Vísir - 23.11.1973, Síða 5
Visir. Föstudagur 23. nóvember 1973.
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
„Munum berjast gegn
samsteypustjóminni“
segja öfgasamtökin á írlandi eftir að Tlesfír leiðtogar
urðu loks sammóla um leið til að leysa hnútinn
„Samsteypustjórnin brezkt framtak og þar
er brezk hugmynd, með dæmd til þess að
Edwatd Heath, forsætisráöherrá Breta, og Brian Faulkner, fyrr-
verandi forsætisráöherra. Myndin var tekin 23. marz I fyrra aö loknum
fundi I Downing street 10 I Lundúnum, þar sem Heath tilkynnti
Faulkner, aö heimastjórn N-trlands væri leyst upp.
misheppnast,” segir i
yfirlýsingu hins ólöglega
irska lýðveldishers, sem
snúizt hefur gegn ráða-
gerðunum um myndun
stjórnar, þar sem mót-
mælendur og kaþólskir
deila völdum.
„Við munum skipuleggja
meöal fólksins andstöðu og leiða
það i baráttunni gegn Stóra-Bret-
landi, sem með þessum hætti ætl-
ar að reyna að styrkja tök sin á
landi okkar,” segir i yfirlýsingu
öfgamannanna.
Hún kom fram, skömmu eftir
að Irlandsráðherrann, William
Whitelaw, tilkynnti i neðri deild
brezka þingsins I gær að stjórn-
málaleiðtogar á N-lrlandi hefðu
orðið sammála um myndun sam-
steypustjórnar.
Að hinni fyrirhuguðu stjórn
skulu standa þrir stjórnmála-
flokkar. Sambandsflokkur
Faulkners, fyrrverandi forsætis-
ráöherra, sem á að vera forsætis-
ráðherra nýju stjórnarinnar.
Flokkur verkamanna, sem er
sterkasta stjórnmálaafl
kaþólskra. Sambandsflokkurinn,
með félaga úr báðum örmum,
mótmælenda og kaþólskra.
Með þessari samsteypustjórn
skal reynt að tryggja minnihlut-
anum, kaþólskum mönnum, áhrif
á stjórn landsins, en þeir eru
aðeins þriðjungur landsmanna og
hafa orðið að lúta vilja meirihlut-
ans, mótmælenda, án þess að
eygja nokkrar vonir til bættra
kjara. Með einföldum meirihluta
i öllum atkvæðagreiðslum hafa
mótmælendur ráðið lögum og
lofum.
Þetta ráð höfðu menn vonað, að
dygði til þess að koma á sam-
vinnu með kaþólskum og mót-
mælendum, en þó þykir vera
nokkuð undir viðbrögðum öfga-
samtaka beggja fylkinga komið,
hvort þetta er framkvæmanlegt.
Hafa ofstækisöfl beggja lýst sig
frá upphafi mjög andvig þessari
hugmynd.
Konsúll-
inn kom-
inn f ram
Ræðismanni Vestur-
Þýzkalands i Maracaibö
i Venezuela, sem rænt
var i fyrradag, var
borgið frá ræningjum
sinum i gær, eftir að lög-
reglan hafði lent i skot-
bardaga við ræningja-
flokkinn og hrakið hann
á flótta.
Nagel konsúll náðist heill á húfi
og var fluttur til aðhlynningar á
sjúkrahús, en þaðan fékk hann
fljóllega að fara til fjölskyldu
sinnar.
Kinhverjir óþekktir menn
hringdu i ritstjórnarskrifstofur
dagblaðsins i Maracaibo og léku
þar segulspólu, þar sem þeir
sögðust vera fyrrverandi pólitisk-
ir fangar stjórnar landsins.
Gengu2
Vega enn
í knérunn
Fords
Skœruliðar myrtu
kaupsýslumann
og lífverði hans
Skæruliðar í Argentínu
létu til skarar skríða gegn
Ford Motor Co. i gær i
annað sinn á þessu ári, og
myrtu þeir bandarískan
kaupsýslumann og þrjá líf-
verði hans í skotárás.
Bandarikjamaðurinn er fyrsti
útlendingurinn, sem lætur lifið á
annars mjög svo stormasömu ári,
þar sem skæruliðasamtök hafa
æði oft rænt framkvæmdastjórum
og forstjórum alþjóöa fyrirtækja.
Grunur leikur á þvi, að þarna
hafi verið að verki Byltingarher
alþýðunnar, sem lýst hefur á
hendur sér ábyrgð á flestum
mannránunum, sem framin hafa
veriði Argentinu. Fimmtán ungir
menn sáust hefja skothrið úr
hriðskotabyssum og haglabyss-
um á John Albert Swint og lif-
verði hans. Swint lætur eftir sig
konu og tvö börn. — Vegna tiðra
mannrána hafa flest erlend
fyrirtæki i Argentinu ráðið lif-
verði til verndar forstjórum sin-
um.
t vor myrtu skæruliðar annan
mann frá Ford, en fyrirtækið
greiddi 1 milljón dollara i læknis-
lyfjum og hjálpargögnum.
Það er talið að alls hafi um 500
mannrán veriðframin á þessu ári
i Argentinu og greiddar hafi verið
20 milljónir dollara i lausnar-
gjöld. — Þorri þessara illverka
var unninn, meðan vinstri sinnuð
samtök og Perónistar börðust
fyrir þvi að fá gamla leiðtoga
sinn, Juan Peron, til landsins
aftur úr útlegðinni.
Snjóþotan vinsœl »
Snjóþotan er viöar vinsæl en
rétt bara hérna. Þessi mynd
er frá Osló, en þar hefur
snjóaö allnokkuö undanfariö
og sleöafæri ágætt. Eins og
myndin hér viö hliöina ber
meö sér, þá hafa norsku
krakkarnir ekki minna gaman
af þotunni en krakkarnir I
vinabænum Reykjavlk.
Ahöfn Skylabgeimstöövarinnar I þriöju sendingu USA þangaö upp eru þessir þrlr menn: Gerald Carr
(t.v.) leiöangursstjóri, sem var inni I geimstööinni, meöan hinir tveir, Edward Gibson og William R.
Poquex, fengu sér gönguferö um stööina I gær. Þaö er gert ráö fyrir, aö þeir veröi 56 daga I feröinni,
áöur en þeir koma til jaröar aftur.
í 6 tíma
utan
Skylab
Tveir hinna þriggja geimíara,
sem nú eru uppi i Skylabgeim-
stöðinni, þeir Gibson og Poque,
fóru i lengstu gönguferð manna
úti i himingeimnum i gær. Voru
þeir alls sex stundir og 34 minútur
i'yrir utan geimstöðina, sem er
nýtt met.
Þessa útivistarstund notuðu
þeir til þess að lagfæra bilað loft-
net á geimstöðinni, setja filmur i
l'jölda kvikmyndavéla o.s.frv.
Kinnig gerðu þeir nokkrar minni
háttar tilraunir. — Meðan var
leiðangurstjórinn, Gerald Carr,
inni i geimstöðinni.
Japanir guggnuðu fyrír
olíuþvingun Arabarikja
Tóku undir kröfur Araba um að ísrael
skilaði herteknum landsvœðum fró '67
Ákvörðun Japansstjórn-
ar um að hallast meira á
sveif með Aröbum til þess
að tryggja sér olíu frá
Austurlöndum nær hefur
mælzt illa fyrir, bæði
heima fyrir og erlendis.
Yfirlýsing, sem fylgdi. þessari
ákvörðun, þar sem tekið var
undir nokkrar kröfur Araba,
hefur verið mjög gagnrýnd af
Bandarikjamönnum og Israels-
mönnum og eins af ýmsum
stjórnmálamönnum i Japan.
Kunnur fréttaskýrandi i Tokió
lýsti þessari ákvöröun „sem
versta dæmi hentistefnu, sem
Japan hefur nokkru sinni tekið
upp eftir siðari heimsstyrjöld-
ina”. — Eitt Tokió-blaðanna
skrifaði i leiðara i dag, að
myndazt hefði stór geil i sam-
vinnu Bandarikjanna og Japan
við þessa yfirlýsingu Japans-
stjórnar.
1 yfirlýsingu, sem bandariska
sendiráðið i Tókió gaf úr i gær,
segir: ,,Við skiljum mætavel þá
efnahagserfiðleika, sem Japan á
við að striða, en við hörmum
samt, að Japansstjórn skuli hafa
séð sig knúöa til þess að gefa út
yfirlýsingu, sem á eftir að gera
það enn erfiðara en áður að ná
friði i Austurlaidum nær”.
Abba Eban, utanrikisráðherra
fsraels, sem er á ferð i Banda-
rikjunum, sagði i gær, að hann
mundi kalla sendiherra Japans til
fundar við sig, strax eftir að hann
kæmi heim til ísraels.
1 yfirlýsingu Japans i gær var
tekið undir kröfu Araba um, að
tsrael hörfaði með herlið sitt og
skilaði öllum herteknu svæðunum
frá sex daga striðinu 1967.