Vísir - 25.01.1974, Síða 13
Visir. Föstudagur 25. janúar 1974.
13
□ □AG | Q KVÖLD Q □AQ |
Nina, (CydHayman) og Jimmy (Alfred Lynch).
Mannaveiðum lýkur
Sjónvarp, klukkan 22.00:
Mannaveiðar eru á dagskrá i
kvöld i siðasta sinn. Þátturinn i
kvöld, lokaþátturinn, er númer
26 i röðinni, og hefur eflaust
margur lengi velt fyrir sér
hugsanlegum niðurstöðum
þessa furðulega flótta þriggja
manneskja undan þýzka her-
námsliðinu i Frakklandi.
Og i siðasta þætti urðu
óvæntir viðburðir. Graz hinn
þýzki tók sig til og skaut
Vincent, foringja flótta-
mannanna þriggja — og eftir
lifa þá Nina og Jimmy. Nina
geymir i sinu fagra höfði mikils-
verðar upplýsingar, sem
nasistum hefur enn ekki tekizt
að ná af henni. Og i London
reyna menn hvað þeir geta til
að ná Ninu yfir Ermarsund.
—GG
Sjónvarp,
klukkan 21.20:
HITAMAL RÆTT
Landshornið tekur i kvöld
fyrir eitt málefni. Það málefni,
sem nú brennur á vörum
margra, málefnið sem núorðið
hlýtur að hafa algjöran for-
gang: Varnarmálið.
Fréttaskýringaþátturinn
verður allur helgaður þessu
hitamáli, og munu ýmsir koma
fram, sem fólki leikur eflaust
forvitni á að sjá framan i og
heyra tala.
Dagur Þorleifsson, blaða-
maður við Þjóðviljann, mun
sitja fyrir svörum og taka þátt i
umræðum um varnarmálin, en
hann hefur einmitt skrifað
hvassyrtar greinar, svo ekki sé
meira sagt, um hreyfinguna
„Varið land” og þá, sem að
henni standa.
Auk þessa varnarmála-
kappa koma fram i þættinum
þ.eir Einar Agústsson utanrikis-
ráðherra, Geir Hallgrimsson
þingmaður og hugsanlega
Magnús Kjartansson.
Svala Thorlacius fréttamaður
stjórnar þættinum i kvöld, en
auk henn'ar spyrja herra-
mennina tveir fréttamenn til
viðbótar.
Svala sagði Visi, að hún
byggist við fjörugum um-
ræðum, og ekki er að efa, að það
gera fleiri.
—GG
Hörður Einarsson lögfræðingur.
SJONVARP
FÖSTUDAGUR
25. janúar 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Mireille Mathieu.
Danskur skemmtiþáttur,
þar sem franska söngkonan
Mireille Mathieu flytur lög
frá ýmsum löndum. (Nord-
vision — Danska sjónvarp-
ið)
21.20 Landshorn. Fréttaskýr-
ingaþáttur um innlend mál-
efni. Umsjónarmaður Svala
Thorlacius.
22.00 Mannaveiðar. Bresk
framhaldsmynd. 26. þáttur,
sögulok. Þýðandi Krist-
rnann Eiðsson.
22.50 Dagskrárlok
Dagur Þorleifsson blaðamaður
!P
*
*
*
Spáin gildir fyrir laugardaginn 26. janúar.
ilrúturinn, 21. marz-20. april. Fremur þung-
lamalegur dagur frameftir, en svo verður allt
auðveldara. Þú hefur i ýmsu að snúast i sam-
bandi við einhvern undirbúning.
Nautið, 21. april-21. mai. Þú þarft sennilega að
taka einhverja mikilvæga ákvörðun i sambandi
við helgina, en hætt er við að hún sæti nokkurri
mótspyrnu þinna nánustu.
Tvihurarnir, 22. mai-21. júni. Þetta getur orðið
skemmtilegur dagur, en hætt er við að hann
verði dálitið þreytandi eigi að siður. Vinir og
kunningjar munu koma við sögu.
Krahbinn, 22. júni-23. júli. Þú munnt þurfa að
gera einhver skil i dag, sem geta orðið að ein-
hverju leyti flókin, nema þú búir þig undir þau
með sómasamlegum fyrirvara.
Ljónið. 24. júli-23. ágúst. Farðu gætilega i dag,
og láttu ekki allt uppskátt um fyrirætlanir þinar
á næstunni við hvern sem er. Þú mátt gera ráð
fyrir nokkrum töfum.
Mcyjan, 24. ágúst-23. sept. Þetta verður að
mörgu leyti ánægjulegur dagur, en gerðu samt
ekki neinar fastar áætlanir. Ekki heldur i sam-
bandi við helgina framundan.
Vogin, 24. sept,- 23. okt. Faröu gætilega i um-
lerðinni i dag, eins i sambandi við vélar og raf-
magn, ef svo ber undir. Kvöldið ættirðu að taka
snemma og reyna að hvila þig vel.
I)rekinn.24. okt—22. nóv Farðu þór ekki óðslega
að neinu. Láttu hlutina koma sem mest af sjálfu
sér, einkum þegar á daginn liöur. Kvöldið
ánægjulegast i fámenni.
liogniaöurinn, 23. nóv.-21. des. Dagurinn getur
orðið eitthvað þungur i vöfum frameftir, en svo
ætti þaðað lagast. Þaðgetur farið svo að kvöldið
þarlnist aðgæzlu.
Sleingeitiu,22. des.-20. jan. Það litur út fyrir að
dagurinn verði þór skemmtilegur er á liður. Ein-
hver mannfagnaður virðist einnig á næsta leyti,
og verða ánægjulegur.
Vutnsherinn,21. jan.-19. febr. Farðu gætilega i
dag i peningamálunum. Gerðu ekki neinar
fastar áætlanir i sambandi við kvöldið eða
helgina framundan.
Fiskarnir 20. febr.-20. marz. Með sa'milegri
gætni verður dagurinn góður. KvÖldinu getur
afturá móti brugðið til beggja vona, jafnvel þótt
gætni sé viðhöfð.
UTVARP
Föstudagur
25. janúar
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Knútur R. Magnússon
heldur áfram að lesa söguna
„Villtur vegar" eftir Odd-
mund Ljone (18). Morgun-
leikfimikl. 9.20. Tilkynning-
ar kl. 9.30. Þingfréttir kl.
9.45. Létt lög á milli liða.
Spjallað við hændur kl.
10.05. Morgunp'oppkl. 10.25:
Bob Dylan flytur. Morgun-
tónleikar kl. 11.00: Andrés
Segovia leikur á gitar Ariu
og Corrente eftir Fresco-
baldi i sinni útsetningu.
/Milan Bauer og Michal
Karin leika Sónötu nr. 3 i F-
dúr fyrir fiðlu og pianó eftir
Handel/ Kammerhljóm-
sveit leikur Concerto Grosso
op. 6 nr. 8 eftir Corelli./Fel-
ix Avo og I Musici leika
Konsert nr. 9 i F-dúr fyrir
fiðlu, strengjasveit og fylgi-
rödd eftir Vivaldi.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir,
Tilkynningar.
13.10 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Siðdegissagan:
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Popphornið
17. ÍU L i\ arpssaga barnanna:
„Blesi" eftir Þorstein
Matthiasson. Höfundur les
sögulok (8)
17.30 Framburðarkennsla i
dönsku
17.40 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veður-
fregnir. 18.55 Tilkvnningar.
19.00 Veðurspá. Fréttaspegill.
19.20 Þingsjá. Davið Oddsson
sér um þáttinn.
19.45 lleilbrigðismál: Barna-
lækningar, — limmti þáttur.
Halldór Hansen læknir talar
um venjumyndun.
20.00 Tónleikar Sinfóniu-
hljómsveitar lslands i Há-
skólabiói kvöldið áður.
Stjórnandi: Karsten Ander-
sen. Einsöngvarar: Taru
Valjakka og Kim Borg frá
Finnlandi. a. ,.Don Juan '.
tónaljóð op. 20 eftir Richard
Strauss. b. Sinfónia nr. 14
fyrir sópran. bassa og
kammersveit op. 135 eftir
Dmitri Sjostakovitsj.
21.30 Útvarpssagan: „For-
eldravandamálið — drög að
skilgreiningu” eftir Þor-
stein Antonsson. Erlingur
Gislason leikari les (11).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Evjapist-
ill.
22.45 Draumvisur. Sveinn
Arnason og Sveinn Magnús-
son kynna lög úr ýmsum
áttum.
21.45 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
-Mr-F-M-F-F-