Vísir - 18.12.1973, Blaðsíða 13
Þriöjudagur 1S. desember
Jólagjafahandbók Vísis 13
Þú ert, AAária, mætust frú,
musteri guðs hið fríða:
þú ert englunum æðri nú,
yfirdrottningin blíða:
þú ert himnanna hjálparbrú,
— heiðurinn þinn fer víða:
þú ert hryggum huggun sú,
sem hvergi náir að líða.
Þú ert Mária, dagsbrún dýr,
drottning himins og landa:
þú ert meistarans móðir hýr,
sem mýkir allan vanda:
þú ert vænust, vitur og skír,
— vernda oss frá fjanda:
þú oss sætið signuð býr
og sigrar líf og anda.
Heyr, AAáría, heiðri glæst,
hjálpa jafnan óðum:
heyr, gimsteinninn, sem guði er næst,
göfugust af fljóðum:
heyr, mannkynsins móðir skærst,
mest af siðunum góðum:
heyr mig, dýrust drottning stærst:
dugðu öllum þjóðum.
(Loftur Guttormsson ríki.)