Vísir - 25.09.1973, Page 6
6
Vísir. Þriðjudagur 25. september 1973
VÍSIR
Útgefandi:-Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
^Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 86611
Ritstjórn: Siftumiila 14. Simi 86611 (7,lihur)
Askriftargjald kr. 360 á mánufti innanlands
i lausasölu kr, 22.00 eintakift.
Blaftaprent hf.
Ólíkt hafast þeir að
Landhelgisdeila okkar við Breta og
Vestur-Þjóðverja hefur tekið tvær ólikar stefnur.
Gagnvart Bretum fer deilan sifellt harðnandi og
möguleikar á samkomulagi verða sifellt fjar-
lægari. Deilan við Vestur-Þjóðverja þokast hins
vegar smám saman i átt til samkomulags.
Aðalsamningamaður Þjóðverja, Hans Apel
aðstoðarráðherra, hefur gefið timamótayfir-
lýsingar i leiðara, sem hann skrifaði i eitt dag-
blað jafnaðarmanna i Þýzkalandi. Þar leggur
hann áherzlu á, að Þjóðverjar reyni að ná
samningum við Islendinga, áður en deilan verði
að alþjóðlegu stórmáli.
Apel varar við hinum útbreidda hugsunarhætti
meðal andstæðinga íslendinga i deilunni, að ekki
megi semja, vegna þess að útfærsla Islendinga sé
einhliða og ólögleg. Hann segir stjórnmálamenn
verða að hafa viðari sjóndeildarhring, kunna að
taka staðreyndum og hindra, að landhelgisdeilan
snúist upp i stórmál á alþjóðavettvangi.
Apel viðurkennir hreinskilnislega, að Þjóðverj-
ar verði að draga úr sókn sinni á íslandsmið,
fækka skipum sinum og veiða utan islenzkra
bannsvæða. Og hann er nógu viðsýnn til að taka
sérstaklega fram, að þennan mun megi bæta upp
með þvi að kaupa meiri fisk en áður af Islending-
um. Svo virðist sem hann vilji jafnvel gera slik
fiskkaup að einu atriði væntanlegs samkomulags.
Auðvitað er þetta sjónarmið nútimans. Þjóð-
verjar eiga ekki að vera að vasast i taprekstri á
útgerð, þegar þeir hafa miklu betri tekjur af öðr-
um atvinnuvegum. Þjóðir verða að sérhæfa sig i
atvinnugreinum, svo að rekstrarhagkvæmnin
verði meiri. Apel sér, að íslendingar kunna að
reka útgerð með árangri. Og þvi þá ekki að kaupa
fiskinn af fslendingum; Þjóðverjar hafa nægar
vörur til að selja hingað i staðinn.
Ef til vill er grein Apels merki um, að þýzk
stjórnvöld hafi komizt að raun um, að þýzkir og
islenzkir þjóóarhagsmunir fari saman og séu
andstæðir hagsmunum nokkurra þýzkra út-
gerðarmanna. Ef svo er, ættu viðræðurnar i októ-
ber að geta leitt til samkomulags i deilunni. ís-
lendingar munu fyrir sitt leyti gera sitt bezta til
að svo geti orðið.
Brezki ihaldsþingmaðurinn Laurence Reed
hefur ekki sama hljómgrunn hjá stjórnvöldum
sins heimalands, þegar hann segir Breta verða að
vægja i landhelgisdeilunni, þar sem þjóðarhags-
munir beggja fari saman. Það er sorglegt, að
brezka stjórnin skuli ekki átta sig á, að hag-
kvæmara er fyrir Breta að taka sjálfir upp 200
milna landhelgi en standa i illdeilum við ís-
lendinga.
Brezka stjórnin herðir i þess stað deiluna stig
af stigi. Hún hagar sér eins og hún eigi i styrjöld.
Hún lætur skip sin valda árekstrum við isl varð-
skipin og þykist svo vera blásaklaus. Þetta fram-
ferði er svo alvarlegt, að frekari viðræður milli
Breta og íslendinga eru útilokaðar. Þar á ofan
hefur brezka stjórnin með þessu gert islenzkum
stjórnvöldum ókleift að standa við fyrri tilboð sin
gagnvart brezku samningamönnunum. ís-
lendingar eru ekki lengur til viðtals um tilslakan-
ir og undanþágur fyrir brezka togara.
—JK
KREFJAST FÆKKUN
AR HERUÐS USA
í VESTUR-EVRÓPU
Mansfield
þingmaður og
stuðningsmenn hans
róa fast
þessa vikuna
Þessa vikuna mun
herafla Bandarikja-
manna erlendis bera
imjög á góma i öldunga-
deild Bandarikjaþings,
en þar knýr Mike Mans-
Ifield þingmaður fast á
,um að kalla 250 þúsund
bandariska hermenn
'heim og fækka herliði
iþeirra þar með um
helming. Einkum hefur
'hann þó hug á að fækka
herliði þeirra i Evrópu.
Vift þvi er þó aft búast, aft stuftn-
ingsmenn Nixons forseta spyrni
vift fótum og reyni aft hindra
Mansfield i þessu ætlunarverki
hans á þeim grundvelli, aft slikur
allsherjar samdráttur i herafla
USA i Evrópu mundi reka
Evrópurikin til hlutleysis, ef ekki
alveg yfir til Rússa.
Þaft er fyrirætlun Mansfields og
stuftningsmanna hans aö reyna
þetta meft breytingartillögu vift
fjárhagsáætlun varnarmála, sem
liggur nú fyrir öldungadeildinni.
Niöurstöftutölur hennar nema 20.4
milljörftum dollara.
Þegar fulltrúadeildin fór hönd-
um um áætlunina i ágúst, voru
allar tillögur til aft fækka herliöi
USA erlendis felldar. — En
varnarmálanefnd öldungadeild-
arinnar hefur lagt til, aft 500 þús-
und manna herafla Bandarikja-
manna erlendis verfti fækkaft um
156 þúsund manns.
Þrátt fyrir úrslitin i fulltrúa-
deildinni telja Mansfield og félag-
ar hpns, aft þeir hafi nú jafna
möguleika á þvi aö koma sinni tii-
lögu I gegn, þar eft hún höffti til
sparnaöartilhneigingar þing-
manna. — Sýnist þarna sitt hverj-
um, þvi aft öldungadeildarþing-
menn, sem styftja Nixon forseta,
telja sig munu geta fellt tillögu
Mansfields meft aö minnsta kosti
tiu atkvæöa meirihluta.
Demókratar eru i meirihluta I
öldungadeildinni, og þingflokkur
þeirra hefur lýst yfir stuöningi
islnum vift tillögu Mansfields (for-
manns þingflokksins). En þaö er
vitaft mál, aft ekki munu allir
demókratar þó greiöa atkvæfti
meft henni, þegar til atkvæöa-
greiöslunnar kemur.
Mike Mansfield, þingmaöur
Montanarikis, hefur lengi verift
aftaltalsmaftur þess á Bandaríkjí
Mike Mansfield, formaöur þingflokks demókrata I öldungadeild, og
Edward Kenncdy, sem hefur mjög fylgt Mansfield aft málum varftandi
fækkun herafla USA erlendis.
þingi, aft dregift verfti úr
.hernaftarmætti Bandarikjanna
erlendis. Hann og stuöningsmenn
hans færa þau rök helzt fyrir sínu
máli, aft nú séu breyttir timar
(frá dögum kalda striftsins), og
ennfremur ættu Bandarlkin aft
draga úr skuldbindingum sínum
vift Vestur-Evrópu.
Og þaö höfftu allir búizt viö þvl,
aft hann, á yfirstandandi þingi,
mundi knýja á stjórn Nixons aft
semja lög, sem gerftu ráö fyrir
verulegri fækkun I 310.000 manna
herlifti Bandarikjanna I V-
Evrópu. Þó órafti vist engan fyrir
þvl, aö hann mundi krefjast þess,
aft fækkaft yröi um helming öllu
herliöi USA erlendis. — Þaft
mundi þýöa um 250.000 manna
fækkun, og meirihlutinn úr V-
Evrópu.
Mansfield hefur þarna fært út
mörkin fyrir slnar eigin kröfur,
sem hingaft til hafa afteins snúizt
um herliftUSAI Evrópu. Nú lætur
hann það ná til herliös Bandarikj-
anna, hvar sem það er statt á
hnettinum. En meft þvi stefnir
hann aft þvi aö koma I veg fyrir, ef
hann fær vilja sinum fram komift
I öldungadeildinni, aö hermála-
yfirvöld fækki einungis i Evrópu.
Þótt Mansfield segi sjálfur, aft
„aftalathyglinni beri aft beina aö
herlifti Bandarikjanna I V-
Evrópu”, þá bætir hann við:
„Gefa ber gaum aö athöfnum
bandarlsks herlifts I Aslu og viö
Kyrrahafift, þar á meöal I Thai-
landi, Okinawa, Suður-Kóreu,
Formósu, Filipseyjum og
Japan.”
„Það er mitt álit,” hefur
Mansfield lýst yfir, „að móta
megi mjög hpilbrigða utanrikis-
stefnu fyrir Bandarikin með aö-
eins 50% þess herafla erlendis,
sem Bandaríkin hafa nú. — Og ég
kýs að láta það ná yfir allan
heiminn, því að ég tel, að Banda-
rlkin hafi viðast hvar gengið of
langt I þessu tilliti.”
Samdráttur I herafla USA á er-
lendri grund um 250 þúsund
manns mundi gera stórt strik I
reikninginn I V-Evrópu, þar sem
mundi veröa veruleg fækkun, en
310 þúsund manns eru staðsettir
þar, aöallega I Vestur-Þýzka-
landi, samkvæmt samningum
Bandarlkjanna við Atlantshafs-
bandalagið.
Nixon forseti hefur haldið þvl
fram, að sllk fækkun mundi leiða
til þess, að bandamenn þeirra I
Evrópu teldu sig ekki skuld-
bundna til þess aðhalda sjálfir úti
eins miklu herliði héreftir sem
hingað til og mundu fækka i eigin
herjum. Ennfremur telur hann.
samþykkt tillögu Mansfields
munu koma illa á þessum tima,
fyrir afvopnunarviðræðurnar við
Rússa. Bendir hann á, að það
verði minna til að verzla með I
kaupunum við Rússa, ef búið
verði að samþykkja fækkun, áður
en þeim verður mætt I viðræðun-
um.
Engu að síður hefur óneitan-
lega vaknað meiri áhugi með
þingmönnum á þvi aö fækka her-
liðinu I Evrópu heldur en verið
hefur þar. Virðast þeir ekki lita
eins alvarlega á hættuna, sem
stuðningsmenn Nixons útmála
um aö viðræðurnar við Rússa
kunni að renna út i sandinn. Né
heldur hefur hlotið sérstakan
hljómgrunn kvíði manna fyrir
þvl, aö á eftir muni fylgja alls-
herjarfækkun herafla NATO og
jafnvel þar á eftir upplausn
bandalagsins.
SjýíBir --=ss»ter •
..., ■
Fækkun herliðs Bandarlkjamanna erlendis mundi sennilega segja til sln á Keflavikurflugvelli, ef af þvl
yrði, að tillaga Mansfield næði fram að ganga.