Vísir - 22.09.1973, Blaðsíða 3

Vísir - 22.09.1973, Blaðsíða 3
Vísir. Laugardagur 22. september 1973 3 Séð yfir ána og rútuna úr gagnstæðri átt, og örin bendir á leið hennar niður i ána. Arnar. Hann lýsir þvi, að þeir hafi setið inni i rútu, sem stóð á bila- stæði utan við verkstæðið, og hafi Arnar tekið lyklana að henni, og sett hana i gang og ekið af stað. Eftir það lýsir hann ökuferðinni, sem endaði með ósköpum. Hjörtþór vissi son sinn óvanan að aka stærri bifreiðum en venju- legum fólksbifreiðum, og þótti þaðmeð ólikindum, að hann væri fær um að aka úr stað langferða- bifreið og það undir áfengisáhrif- um, eins og vitnið skýrði frá. Vitnisburðir stangast á Vinnuveitandi Arnars skýrði fyrir rétti svo frá, að hann hefði litið inn á verkstæðið um kl. 22.30 um kvöldið, og hefði enginn verið þar. Honum hafði virzt lakkið á' bifreiðinni, sem Arnar hafði unnið við, vera farið að þorna, likt og væri nokkuð um liðið, siðan þvi var sprautað á. Hann greindi engin merki þess að þar hefði verið setið að sumbli. Það var um hádegisverðarleyt- ið á mánudegi, að lögreglan hringdi heim til foreldra þess látna og tilkynnti þeim þann grun, að likið, sem fannst i ánni um kl. 4 um nóttina, væri af syni þeirra. Hjörtþór sat að snæðingi, þegar harmafréttin barst. Hann benti réttinum siðar sér- staklega á, að tveir menn hefðu borið þvi vitni, að um kl. 10 þenn- an morgun hafi vinnuveitandinn sagt þeim i óspurðum fréttum, að Arnar hefði farizt i bílslysi uppi i Mosfellssveit um nóttina. Þessi réttarhöld fóru fram nær tveimur árum eftir slysið, og gat þá vinnuveitandinn ekki gert grein fyrir þvi lengur, hvernig hann hefði haft upplýsingar um dauða Arnars heitins um tveimur klukkustundum áður en lögreglan fékk gengið úr skugga um, af hverjum likið var. Þriðji maðurinn bar það, að hann hefði átt samræður við vinnuveitandann um kl. 9.30 að morgni, og hefði hinn sagt honum fréttirnar, að Arnar hefði verið i rútu, sem lent hefði út i Leir- vogsá um nóttina."— Þetta vitni sagðist vinna i sama húsi og bila- verkstæðið var, og sagðist það hafa fariðsinna erinda eftir sam- talið, en laust eftir hádegi hefði það þó heyrt lögregluna eiga samtal við vinnuveitandann. Heyrði vitnið, að þar voru vinnu- veitandanum sögð tiðindin af láti Arnars og lét þau koma sér á óvart. Þótti þessum það undar- legt hjá manni, sem hafði sagt honum sömu tfðindin kl. 9.30 að morgni. Sáu engin svailmerki Mennirnir tveir, sem töldu sig hafa heyrt tfðindin hjá vinnuveit- andanum um kl. 10 að morgni, báru einnig vitni öðru, sem stakk mjög i stúf við framburð bæði félaga Arnars og svo vinnuveit- andans. Þeir sögðust hafa komið að verkstæðinu um kl. 23 á sunnu- dagskvöldið, en annar þeirra átti nefnilega bifreiðina, sem Arnar var að sprauta lakki á. í skýrslu sinni fyrir réttinum segjast þeir hafa hitt Arnar þar einan fyrir, og var hann þá önnum kafinn við að leggja siðustu hönd á verkið. Þeir báru það báðir, að þeir hefðu ekki þessar 15-20 minútur, sem þeir stöldruðu við og röbbuðu við Arn- ar, getað með neinu móti greint á honum, neitt sem benti til þess að hann væri undir áfengisáhrifum. — Þeir segja, að Arnar hafi haft á orði við þá, þegar þeir yfirgáfu hann, að hann væri orðinn , eftir mikla yfirvinnu frameftir kvöld- um, mjög þreyttur, og ætlaði að hreinsa verkfærin og koma sér heim til hvildar. Margt óupplýst ,,Það eru þesskonar þverstæð- ur, sem koma upp i framburðum vitnanna — og stangast algerlega á — sem gert hafa málið mjög flókið,” sagði Hjörtþór i viðtali við blaðamann Visis. Hann harmar það, að rann- sóknin skyldi aldrei leiða i ljós, hver var ökumaðurinn, sem lög- ' regluþjónar tóku tali á þjóðvegin- um uppi i Mosfellssveit örlaga- nóttina. — Þeir höfðu verið kvaddir upp eftir vegna árekstr- ar. Maður nokkur hafði mætt rút- unni, sem ekið hafði utan i bil hans. Hann visaði lögreglunni i áttina, sem rútunni var ekið. A leiðinni i leit að rútubilnum sáu tveir lögregluþjónar bifreið standa við vegarbrúnina, og gáfu þeir sig á tal við ökumann. — Nei, hann hafði ekki séð neina rútu, þótt hann hefði komið úr Hvalfirði og hlotið að hafa mætt rútunni eða ekið yfir brúna, þar sem rútan lá úti i ánni og blasti við öllum veg- farendum. Nafn þessa ökumanns var ekki hirt um að fá, enda náðist aldrei til hans aftur. Muna þó lögreglu- þjónarnir vel eftir bifreið hans,. sem byggt var hús aftan á.mjög hagleg eftirliking af þvi, sem var Htt þekkt hér á landi þá, hjólhýsi. Þannig er ýmislegt i máli þessu enn á huldu, þótt fjögur ár séu nú umliðin siðan. Hvort nokkurn tima verður kafað til botns i þvi, veit enginn maður. Hrœðilegur grunur Faðir hins látna manns hefur þó lengi alið með sér hræðilegan grun um hvernig dauða sonar hans hafi borið að höndum. Svo hræðilegan, að hann hefur viðast fundið, að menn óar við að leggja eyrun við sliku tali. „Asigkomulag liksins, þegar að þvi var komið, var vægast sagt einkennilegt. Það lá á grúfu uppi á steini úti i ánni,” segir Hjört- þór. „Menn vildu meina, að þvi heföi skolað þangað upp á, en svo straumhörð er áin ekki, að hún sé likleg til að megna slikt. 1 annan stað vekur það furðu, að fötin skyldu vera blóðstorkin og likið einnig eftir leguna i straum- vatninu. Hefði hann hlotið sárin I árekstrinum i ánni, flotið út úr bflnum og niður ána, virðist ann- að óliklegt en straumvatnið hefði skolaö blóðið úr fötunum jafn- haröan, sem það lagaði úr sárinu. ÚR SÁRINU, þvi að eini um- talsverði áverkinn, og sá, sem leiddi Arnar heitinn til bana, var djúpur 7 cm skurður, bog- myndaður aftan á hnakka. Hann tók inn I bein. Annar miklu minni áverki var undir miðsnesi á nefi „eins og eftir egghvassan hnif”, sagði i skýrslu krufningarlæknis. A enni voru hruflur og á hnúum beggja handa skrámur, eins og menn geta hlotið i slagsmálum. Allt þetta vekur aðeins einn grun hjá mér,” segir Hjörtþór: „MORÐ.” GP EM í bridge: Minnsta tap Svíum Frá Stefáni Guðjohnsen, Ostende, Belgiu: Leikur okkar I 14. umferð á Evrópumeistaramótinu i bridge við Svia var jafn eins og venjulega. Eftir fyrri háifleikinn höfðu Sviar yfir — 28:22 — en I siðari hálfleiknum unnum við á einn punkt — 27:26 — svo Sviar unnu með minnsta mun, 11-9 vinningsstig. Þrjú gefin game I vörn hefðu getað rétt okkar hlut mjög. 14. umferð var spiluð eftir hádegi i gær og urðu úrslit þessi: Finnland-Þýzkaland 3-17 Portúgal-ttalia 4-5-20 Sviss-Belgia 18-2 Pólland-Danmörk 16-4 Frakkland-England 15-5 Tékkar-Israel 5-15 Holland-Ungverjaland 6-14 Island-Sviþjóð 9-11 ÞRJÁR ÞEIRRA FENGU KRISTAL Sumarstúlkurnar okkar, sem urðu hlutskarpastar i kosningu lesenda, eru að fá verðlaun sin þessa dagana. Á meðfylgjandi mynd sjáum við Magdalenu M. ólafsdóttur, sem sigraði i keppn- inni. Hún heldur á handskornum blómavasa úr Bæheimskristal, en Tékk-Kristall færði henni þennan fallega vasa að gjöf — og að sjálf- sögðu með útsprunginni rós i. Sömuleiðis gaf Tékk-Kristall stúlkunum I öðru og þriðja sæti blómavasa sömu tegundar. Þess má geta.að Magdalena sér sér ekki fært að fara með Sunnu til Mallorca fyrr en næsta vor, þegar hún hefur lokið prófum frá Menntaskólanum gamla. — ÞJM/Ljósm.: Björgvin. Tyrkland-Spánn 14-6 Irland-Júgóslavia 16-4 Noregur-Austurriki 4-16 Libanon sat yfir. Eftir þessar 14 umferðir — af 24 — er staðan þannig: 1. Italia 222 2. Frakkland 211 3. Israel 190 4. Sviss 185 5. Bretland 176 6. Austurriki 176 7. Sviþjóð 173 8. Pólland 172 9. Júgóslavia 163 10. Belgia 157 11. Holland 156 12. gegn Spánn 148 13. Irland 133 14. Noregur 130 15. ísland 126 16. Þýzkaland 118 17. Ungverjaland 117 18. Tyrkland 110 19. Danmörk 110 20. Tékkóslóvakia 107 21. Finnland 57 22. Libanon 28 og Portúgal 23 stig. I kvennaflokki er írland efst með 109 stig. Italia er i öðru sæti með 103 stig og Bretland 3ja með 91 stig. VARIZT ORAUN- HÆFAR KAUPKRÖFUR — segja vinnuveitendur Atvinnurekendur vara við óraunhæfum kaupkröfum og telja, að vernda eigi þann kaup- mátt, sem þegar hefur fengizt. Samkvæmt útreikningum Hag- rannsóknardeildar hefur kaup- máttur timakaups verkamanna með orlofi aukizt um 26,8% frá 1. nóvember 1971 til 1. september I ár. Þetta kemur fram i ályktun ráðstefnu Vinnuveitendasam- bands Islands, sem haldin var i vikunni. Þar kemur fram, að hin óvænta hækkun á útflutningsverði ýmissa sjávarafurða hafi komið i veg fyrir hluta alvarlegra afleið- inga á atvinnulifið, sem siöustu kjarabætur hefðu getað haft. Án verðhækkana sjávarafurða hefðu atvinnuvegirnir ekki getað staðið undir vinnutimastyttingu, kauphækkun, vaxtahækkun og gengisbreytingum, sem orðið hafa á timabilinu, kemur fram i ályktuninni. Jón H. Bergs, formaður Vinnu- veitendasambandsins, sagði, að þeir vildu vekja athygli á, að hinarýmsu greinar atvinnulifsins væru mjög misjafnlega hæfar til að standa undir auknum launa- kröfum. Hann nefndi til dæmis, að bæði verksmiöjuiðnaöur og smásöluverzlun væri illa stödd og stafaði það meðal annars af þvi, aö þessar greinar hefðu oft á tiö- um búið við óeölilegt verðlags- kerfi. I þvi sambandi er athyglisvert, að i þessum tveim atvinnu- greinum er hlutfallslega mjög stór hluti þeirra, sem nefndir hafa verið hinir lægstlaunuðu. Verkalýðsfélögin innan Alþýðu- sambandsins hafa lýst þvi yfir, að gerðar verði sérstakar kröfur um launahækkanir til hinna lægst- launuðu en ekki virðist blása byr- lega fyrir þeirri kröfu, ef verzlun og verksmiðjuiðnaður er nú sér- lega vanbúinn til að mæta launa- hækkunum. —ÓG ÞRÝSTI BIFREIÐ ÚT AF OG ÓK SÍÐAN Á BROTT ökumaður bifreiðar, sem ekið var fram með hlið annarrar bif- reiðar á Hafnarfjarðarveginum, hafði ekki fyrir þvi að stanza, þó bifreiðirnar rækjust saman. Hann hélt ótrauður áfram, en hin bif- reiðin hafnaði fyrir utan veginn. Atburöur þessi varö á sunnu- daginn var rétt sunnan Kópa- vogslækjar. Var Volvo bifreið ekið i norðurátt, og var hún að fara fram úr annarri bifreið, þegar þriðja bifreiðin kom að og tróð sér upp að hlið Volvo bif- reiðarinnar með fyrrgreindum afleiðingum. Lögreglan i Kópavogi vill gjarnan hafa tal af ökumanni bif- reiðarinnar, sem ók i burtu, og einnig biður hún sjónarvotta að gefa sig fram, ef einhverjir eru. — ÓG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.