Vísir - 23.11.1973, Page 8
8
Visir. Föstudagur 23. nóvember 1973.
Smaauglýsingar
VÍSIS eru virkasta
verðmætamiðlunin
visir
Fyrstur meö fréttimar
HRAÐKAUP
Fatnaöur i fjölbreyttu úrvaii
á alla fjöiskyiduna á lægsta
fáanlegu verði. Einnig tán-
ingafatnaður. Opið þriðju-
daga, fimmtudaga og
föstudaga til kl. 10.
Laugardaga til kl. 6. Hrað-
kaup, Silfurtúni, Garöa-
hreppi viö Hafnarfjaröar-
veg.
□ I INNRÖMMUN IC
D
n] Hafnarfirði [f^
REYKJAVIKUHVEGI 64
Sími 52446
Opið fró 1 til 6.
Síldin að
tregast
Sildveiði i Norðursjó mun nú
talsvert hafa tregazt. Vcður ger-
ast nú vond þar suöur frá, þcgar
liöur á veturinn, og nú þegar hafa
fáeinir bátar hætt veiöum og eru
komnir heim.
Búizt er við, að flestir þeir Is-
lenzku bátar, einir fjörutiu
talsins sem fóru til sild veiða i
Norðursjó i haust, verði við fram
yfir miðjan desember, en leyfi til
sildveiða á þessum slóðum renn-
ur út um áramótin.
Og þá tekur loðnan við, og tals-
verðan tima mun taka að búa
báta til loðnuvertiðar. -GG
Raftækjaverzlun
H. G. Guðjónssonar
Sími 37637
rs&a*um
SÖLUSTAÐIR:
Hjólbarðaverkstæðið Nýbarði, Garðahreppi, sími 50606.
Skodabúðin, Kópavogi, sími 42606.
Skodaverkstæðið á Akureyri h.f. sími 12520.
Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarss., Egilsstöðum, sími 1158.
VERÐSTAÐRE YNDIR!
nýl TORFÆRUHJÓLBARÐINN
650—16 negldur kr. 4290.—
750—16 negldur kr. 4990.—
BYGGÐASAFNIÐ AFTUR
TIL EYJA UM ÁRAMÓT
„þeirra eigin menning, sem ég vona að þeir þurfi ekki að
blygðast sín fyrir"
,,Mark mitt er aö flytja
byggðasafniö út til Eyja aftur
um áramótin. Ég býst þó viö
þvi, aö ég fái aö geyma mál-
verkin á Þjóöminjasafninu eitt-
hvaö lengur, þar sem húsnæöi
er eiginlega ekki fyrir hendi
fyrir þau úti f Eyjum,” sagöi
Þorsteinn Víglundsson, for-
stööumaöur byggöasafnsins i
Eyjum, þegar viö litum inn á
sýninguna á Kjarvalsstööum I
gær.
Byggðasafnið hefur veriö
geymt á Þjóðminjasafninu,
frá þvi þaö var flutt frá Eyjum
um 27. jan. ,,En nú er i byggingu
safn i Eyjum. Hvenær þvi
veröur lokið, er ekki gott að
segja. Við höfum nóga peninga,
en mannskapinn vantar, og ekki
er hægt að taka hann frá fisk-
vinnslunni I vetur.
I þessu safni, sem er staösett
á Stakkageröistúni, verður
væntanlega koreiö fyrir bóka-
safni, byggöasafninu og svo
listaverkasafninu.”
Töluvert slangur af
Vestmannaeyingum hefur litið
inn á sýninguna”, sagði Þor-
steinn okkur. „Enda er þetta
þeirra eigin menning, sem ég
vona, að þeir þurfi ekki að
blygðast sin fyrir.”
Margt merkilegt er á þessari
sýningu, sem er einkaframtak
Þorsteins. Þarna má meðal
annars sjá fyrsta björgunarskip
þjóðarinnar, sem Eyjaskeggjar
keyptu áriö 1920 á 175 þús.
krónur. Og jafnvel börnin voru
látin taka út aura, ef fyrir hendi
voru, til þess að borga skipið.
34 Kjarvalsmyndir eru á
sýningunni ásamt fleiri mynd
Þarna voru þaö konurnar, sem unnu erfiöustu verkin. Karlarnir þóttust
geta haft þaööllu betra. — Einokunartimabil Dana iEyjum.
Fyrsta björgunarskip, sem kom
til landsins, keyptu Eyjamenn á
175 þúsund krónur. Börnin tóku út
aura sína til þess aö hægt væri aö
greiöa skipið.
um, allar frá Eyjum. Likan af
Skansinum er sýnt frá þeim
tima, er Danir einokuðu verzl-
unina I Eyjum. Og þá voru það
svo sannarlega konurnar, sem
unnu. „Við settum tvær kon-
ur meö saltbörur á milli sin á
likanir, til þess aö sýna þræl-
dóminn á konunum þá. Þá voru
það ekki karlmennirnir sem
unnu, heldur báru þær kol og
salt og fleira á milli húsa.
Sýningin er opin frá 4-10 alla
daga, nema laugardaga og
sunnudaga 2-10. Henni lýkur á
sunnudag. — EA
Bókaútgáfa Arnar og örlygs
hefur sent á markaöinn sex nýjar
bækur:
RÁÐSKONA ÓSKAST í
SVEIT
Undirtitill þessarar bókar kemur
eiginlega beint úr smáauglýsing-
unum, sem sé „má hafa með sér
barn”. Hver kannast ekki við
þetta orðalag. Það er Snjólaug
Bragadóttir, blaðakona hjá Tim-
anum, sem hefur skrifað þessa
skáldsögu, og er það önnur bók
hinnar ungu skáldkonu. Ung
Reykjavikurstúlka fer sem ráðs-
kona á fámennt sveitaheimili
norður á landi. Með henni er 5
ára dóttir, en barnsfaðirinn
verður eftir fyrir sunnan. Ráðs-
konunni mæta þarna ýmsir erfið-
leikar.
STUNGIÐ N|IÐUR
STÍLVOPNI
1 þessari bók litur séra Gunnar
Benediktsson i Hveragerði,
„Drottins smurði til Grundar-
þinga”, eins og hann kallar það
yfir liðna daga og minnist manna
og máiefna. Gunnar Benedikts-
son á sér langa og litrika sögu
fyrir afskipti sin af félags- og
menningarmálum. Bókin hefst
áriö 1920 er hann gerist „Drottins
smurði til Grundarþinga”, eins
og hann kallar þaö, þar til hann
lætur af kennslustörfum i Hvera-
gerði á siðasta ári. En á þessu
hálfrar aldar skeiði hafði séra
Gunnar verið einn mesti
predikari blóðrauðs bolsévisma
og notaði jafnt bilapalla, húsþök
eða moldarhauga sem ræðustól.
SÝÐUR Á KEIPUM
Fá skip eru Reykvlkingum (og
Skagamönnum) jafnvel þekkt og
Akraborgin. Og þekktastur allra
stjórnenda þessa skips er án efa
Guðjón Vigfússon. En Guöjón
sigldi með öðrum fleyjum en
Akraborginni, m.a. var hann dáti
I sjóher Danakóngs. Ýmis ævin-
týri biðu hins unga sæfara, og i
þessari bók segir frá ýmsu af þvi,
sem á daga Guðjóns Vigfússonar
hefur dreifið.
ÞR A U T G ÓÐ I R Á
RAUNASTUND
Hér birtist fimmta bindið i björg-
unar- og sjóslysasögu Islands, og
nær það yfir árin 1953-1958. Það er
Steinar J. Lúðvíksson,
blaðamaður við Morgunblaðið,
sem hefur ritað þessa sögu. 1
formála segir m.a.: „Má geta
þess að samkvæmt skýrslum
félagsins fórust á þessum árum
1361 islenzkir menn i sjóslysum,
en samtals 5683 mönnum var
bjargað frá drukknun eða úr
sjávarháska. t þessum hópi voru
1049 menn, sem bjargað var af
björgunarsveitum Slysavarna-
félagsins. Á sama árabili drógu
björgunar- og varðskip 1623
hjálparþurfi skip að iandi, með
samtals 10.045 manns innan-
borðs”. Margir eftirminnilegir
atburðir gerðust á þvi árabili,
sem bókin spannar, og eru þeir
raktir itarlega i bókinni.
MANNLEG NÁTTÚRA
UNDIR JÖKLI
Þórður Halldórsson frá Dag-
verðará iýsir hér, hve mannleg
náttúra er margslungin og mikil-
fengieg I hans heimabyggð. Refa-
skyttuna, listmálarann, skáldið
og sagnaþulinn þarf naumast að
kynna, enda löngu landskunn-
urmaður og „sést langt að” eins
og Jökulinn, eins og segir i frétta
tilkynningu frá þeim Erni og
örlygi. Þórður: „Undir Jökli
verður enginn vændur um ósann-
sögli, þvi að þar getur enginn sagt
frá neinu svo óvenjulegu eða
ósennilegu, að það hafi ekki gerzt
þar eöa eigi eftir að gerast”.
Loftur Guðmundsson færði
minningar Þórðar i letur, en
Ragnar Kjartansson myndlistar-
maður hefur myndskreytt bók-
ina.
UNDIR
HAUSTSTIRNDUM
HIMNI
Leiftur h.f. hefur sent frá sér
ljóðabók þessa, sem er eftir
Richard Beck, hinn þekkta
Vestur-íslending. I bókinni er að
finna 50 ljóða Richards frá
siðustu 14 árum.
KVIÐUR HÓMERS
Menningarsjóður hefur gefið út
Ilionskviðu og Odysseifskviðu
Hómers. Þeir Kristinn Ármanns-
son og Jón Gislason bjuggu verkið
til prentunar. Verkið var áður
gefið út 1949, en er nú offsetprent-
að I Letri.
UM NÝJA TESTA-
MENTIÐ
Rannsóknir siðari ára hafa gjör-
breytt skoðunum fræðimanna á
frumheimildum kristnidómsins.
Er nú litið á höfundana sem hóp
guðfræðinga, sem tengdir eru
stefnum og straumum i menning-
arlifi sinna eigin tima og eru um
margt ólíkir og jafnvel ósam-
mála. Hvernig ber þvi að túlka
hin fornu rit? Séra Jakob Jónss.
hefur valið Nýja testamentið sem
sina sérgrein. t þessari nýút-
komnu bók, sem Menningar-
sjóður gefur út, ræðir hann hin
nýju sjónarmið.
RAFTÆKNI
OG LJÓSORÐASAFN
Handhæg og ómissandi bók fyrir
þá, sem starfa við raftækni, en
vilja jafnframt tjá sig á móður-
málinu I stað þess að sletta er-
lendum orðum. Þetta er annað
bindi safnsins, og undirbúningur
hafinn fyrir útgáfu hins þriðja.
En er orð eins og Augabragðs-
hreyfiorkuþykkni ekki nokkuð
strembið? Menningarsjóöur
gefur bókina út.