Vísir - 26.03.1973, Síða 17

Vísir - 26.03.1973, Síða 17
Vísir. Mánudagur 28. marz. 1973. 17 BÍLAR UMFERÐ TÆKNI o ^_____aát£> Umsjón: Jóhannes Reykdal Eftir að sérfrœðingar brezka bílablaðsins Motor höfðu reynsluekið Datsun Cherry og Fiat 127 í heilt ór og eigendur fjölda bíla af þessum gerðum höfðu verið spurðir ólits, þó mó segja að útkoman hafi verið: JAFNTEFLI Þessi jafnaðarútkoma sýnir svo ekki verður um villzt að báðir þessir bilar eru mjög svo áreiðan- legir, og aðeins 2.4 bilanir að jafn- aði hjá Datsun, eru með þvi al- minnsta sem þeir hjá MOTOR hafa orðið varir við hjá nokkurri tegund. (t svarinu um það hve lengi billinn hafi verið frá akstri kom út að Datsun hefði verið 0.4 daga út akstri að jafnaði, á móti Fiat 1.3). Nú skal stiklað á stóru um helztu atriði bilananna: Yfirbygging, máining: Hér vinnur Datsun, þvi um 88% eig- enda Fiat kvörtuðu yfir a.m.k. einum galla á móti 36% hjá Dat- sun eigendum. Yfir 30% Fiat eig enda kvarta yfir ryði á samsetn- ingum og brúnum, 21% yfir lélegu lakki, sem getur sprungið, 10% yfir ryðguðum felgum, og sami fjöldi yfir lausum eða lekum dyra og gluggaþéttingum. Hjá Datsun eigendunum, kvörtuðu 10 af 36% um sprungur i lakki og 10% yfir ryði á byrjunarstigi á köntum. Samsetningar, listar: 35% hjá Datsun á móti 29% hjá Fiat. Fiat eigendur kvörtuðu aðallega und- an þvi að gluggagúmmi losnuðu. Mælar: Mjög lág tala hjá Datsun 10%, en 26% hjá Fiat.12% Fiat kvartanna voru vegna hávaða i hraðamæli, og 10% um óstöðugleika á hraðamæli, sem var vegna gaíla i snúru. Vél:28% Datsun eigenda kvört- uðu yfir að minnsta kosti einum galla i vél, sama gerðu 36% Fiat eigenda. Samt sem áður voru engar sérstakar bilanir tilgreind- ar hjá Datsun, en Fiateigendur kvörtuðu yfir vatnskassagöllum, þar af 10% um lekar hosur. Skipting, drif: Af aðeins 21% Datsuneigenda sem kvörtuðu yfirleitt, höfðu 14% sitt að athuga við stifa skiptingu úr fyrsta i ann- an gir. Hins vegar var hlutfallið 29% hjá Fiat, og þar kvörtuðu 17 og 14% yfir að erfitt væri að hitta i réttan gir, að öðru leyti beindust kvartanir að stifri skiptingu og einkennilegri. Stýri, fjöðrun: Hér kemur Datsun verr út með 22% sem fundu a.m.k. eitt athugavert. 9% kvörtuðu yfir ýmsum höggum og hinir um óhljóð i afturfjöörun. Fiat eigendur voru öllu ánægð- ari með aðeins 19% kvartanir, þó engar sérstaklega tilgreindar. Bremsur: Hér er Datsuninn aftur hærri, 26% áttu við einhvern vanda að striða, og þar af kvört- uðu 13% um mismundandi grip og skjálfta. Aðeins 12% Fiateigenda áttu við vandamál að etja og þar af 7% sem áttu við að skipta þurfti um bremsudiska og púða að framan. Rafkerfi: Hér voru báðar teg- undirnar jafnar, með 24% hjá Datsun og 26% hjá Fiat. Engar sérstakar bilanir voru tilgreindar hjá Fiat, en 9% hjá Datsun áttu við gallaðar perur. Og svona til gamans skulum við geta um útkomuna úr spurning- unni hvort núverandi eigendur Datsun og Fiat bilanna sem við höfum fjallað hér um, myndu kaupa annan aftur. Datsun: Fiat Tala spurðra 58 42 Já 76% 52% Nei/óákveðnir 24% 48% Nú væri rétt að lita á útkomuna úr reynsluakstri þessara tveggja bila i heilt ár. Datsun Cherry 100A Nú skal stiklað á stóru hvað Tony Scott, sá sem tók að sér fyrir MOTOR að aka Datsuninum þessa rúmlega 19.000 kilómetra hafði um það að segja. Þegar hann tók við bilnum nýjum og ók heimleiðis, þá var það fyrsta sem hann tók eftir var það, að þegar ekið var með um það bil 80 kilómetra meðalhraða, þá kom fram óþægilegur hávaði frá dekkjúnum, hvinur i girkassa og leiðinleg skipting i annan gir. Með timanum lagaðist skiptingin og varð góð, en hávaðinn hélzt. Helzta kostinn við bilinn telur hann vélina, hún gangi það létt og hljóðlega, (og það enn eftir heils eftir að hafa haft, sér til mikillar ánægju, Mini-Cooper undir höndum i tvö ár, að hann myndi ekki eftir að leiðir hans og Mini- Coopersins skildu, fá sér smábil aftur. Þegar hann svo frétti að honum væri ætlað af hálfu MOTOR að reynsluaka Fiat 127 i eitt ár, þá gat hann ekki dulið vonbrigöi sin. Hann vantaði bil, sem gæti dregiö kappakstursbil og allt hans fylgi- dót um vegina, án erfiöleika. Þetta hélt hann að væri of mikiö fyrir 127, — en honum skjátlaðist. Fyrstu endurminningarnar frá þessu ári eru varðandi kúplings- pedalann, sem hreinlega festist niðri við gólf, svo maður varð að árs akstur, þótt aðeins gæti ventlaglamurs þegarhún er köld) að næsta ótrúlegt sé að sveifar- ásinn liggi aðeins i þremur aðal- legum. Burtséð frá hávaðanum i girkassanum, er hann hreinasta afbragð, en i byrjun kom fram, (eins og i flestum Datsun Cherry) misjafn annar gir, þetta reyndist unnt að laga með þvi að setja SAE 30 oliu saman við girfeitina. Það sem mér finnst helzt að við Cherry 100A er hávaðinn frá hjól- unum, þetta er mér sagt að megi laga, en mér er spurn hvers vegna verksmiðjurnar sjá ekki til þess að farþegarýmið sé betur einangrað, til að ekki sé eins þreytandi á löngum ökuferöum að hlusta á hvininn frá hjólunum. Sætin mættu gjarnan hafa hallastillingu og veita betri stuðning. Miðstöðin er að minu áliti ófullnægjandi vegna þess hversu erfitt er að velja á milli óbærilegs hita og iskulda, það er að segja ef hægt er að ná til stilli- handfangsins þar sem það er hálffalið undir mælaboröinu, þegar maður situr fastspenntur i öryggisbeltin. Bensinlokið, sem er úr plasti, er hreinasta ólán, og er erfitt að ná þvi úr, og maður getur átt það á hættu að meiða sig við að losa þaö. — Þvi næst fjallaði Toni Scott um eftirlit og viðhald sem billinn fékk þessa rúmlega 19.000 kiló- metra, og einnig um þær breyt- ingar sem hann gerði á bilnum þann tima, þ.e. skipti um stýris- hjól, felgur og setti undir bilinn radialdekk, (en hann setti upprunalegu felgurnar og dekkin undir aftur til að raunverulegir aksturseiginleikar bilsins kæmu fram með skilum). A þessu ári fékk billinn einungis eðlilegt eftirlit, engar viðgerðir þurfti að framkvæma, einungis stillingar á bremsum, kveikju og stýri (sem vildi titra). Fiat 127: Gordon Bruce, sá sem tók að sér að reynsluaka Fiat 127 fyrir MOTOR, hét sjálfum sér þvi að beygja sig niður og losa hann, og sætin en þau virtust frekar vera ætluð i stiginn barnabil, meðal Itali er greinilega mun minni en samsvarandi meðalmaður á Bretlandi. Þegar ég var búinn að aka um 3000 kilómetra hafði ég annað- hvort hlaupið eða að ég hafði vaniztsætunum, vélin virtist vera orðin i góðu lagi eftir tilkeyrslu en girskiptingin var enn óþægilega stif, og skemmdi það fyrir annars mjög góðum aksturseiginleikun bilsins. Þar sem billinn varð að standa úti yfir vetrartimann þá yfirfór ég lakkið viö 4800 kiló- metra. Ryð var aö byrja að myndast á afturljósunum og felg- urnar orðnar mislitar af tæringu. Yfirbyggingin var hins vegar að þllu leyti ryðfri. Varðandi dekkin vil ég taka fram, að ég varð ekki sammála uppgefnum tölum frá Fiat um loftþyngd i þeim, (24 að framan og 27 aðaftan)og sneri þeim hrein- lega við og jók upp i allt að 30 að framan. Þetta bætti aksturseigin- leikana að mun, nema kannski helzt i mjög mikilli bleytu. Við 10.000 kilómetra hafði gir- kassinn liðkazt litið frá þvi að hann var nýr, og „Synkromið” á öðrum gir var farið að gefa sig illilega. Eftir nokkurn tima var girkassinn lagfærður, og eftir það liðkaðist skiptingin smám saman og er nú orðin eins góð og Fiat skipting getur frekast orðið. Þarna virtist hafa verið um galla að ræða sem unnt reyndist að laga, svo að hann ætti ekki að stinga upp kollinum aftur. Farangursrýmið á 127 er til að hrópa húrra fyrir. Þótt þrjár stórar ferðatöskur væru settar inn, þá var samt nóg pláss eftir fyrir alls kcnar dót, sem fylgir fólki á ferðalögum. Á þessu ári fékk Fiatinn aðeins venjulegt viðhald og eftirlit, og einu viðgerðirnar sem voru fram- kvæmda'r voru á girkassanum, sem fyrr var lýst, og svo var skipt um hraðamælisbarka og bremsu- púða að framan. BETRA OG FULLKOMNARA LJOS — meira umferðaröryggi Heildsala - Smásala Sniyríll,Ármúla 7, Rvk. sími 8-44-50 * SKÍÐA jakkar * skíða buxur * skíða hanzkar * skíoa gleraugu * skíða skór * SKÍÐA stafir Fallegar vörur, vandaðar vörur * Landsins mest úrval PÓSTSENDUM SPORTVAL Hlemmtorgi — Simi 14390

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.