Vísir - 26.03.1973, Blaðsíða 24
r
VÍSIR
Mánudagur 26. marz. 1973.
Brennur ofan
/
af Vestmanna-
eyingum
Sjaldan er ein báran stök, segir
máltælkið, og það getur fjöl-
skylda Erlings Einarssonar frá
Vestmannaeyjum tekiö undir.
Snemma á sunnudagsmorgun
kom upp eldur í fbúö þeirri, sem
þau bjuggu í á Vatnsleysuströnd.
Slökkviliðiö f Keflavík kom fljót-
lega á vettvang og tókst aö kæfa
eldinn ástuttum tfma. Húsiö.sem
er gamalt steinhús en meö
timburgólfum, ein hæö og ris,
skemmdist nokkuð, sérstaklega
hæöin. Einnig komst mikiö vatn i
kjallara.
t húsinu bjó Erlingur Einarsson
frá Vestmannaeyjum, með fjöl-
skyldu sinni, konu og fjórum
börnum. Var fjölskyldan nýlega
flutt I húsiö. Húsgögn þeirra og
innbú mun hafa skemmst töluvert
I brunanum.
Stendur nú fjölskylda þessi
uppi húsnæöislaus I annaö skipti á
stuttum tima. Nágrannarnir
skutu yfir þau skjólshúsi en alveg
óvist er hvenær húsiö verður
ibúöarhæft á ný.
—ÖG
„Breytir
ekki við-
horfum tii
róðherra-
fundar"
— segir talsmaður lafði
Tweedsmuir og brezku
blöðin um atburðina
í gœr
—
200
■
eysi gagn-
vart gaseitrun
ioo
metrar
Sund-
laugin
fullaf
hrauni
í hœttu
Myndin hér til hliöar ætti aö
gefa nokkuð ljósa mynd af þvi,
hvert hraunrennslið stefnir.
Bakkastfgur er nú allur undir
hrauni, en þar er þaö einmitt,
sem Hjörtur Hermannsson
ætlar aö byggja aö nýju, eins
og getiö er um I frétt for-
siðunnar. Hrauntunga teygir
sig i átt aö skemmu hraö-
frystihússins, en Skansinn er
ennþá frir.
Þessi afstööumynd er gerö
klukkan nfu f morgun sam-
kvæmt upplýsingum blaöa-
konu Vísis, sem stödd er I
Eyjum. Lýsir hún þvi I
fréttum sfnum, hversu mikil
hætta steöjar aö rafstöðinni,
en stööin kynni aö vera horfin
af sjónarsviöinu, áöur en
dagur er allur.
Þá má geta þess, aö sund-
laugin var i morgun oröin full
af hrauni, en sundlaugin
stendur rétt ofan viö Skansinn.
—ÞJM
— einn fluttur
fró Eyjum
í gœr
af þeim
sökum
I Gasiö I Vestmannaeyjakaup-
staö var I hámarki i gær-
I morgun, og meirihluta gær-
dagsins. Þar sem mælt var á
j tveimur stööum — á Kirkjuvegi
' og Vestmannabraut — var gasið
hættulega mikiö, aö þvl er þeir
læknanemar, sem nú stunda
störf I Eyjum, tjáöu blm. VIsis.
I gærkvöldi var gasiö aðeins
fariö að minnka, enda var þá
farið að hvessa talsvert. Um
helgina hafa fáir veikzt alvar-
lega af völdum gassins, en tveir
menn voru þó fluttir frá
Eyjum, þar sem þeir voru hætt
komnir i gasinu.
Haföi annar þeirra farið inn i
kjallara eins húss i bænum, sem
honum hafði verið ráðlagt að
halda sig frá. Hann lét við-
varanir sér sem vind um eyru
þjóta og fór inn i kjallarann.
Þar var gasið svo mikið að hann
átti strax erfitt um andardrátt.
Hann komst þó burtu og til
læknis, þar sem honum var
þegar i stað gefið súrefni. Hann
reyndist ekki alvarlega sjúkur,
en var sendur til Reykjavikur
þar sem talið var að hann þyrfti
að fá góða hvild.
Kæruleysis gætir nú meðal al-
mennings i Eyjum gagnvart
gasinu og hættunni, sem kann
að stafa af þvi, að þvi er
Kristján Eyjólfsson einn lækn-
anna, sem nú starfa i Eyjum,
sagði i viðtali við Visi i gær.
Hann kvað fólk voga sér inn á
hættusvæðið án þess að skeyta
um boð eða bönn. Sumir teldu
þaö jafnvel rugl að tala yfirleitt
um gaseitrun.
Nokkuð var um það nú um
helgina, að þeir sem ekki fóru
sér nógu varlega fundu til
höfuðverkjar og ógleði.
Aðstaða læknisins, sem nú er
hér i Eyjum, er að Hótel HB þar
sem farþegamiðstöðin er einnig
til húsa ásamt fleiru. Er þvi
hótelið nú ein aðalmiðstööin i
bænum.
Frá farþegamiðstöðinni er
stjórnað öllum fólksflutningum
til og frá Eyjum og er þar þvi
stöðugur straumur manna, sem
eru að leita upplýsinga og
tryggja sér ferðir.
Læknirinn á hóteiinu hefur
hjá sér súrefnistæki og ýmis
önnur áhöld, sem gripa má til,
ef slys ber að höndum. —EA
„Slöustu atburöir I landhelgis-
deilunni breyta ekki aö ég tel viö-
horfum til ráöherrafundar”
„Embættismenn, sem voru á
fundum meö islenzkum em-
bættismönnum i Reykjavik,
komu til London á föstudag. Þeir
munu gefa skýrslu, og slöan
veröur þaö ákvöröun ráöherra
beggja hvort, hvenær og hvar
ráöherrafundir veröi haldnir”.
Þetta sagöi talsmaöur laföi
Tweedsmuir I morgun.
„Við mótmæltum strax i gær-
kvöldi þvi, að skotiö var á brezk
skip. Sendiherrann i Reykjavik |
áréttar mótmælin i dag. Hins
vegar biðum við eftir nákvæmum
skýrslum um atburðinn. Bretar
reyna að fara gætilega”, sagði
talsmaðurinn. „Við reynum aö
gefa ekki yfirlýsingar, þótt það
kunni að vera freistandi, fyrr en
við höfum gögnin i höndunum”.
Brezku blöðin i morgun
hörmuðu atburðina á íslands-
miðum i gær, sagði talsmaðurinn.
„Þau telja þó ekki ástæðu til að
hætta við ráðherrafundi þeirra
vegna”.
„Við biðum”, sagði tals-
maðurinn, „eftir þvi, hvaða
niöurstöður verða af skýrslum
sendimanna og hvaða ákvörðun
ráðherrar beggja vegna munu
taka”.
—HH
VAKIR FYRIR HEIMSMET OG
GÓÐGERDARFÉ
„ftg ætla aö stjórna útvarps-
þætti I 100 klukkutfma,” sagöi
lágvær rödd hinumegin á lln-
unni. „Ég vaki lengur ef ég get,
en cf ég verö aö niöuriotum
kominn áöur en þessi tlmi er liö-
inn, þá hætti ég lika fyrr.”
Það var bandarískur her-
maöur á Keflavikurflugvelli,
Craig Johnson að nafni, sem
þetta sagði. Viö spurðum hvort
hann ætlaði að setja heimsmeti
stjórn útvarpsþátta.
„Ég veit ekki hvort 100
klukkutimar teljast heimsmet,”
sagði hinn vökuli útvarps-
maður. „Það hefur einn stjórn-
að útvarpsþætti i 212 klukku-
stundir, en hann var undir
dáleiðsluáhrifum og var settur á
hæli, eftir vikið.
Ég drekk ekki kaffi eða nota
neinar aðrár óeðlilegar aðferðir
til að halda mér vakandi. Það
hefur einn maður vakað við
stjórn útvarpsþáttar i niutiu og
tvo og hálfan tima. Það var á
eyjunni Guam fyrir þrem vikum
siðan.” Þaö telst liklega met
ennþá.”
Rödd mannsins i simanum er
lágvær og blaðamaðurinn á
erfitt með að heyra hvað er
verið að segja i simann. Hann
hefur orð á hvort sambandið sé
eitthvað slæmt.
Þá biður Craig Johnoson hann
að biða. Rétt seinna kemur
annar maður i simann, sem
segir að sambandið sé ekki
slæmt, röddin i Craig sé bara
orðin frekar veik og hann vilji
ekki leggja það á hana að öskra
á blaðamanninn i simann.
En þar sem maðurinn kvaðst
fús til að segja okkur allt um
málið og hann hefði Craig við
hlið sér til að spyrja hann þá
héldum við áfram.
— Er nokkur staddur þarna til
aö sjá um að hann fái sér ekki
blund á meðan hann leikur lög-
in?
— Já, heldur betur. Við erum
hér fimm á vöktum við að sjá til
þess að ekki sé svindlað. Hann
verður búinn með þessa
hundrað tima um kvöldmat,
klukkan sex eða sjö á morgun.
— Hvernig bjó hann sig undir
þetta?
— Hann fékk fri i tvo daga frá
starfi sinu á útvarpsstöðinni.
Aöalundirbúningurinn fólst i þvi
að hann hvildi sig og svaf dag-
inn áöur en hann byrjaði
Bæði á Guam, sem áður var
nefnd og hér á Islandi vaka
mennirnir til að safna fé til góð-
gerðarstarfsemi. A Guam
söfnuðust 400 dollarar, en hér
hafa þegar safnast 1700 dollar-
ar.
Söfnunin fer þannig fram að
hlustendurnir hringja eða koma
og kaupa sér lög. Fólk getur
keypt sér eitt lag fyrir einn
dollar. Þaö getur látið spila
aðra hliðina á stórri plötu fyrir 5
dollara og báðar hliðar fyrir tiu
dollara. Sumir velja hundleiðin-
legt lag og láta spila það 30
sinnum, þá er hægt að kaupa
lagiö út með þvi að yfirbjóða
fyrri greiðslu.
Enginn annar þáttur er i út-
varpinu en þessi þáttur Craigs
Johnsons, fyrir utan fréttir og
veðurfregnir. —Ló
Þetta er hinn vökuli Craig
Johnson, útvarpsþulur.Myndin
er tekin, þegar hann haföi talaö
i tvo og hálfan sólarhring.