Vísir


Vísir - 28.04.1973, Qupperneq 20

Vísir - 28.04.1973, Qupperneq 20
Laugardagur 28. apríl 1973. Lífeyrissjóðirnir geta ekki staðið við skuldbindingar sínar Verðbólgan étur þá upp „Takist ekki aft draga verulega úr verftþenslunni, veröur Lif- eyrissjóði verzlunarmanna og öðrum þeim llfeyrissjóðum, sem ekki eru verðtryggðir af al- mannafé, ókleift að standa viö þær skuldbindingar, sem á þeim hvila. t>eir munu ekki geta gegnt tryggingarhlutverki sinu”. Þetta kemur fram i ársskýrslu stjórnar Félags islenzkra iðnrek- enda, en tryggingafræðingur hef- ur nýlega gert úttekt á sjóðnum, og i skýrslu hans kemur meðal annars fram, að til þess aö sjóðurinn geti staðið við þær skuldbindingar, sem á honum hvildu 31. desember 1970, þá þarf hann aö ávaxtast meö minnst 3% hærri vöxtum en nemur meðaltali árlegra kauphækkana — bæöi kauphækkana vegna veröbólgu og raunverulegra. Fram kemur I ársskýrslunni, að laun karla hækkuðu samkvæmt samningum Verzlunarmanna- félags Reykjavikur að meðaltali um 15% á ári, 1961 til 1971. Samkvæmt þvi hefði fjármagn Lifeyrissjóðs verzlunarmanna þurft að bera nálægt 18% vexti á ári, en þvi mun fara fjarri, aö svo sé. Stór hluti fjármagnsins hefur verið lánaður til sjóðfélaga með 9% vöxtum. Verðbólga hefur sið- ur en svo verið minni eftir 1971 en áöur. Þetta er raunar niðurstaða, sem hnigur mjög i sömu átt og fram kom i Visi siðastliðinn fimmtudag. —ÓG Létt undir með bœjarfélögunum — í róði að RKI og hjáiparstofnunin verji fé til barnaheimila og elliheimila úti á landi ásamt bœjarstjórn Vestmannaeyja t athugun hefur verið að undan- förnu að reisa elliheimili og dag- heimili fyrir Vestmannaeyinga á vegum Rauða krossins, Hjálpar- stofnunar kirkjunnar og hæjar- stjórnar Vestmannaeyja sam- eiginlega. Að þvi er Páll Bragi Kristjóns- son hjá hjálparstofnun þjóðkirkj- unnar tjáði blaðinu i gær, yrðu þessar stofnanir reistar fyrir það fé, sem börizt hefur, en þeir sjóðir skipta hundruðum milljóna. „Grunnhugsunin er sú”, sagði Páll Bragi, „að reyna að koma sem allra fyrst upp aðstöðu til barnagæzlu fyrir Vestmanna eyinga, þar sem þeir munu koma saman til að dvelja i hóp.” Barnaheimilin eru hugsuð á Suðurnesjum, Suðurlandi og á Stór-Reykjavikursvæðinu. Heimilin yrðu innflutt hingað til lands, og ætti þetta þvi aö geta veriö framkvæmt með talsverðum hraða. Þegar hefur verið rætt við sveitarfélög um þessi mál, og ljóst er, að þörfin er talsverð viða um land, ekki sizt I Reykjavik. Hér er ekki aðeins um dagvistun að ræða, heldur einnig leikskóla. Elliheimili fyrir Vestmanna- eyinga yrðu reist með sama sjónarmið i huga og dagheimilin, þ.e. að koma að góðum notum á hverjum stað fyrir sig. I dag er barnagæzla fyrir Vest- mannaeyinga á þremur stöðum, i Neskirkju, Silungapolli og i Hveragerði. —EA Gamli prestaskólinn virtur á 39 milljónir Karnabœr keypti 2/3 hluta Austurstrœtis 22 fyrir 26 milljónir króna Jú, það er alveg rétt. Ég sé enga ástæðu til að leyna þvi, að við höf- um keypt tvo þriðju hluta eignarinnar Austurstræti 22 með lóð fyrir 26 miHjónir króna, sagði Guðlaugur Bergmann, kaupmaður i Karnabæ, i viðtali við Visi i gær. Þykir mörg- um hraustlega að verið og þetta mikið verð fyrir gamalt hús. Sam- kvæmt þessum kaup- um væri öll eignin 39 milljón króna virði. Húsið var I eigu þriggja barna Haralds Arnasonar, en cins og Reykvikingar komnir af frum- bernskustigi muna, var Haraldarbúö til húsa þarna og enn áður Prestaskólinn. Við teljum, að þarna sé bezti verzlunarstaöur borgarinnar, sem er ástæðan fyrir þvl, aö við kaupum meirihlutann I þessari eign, sagði Guðiaugur. Hann sagði, að Karnabær mundi þó ekki nýta húsið strax, heldur leigja út verzlunarplássið I hús- inu. Hins vegar hefur Karnabær tekið á leigu verzlunarptáss I næsta húsi, Lækjargötu 2, þar sem kjólabúðin Mær hefur verið til húsa. Þess skal gctið, að húseignin, sem þarna var veriö að selja, hefði aðeins selzt fyrir brot af þessu verði, ef hún heföi staöið annars staðar. t þessum kaup- um er þaö staöurinn, sem gerir útslagið á veröið. t brunabóta- og fasteignamati Reykjavikur 1972 er húsiö allt metiö á 8.5 milljónir króna til brunabóta- mats, en lóðin öll er metin á 14 milljónir króna. —VJ Það er ekki sama, hvar húsin eru, þegar eigendaskipti verða og opna þarf buddurnar. Húsið aö Austurstræti 22 þætti örugglega ekki 39 milljón króna viröi, ef þaö stæði við Rauöhóla. Lúðvík boðar fleiri aðgerðir Kauphœkkun 1. júní fer niður fyrir 7% „Þessar ráöstafanir eru fyrst og fremst gerðar til þcss að hamla gegn verðhækkunum hér innanlands. Þetta þýðir I raun og veru um það bil 6% lækkun á inn- fluttri viiru, en að sjálfsögðu táknar þetta ekki, að allar inn- fluttar vörur muni lækka um þá upphæð. Verðhækkanir hafa verið verulegar crlendis, en gcngis- hækkunin inun þó draga úr áhrif- uin þeirra hækkana hér innan- lands, sagði Lúðvik Jósefsson ráðherra. Ekki er aðeins um gengis- hækkunina að ræða, heldur hefur rikisstjórnin ýmsar hliðarráö- stafanir i undirbuningi, sem miða að enn frekari lækkun vöru- verðs.” Um þær ráðstafanir vildi ráð- herrann ekkert segja annað en það, að þar væri um ýmsar beinar ráðstafanir til verðlagslækkana að ræða, og myndu þær ganga i gildi næstu daga. Lúðvik Jósefsson sagði enn- fremur: „Þrátt fyrir þessa hækk- un á gengi islenzku krónunnar reikna ég með, að hægt verði að tryggja sjómönnum og útgerðar- mönnum hliðstæðar kjarabætur og öðrum stéttum og þá með hækkun kaupgjaldsvisitölu. Að sögn ráðherrans hefði visi- tala verðlags, sem miðuð er við verðlag 1. mai og gengur I gildi 1. júni næstkomandi, hækkað um 7 til 8%, ef ekkert hefði verið að gert. En með þeim beinu aðgerð- um, sem rikisstjórnin hyggst gera jafnhliða gengishækkuninni, mun hún verða mun minni. Hækkun gengisins núna kemur aftur á móti ekki til með að hafa áhrif á verðlagið fyrr en á nokkuð lengri tima, þannig að verðlags- visitalan, sem reiknuð er út 1. mai næstkomandi, mun ekki lækka vegna gengishækkunarinn- ar. „Leiðrétta vitleysu að nokkru leyti”, segir Bjarni. „Ég er nú rétt búinn að heyra þetta i kvöldfréttunum, og þar sem mér eru ekki ljósar þær hlið- arráðstafanir, sem geröar verða — eða hvort þær verða gerðar — til frekari verðlagslækkana, get ég ekki mikið um málið sagt. 1 fljótu bragði sýnist mér þetta vera viðurkenning á þvi, sem ég hef alltaf haldið fram, að gengis- fellingin i desember siðastliðinn var hið mesta óráð og algjörlega óþörf. Þarna er verið aö reyna að leiðrétta þá vitleysu aö nokkru leyti. Ég vil undirstrika það, að ég fagna þessari ráðstöfun, lit mjög jákvætt á hana og tel hana spor i rétta átt. Aftur á móti veröur að gera meiri og stærri ráðstafanir, til þess að þetta hafi verulegan árangur til verðlækkunar. Ég vil einnig benda á, að ég tel það miklum erfiðleikum bundið að færa verölag niður aftur, þegar gengisfelling hefur haft áhrif á það til hækkunar.” Bjarni sagði, aö afstaða hans til rikisstjórnarinnar væri óbreytt frá þvi sem verið heföi, en ljóst væri, að styrkari stjórn þyrfti á efnahagsmálunum heldur en ver- ið hefði. Einnig taldi hann nauð- synlegt að gera jafnframt þessum aðgerðum róttækar breytingar á skattakerfinu til lækkunar á sköttum af lágum og miðlungs- tekjum. „Þetta er einhliða ákvöröun seðlabankastjórnar um gengis- hækkun, sem gerð er með sam- þykki rikisstjórnarinnar,” sagði Hannibal Valdimarsson Að öðru leyti verða gerðar ýms- ar hliðarráðstafanir i framhaldi af þessu til að lækka verðlag enn frekar. Hækkun vaxta er gerð til þess að draga úr þrýstingi á lána- markaðinum, sem var orðinn mjög mikill. Aö ööru leyti tel ég ekkert um málið að segja.” —OG. ODYRARA AÐ FARA UTAN — óbreytt verð fyrir útlendinga hér Sólardýrkendur geta litið bjartari augum til sumarsins eftir gengis- hækkunina, þvi nú er hægt að fara suður á bóginn og raunar hvert sem er erlendis fyrir rúmlega 6% ódýrari gjaldeyri en verið hefur að undanförnu. 011 flugfargjöld milli Islands og annarra landa eru skráð i sterlingspundum og lækka þvi sem gengishækkuninni nem- ur. Að sögn Konráðs Guð- mundssonar hótelstjóra á Hótel Sögu er mjög erfitt að tilkynna verðbreytingu svo skömmu fyrir aðalferðatim- ann, enda er búið að staðfesta mikinn fjölda pantana um hótelrými og erlendu ferða- mennirnir búnir að greiða sina miða hjá erlendum ferðaskrif- stofum, sem yrðu þá að taka á sig hækkunina, ef ákveðið væri að hækka verðið. Hann taldi þvi liklegast, að sama verð i erlendri mynt mundi gilda eftir gengis- hækkunina og búið var að ákveða. —ÓG

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.