Vísir - 21.07.1973, Side 2

Vísir - 21.07.1973, Side 2
2' Vlsir. Laugardagur 21. júll 1973. risDtsm: Hvernig lizt yður á að nú er opinn bar á miðvikudögum? Reynir Guömundsson, verka- maður:Mérfinnstþettaágætt og held að bað rýri ekki gildi þeirra sem hafa staðið að þessu. Arni Sigurðsson, hljómlistarmað ur: Það skiptir ekki máli hvenær barir eru opnir, og hver maður veröur aö gera það upp við sig hvort eöa hvenær hann sækir bari. Annars er ég eindregið á móti öllum boöum og bönnum. Arni Friðbjarnarson, ibnnemi: Ég hef nú ekki aldur til að njóta, þessa, en held að ég notfæri mér þaö,ef tilefni gefst til, þegar ég hef aldur til. En þetta er uppbót fyrir túrista. óskar Hallgrimsson, vinnur i happdrætti: Mér lizt vel á það, þetta er pósitivt, þvi auðvitað eiga barirnir að vera opnir alla daga. Ég er á móti bönnum. Fribþjófur Helgason, ljósmynd- ari: betta er ágætt fyrir þá sem stunda barina mikið. Það er engin ástæða til að hafa barina lokaða á miövikudögum, og ef iþrótta- hreyfingin er þess megnug, þá mætti opna mun fleiri bari á mið- vikudögum en þennan á Sögu. Guðrún tris Þorkelsdóttir, af- greiðslust.: Ég hef nú litið hugsað um það, en eflaust er þetta nauð- synlegt fyrir túrista. Ég held að vinmenning Islendinga myndi ekkert versna af þvi að hafa bari almennt opna .. á miðvikudög- um. | Berst ötullega fyrir mólstað íslendinga í | þorskastríðinu -i KaiKomíu [í Kaliforniu i Banda- 'ikjunum eigai íslend- ngar einn ötulasta málsvara sinn i land- íelgisdeilunni jemstarfar þar upp á íigin spýtur. Sá sem íér um ræðir er Loftur Bjarnason, prófessor i aókmenntum við há- ikóla i Kaliforniu. Loftur hefur haldið fjölda 'unda I heimabæ sinum, Monterey, og útskýrt þorska- striðið fyrir mönnum, og mikil- vægi 50 mflna fiskveiðilögsögu fyrir íslendinga. Einnig hefur hann bent á hættuna á þvi að Is- lendingar láti herstöðina á Keflavikurflugvelli fara, ef Bretar hætti ekki áreitni sinni. En Loftur hefur ekki einungis haft uppi áróður fyrir landhelg- ismálum tslendinga, heldur hef- ur hann veriö ötull við að safna i Vestmannaeyjasöfnunina á vegum American-Scandinavian Found, og hefur hann einnig haldið marga fundi til kynning- ar á hörmungum þeim sem gos- iö olli. Greinar og viðtöl hafa birzt við hann i blööum þar vestra, og er auðséð af lestri þeirra greina að hann lætur ekkert tækifæri ónotað til að útskýra landhelgis- vandræðin. Loftur Bjarnason er ekki fæddur á íslandi, heldur var það afihans,sem flutti til Utah, þeg- ar hann var ungur, en þrátt fyr- ir það, að Loftur teljist algjör- lega ameriskur, talar hann ágæta Islenzku, og hefur m.a. gefiö út sýnisbók islenzkra bók- mennta á ensku, en hann stend- ur fyrir bréfaskóla I Islenzku. Það hefur talsvert háð Lofti, Loftur Bjarnason hefur haldið fjölda funda i Monterey og út- skýrt þorskastrlðið. að hann hefur átt við augn- sjúkdóm að striða, en I veikind- um sinum hefur hann reynt aö berjast fyrir málefnum Islend- inga affullum krafti. —ÓH Ólónið eltir strœtisvagna Hafnarfjarðar Frá árekstrinum á Mikiubraut á þriðjudaginn. óhöppin hafa eit strætisvagn- ana I Hafnarfirði undanfarna daga. Viö sögðum frá vagni frá þeim, sem ók aftan á tvo bfla á þriöjudaginn. Var bremsukerfið ekki alveg i 100% lagi, en samt i skoðunarhæfu ástandi. A miðvikudaginn lenti svo annarvagn i árekstri er hann ók aftan á bil á Hafnarfjarðar- veginum. Óhappið átti sér stað við Fifuhvammsveginn i Kópa- vogi, en þar hafði bill, sem kom eftir Hafnarfjaröarvegi stanzað fyrir bil, sem vildi komast inn á af Fifuhvammsveginum. Bill, sem var fyrir aftan hann, stopp- aði lika, en þá kom strætisvagn- inn og ók aftan á hann, sem olli þvi svo að sá kastaðist á fyrsta bllinn, sem kastaðist svo á bil- inn sem kom af Fifuhvamms- veginum. Varð úr þessu fjögurra bila árekstur. Eigandi bilsins sem lenti milli strætisvagnsins og fremsta bils- ins, kom til lögreglunnar I Kópavogi I gær, og tilkynnti að bill sinn væri ónýtur eftir áreksturinn, en billinn var nýr. Engin slys urðu á fólki, en þess má geta að götur voru mjög hál- ar þegar þetta gerðist vegna undangenginnar rigningar. —ÓH LESENDUR J| HAFA ORÐIÐ HVER ER RÉTTUR FÓSTURSINS Bjarnheiður Ingþórsdóttir hringdi: „1 öllum orðavaðlinum um fóstureyðingar heyrir maður þvi meðal annars fleygt, að konan eigi að hafa rétt yfir likama sin- um. En það hefur enginn spurt i þvi sambndi um, hvað þá með réttinn yfir likama þessa nýja lifs, sem hún hefur átt hlut að þvi að kveikja. Á konan lika að taka sér rétt yf- ir þeim likama ? — Mér finnst það nokkuö langt gengið, ef litla fóstrið er algerlega réttlaust”. Dýrt skal það vera „Mig langar til að koma með fyrirspurn um það, hvaðan þeir sem sáu um sölu á ýmsum varn- ingi á hestamannamótinu á Skógarhólum hafa þessa óhemju álagningu sem þar var. Stór kók varáöOkrónur oghverpylsa á 50 krónur oig Camel-pakkinn á 100 krónur. Það sem mig langaði að vita er, hvort þeir, sem selja á svona útisamkomum, hafi heimild tii að hækka vöruna eins og þeim sýnist, eða hvort það er gefið út leyfi fyrir þessu. Einnig kom ég inn i veitingahúsiö að Lækjarteigi 2 fyrir stuttu og þar var mér seldur Camel-pakkinn á sléttar 100 krónur. Mér finnst þetta engan veginn geta staðizt. Ég vona, að sá sem veit hið sanna um leyfi fyrir þessu láti heyra frá sér i dálki þeim, er við lesendur höfum fyrir okkur”. G-H-J Skatturinn svarar: Bjarni Jónsson skrifar f.h. rikis- skattstjóra: „Vegna svars við spurningu lesanda uin frádráttarhæfni tann- viðgerða, sem birtist i blaði yðar 10. júli sl„ óskast eftirfarandi tekið fram: Hafi gjaldandi orðið fyrir mjög verulegum útgjöldum vegna tannlæknisþjónustu, getur hann Lesendur hafa verið mjög áhugasamir um að sent með framtali sinu beiðni, á þar til gerðu eyðublaði, um ivilnun I tekjuskatti skv. 52. gr. skattalaganna. Skattstjóri ákvarðar þá, hvort veita beri ivilnun og hve háa. Vilji gjaldandi ekki una ákvörðun skattstjóra, getur hann skotið máli sinu til rikisskattstjóra, sem kveður upp endanlegan úrskurð” koma með tillögur um nafn á klukkuna á tJt- vegsbankanum. Hér eru nokkrar: Einar Jónsson, Hegranesi 33, hringdi: „Fer ekki sæmilega á þvi, að klukkan, sem er á musteri gulls- ins, verði einfaldlega kölluð „GULLSTUND”.” Kona I Hverageröi hringdi: „Ég sting upp á þvi, að hún verði kölluð „LUKKA”.”

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.