Vísir - 11.10.1973, Blaðsíða 3

Vísir - 11.10.1973, Blaðsíða 3
Visir. Fimmtudagur 11. október 1973. 3 Við lögðum á ökutœkjum á annað þús. síðasta árí Það gegnir sama máli með bilinn okkar og þarfasta þjóninn fyrrverandi, einn dag þurfum við að sjá á bak þeim báðum. Á siðasta ári einu saman voru af- skráð á annað þúsund ökutæki. Þar með talin bifhjól og vöru- bifreiðar. Strangt til tekið voru ökutækin 1846 talsins, en þar af voru fólksbifreiðar 1542. Er það dágóð prósenta af bifreiðaeign landsmanna, sem i ágúst- mánuði siðastliðnum var orðin 55 þúsund. Enn eru i umferð fjölmargar bifreiðar frá bilaárinu 1955, en frá þvi ári eru helmingi fleiri bifreiðar i umferðinni en frá árinu eftir, eða samtals 1212 bifreiðar. Frá árinu áður eru svo hins vegar ekki nema 357 bifreiðar við liði ennþá. Á siðasta ári sögðum við skilið við samtals 201 bifreið frá smiðaárinu 1955, en næstmestur fjöldi afskráðra bifreiða á siðasta ári var frá ’63, eða 145 bifreiða. Aðrar árgerðir, sem misstu á siðasta ári yfir hundrað bifreiðar úr sinum röðum, voru 62, 60 og 59. Elztu bifreiðarnar, sem afskráðar voru á siðasta ári voru frá 1938 og voru þær tvær talsins. Og hafa þær mjög sennilega ■ verið orðnar mosagrónar. Þó svo að bifreiðainn- flutningurinn hafi aukizt svo stórkostlega, sem raun ber vitni, hefúr það ekki færzt að sama skapi i vöxt, að bifreiðar séu afskráðar og þeim lagt. Hins vegar mun það vera að færast meira i vöxt, að skóla- piltar, sem vinna fyrir góðu kaupi á sumrin, kaupi sér eldri bila tilaðskrölta á i skólann. Og það er orðið meira áberandi en áður, að ungt fólk, sem vinnur allt árið, kaupi undir sig nýja bila. Þeir verða stöðugt færri, sem þurfa að fá bilinn lánaðan hjá „kallinum”,þegiará aö „skutlast til piunnnar”....... —ÞJM KLOFAÐ YFIR VCRÐBRÉFA- StNDINGAR Aðalpósthúsiö i Reykjavlk — ef menn vilja sjá með eigin augum, hvernig sáttir sitja hvaö þrengst, þá mun upplagt að lita til þeirra, sem flokka póst I gamla húsinu við Póst- hússtræti. Inn um opnu dyrnar fnyndinni kemur fólk utan af tunni, sem þarf erindi aö reka á Pósthúsinu, og stund- uin þegar mikið er áð gera, t.d. kringum jól, þá hrúgast pósturinn upp þarna i gang- SKÁTAR GJÖRBREYTA BÚNINGUM SÍNUM — grœnar peysur og rauðir klútar í stað gamla skátabúningsins með öllum merkjunum Tveir Reyk- víkingar steia ó Akureyri l.ögreglan á Akurcyri fór á stúfaua i fyrrinótt til að leita að bifreið, sem stolið var um klukkan 3. Vitni gátu gefið lýsingu álveimurmönnum, sem citthvaö gætu hafa verið við- riönir stuldinn. Lögreglan leitaði að þessum mönnum og fann þá klukkutima siðar. Þá voru þeir með ýmsa muni á sér, svo sem merkibyssu og lyf úr sjúkrakassa. Þeir voru yfirheyrðir, og kom þá i ljós, að þeir höfðu brotizt inn i Ólaf Magnússon EA, sem lá við Torfunesbryggju. Mennirnir höfðu skrámazt tals- vert á handleggjum við bilstuldinn og innbrotið, og þurfti að gera að sárum þeirra á spitalanum. Þeir voru báðir ölvaðir og settir inn meðan rynni af þeim. Mennirnir eru báðir úr Reykjavik. —óH Frádregið til skatts, sem gefíð er til dýraverndunar Þeir, sem gefa einhverja fjárupphæð til Sambands dýra- verndunarfélaga islands, geta fengið upphæöina frádregna til skatts. Þetta sagði Jórunn Sörensen, formaður sambandsins, þegar við ræddum við hana i morgun, en sambandið fékk þessa undanþágu fyrir stuttu siðan. Þeir sem þvi vilja styrkja málefnið lækka um leið skattinn. Þá má geta þess að girónúmer sambandsins er 44000. —EA „Nýi skátabúningurinn verður talsvert ólikur þeim gamia. Nú klæðast allir skátar dökkgrænum peysum. Skátaklúturinn verður vinrauður. Að öðru leyti verður skátafélögunum frjálst að ákveða nánar um útlit búningsins”, sagði Guðbjartur Hannesson erindreki Bandalags islenzkra skáta i við- tali við Visi Stjórn bandalagsins hefur gert þessar tillögur um búninginn, og þær lagðar fram á skátaþingi, sem verður haldið um helgina i Keflavik. Guðbjartur sagði, að það hefði lengi staðið til að breyta skáta- búningnum. Skátastúlkur hafa verið einna óánægðastar með sinn búning. „Sennilega verða samt margir, sem sakna gamla búningsins. Það er óneitanlega gaman að sjá skáta i búningum sinum ganga saman i hópum, en búningurinn var bara orðinn full dýr i fram- leiðslu. Einnig þurfti að vera auð- velt að framfylgja þvi að fólk gæti fengið sér búning”, sagði Guð- biartur. Samfara þvi að búningurinn breytist, mun eitthvað minnka af þvi merkjaflóði, sem skátar hafa löngum þakið búninga sina meö. „A þessu skátaþingi núna um helgina verður geysimargt, sem þarf að ræða og ákveða. Meðal annars verður þar rætt um fyrir- hugað landsmót skáta. Það á að halda landsmótið að Úlfljóts- vatni, og við erum þegar farnir að undirbúa það. Rammi þess móts verður landnámið, og landnám skáta að Úlfljótsvatni”. Þegar er búið að ákveða móts- daga, en það er 13. til 21. júli næsta ár. Búizt er við hátt á þriðja þúsund manns —OH Prófessor Ólafur Björnsson rektor — Magnús Múr hefur beðizt lausnar Magnús Már Lárusson, rektor Háskólans hefur beðizt lausnar frá embætti sinu þegar i stað, og mun varaforseti Háskólaráðs gegna rektorsstörfum, þar til rektorskjör hefur farið fram. Raunar hafði samþykkt við lausnarbeiðni rektors ekki bor- izt frá rikisstjórn til Háskólans i morgun, og þvi gátu menn þar litið sagt um lausnarbeiðni rektors. Lög um uppsagnarfrest opinberra starfsmanna herma, að hann skuli vera þrir mánuðir, en hægt er þó að biðj- ast lausnar „þegar i stað”, ef sérstaklega stendur á. Ólafur Björnsson prófessor er varaforseti Háskólaráðs siðan 12. september s.l., og mun hann gegna störfum rektors frá þvi hann lætur af störfum og þar til rektorskjör hefur farið fram. „Svar við lausnarbeiðni hefur ekki borizt hingað”, sagði háskólaritari i morgun,” og fyrr en það hefur orðið, munum við ekki huga að neinum málum varðandi kjör nýs rektors. Við vitum enda ekkert um það, hvort lausnarbeiðnin verður samþykkt.” — GG T/on vegna óveðursins enn að koma í Ijós „Okkur berast stöðugt tilkynn- ingar um skaða, sem orðið hefur i, óveðrinu á dögunum”, sagði Jóhannes Magnússon hjá Reykja- víkurborg, scm starfar við mót- töku tilkynninga um óveöurstjón. „Bæði er um að ræða tjón, sem fólk hefur ekki uppgötvað fyrr en seint, og einnig erðu sumir sér ekki strax ljóst, að ekki var nóg að lögregluskýrsla væri tekin um tjónið”, sagði Jóhannes ennfrem- ur. „Allur matskostnaður er greiddur af Reykjavikurborg, en vegna misskilnings i byrjun tóku matsmenn greiðslu af tjónþolum. Nægir að framvisa þeim reikningum hér hjá borgarverk- fræðingi, og munu þeir þá verða endurgreiddir.” Að sögn Jóhannesar hafa komið til hans 97 beiðnir um mat á skemmdum fasteigna og lausa- fjár. Þeir einstaklingar væru þó vafalaust mun fleiri, sem fyrir skaða hefðu orðið, þvi yfirleitt væri aðeins einn aðili, sem til dæmis óskaði eftir mati á einu stigahúsi. Engar upplýsingar liggja fyrir um heildartjón vegna óveðursins I Reykjavik, en beiðni um mat á tjóni verður að hafa borizt fyrir 19. þessa mánaðar. — ÓG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.