Vísir - 11.10.1973, Blaðsíða 11
Vísi
„Að undanskildum sjö
málverkum eru öll verkin á
sýningunni í éinkaeign,"
segir Sverrir. „Það var
ákaflega erfitt að hafa
uppi á eigendunum, og
þrátt fyrir að ég auglýsti
tvisvar í sumar eftir
myndum mínum, fékk ég
ekki nema fjögursvör. Það
var einna erfiðast að hafa
uppi á fyrstu myndunum,
Ég átti svo erfitt með að
múna, hverja ég hafði látið
hafa þær."
En þær urðu þó ekki færri
en sextíu, myndirnar, sem
Sverrir varð að endursenda
eigendum, þegar hann
hafði sett upp sýninguna.
Veggplássið hrökk ekki til í
þessu stóra húsi. Auk þess
haf ði Sverrir komið sér upp
lista yfir um fjörutíu
myndir í viðbót, sem hann
gat fengið lánaðar til
sýningarinnar.
Knútur Bruun, sem hefur
aðstoðað listamanninn
dyggilega við undirbúning
sýningarinnar, svaraði
þeirri spurningu Vísis,
hversu há tryggingarupp-
hæðin fyrir sýninguna
væri:
,,Það yrði aldrei hægt að
meta þessar myndir fylli-
lega til f jár. Og þó svo væri
yrði okkur með öllu ómögu-
legt að greiða það iðgjald,
sem til þyrfti. Tryggingar-
upphæðin er 14 milljónir,
og miðast þá aðeins við
það, að hægt yrði að bæta
minniháttar tjón."
Elztu myndirnar á
sýningunni eru frá því 1942,
en þá var Sverrir 12 ára
gamall. Það er röð mynda
frá Vestmannaeyjum, sem
aldrei hafa sézt a sýningu
áður.
„Þetta er greinilega
seglastrigi, sem ég hef þétt
með einhverju ókenni-
legu," segir listamaðurinn
og virðir vandlega fyrir sér
þessar30 ára myndir. „Mér
sýnist þetta nú ekki vera
fullkomin málning, en það
er gott að sjá, að hún hefur
ekkert breytt sér eða
sprungið. Og rammarnir.
Ekki eru þeir beinlínis
meistarastykki. Ég
smíðaði þá sjálfur, því þá
voru ekki innrömmunar-
verkstæði á hverju götu-
horni."
Og Sverrir fer með blaða-
manni og Ijósmyndara
Vísis um Kjarvalssalinn,
þar sem elztu myndirnar
hans hanga uppi. Þar er
engin myndanna til sölu.
AAyndirnar eru hengdar
upp i nokkurri tímaröð og
fylla báða salina. Þarna
eru myndir frá því Sverrir
var við nám í Handíða- og
myndlistarskólanum,
allmargar myndir frá
sýningu hans 1952, málverk
frá Parísarárum hans,
þegar hann málaði geo-
metrískar myndir, málverk
frá því hann málaði með
sprautu, og síðan fyrstu
málverk Sverris frá þeim
tíma, þegar hann sleppir
sprautunni og fer að mala
figurativar landslags-
myndir.
I stærri sýningarsalnum
aó Kjarvalsstöðum eru
myndir Sverris frá því á
árunum 1966 og fram til
dagsins í dag. Þar eru verk
frá sýningunum i Casa
Nova 1966 og 1969. AAál-
verkin, sem hann hefur
málað síðan, hafa hvergi
sézt áður á sýningu.
Sýning Sverris verður
opin fram til 28. október.
—ÞJAA
Hér stendur listamaöurinn viö
eina af elztu myndunum á
sýningunni. Hún er frá Vest-
mannaeyjum og er máluö áriö
1942, þegar Sverrir var aöeins 12
ára gamall.
Þær eru fáar af þessu taginu, myndirnar, sem Sverrir sýnir aö Kjarvaisstöoum. Þetta er oliumálverk
fráárinu 1954, og er það 60x60 aöstærö. „Þessi mynder einkennandifyrir þétta timabil á ferli mlnum,"
útskýrir Sverrir. „Hún hefur fariö nokkuð víða. M.a. var hún send á sýningu I Róm."