Vísir - 25.09.1973, Blaðsíða 16

Vísir - 25.09.1973, Blaðsíða 16
vísir Þriðjudagur 25. september 1973 Þjófurínn MÖRG KÍLÓ AF „DÓPI" Á MARKAÐNUM ISUMAR — vika síðan fram- kvœmdir voru stöðvaðar „Það hefur ekkert gerzt i mál- inu, sem skiptir máli, siðan fram- kvæmdir Miðbæjarframkvæmda sf. voru stöðvaöar”, sagði Björg- vin Sæmundsson bæjarstjóri i viðtali við Visi i inorgun. „Forráðamenn fyrirtækisins hafa enn ekki átt viðræður við bæjarráö. Mér skilst aö sumir þeirra hafi verið utanbæjar, og þeir þvi ekki getað komið til fundar. Ég býst þó við aö það verði á næstunni, sem viöræður- nar hefjast”, sagði Björgvin. Hann sagöi, að þessar viöræður myndu fyrst og fremst ganga út á það að eyða ágreiningi um túlkun á samningi milli fyrirtækisins og bæjarins. „Ef það tekst ekki, þá verður aö finna einhverja samkomulags- leið”. Framkvæmdirnar í grunn- inum, sem Miðbæjarfram- kvæmdir sf. hafa til umráöa, hafa nú legið niðri i viku. Talsvert mikið af timbri hefur þó verið flutt á staðinn og viröist allt vera tilbúið til mótauppslátt- ar. —ÖH BJARGRÁÐASJÓÐUR ÆTTI AÐ BÆTA TJÓNIÐ — eit er blankur „Bjargráöasjóður hefur á hvcrju ári hlaupið undir bagga með einstaklingum og fyrirtækj- iim, þcgar þeir hafa orðið fyrir tjóui af völdum náttúruhamfara af ýmsu tagi,” sagði Magnús Guðjónsson framkvæmdastjóri Bjargráöasjóðs i viðtali við Vfsi I morgun. „Þetta er gert samkvæmt 8. grein laga sjóðsins, þar sem heimilt er að bæta meiri háttar tjón á lausafé og fasteignum af völdum ýmiss konar náttúruham- fara”, sagði framkvæmdastjór- inn ennfremur. Að sögn Magnúsar verður mál- ið tekið fyrir hjá stjórn sjóðsins á fimmtudag, og hann sagðist einn- ig eiga von á tilmælum frá borg- arstjórn um, að tjón verði bætt. „Bjargráöasjóður getur að visu ekki veitt mikla aðstoð af eigin fé sinu, þvi laust fé, sem almenna deild sjóðsins hefur yfir að ráða, er ekki nema um það bil 20 millj- ónir og hefur það vafalaust litið að segja til að bæta tjóniö, sem varð um helgina. Magnús Guðjónsson sagði, að venjulega hefði Bjargráðasjóður veitt aðstoð sina i formi vaxta- lauss láns til 5 ára og meö ábyrgð viðkomandi sveitarfélags. Yfirleitt væri aðeins lánuð upphæð, sem næmi hluta tjónsins, og i fyrri tilvikum hefði verið sett lágmark, sem tjón þyrfti að nema, til að sjóðurinn lánaði vegna þess. Bjargráðasjóður hefur tekið stórfé aö láni, þegar þörf hefur verið á. Þegar kal var sem mest i túnum bænda fyrir nokkrum árum, var tekið lán, sem nam á annað hundrað milljóna króna til að geta aðstoðað þá. Sjóðurinn hefur bætt tjón vegna veðurofsa viðs vegar um landiö, svo sem á Akureyri 1967, þar sem tugir einstaklinga urðu fyrir tjóni, einnig hafa verið veitt lán vegna tjóna á Siglufirði, Selfossi, Skagaströnd og viðar. Magnús Guðjónsson sagði, að upphæð tjóna væri venjulega metin af til þess kvöddum mats- mönnum, og til dæmis þegar tjónið varð á Akureyri, hefði bær- inn tekið lánið og siðan endur- lánað það til þeirra, sem fyrir tjóni urðu. — CG FA SJALFBOÐALIÐARNIR GREITT? Trésmiðum skipað í vinnuflokka Trésmiðir munu ekki vinna i sjálfboðavinnu áfram, heldur er á döfinni að skipuleggja vinnu- flokka, með vissum hópi manna, sem vinnur þá eftir reikningum, sagbi okkur Benedikt Héðinsson hjá Trésmíöafélagi Reykjavfkur, þegar við höfðum samband við hann i morgun. Vinnuflokkarnir hafa ekki verið skipulagðir ennþá, en þeim er ætlað aö ljúka við skemmdir, sem urðu vegna ofsaveöursins sem geisaði I fyrrinótt. Ekki er vitað i hversu marga menn næst, en margir trésmiðir eru fastir i vinnu, og svo áttu sér einnig staö skemmdir á vinnustööum þeirra. Almestar skemmdirnar uröu i Árbæjar- og Breiöholtshverfi, og veröur lögð mest áherzla á viö- gerðir þar, svo og nokkur hús i gamla bænum, svo sem fyrirtæki og annað. Aö sögn Benedikts hefur verið rætt um þaö hjá Almannavarna- nefnd, að trésmiðir þeir, sem upphaflega unnu i sjálfboðavinnu eftir óveðriö, fái vinnu sina greidda, en ekki gat Benedikt þó upplýst það nánar, en sagði, að trésmiðir hefðu upphaflega unnið þetta i sjálfboðavinnu og ekki búizt viö greiðslu. —EA URKOMA MÆLDIST 12 MM í NÓTT En sjaldon hefur dunið svo á þökum og gluggum sem á tímabili í gœrkvöldi Það var eins og ftóðgáttir himins opnuðust, varð mönnum að orði, eftir skúrina, sem gerði laust fyrir klukkan 8 i gærkvöldi. Það er ekki á hverjum degi sem svo dynur á þökum og gluggum Reykvikinga, og bílar þurftu á timabili að ösla i gegnum polla og svo mikla vætu, að varla sá út úr augum. . A veðurstofunni er úrkoma mæld fyrir miklu lengri tima en þetta „vætu” timabil reyndist vera, og þvi liggja ekki fyrir tölur um hversu mikil úrkoman var, þegar mest var. En frá klukkan 18 i gærdag og fram til klukkan 9 i morgun mældist úrkoman 12 mm, sem er þó nokkuð. Og hann heldur áfram aö rigna, þó að vindurinn hafi aö mestu kvatt. Reykvikingum finnst vist varla vindur lengur, þó hann blási, eftir fellibylinn. 1 dag er spáö rigningu til að byrja með, nokkuð stöðugri, með suðvestan vindi. 1 dag verður svo suðvestan átt meö skúrum er á liður.—EA vildi meira — og brauzt því aftur inn í sama húsið Taliö er liklegt, að sami þjófur- inn hafi vcriö að verki I inn- brotum, sem voru framin tvisvar i sama húsið um helgina. Húsiö, sem brotizt var inn i, er við Baldursgötu. Ung stúlka, sem býr i þvi, kom heim klukkan eitt á laugardagsnóttina. Þá sá hún, að rúöa haföi verið brotin og einhver farið inn. Úr ibúðinni var heil- miklu stolið frá stúlkunni. M.a. hvarf skinnkápa, kjólar og buxur og ilmvötn. Otvarpstæki segul- band, gullhringir og armband fóru sömu leið. Stúlkan tilkynnti innbrotið strax til lögreglunnar. Lögreglan gat þó ekkert að gert. Fullorðinn maður, sem býr I húsinu, kom heim næsta kvöld um klukkan hálftiu. Þá var ibúðin uppljómuð, og rúöa hafði verið brotin i hurðinni. Maðurinn sá aö einhver var inni I ibúðinni. Sá, sem inni var, hafði tekið til stóra ferðatösku og var að bisa við plötuspilara og hátalara inni i ibúðinni. Maðurinn læddist burt frá húsinu og fór yfir i næsta hús. Þar hringdi hann I lögregluna. En þjófurinn varö mannsins var og hljóp i burtu. Hann var horfinn þegar lögreglan kom á staðinn. Lögregluna grunar þó fastlega, að hér sé um sama manninn að ræða. Hafi hann komið til baka i seinna sinnið til að ná i meira. —ÓH Engar viðrœður enn um miðbœ Kópavogs ,,Svo virðist vera sem allnokkurt magn af hassi og LSD hafi verið i umferð i sumar. Miðað við framboð og markaðsverð, þá gæti ég gizkað á, að nokkur kiló af þessum efnum hafi verið i veltunni”, sagði Ásgeir Friðjóns- son, dómari i fikniefna- málum i viðtali við Visi i morgun. „Ferðir ungmenna til útlanda á sumrin virðast auka magn eiturlyfjanna á markaðnum,” sagði Asgeir ennfremur. Undanfarið hefur fikniefna- deildin átt við nokkur smærri mál vegna fikniefnaneyzlu. Taliö er, aö þar hafi fyrst og fremst veriö um einkaneyzlu að ræða. Stúlkan, sem var tekin fyrir að koma meö heilt kiló fyrir stuttu, er þó undantekning. Taka hennar rennir þó stoðum undir það, að hún sé ekki eini aöilinn, sem hefur reynt að koma með fiknilyf meö sér til landsins. Asgeir sagði, að hasshundur- inn væri sifellt að vinna viö að leita I pósti og farangri. Ekki vildi Asgeir fullyrða neitt um markaðsverö á fikni- efnum núna. „Veröið fer svo mikið eftir framboði. Mikið framboð eins og I sumar táknar lægra verð. Svo, þegar birgðirnar minnka, þá hækkar það. Einnig hefur það talsvert að segja, hversu mikiö er keypt. A þessu sviði gilda verzlunarlögmál eins og magnafsláttur og fleira”. —ÓH l»ctta eru skemmdirnar, sem urðu fremst á stjórnboröshlið varðskipsins Ægis, þegar brezka herskipið Lincoln sigldi í veg fyrir það. Sjópróf eiga að hefjast i dag fyrir Sjó- og verzlunardómi Reykjavíkur vegna málsins. Þar gefst Bretum kostur á að mæta, en ekki var vitað i morgum hvort cinhvcr mundi mæta fyrir þeirra hönd.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.