Vísir - 11.10.1973, Blaðsíða 20

Vísir - 11.10.1973, Blaðsíða 20
VÍSIR Fimmtudagur 11. október 1973. Yfir 200 at- vinnubílstjórar lýsa stuðningi við Sverri Yfir tvö hundruö atvinnubif- reiöastjórar hafa skrifaö undir áskorun um, að Sverri Itunólfs- syni verði faliö aö ieggja Þing- vallaveginn og sýna mcö þvi, hvernig aöferö hans, „blöndun á staönum”, dugar. Hér er um að ræða starfandi bifreiðastjóra á bifreiðastöðvum. Enn hefur ekki fengizt úr þvi skorið, hvernig fari um mál Sverris. Leiðinleg mistök uröu við birt- ingu lesendabréfs frá Sverri hér i blaðinu á þriðjudaginn, að niöur féll siðasta málsgrein bréfsins. Efnislega var þar um að ræöa áskorun frá Sverri til almennings að láta álit sitt i ljós, bæði með og móti, um það, hvort hann skyldi látinn gera þessa tilraun eða ekki. Sverrir sagði i bréfinu, að hann tryöi á lýðræðið og vildi þvi heyra bæði frá þeim, sem væru fylgj- andi tilraun og hinum. —HH ,Froðu- dœlur á hverja verstöð' — Isfirðingar fengu slökkvitœki sent frá Reykjavík, þar eð þeirra búnaður var ekki kominn til landsins „Farskrárdeildin, góðan da g..." Flugfélagsfáninn blaktir stoltur framan við Ilótel Loft- leiöir og hefði einhvern tima þótt saga til næsta bæjar hcr áður — en nú er öldin önnur, gömlu fjendurnir næstum sam- vaxnir. Þegar hringt er i sima- númerið 25100, þá er svarað „Farskrárdeild flugfélaganna, góðan dag....”, en með flug- félögunum er ekki átt við öll flugfélög á landinu, heldur þau stóru tvö. Og þær láta ekki rugla sig, stúlkurnar hjá farskráningar- deildinni, þegar spurt er, hvort maður fái farmiða hjá Loft- leiðum eður Flugfélagi Islands. Þegar brezku flugfélögin BOAC og BEA, gengu i eina sæng, var að sögn talsverður ruglingur fyrst i stað. Starfs- fólkið vissi ekki, hjá hvoru félaganna það starfaði, sagði ýmist BOAC eða BEA — en hér á landi er enginn ruglingur, maður fær strax samband við farskrárdeild — farskrárdeild Loftleiða eða Flugfélagsins? Nei, farskrárdeild „Flugleiða”, og Flugleiðir er sama og Loft- leiðir og Flugfélag Islands sam- runnin. — GG Fáni Flugfélags íslands blaktir þarna stoltur framan við Loftleiða- (Flugleiða?) hótelið. Menn velta því fyrir sér, hvort tekið verði upp eitt nafn fyrir bæði flugfélög- in, eða hvort þau muni koma fram sem tvö fyrir- tæki út á við, aðeins af- greiðslan á einni hendi. Stóru vinningarnir til Eyja! Stóri vinningurinn i Happdrætti Háskólans kom að þessu sinni upp i Vestmannaeyjum. Deilist hann i fjóra staði: tvo miðanna, á númer 46 826, áttu vinnufélagar á verkstæði og þeir áttu röð af miðum, þannig að þeir ná i samtals tvær milljónir og tvö hundruð þúsund, sem er dágóð upphæð til skiptanna. Hinar milljónirnar tvær féllu i hlut sín hvors miðaeigandans, en annar þeirra átti einnig röð af miðum og fær þvi einnig báða aukavinningana. Það þarf vist ekki að efast um það, að þessir stórvinningar koma Vestmannaeyingunum vel, en þeir munu allir vera ákveðnir I þvi, að setjast aftur að i Eyjum. Þess má geta, að liðin eru tvö ár siðan stóri vinningurinn i Há- skólahappdrættinu kom upp á miða I Vestmannaeyjum. I það skiptið var miðaröðin skipt á tvo eigendur, sem deildu vinnings- upphæðinni með sér. Þegar dregið var i 10. flokki Háskólahappdrættisins i gær kom 200 þúsund króna vinningurinn upp á miða númer 9 129. Voru allir fjórir miðarnir af þvi númeri seldir i umboði Valdi- mars Long i Hafnarfirði. Að sögn Páls H. Pálssonar hjá Happdrætti Háskólans hefur þetta happdrættisár gengið mjög vel og endurnýjun gengið óvenju vel og greiðlega fyrir sig. —ÞJM Þegar eldur varö laus i færeyska togaranum, Magnúsi Ileinasyni, á isafiröi á mánu- dagsmorguninn var, þá sendi slökkviliöiö i Kcykjavlk tsfirðing- um vestur froöu-slökkvitæki sitt, „cn Key kvikinga rnir komu reyndar of seint meö tækiö”, sagði brunavörður á isafiröi, sem Visis haföi tal af, „Þeir komu rétt fyrir klukkan átta um morguninn, og þá vorum viö búnir aö slökkva eldinn”. Slik froðu-slökkvitæki, sem hér um ræðir, munu vera hið mesta þing við að slökkva eld i skipum. Isfirðingar eiga sjálfir i pöntun slikt tæki, en alls munu um tuttugu slik vera til á landinu. „Viö héldum námskeið á Akur- eyri i vor, þar sem þessi froðu- slökkvitæki voru kynnt”, sagði Bárður Danielsson hjá Bruna- málastofnun rikisins, er Visir ræddi við hann, og sagði Bárður, að allar verðstöðvar á landinu myndu á næstunni eignast slik slökkvitæki. „ÆtH tækið sjálft kosti ekki kringum 30.000 krónur”, sagði Bárður”, og svo er efniö sjálft, sem á tækin þarf, það er kannski frekar dýrt, en tæki og góðar birgðir af froðuefninu gætu kostaö kringum 50.000 kr.” Innkaupastofnun rikisins er með mörg svona tæki i pöntun, en þau eru þýzk að gerð „og verða brátt komin á hverja höfn landsins”, sagði Bárður Daniels- son. —GG I Losað um verðlagshöft innlendra iðnaðarvara Verðlagsnefnd hefur ákveöiö aö gefa verölagningu á nokkrum islenzkum iönaöarvörum i heild- sölu frjáisari en veriö hefur um nokkurt skeiö. Þarna er um aö ræöa kex, skófatnað, vefjarefni, þar á meöal gólfteppi, efnageröar- vörur, það er aö segja matarefni og lampa og lýsingartæki. Björgvin Guömundsson, skrif- stofustjóri viöskiptaráöu- neytisins, sem einnig er formaöur Verölagsnefndar, sagöi, aö segja mætti aö veriö væri aö stiga fyrsta skrefiö i átt til fyrirkomu- lagsins sem gilti frá 1968 fram aö veröstöðvun haustiö 1970. „Breytingin er i þvi fólgin”, sagöi Björgvin, „aö i staö þess aö ailar breytingar hafa veriö teknar tii meöferöar hjá Verölagsnefnd, þarf nú á þessum tilteknu vörum aöeins aö senda verölista tii skrif- stofu verðlagsstjóra, sem kannar veröbreytingarnar og staöfcstir siöan móttöku verðlistans. „Viö höfum ákveöiö aö gera þetta i áföngum á nokkrum vöru- tegundum, en gefa ekki allar vörutegundir frjálsar i einu eins og gert var 1968”, sagði Björgvin Guðmundsson ennfremur. Þær vörur, sem verðlagning verður frjálsari á, eru kex, skófatnaöur, vefjarefni þar á meöal gólfteppi, efnageröar- vörur, þaö er aö segja matarefni, og lampar og lýsingartæki. Astæðan fyrir þvi, aö verö- iagningin á þessum vörum er gefin frjáisari, er sú, aö þær eiga i harövítugri samkeppni viö innfiuttar vörur. óq Oruggt að 50 hvellhettum var stolið Erfiölega gengur aö finna út hversu miklu dynamiti var stol- iö úr sprengiefnageymslunum i Almannadal fyrir stuttu. Þó hefur þaö komiö I ljós aö 50 hvellhettur hafa horfið þaöan. Eigendur sprengiefnisins þarna uppfrá gera sér ekki allir grein fyrir, hversu mikiö af sprengiefni þeir áttu. Þess vegna hefur enn ekki fengizt nein heildartala um fjölda horf- inna dynamittúpa. Ekki hefur ennnáöst I alla aöiia sem eiga geymslurnar, og þaö sem er I Þeim.— ÓH HVAÐ KOSTAR BRUIN UPP A TOLLSTÖÐINA? 3 milljónir segir borgarstjóri — 6 milljónir segir borgarverkfrœðingur „Jú, kostnaöurinn viö byggingu brúarinnar er um 6 milljónir króna. feg var sjálfur aö rekast á þær tölur I morgun, að brúin kostaöi ekki nema 3 milljónir. Borgarstjóri hefur sennilega fengiö upplýsingar sinar frá embætti gatnamáiastjóra. Ég ætia sjálfur að kanna þetta mál. Ilugsanleg skýring á þessu gæti verið sú, aö talsvert af gömlu timbri cr notað I undirstöður brúarinnar. Þaö er á gömlu verði, var notað, þegar Geirsgötubrúin var smiðuð". Þetta sagði Þórður Þ. Þorbjarnarson borgarverk- fræðingur i viðtali við Visi i morgun. Það vakti athygli manna að lesa i Morgunblaðinu i morgun svör borgarstjóra við fyrir- spurnum Kristjáns Benedikts- sonar, borgarfulltrúa. Kristján spurði um verð brúarinnar. Borgarstjóri svaraði, að hún kostaði 3 milljónir. En verö hennar er sem sagt um 6 milljónir. En það hefur einnig vakið athygli manna, á hvaða tima fyrirspurn um þessa brú kemur. Brúin er næstum fullgerð, þegar borgarfulltrúinn fer að spyrja um verð hennar, hvort ekki hefði mátt hafa frekar bila- lyftu þarna, og ýmislegt annað i sambandi við brúna er það, sem hann hefur áhyggjur af. A það má benda i sambandi við byggingu brúarinnar, að efnis- kostnaður er um helmingur verðsins. Þegar hlutverki brúar- innar er lokið, má búast við að mestallt efnið sé hægt að nota aftur. Svo er bara að biða og sjá, hvernig gengur að komast upp brúna, þegar kemur hálka. —ÓH

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.