Vísir - 11.10.1973, Blaðsíða 17

Vísir - 11.10.1973, Blaðsíða 17
Visir. Fimmtudagur 11. október 1973. Útvarp, kl. 21.00: Leikritið Mannleg þrenning: UPP KOMAST SVIK UM SÍÐIR "Mannleg þrenning” nefnist leikrit þaö, sem flutt verður i út- varpinu i kvöld. Leikritið hefst klukkan 21.00 og tekur hálftima i flutningi. Leikritið er eftir Véstein Lúð- viksson, sem áreiðanlega flestir kannast við. Þetta er fyrsta út- varpsleikritið hans, en hann hefur meðal annars gefið út smásagnasafn og siðan söguna um Gunnar og Kjartan. Leikritið fjallar um tvo gamla menn, sem eru niður- komnir á elliheimili. Tekinn er fyrir ákveðinn þáttur i mann- legum samskiptum, það er hjónabandið. Eftir rabb þeirra gömlu mannanna kemur það i ljós, að annar þeirra hefur haldið við eiginkonu hins. Ekki er ráð að segja frekar frá efni leiksins, sem sjálfsagt er forvitnilegt, en ein persóna enn kemur við sögu, og það er næturvaktin á elliheimilinu. Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir, en persónur og leikendur eru: Jón - Valur Gislason, Björn - Þorsteinn ö. Stephensen og næturvaktin — Kristbjörg Kjeld. —EA Mynd þessi var tekin á einnt æfingu leikritsins, Mannleg þrenning. Við sjáum Val Gislason, Þorstein ö. Stephensen og Brynju Benediktsdóttur, sem leikstýrir. Li □AG | D KVÖLD | l J □AG Útvarp, kl. 19.00: Bein lína: Ragnar Arnalds. Þeir hafa sannariega nóg að gera, þeir Árni Gunnarsson og Einar Karl Haraldsson frétta- menn, þessa dagana. Það má aö minnsta kosti búast við þvi, þar sem þátturinn Bein lina er nú á hverju kvöldi, á meðan foí ystu- menn stjórnmálaflokkanna eru teknir fyrir og þeim gert að svara spurningum hlustenda viðs vegar um landið. 1 gærkvöldi sat fyrir svörum Gylfi Þ. Gislason, formaður Al- FORUSTUMENN STJÓRNMÁL- ANNA FYRIR SVÖRUM þýðuflokksins. I kvöld verður það hins vegar Ragnar Arnalds, formaður Alþýðubandalagsins, sem verður fyrir svörum hlust- enda, en á morgun verður bein lina til Hannibals Valdimars- sonar, formanns Samtaka frjálslyndra og vinstri manna. Sjálfsagt má heyra margt skemmtilegt i þessum þáttum sem og flestum þeirra, en Bein lina hefst bæði kvöldin klukkan 19.00. -EA Hannibal Valdimarsson VÍSIR flytur nýjar fréttir Vísiskrakkamir bjóða fréttir sem skrifaðar voru 2 'A klukkustund fyrr. VÍSIR fer í prentun kL hálf-ellefu að morgni og er á götunni klukkan eitt. | jpr ;í' PVrstur meö ¥T1 fréttimar ^ l 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25. Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Á frivaktinni Margrét Gúðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Siðdegissagan: „Við landamærin” eftir Terje Stigen Þýðandinn, Guð- mundur Sæmundsson, byrjar lestur sögunnar. 17 -**★☆★☆★*★☆★*★*★*★☆*☆*☆★☆*☆*☆★*★☆*☆★☆★***■*☆*■*« S- X S- * «- X «- X «• x «- x «■ * s- X «- X- «■ X- «■ X- «- X- «- X- «- X- s- X- s- X- «- X- s- X- X «- X xL X «- X «- X «- X «- X «- X «- X s- X «- X «- X s- X « X s- X «- X «• X «- X s- X s- X s- X tt- X s- X «- X s- X s- X s- X «- X s- X s- X «- X «- X «- * * *s frspa m m u Spáin gildir fyrir föstudaginn 12. október Hrúturinn, 21. marz-20. april. Það litur helzt út fyrir, að þú lendir i slagtogi við einhvern, sem ekki er auðvelt að gera til hæfis, sem betur fer verður það aðeins i bili. Nautið, 21. april - 21. mai. Einhvern tima dagsins þarftu sennilega að taka ákvörðun, sem þú ættir að hugsa vel, þvi hún kann að varða þig meira en þú heldur. Tviburarnir,22. mai-21. júni. Fjölhæfni þin getur komið sér einkar vel i dag i sambandi við verk- efni, sem öðrum hefur verið falið að leysa, og leita mun aðstoðar þinnar. Krabbinn, 22. júni-23. júli. Það kann að koma fyrir i dag, að afstaða, sem þú hefur áður tekið, virðist röng. Ekki skaltu samt breyta henni, nema að vel athuguðu máli. Ljónið,24. júli-23. ágúst. Fljótfærni annarra, ef til vill innan fjölskyldunnar, getur komið þér i nokkurn vanda i dag, og jafnvel að þú hafir nokkurt tjón af. Meyjan, 24. ágúst-23. sept. Farðu þér ekki að neinu óðslega, en gefðu þér tima til að athuga viðfangsefnin og fólkið i kringum þig, áður en þú hefst handa. Vogin, 24. sept. - 23. okt. Ef til vill verður þú spurður þannig i sambandi við starf þitt, að þér finnst heimskulegt, en þú ættir samt ekki að láta þess gæta i svarinu. Drekinn,24. okt.-22. nóv. Þú ættir ekki að ætlast til of mikils af öðrum i dag, sizt hvað snertir þina nánustu. Láttu dómgreind þina ráða i öllum vafamálum. Bogmr''rinn, 23. iióv.-21. des. Þetta verður að öllum litundum mjög rólegur dagur, og fátt sem gerist markvert. Flest mun ganga samkvæmt áætlun — svona nokkurn veginn. Steingeitin, 22. des-20. jan. Þú mátt gera ráð fyrir fremur þungum róðri i einhverju máli, er snertir fyrst og fremst tilfinningarnar og veld- ur þér þvi áhyggjum. Vatnsberinn,21. jan.-19. febr. Atburðir, sem eru að gerast alllangt undan, standa að einhverju leyti i tengslum við liðan þina og hafa fremur neikvæð áhrif á hana. Fiskarnir, 20, febr.-20. marz. Ef þú ert forsjáll oggætinn,þá getur þetta orðið þér notadrjúgur dagur. Ef þér býðst eitthvert tækifæri skaltu at- huga það vandlega. -ú * -3 ♦ -k -k -t! -k ♦ * -Ú ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ■é ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ -it ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ -3 ¥ ¥ ¥ -3 ★ -3 ¥ ¥ ¥ -3 ¥ -3 ★ •3 ¥ -3 15.00 Miðdegistónl. Sinfóniu- hljómsveitin i Lundúnum leikur „Heilaga Jóhönnu”, forleik eftir Verdi, „Zampa”, forleik eftir Hérold og „Le Cid”, ballet- svitu eftir Messenet. Oskar Czerwenka, Hilde Guden, Waldemar Kmentt, kór og hljómsveit Vinaróperunnar flytja þætti úr óperunni „Vopnasmiðnum” eftir Lortzig; stj. Peter Ronne- feld. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.15. Veðurfregnir 16.20 Popphornið 17,05 Tónleikar. Tilkynn- ingar. 18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfr. 18,55 Tilkynningar. 19.00 Veðurspá. Bein lina Umsjónarmenn: Arni Gunnarsson og Einar Karl Haraldsson. 19.45 Daglegt mál Helgi J. Haildórsson cand. mag. flytur þáttinn. 19.50 Gesjir I útvarpssal: Manuela Wiesler og Halldór Haraldsson leika á flautu og pianó. a. „Flauta Pans” eftir Jules Mouquet. b. Sónata fyrir flautu og pianó eftir Paul Hindemith. 20.15 Landslag og leiðir.Sigfús Kristinsson framkvæmda- stjóri talar um Fagradal og Reyðarfjörð. 20.40 Kórsöngur. Rubin-Artos kórinn syngur sigild lög. 21.00 Leikritið: „Mannleg þrenning” eftir Véstein Lúðviksson, Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir. Persónur og leikendur: Jón, Valur Gislason. Björn, Þor- steinn 0. Stephensen. Næturvaktin, Kristbjörg Kjeld 21.25 Leikið á raforgcl: Dick Leibert leikur léttklassisk lög á orgelið i Radio-City Music Hall i New York. 21.40 „Atburðirnir á Stapa”, bókarkafii eftir Jón Dan Gisli Halldórsson leikari les. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. Eyja- pistill. 22.35 Manstu eftir þcssu? Tónlistarþáttur I umsjá Guðmundar Jónssonar pianóleikara. 23.20 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. Föstudagur 12.október 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10 Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.45 Morgunstund barnanna kl. 8,45: Þórunn Magnúsdóttir heldur áfram aö lesa „Eyjasögu” sina (5) Til- kynningar kl. 9.30 Þing- fréttir kl. 9.45. Létt lög á milli liða. Morgunpopp kl. 10.25: Steve Windwood, Jim Capaldi, Dave Mason, Chris Wood, Rich Grech og Jim Gordon syngja. Fréttir kl. . 11.00. Tónlist eftir Chopin: Martha Argerich leikur Pianósónötu nr 3 i h-moll op 58 / Alina Bolechowska syngur nokkur lög / Janos Starker og György Sebök leika Sónötu i g-moll fyrir selló og pianó op. 65.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.