Vísir - 28.04.1973, Blaðsíða 3
Vísir. Laugardagur 28. aprll 1973.
3
Ffytja fiskinn 190 km
Fiskur fluttur frá
Þorlákshöfn
til Borgarness
til vinnslu
Það er alveg óvist, að
það borgi sig fyrir okk-
ur að flytja fiskinn frá
Þorlákshöfn til vinnslu.
Við erum að gera þetta
til reynslu. Við fengum
fiskinn frá ólafsvik.
Fiskiriið datt þar alveg
niður, og til að nýta
stofnkostnaðinn og fá
frekari reynslu sækjum
við fiskinn núna svona
langt, sagði ólafur
Sverrisson, kaup-
féiagsstjóri i Borgar-
nesi, i viðtali við Visi.
beir hafa fariö út i þaö i
Borgarnesi aö flytja fisk alla
leið frd Þorlákshöfn til vinnslu,
um 190 kilómetra leið. Er það
sennilega lengsta leiö, sem fisk-
ur hefur veriö fluttur landleiö-
ina á Islandi til vinnslu.
Viö höfum hug á þvi að hefja
fiskvinnslu hérna, sagði Ólafur.
Ef niðurstaöa tilraunarinnar
verður gdö, ætlum viö aö
tryggja, að bátur leggi upp hjá
okkur.
Helzt kæmi þá til mála, að
hann landaði aflanum á Akra-
nesi, en aflanum yrði ekiö þaöan
hingaö.
— VJ.
Sótt fram til sjávar.
Kringlumýrarbraut niður að sjó
Tekur við þungaflutningum af Suðurnesjum niður á hafnarbakkana
— Þaðer verið aö undirbúa sfö-.
asta hluta Kringlumýrarbrautar-
innar, frá Sigtúni og niður að
Sætúni, undir malbikun, sagði
Ingi Ú. Magnússon gatnamála-
stjóri er við spurðum hann um
þær framkvæmdir sem hafnar
eru við Kringlumýrarbrautina.
Einnig verður lokið við þann
hiuta brautarinnar, sem er milli
Laugavegar og Sigtúns og ennþá
er aðeins ein akrein.
Við þessa breytingu ætti um-
feröarþunga að létta mikið af
eldri götum borgarinnar, þvi
straumur bifreiða að og frá
gömlu höfninni og Sundahöfn af
Suðurnesjum og viðar muni
liggja um Kringlumýrarbrautina
i framtiðinni.
öllum þessum framkvæmdum
á að ljúka i sumar og áætlaður
kostnaður er um það bil 20
milljónir króna. —ÓG.
VAR SAMFLEYTT A
LOFTI í FIMMTÁN
OG HÁLFAN TÍMA
Friður floti fimm lítilla
flugvéla lenti á Reykja-
vikurf lugvelli um
Einn fiugmannanna stigur út
úr v é 1 s i n n i .
hádegisbil ifyrrad. Þarna
voru á ferð vélar frá
Piper verksmiðjunum
bandarísku. Verið var að
flytja þær yfir hafið,en
búið var að selja þær til
Þýzkaiands og Frakk-
lands.
Fjórarþeirra voru af gerðinni
P.A. 28, einshreyfils og taka
fjóra farþega, en ein var
tveggja hreyfla og tekur 6
manns.
Vélarnar voru búnar auka-
eldsneytistönkum og höfðu
verið samfleytt á lofti i hálfan
sextánda tima, en siðasti við-
komustaður var i Maine-fylki á
austurströnd Bandarikjanna.
Heldur voru það þreytulegir
menn, sem stigu út úr þeim hér
á Reykjavikurflugvelli, enda
eðlilegt eftir að vera búnir að
sitja i þröngum sætum i vélun-
um allan þennan tima. Eina
erindið hingað var að taka
bensin og hvila sig skamma
stund, en siðan var haldið áfram
áleiðis til Evrópn -ÓG
OG NU MUN
DANSINN /
DUNA...!>^
Þessa dagana fáum við is-
lendingar svo sannarlega tæki-
færi til þess að kynnast öðrum
þjóðum, bæði nágrannaþjóðum
og svo þjóðum, sem eru okkur
öllu fjarlægari eins og til dæmis
Kinverjar. En Færeyingar eru
ein af þeim þjóðum, sem okkur
verður rækilega kynnt næstu
vikuna.
t Norræna húsinu var opnuð i
gærdag sýning á málverkum og
heimilisiðnaði Færeyinga, og þar
með hófst hin svokallaða fær-
eyska vika, sem stendur yfir dag-
ana 27. april til 2. mai.
Undirbúningur var i fullum
gangi i Norræna húsinu, þegar
Visismenn litu þar við i gær. Ver-
ið var að koma fyrir listvefnaði,
málverkum, færeyskum þjóðbún-
ingum, bókum, póstkortum og
ýmsu öðru.
Sjö ungir færeyskir listamenn
sýna þar málverk sin, en svo er
sýndur ýmiss konar heimilis-
iðnaður, sem færeyskar konur
hafa gert. Og það er ekki hægt að
segja annað en þær virðist ákaf-
lega iðnar.
Dansinn dunar sennilega á
meðan á þessari færeysku viku
stendur hér uppi á tslandi. Að
minnsta kosti var þegar i fyrra-
kvöld, áður en sýningin var svo
mikiðsem opnuð, hafinn færeysk-
ur dans af fullum krafti.
Fólk sat yfir borðum og drakk
kaffi, en þá tók einhver Fær-
eyingurinn sig til og vildi dansa.
Og ekki stóð á hinum. Jafnvel ts-
lendingarnir dönsuðu sig sveitta i
þessum taktfasta dansi.
Og ákveðið hefur verið, að á
meðan þessi „vika” stendur,
verði dansinn stiginn hvenær sem
mönnum dettur i hug, en ekki á
neinum sérstökum tima eða stað.
30 Færeyingar eru nú komnir til
landsins i tilefni þessa og þar á
meðal fjórir, sem eingöngu sjá
um dansinn og svo hin löngu ljóð,
sem Færeyingar eru þekktir fyr-
ir- . —EA
Tolla- og
verðlags-
kerfið er
gallað og
þarf nast
endurbóta
— að áliti iðnaðar-
ráðherra
Gerbreyta þarf tollamálum
iðnaðarins, til þess að veruleg
iðnþróun geti átt sér stað, og
vcrðlagskerfið, sem hér rikir,
tryggir á engan hátt, að fram-
leiðslugetan sé nýtt scm bezt, að
áliti Magnúsar Kjartanssonar,
iðnaðarráðherra, sem flutti ræðu
á ársþingi Félags islenzkra iðn-
rekenda i fyrradag.
Taldi hann litinn árangur hafa
orðið af þeim tilraunum til breyt-
iuga á tollalöggjöf. sem gerðar
liafa verið til þessa og taldi óhjá-
kvæmilegt, að á næsta þingi yrðu
gerðar verulegar breytingar á
löggjöf um það efni.
Núverandi verðlagskerfi taldi
hann skapa verulegt misræmi
milli atvinnugreina og draga
fjármagn og vinnuafl frá fram-
leiðslugreinum yfir i innflutn-
ingsverzlun og þjónustugreinar.
Unnið er að endurskoðun þessara
mála hjá viðskiptaráðuneytinu.
Ráðherrann benti einnig á, að
þjálfun og ráðgjöf allri væri mjög
ábótavant, sérstaklega i iðnaði,
en frá áramótum hefur sér-
fræðingur unnið að þeim málum á
vegum ráðuneytisins.
Mikið skortir á að stjórnunar-
mál islenzkra fyrirtækja séu nógu
virk og nútimaleg að áliti
ráðherrans og taldi hann hér
mikið verkefni fyrir iðnrekendur
sjálfa til að ná auknum afköstum,
svo iðnaðurinn yrði ekki undir i
samkeppninni við vel rekin
erlend fyrirtæki.
Samkvæmt mannaflaspám
munu koma um það bil 1700
manns árlega á vinnumarkaðinn
og á næstunni verður iðnaðurinn
að taka við mestum hluta þess
fólks.
— CG
Fó að semja
beint við
starfsfólkið
Meðlimir Félags islenzkra iðn-
rekenda vilja opna samtök sin og
mynda þeim breiöari grundvöll.'
Á ársþingi á fimmtudaginn var
lögum félagsins breytt þannig, að
núna geta aðilar, sem ekki vilja
binda sig kjarasamningum, sem
samtökin semja um, fengið heim-
ild til að ganga i þau.
Ýmsir stórir aðilar að iðn-
rekstri standa fyrir utan Félag is-
lenzkra iðnrekenda, og geta þeir
nú samkvæmt þessari laga-
breytingu gengið i félagið, ef þeir
hafa áhuga.
Meðal annarra má nefna ýmis
rikisfyrirtæki, eins og Aburðar-
verksmiðjuna. öll iðnfyrirtæki
samvinnumanna eru utan þeirra
og einnig tslenzka álfélagið.
Með þessu vilja iðnrekendur
gefa þessum aðilum, sem utan við
samtökin standa, kost á þvi að
taka þátt i þeim hluta starfsem-
innar, sem ekki snýr að kjara-
málum, heldur ýmsum sameigin-
legum hagsmunamálum öðrum.
A þinginu var lagt fram álit
þriggja nefnda, sem starfað höfðu
á árinu, og komu þar fram hug-
myndir i 28 liðum, sem talið er að
vinna þurfi að i sameiginlegum
hagsmunamálum.
—ÓG