Vísir - 11.10.1973, Blaðsíða 9

Vísir - 11.10.1973, Blaðsíða 9
Visir. Fimmtudagur IX. október 1973. 9 Valsvörnin sterka var ekki alltaf sterk gegn Þrótti i gærkvöldi og 2. deilnarlióið skoraði fleiri mörk hjá Vai en þýzka liöið Gummcrsbach I Laugardalshöllinni. Hér er einn leikmaður Þróttar alveg frir með knöttinn á linu. Ljósmynd Bjarnleifur Þróttur stóð í 45 mín- útur í Valsmoskínunni Þaö var ekki fyrr en um það bil 45 mínútur voru liðnaraf leik Valsog Þrótt- ar í Reykjavíkurmótinu í handknattleik, sem fram fór í gærkvöldi, að Valsmönnum tókst að tryggja sigur sinn. Með þeim sigri, 18 mörkum gegn 13 tryggðu þeir sér lan Moore frá keppni? Hinn snjalii leikmaður Ian Moore hjá Manch. Utd., sem leikið hefur i enska iands- liðinu, verður sennilega að hætta allri knattspyrnu vegna meiðsla í ökkla. Manch. Utd. keypti Ian Moore fyrir 18 mánuðum frá Nottm. Forest fyrir 200 þús- und pund, en hann hefur aðeins leikið 39 leiki með United. Þrálát meiðsli hafa háð honum mjög. Eftir að hafa verið frá keppni i marga mánuði lék Moore gegn West Ilam fyrir mánuði og skoraöi þá mark I auðveldum sigri Untied 3-1. En hann meiddist á ný og læknar ráðleggja honum að leggja knattspyrnuna alveg á hilluna. fyrsta sætið í sínum riðli og þar með úrslitaleik á móti Fram um Reykjavíkur- meistaratitilinn. Þróttur má vel við una með frammistöðuna i þessum leik og kannski munurinn á liðunum ekki eins mikill og lokatölur leiksins gefa til kynna. Markvarzla og varnir beggja liðanna voru góðar og staðan i hálfleik var aðeins 5 mörk gegn fjórum Valsmönnum i vil. Lengst af var leikurinn jafn og Þrótti tókst meira að segja að ná forustunni eitt sinn snemma i siðari hálfleik. Siðustu 15 minút- urnar tóku Valsmenn til sinna ráða og gerðu út um leikinn. Að venju var það Halldór Bragason, sem var burðarásinni Þróttarliðinu og þeirra bezti Pólverjar sterkir Oly mpiumeistarar Póllands eru greinilega sterkir i knatt- spyrnunni. í gær léku þeir lands- leik við Ilolland og var leikið i Rotterdam. Jafntefli varð 1-1. Pólska liðið cr á leið til Eng- lands, þar sem það leikur hinn þýðingarmikla leik við England i riðlakeppni heimsmeistara- kcppninnar nk. miðvikudag. Leikið verður á Wembley og þurfa Pólverjar ekki nema jafn- tefli til að komast i úrslitakeppni IIM i Vestur-Þýzkalandi næsta sumar. Heimsmeistararnir frá 1966, England, verður að sigra í leiknum til að ná lokakeppninni. maður. Tóku Valsmenn hann úr umferð á timabili i siðari hálfleik. Halldór var markhæstur Þróttara gerði 5 mörk. Björn Vilhjálmsson gerði fjögur mörk. Friðrik, Trausii, Gunnar og Jóhann eitt hver. Jón Karlsson átti beztan leik Valsmanna og gerði einnig flest mörk eða sjö. Agúst ögmunds- son, Gunnsteinn Skúlason, Gisli Blöndal og Stefán Gunnarsson gerðu allir tvö mörk hver. Þeir Bergur, Gisli og Jón Jónsson skoruðu eitt mark hver. Ólafur H. Jónsson lék ekki með Valsliðinu i þessum leik. — ÓG Markakóngurinn skoraði tvisvar — þegar V-Þýzkaland vann Austurríki 4-1 Gcrd Muller var á skotskónum að venju, þcgar Vestur-Þjóð- verjar léku landsleik við Austur- rikismenn I knattspyrnu i Hanover i gær. Hann skoraði tvö af mörkum þýzka liðsins, sem sigraöi með 4-1. Þýzka liðið hafði yfirburði i leiknum og auk Muller skoruðu þeir Weber og Kremers. Þýzka liðið skoraði tvö mörk i hvorum hálfieik. Fyrsti HM-sigur Albaníu Albania vann sinn fyrsta sigur i riðlakeppninni fyrir HM i knatt- spyrnu i gær i Tyrana. Albanir unnu þá Finna með 1-0 og skoraöi Ragani eina mark leiksins úr vitaspyrnu á 26.min. Finnar unnu Albani i heimaleik sinum 1-0. Tveir leikir eru eftir i riðlinum. Kúmenfa-Finnland 14. október — Albania-Austur-Þýzkaland 3. nóvember, og þurfa Þjóöverjar- nir aðeins að halda jöfnu. Staðan iriölinum er nú þannig: A-Þýzkaland 5 4 0 1 14-2 8 Rúmcnia 5 3 11 8-4 7 Finnland 5 113 3-12 3 Albania 5 1 0 4 2-9 2 ÍR-sigur gegn daufum Víkingum Sigur ÍR yfir Vikingi i leik liðanna á Reykja- vikurmótinu i hand- knattleik var fyllilega verðskuldaður. Þeir höfðu yfirhöndina nær allan leikinn og lokatöl- urnar urðu 19 mörk gegn 15 þeim i vil. Þetta var nokkuð óvæntur sigur hjá ÍRingum. Fyrirfram hafa liklega fleiri spáð Vikingi sigri. t heild sinni var leikurinn frem- ur slakur og bar hann þess öll merki að úrslit hans skiptu ekki neinu verulegu máli fyrir liðin. Fram er búið að tryggja sér sigur i þessum riðli og hér var verið að skera úr um annað sætið. tRingar voru eins og áður sagði betri aðilinn, sérstaklega átti Ágúst Svavarsson góðan sóknar- leik og var hann markahæstur leikmanna með 8 mörk. Leikur Vikinga var ekki upp á marga fiska, vörnin var þó sinu lakari. Jón Hjaltalin Magnússon gerði flest mörk fyrir Vikinga 5, en honum var visað tvivegis af leikvelli i leiknum i fyrra skiptið i tvær minútur og i siðara skiptið i fimm minútur. Fyrir utan Agúst skoruðu Asgeir Eliasson þrjú mörk fyrir tR, einnig Guðjón Marteinsson og Þórarinn Tyrfingsson. Hörður Hafsteinsson gerði tvö mörk. Jón Hjaltalin var marka- hæstur Vikinga með fimm mörk. Sigfús Guðmundsson þrjú, Magnús Sigurðsson og Stefán Halldórsson gerðu tvö mörk. — ÓG Minnir á snotran bursta bæ „Hann er ráðrikur og öfga- fullur undir sléttu yfirborði og löngum eins og á varðbergi. Hann minnir helzt á snotran, jarðgróinn burstabæ, sem hrististog skekst við minnsta landskjálfta, án þess ' að hrynja.” Þetta segir Lúpus meðal annars i palladómi um Stefán Gunnlaugsson alþingis- mann. . Það er alltaf gaman að lesa hina hressilegu dóma Lúpusar um alþingismennina okkar, þótt ekki séu allir sam- mála honum. i skagfirzkum stóðréttum Stóðréttir eru að mestu niður lagðarhér sunnan fjalls, enda mun bændum meinað að reka hross sin á afrétt. En hrossa- bændur fyrir norðan hafa enn heimild til að nytja afréttinn til beitar fyrir stóðið. Skag- firðingar eiga margt hrossa og ekki færri en fimm þúsund- ir rúmar samkvæmt framtali. Stóðréttir eru þvi mikill við- burður i Skagafirði. Ljós- myndari Vikunnar brá sér i skagfirzkar réttir og tók þar skemmtilegar myndir af mönnum og hestum. Sonur handverks- mannsins náði heims- frægð „Hann var þriðji i röðinni af átján systkinum, en af þeim komust aðeins sex á legg. Hann átti sér drauma, sem engin likindi voru til að gætu nokkurn tima rætzt. En með ósigrandi elju og sjálfstrausti, sem nálgaðist það að vera sjúklegt, tókst honum að komast i mikil efni og sitja við borð voldugusiu þjóðhöfðingja Evrópu.” Sjá grein um þýzka málarann Albrecht DUrer i nýjustu Viku, en henni fylgja litmyndir af verkum hans.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.