Vísir


Vísir - 25.09.1973, Qupperneq 3

Vísir - 25.09.1973, Qupperneq 3
Visir. Þriðjudagur 25. september 1973 3 STOR FERJA I STAÐ AKRABORGAR 50 BIFREIÐAR - 300 FARÞEGAR ,,Ég held, að það sé mikiil áhugi meðal fólks á Vesturlandi fyrir þvi að fá nýtt og stærra skip til siglinga milli Reykja- víkur og Akraness”, sagði Björn H. Björnsson, stjórnarformaður i Hiutaféiaginu Skallagrimi sem rekur Akraborgina, sem heldur uppi ferðum á þessari leiö. ,,A aðalfundi i sumar fékk stjórnin heimild til að vinna aö þessu máli”, sagði Björn enn- fremur. „Skoðað hefur verið eitt skip, norskt, sem bæði er bil- ferja og fyrir farþega. Getur það flutt 40-50 fólksbifreiðar i einu og auk þess eru sæti og klefar fyrir um það bil 300 far- þega. öryggisbúnaður er aftur á móti miðaður við 600 farþega. Skipið gengur 14-15 sjómilur og væri um það bil 45 minútur að sigla á milli Akraness og Reykjavikur'”. Að sögn Björns eru teikningar af skipinu nú i athugun hjá Siglingamálastofnun rikisins og einnig mun málið verða rætt i stjórn Skallagrims, væntanlega i næstu viku. Ekki er óliklegt, að þar verði tekin ákvöröun hvort af kaupunum verður. „Borgnesingar hafa sýnt þessu máli töluverðan áhuga”, sagði Björn H. Björnsson enn- fremur. Hann benti á, að þegar brúin yfir Borgarfjörð verður komin, mun leiðin frá Akranesi til Borgarnéss styttast um 20 minútur. Ætlunin er að byrja smiði þeirrar brúar næsta sumar. Veruleg aukning hefur orðið á farþegaflutningum með Akra- borg i ár. Farþegafjöldi er orðinn tuttugu af hundraði meiri heldur en hann hefur verið nokkurn tima áður á jafn löngum tima. Stjórnarformaður Skallgrims hf. vildi ekkert segja um kaup- verð hinnar nýju ferju, ef úr kaupunum yrði, en heyrzt hefur, að kaupverðið yröi ekki fjarri 40 milljónum. Akraborgin er nú á sölulista erlendis og siðastliðið vor barst tilboð upp á 18 millj- ónir króna i skipið, en ekki var talið fært að selja skipið fyrr en ákvörðun um nýtt skip væri tekin. —ÓG Stóð milli stórveðranna Þetta 12 metra tré við Laugarnesveg 53 hafði vist staöiö i 30 ár, en það er einmitt timinn, sem liðið hefur siðan veðrið var jafnvont og nú. Enda fór það i óveðrinu. PÓSTMENN í HRAKNINGUM ÆTLAÐI AÐ BRENNA SITT EIGIÐ HÚS Maöurinn, sem reyndi aö brenna hús sitt á laugar- daginn. hefur nú veriö úrskuröaöur I gæzluvarðhald og geðrannsókn. Maðurinn kveikti i húsi sinu að Huldulandi 6 á þremur stöðum. Þegar slökkvilið kom á staðinn, logaði talsvert i kjallara. Talsverðar skemmdir urðu á húsinu af völdum elds og reyks. Maðurinn játaði fyrir rannsóknarlögreglunni að hafa ætlað að kveikja i húsinu. Hann hefur átt i fjölskyldu- erfiðleikum, og var kona hans farin frá honum með börn þeirra. Húsið var næstum þvi tilbúið til ibúðar. Maðurinn hefur verið að byggja það undanfarin ár. —-ÓH 70 póstmenn lentu I hrakning-- um á sunnudag á heimlcið frá þingi sinu i Munaðarnesi i lang-- ferðabil Guðmundar Jónassonar. Að sögn Sigurðar Jakobssonar, annars bilstjóranna, var farið að hvessa nokkuð mikið um klukkan sjö, þegar komið var að Botns- skála, og var þá þegar farið að taka i bilinn. Var nokkur hræösla meöal farþega, og var það tekið til ráðs að stööva og biða betra færis i Botnsskála. Mjög hvasst var þar, að sögn Sigurðar, en ekki vissi hann til, að neitt heföi fokið þar. Um klukkan hálfellefu var ákveðið að freista þess að komast til borgarinnar, og lögðu rúturnar tvær af stað með geysistóran trukk frá Vega- gerðinni sér til aðstoðar. Ók hann við hlið bilanna til þess að vernda þá fyrir mestu hviðunum. Farin var önnur leið en vana- lega, þ.e. eftir Kjósarskarði og Þingvallavegi, og var komið til Reykjavikur um klukkan hálfeitt. —EA Sigmundur órn Arngriinsson og Kjartan Ragnarsson I hlut- verkuin sínum sem verkainaðurinn og forstjórinn i leikþættinum ,,Sá er vinur, scin i raun reynist”. Verkamaðurinn og forstjórinn Menningar- og fræðslusamband alþýöu héll i gær sinn fyrsta fund á vinnustaö, en það var i Vél- smiöjunni lléðni. Var hann hald- imi i samráði viö Fél. isl. járniðn- aðarmanna og voru til sýnis listaverk, sýndur leikþáttur og flutl crindi. Mikið fjölmenni var á fundinum og á eftir urðu miklar uniræður, sem lialdur óskarson stjórnaði. Leikþátturinn, sem þarna var frumfluttur, er eftir Véstein Lúð- viksson rithöfund, og er hann saminn sérstaklega fyrir MFA. Nefnist hann „Sá er vinur, sem i raun reynist” og ljallar um sam- skipti vinnuveitanda og verka- manns. Leikendur eru tveir, þeir Kjartan Ragnarsson og Sig- mundur Orn Arngrimsson.Fyrir- hugað er að halda fleiri slíka fundi i samráði við verkalýðs- félögin, bæði úti á landi og hér á höfuðborgarsvæðinu. —ÞS Skilvísi Skotinn Hver á gleraugun? Þetta er óvenjuleg „Skota- saga”. Þegar tslendingur tók sér leigubíl út á flugvöllinn i Glasgow fyrir skömmu, á heim- leið, sagði leigubilstjórinn: „Hvaöan ert þú?” „tslend- ingur”, sagði sá. „Þá vil ég biðja þig að reyna að koma þessum gleraugum til skila”, sagði bilstjórinn. Það kom á daginn, að nokkr- um vikum áöur, um mánaða- mótin ágúst-september, hafði annar tslendingur ferðazt með þessum sama leigubil út á flug- völlinn i Glasgow. Þá hafði tslendingurinn, karlmaður, gleymt gleraugum sinum i aftursætinu. Og nú eru þessi gleraugu hér á Visi og vonandi, að skilvisi Skotans gefi góða raun. —HIL jKAmmDEGIÐ FER í HÖND Ljósaskoðun stendur nú yfir. Til þess að auka öryggið í umferðinni er nauðsynlegt að ökuljós séu í lagi og rétt stillt. Dkuljós geta aflagast ó skömmum tíma, og einnig dofna Ijósaperur mikið eftir u.þ.b. 100 klst. notkun, þannig að styrkleiki þeirra rýrnar um ailt að því helming. Dragið ekki að lóta skoða Ijósin. Ljósaskoðun lýkur 15. OKTÓBER. BIFREIÐAEFTIRLIT RlKISINS UMFERÐARRÁÐ

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.