Vísir - 11.10.1973, Page 11
10
Vlsir. Fimmtudagur 11. október 1973.
A sýningu Sverris eru 13 tálgaðar spýtur á borö viö þá, er listamaöurinn heldur hér á. Flestar eru þessar útskuröarmyndir geröar I
palisander, og eru þær allt upp 185cm á hæö. (Ljósm.: Bragi).
„Man jafnvel f hvaða
stellingum ég málaði“
ÚR SVlNAHRAUNI. Þetta er ein af
nýrri myndum Sverris. Hún er máluð í
fyrrasumar með olíu og er 80x115 að
stærð. „ Ég hef farið margar ferðirnar í
.Svínahraun/' segir Sverrir. „Þar eru
mótífin ótæmandi í hrauninu. Það
mundi engum endast ævin til að gera
þessu ágæta hrauni fullkomin skil. Auk
þessarar myndar eru á sýningunni að
Kjarvalsstöðum fimm aðrar myndir úr
Svínahrauni, þar af þrjár vetrar-
myndir." Þessi mynd Sverris er í eigu
Verzlunarbankans og hefur hangið
uppi í útibúi bankans við Laugaveg.
> »
Texti: ÞJM
Ljósmyndir: Bragi
Ljósmyndun og
litgreining
mólverka: Grafík
— segir Sverrír Haraldsson,
sem hefur safnað á eina
sýningu myndum frá síðustu
30 árum
„Ég þekki allar mynd-
irnar mínar strax og ég sé
þær. Man jafnvel í hvaða
stellingum ég málaði þær,"
sagði Sverrir Haraldsson
listmálari, sem nú hefur
safnað saman á eina
sýningu 233 málverkum og
myndum, sem eiga að sýna
feril hans síðustu 30 árin.
* 1
Sverrir og Sverrir. Sjálfsmynd, sem listamaöurinn málaöi 1970.
Myndin er máluö meö oliu.
Hér er ágætt dæmi um þaö timabil, þegar Sverrir var aö leggja frá sér sprautuna og taka til viö landslagsmyndirnar.
Þetta er oliumynd, máluö 1965, og er 103x82 aö stærö". ,,Hún á raunverulega ætt sina aö rekja til Arbæjar”, segir Sverrir.
,,Hún er unnin eftir teikningu þaöan. Teikningu, sem ég haföi margútfært.”
Vísir, Fimmtudagur 11. október 1973
„Að undanskildum sjö
málverkum eru öll verkin á
sýningunni í einkaeign,"
segir Sverrir. „Það var
ákaflega erfitt að hafa
uppi á eigendunum, og
þrátt fyrir að ég auglýsti
tvisvar í sumar eftir
myndum mínum, fékk ég
ekki nema fjögursvör. Það
var einna erfiðast að hafa
uppi á fyrstu myndunum,
Ég átti svo erfitt með að
muna, hverja ég hafði látið
hafa þær."
En þær urðu þó ekki færri
en sextíu, myndirnar, sem
Sverrir varð að endursenda
eigendum, þegar hann
hafði sett upp sýninguna.
Veggplássið hrökk ekki til í
þessu stóra húsi. Auk þess
hafði Sverrir komiö sér upp
lista yfir um fjörutíu
myndir í viðbót, sem hann
gat fengið lánaðar til
sýningarinnar.
Knútur Bruun, sem hefur
aðstoðað listamanninn
dyggilega við undirbúning
sýningarinnar, svaraði
þeirri spurningu Vísis,
hversu há tryggingarupp-
hæðin fyrir sýninguna
væri:
„Það yrði aldrei hægt að
meta þessar myndir fylli-
lega til f jár. Og þó svo væri
yrði okkur með öllu ómögu-
legt að greiða það iðgjald,
sem til þyrfti. Tryggingar-
upphæðin er 14 milljónir,
og miðast þá aðeins við
það, að hægt yrði að bæta
minniháttar tjón."
Elztu myndirnar á
sýningunni eru frá þvi 1942,
en þá var Sverrir 12 ára
gamall. Það er röð mynda
frá Vestmannaeyjum, sem
aldrei hafa sézt á sýningu
áður.
„Þetta er greinilega
seglastrigi, sem ég hef þétt
með einhverju ókenni-
legu," segir listamaðurinn
og virðir vandlega fyrir sér
þessar 30 ára myndir. „Mér
sýnist þetta nú ekki vera
fullkomin málning, en það
er gott að sjá, að hún hefur
ekkert breytt sér eða
sprungið. Og rammarnir.
Ekki eru þeir beinlínis
mei sta rasty kk i. Ég
smíðaði þá sjálfur, því þá
voru ekki innrömmunar-
verkstæði á hverju götu-
horni."
Og Sverrir fer með blaða-
manni og Ijósmyndara
Vísis um Kjarvalssalinn,
þar sem elztu myndirnar
hans hanga uppi. Þar er
engin myndanna til sölu.
Myndirnar eru hengdar
upp í nokkurri tímaröð og
fylla báða salina. Þarna
eru myndir frá því Sverrir
var við nám í Handiða- og
myndlistarskólanum,
allmargar myndir frá
sýningu hans 1952, málverk
frá Parisarárum hans,
þegar hann málaði geo-
metrískar myndir, málverk
frá því hann málaði með
sprautu, og síðan fyrstu
málverk Sverris frá þeim
tíma, þegar hann sleppir
sprautunni og fer að mála
figurativar landslags-
myndir.
I stærri sýningarsalnum
aó Kjarvalsstöðum eru
myndir Sverris frá því á
árunum 1966 og fram til
dagsins í dag. Þar eru verk
frá sýningunum í Casa
Nova 1966 og 1969. Mál-
verkin, sem hann hefur
máiað síðan, hafa hvergi
sézt áður á sýningu.
Sýning Sverris verður
opin fram til 28. október.
—ÞJM
Hér stendur listamaöurinn viö
eina af elztu myndunum á
sýningunni. Hún er frá Vest-
mannaeyjum og er máluö áriö
1942, þegar Sverrir var aöeins 12
ára gamall.
«
Þær eru fáar af þessu taginu, myndirnar, sem Sverrir sýnir aö Kjarvalsstöðum. Þetta er oliumálverk
frá árinu 1954, og er það 60x60 aöstærö. „Þessi mynd cr einkennandi fyrir þetta timabii á ferli minum,”
útskýrir Sverrir. „Hún hefur fariö nokkuö vlöa. M.a. var hún send á sýningu i Itóm.”