Tíminn - 09.01.1966, Síða 3

Tíminn - 09.01.1966, Síða 3
SUNNUDAUR 9. janúar 1966 TÍMINN f SPEGLITÍMANS Þjóðarhetja Brazilíu, knatt- spyrnuleikarinn Edson Arantes do Nacimento — betur þekkt- ur undir nafninu Pele hyggst nú ganga í hjónaband innan skamms. Unnustan er frá Brazilíu og heitir Rosmarie Cholby og er tuttugu ára en þau hafa þekkzt frá því hún var 15 ára. Brazilísk blöð segja, að Pele hafi ákveðið brúðkaups daginn einhvern tímann á með an karnivalhátíðin stendur yf- ir til þess að forðast alla at- hygli. ★ í Englandi hefur nú birzt listi yfir vinsælustu hljómsveit- irnar og söngvara á árinu 1965. Á árinu í fyrra voru það bítl- arnir, sem voru í efsta sæti, en nú er svo komið að þeir eru komnir niður í þriðja sæti. Þó eru þeir í fyrsta sæti, hvað sölu snertir. Annars er listinn þannig: 1. The Rolling Stones 2. The Seekers 3. The Beatles 4. The Animals 5. Ken Todd 6. Sandie Shaw 7. The Hollies 8. The Yarbirds 9. Cliff Richards 10. Bob Dylan Sé plata, sem bezt seldist á árinu var Tears sungið af Ken Todd. ★ Hvort sem það hefur nú ver- ið einhverjum stríðnispúka að kenna eða einhverju öðru, þeg- ar amerísku forsetahjónin sendu jólakort er ekki enn vit- að en eitt er víst, að mörg hundruð manns hafa fengið af- skaplega dularfullar kveðjur frá Hvíta húsinu. Vinir forsetahjónanna hafa nefnilega að vísu fengið stór og glæsileg kort frá þeim, en þegar þeir opnuðu það, stóð alls ekkert á þeim þess efnis hver hefði sent þau, og mörg kortanna voru ófrímerkt. Margir gátu þó upp á því, að kveðjurnar kæmu frá Hvíta húsinu, þar sem á kortunum voru myndir af hinni frægu byggingu í Washington og stuttu síðar kom opinber af- sökun frá Hvita húsinu og lof orð um það að ný kort með frímerkjum og nöfnum þeirra sem sendu þau væru á leiðinni. Bandarískir tizkufrömuðir hafa nýlega valið Margaretu Bretaprinsessu sem verst klæddu konu heims árið 1965. Fylgdu þau orð valinu, að klæðaburður prinsessunnar líkt ist einna helzt kiæðnaði „Frænku Charleys". í því sam- bandi komst franska kvik- myndastjarnan Brigitte Bardot einnig til tals og sögðu tízku frömuðurnir, að það væri gæfa, að enginn þekkti hana aftur, þegar hún væri fullklædd. Brigitte Bardot er að þessu sinni talin þriðja verst klædda kona heims, á eftir þeim Marga retu prinsessu og songkonunni Barbara Streisans. Þar á eftir koma þær Mia Farrow vin- kona Frank Sinatra) Phyllis Diller og frú de Gaulle. Þar á eftir koma svo leikkonurnar Lucille Ball, Juiie Andrews, Bette Davis og Elisabeth Tayl- or. Bezt klædda kona ársins 1965 var hins vegar talin leik- konan Audrey Hepurn, Merle Oberon, Geraldin Chaplin, Polly Bergen og Geer Garson. Hins vegar var rætt um það, að Judy Garland, Pam ela Mason, Carrol Baker og Debbie Reynolds hefði farið fram í klæðaburði. Vinsældir Johnsons Banda rikjaforseta hafa dalað að mun að því er bandaríska stofnunin Gallup tilkynnir. 23. desember 1963 náðu vinsældir Johnsons hámarki sínu, og voru 90 af hverjum hundrað Bandaríkja- mönnum, sem fylgdu honum að málum. í dag eru aðeins 62 af hundraði, sem fylgja hon. um. Spurningin, sem Gallup- stofnunin bar fram var: — Fellur yður eða fellur yð ur ekki, hvernig Johnson for- seti framkvæmir starf sitt? 62% sögðu að þeim félli það, 22% að þeim félli það ekki og 16% höfðu enga skoð- un. í byrjun nóvembers síðast- liðins voru .það 66%, sem fylgdu stefnu Johnsons, en í lok mánaðarins hafði þeim fækkað um 2%. í desember síðastliðnum var haldin fegurðarsamkeppni giftra kvenna í Róm og var það frú Maria Novella Poil- lucci, sem var hlutskörpust að þessu sinni og hlaut titilinn Lady Roma. Hún mun svo taka þátt í keppni um titilinn Lady Evrópa 1966. Lady Evrópa 1965 var kosin Ira von Fursteniberg og birtist þá mynd af henni hérna á síðunni. Nú getur Karl prins og ríkis erfingi Englands ekki lengur gengið um og látið sig dreyma um, það hvað hann eigi að verða, þegar hann verður stór. Fyrir skemmstu var haldinn mikill hádegisverður í Bucking ham Palace, þar sem margir gestir voru samankomnir, þar á meðal forsætisráðherrann Harold Wilson og erkibiskup- inn af Kantaraborg. Eitt aðal- umræðuefni gestanna var fram tíðarmenntun prinsins. Eitt af aðalvandamálunum er að ákveða í hvað skóla prins inn eigi að fara, hvort hann eigi yfirleitt að fara í háskóla fremur en sjóherinn. Til að byrja með á prinsinn að fara í háskóla í Ástralíu. Einkunnir hans fram að þessu hafa ekki verið svo slæmar, að hann komist ekki í háskóla. En það sem aðallega er tek- ið eftir og lögð áherzla á, er að hann er fyrir ofan meðal- lag i öllum íþróttum. Hér á myndinni sést Brigitte Bardot ásamt fylgisveini sínum Bob Zaguri. Er myndin tekin í næturklúbb að lokinni frum- sýningu kvikmyndarinnar Viva Maria.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.