halifax . . 36 8 13 15 28-40 29 Colchester .. 37 7 9 21 34-63 23 34 7 9 18 29-51 23 Brighton ..35 6 10 19 38-73 22 Scunthorpe .. 39 9 8 22 27-60 26 Darlington .. 39 4 13 22 35-75 21

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.