Tíminn - 14.01.1966, Side 2
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 14. janúar 1966
Verkfatö fíutmngsverkamanna í
New York lokið - stóí í 13 daga
NTB-New York, fimmtudag.
Verkfalli flutningaverkamanna í
New York var aflýst í dag 13 dög-
um eftir að það hófst. Þriggja
manna sáttanefnd tókst að lokum
að fá deiluaðila til þess að fallast
á málamiðlunartillögu, sem felur
í sér kauphækkanir og nokkrar
kjarabætur aðrar fyrir þá 35.000
flutningaverkamcnn, sem í verk-
fallinu stóðu. Strætisvagnar og
ncðanjarðarlestir hófu starfscmi
að nýju svo til um leið og samning
urinn var undirritaður, kl. 6,30 í
morgun að þarlendum tíma.
New York-búar fögnuðu því, að
umfcrð borgarinnar væri að fær-
ast í eðlilegt horf að nýju, en það
dró nokkuð úr fögnuðinum, að íbú-
arnir verða að borga mikið fyrir
verkfallið og hinn nýja kjarasamn
ing, og hugsanlegt er, að fargjald
strætisvagna og neðanjarðarlesta
verði hækkað.
Getgátur um, hversu mikið verk
fallið hefur kostað borgina, eru
mismunandi. John Lindsay, borg-
arstjóri, sagði að kjarasamningur-
inn myndi kosta borgina, sam-
kvæmt áætlun sáttanefndarinnar,
um 52 milljónir dollara (rúmlega
2000 milljónir íslenzkra króna)
næstu tvö árin, en aðalsamninga-
maður flutningsverkamanna, Doug
las MacMahon, reiknaði með um
70, milljónum dollara (um 2800
milljónum ísl. króna). ..
Iðnaðar- og verzlunarsamband
New York segir, að verkfallið hafi
kostað efnahag borgarinnar um
1,3 milljarði dollara (um 52
milljarði ísl. kr.), en Lindsay
sagði, að verkfallið hefði kostað
yfir 500 milljónir dollara, án þess
að nefna nánari tölu.
Samkvæmt hinum nýja samn-
ingi fá verkamennirnir 4% kaup-
hækkun frá 1. janúar í ár að telja,
önnur 4% frá 1. janúar 1967 og að
lokum 7% kauphækkun frá 1. júlí
1967. Auk þess fá þeir ókeypis
vinnufatnað, og hækkaða veikinda
peninga og lífeyri.
Verkamennirnir kröfðust upp-
haflega 30% kauphækkunar, fjög-
urra daga vinnuviku, sex vikna
sumarfrís og hálf laun sín í eftir-
laun eftir 25 ára starf. Leiðtogar
verkamanna sögðu, að nýi kjara-
samningurinn væri „mikill sigur“.
Samningurinn þýðir t. d., að stjóm
andi neðanjarðarlestar fær tíma-
kaup sitt hækkað úr 3,46 dollur-
um (150 kr. ísl.) í 4 dollara (um I sagði á blaðamannafundi í dag,
175 krónur ísl.). að vonandi væri hægt að komast
Lindsay, sem tók við borgar- hjá hækkun fargjalda, en játaði
stjóraembættinu örfáum klukku- þó, að hann vissi ekki, hvar ætti
stundum áður en verkfallið hófst, I að fá peninga fyrir þessum nýju
útgjöldum. Hann hyllti New York
búa fyrir framgöngu þeirra verk-
fallsdagana.
Rétt eftir að samningar voru
undirritaðir, gaf Abraham Geller
dómari í hæstarétti New York
ríkis, skipun um að láta leiðtoga
verkfallsmanna lausa. Meðal þeirra
var formaður sambands flutninga-
verkamanna í New York, Michael
Quill, sem fékk hjartaáfall
skömmu eftir handtökuna, og ligg-
ur enn á sjúkrahúsi. Þeir voru
handteknir 4. janúar vegna þess
að þeir neituðu að aflýsa verkfall-
inu.
GE-Reykjavík, fimmtudag.
Um mánaðamótin koma
hingað til lands heimsfræg-
ir skemmtikraftar á vegum
forráðamanna Lidós og
Skemmtikraf taiþj ónustunnar.
Hér er um að ræða brezku
bítlahljómsveitina The Holl
ies, sem víða um heim þyk-
ir skipa þriðja sætið á vjn-
sældalistanum eða standa
næst The Beatles og The
Rolling Stonés.
Plötur The Hollies hafa
. þótt geysivinsælar og hafa
sumar hverjar verið númer
eitt á vinsældalistanum^ í
Bandaríkjunum. Hér á ís-
landi hafa þær og notið mik
illa vinsælda svo sem lagið
I’am alive. Hljómsveitina
skipa 5 ungir menn, Graham
Nash, Allan Clark, Tony
Hicks, Eric Haydock og
Bobby Elliot. Viðdvöl þeirra
hér á landi verður ekki löng,
áformaðir eru með þeim
femir tónleikar í Háskóla-
bíói dagana 31. janúar og
1. febrúar kl. 7 og 11,15.
Einnig er gert ráð fyrir því
Framhald á bls. 14.
SAKAÐUR UM ÞATTTOKUI
M0RDUM 83.000 MANNS
NTB-Múnchen, fimmtudag.
Yfirmaður öryggislögreglu naz-
ista í Hollandi í síðari heimsstyrj
öldinni, Dr. Wilhclm Harster, hef
ur verið handtckinn, sakaður um
þátttöku í morðum 83.000 manns,
að því er tilkynnt var í Múnchen
í dag. Er hér uhi að ræða Gyðinga,
sem fluttir voru frá Hollandi til
fangabúða Þjóðverja, og þar létust
þeir. Meðal þeirra Gyðinga, sem
fluttir voru á þann hátt, var Anna
Frank, en dagbók hennar hefur
gert hana heimsfræga, eins og
kunnugt er. Hún lézt í þyzkum
fangabúðum.
Talsmaður ákæruvaldsins í
Múnchen sagði, að tveir helztu
aðstoðarmenn Harsters í öryggis
lögreglu nazista í Haag, Wilhelm
Zoepf og ungfrú Gertrud Slottke,
hafi einnig veríð handtekin. Zoepf,
sem var yfirmaður Gyðingadeildar
öryggislögreglunnar í Haag, er
sakaður um þátttöku í 94.328 morð
um, og ungfrú Slottke um þátttöku
í 93.328 morðum.
Lögreglustjórinn í Múnchen,
Hans Schneider, sagði að Harster,
sem er sextugur, og Zoepf hafi ver
ið handteknir í Múnchen á mið-
vikudaginn, en ungfrú Slottke vár
handtekin í Stuttgart. Hann sagði,
að allt frá árinu 1961 hafi staðið
yfir rannsókn á hlutverki því, sem
Harster, Zoepf og Slottke léku í
sambandi við nauðungarfiutninga
Gyðinga frá Hollandi í síðari heims
styrjöldinni.
Þýzka fréttastofan DPA til-
kynnir, að Harster hafi árið 1947
verið dæmdur í 10 ára fangelsi í
hollenzkum rétti, en hann slapp
við að sitja allan þann tíma í fang
elsi. Zoepf og Slottke hafa einnig
komið fyrir hollenzka dómstóla.
Fyrir 10 árum síðan fékk Harst-
er stöðu sem efnahagssérfræðing-
ur stjórnarinnar í Efri-Bæjara-
landi, en í apríl 1963 var honum
sagt upp þeirri stöðu.
SKÝRA FRÁ IÐGJALDA
KERFINU UM HELGINA
Varðandi yfirlýsingu forráða-
manna Samvinnutrygginga í dag-
blöðunum í gær vilja undirrituð
Itryggingafélög taka eftirfarandi
fram:
Tryggingakerfi það, sem Sam-
vinnutryggingar hafa boðað að
þeir taki upp, hefur verið unnið
fyrir samstarfsnefnd tryggingafé-
laganna, og var enginn ágreiningur
hjá félögunum um framkvæmd
þess.
Samvinnutryggingar hafa hins
vegar valið þá leið að segja sig
úr samstarfi við undirrituð félög,
og tileinkað sér framkomið trygg
ingakerfi sem það væri þeirra eig
ið. Frá því síðastliðið haust hafa
tryggingafélögin sameiginlega *át
ið Bjarna Þórðarson tryggingafræð
ing framkvæma umfangsmiklar
rannsóknir, sem kerfi þetta er
byggt á. Slysatrygging farþega og
ökumanns er ekki uýmæli en hef
ur verið seld sem sérstök trygg
ing vegna ákvæða í reglugerð um
bifreiðatryggingar, sem heimilar
ekki, að öðrum tryggingum sé bætt
við lögboðna ábyrgðartryggingu.
Samstarfið við Samvinnutrygg
ingar strandaði því ekki á ágrein
ingi um iðgjöld né skilmála, held
ur á þeirri staðreynd að skilning
ur Samvinnutrygginga á samstarfi
og samvinnu er annar en vor.
Til þess að breiða yfir þetta
hafa Samvinnutryggingar kosið að
eigna sér sameiginlegt framkom
ið tryggingarkerfi.
Undirrituð tryggingafélög munu
um næstu helgi skýra frá iðgjalda
kerfi því, sem þau munu nota
næsta tryggingarár, en þaö kerfi
býður gætnum ökumönnum betri
kjör en Samvinnutryggingar
bjóða nú.
Almennar tryggingar h. f.
Verzlanatryggingar h.f.
Tryggingafélagið Heimir h. f.
Sjóvátryggingafélag fslands hí
Vátryggingafélagið h. f.
Trygging h. f.
Brunabótafélag íslands.
ÚTTAZT ER AD 500
HAFI LÁTIÐ LÍFIÐ
NTB-Rio de Janeiro, fimmtudag.
Yfirvöldin í Rio de Janeiro ótt
uðust í dag, að sá óhugnanlegi húa
beltisstormur, sem herjað hefur
á borgina og næsta nágrenni her.n
ar síðan á mánudag, liafi kostað
rúmlega 500 mannslíf, og enn er
ekkert, sem bendir til þess, að
veðrið muni fara batnandi.
Þessi hræðílegi stormur, sem
er sá versti, sem Ríó de Janeiro
hefur orðið fyrir síðan á 19. öld
inni, hefur breytt stórum hluta
borgarinnar í eitt stórt naf af
þéttri, gulleitri leðju, sem hefur
valdið geysimiklum skriðum í hlíð
unum umhverfis borgina. Flestir
hafa látið lífið í fátækrahverfun-
um, sem liggja i þessum hliðum.
Hundruð lélegra tréhúsa hafa
hrunið í grjótskriðum, eða horfið
í leðju og vatn.
Heimildir segja, að um 1200
manns hafi meiðst meira eða
minna síðustu dagana í óveðrinu,
og að um 12000 hafi misst heim
ili sín. Franska fréttastofan AFP
segir aftur á móti, að um 2000
hafi særzt, og að um 30.000 séu
heimilislaUs.
Miklum mannfjölda hefur venð
komið fyrir í skólum, og á íþrótta
leikvöllum, og hafin er víðtæk
bólusetning til þess að koma i veg
fyrir taugaveiki.
Brýr og vegir hafa víða eýði
lagzt og eru á kafi í vatni. Auk
þess hafa símalínur slitnað, og raf
magn rofnað.
Fjölmennt björgunarlíð vinnur
að því allan sólarhringinn að
hjálpa nauðstöddu fólki og grafa
upp fólk, en vatnsflaumurinn og
leðjan gerir allt björgunarstarf
mjög erfitt viðureignar.
Fundu annað
barnslík
NTB-Bloxwich, Bretl., fimmtud.
Lík lítils barns, líklega stúlku,
fannst í dag í skurði skammt frá
stað þeim, þar sem fimm ára
gömid stúlka fannst látin í
gær, miðvikudag. Líkið virðist
hafa legið lengi í skurðinum.
Lík þessi hafa fundizt í
Cannock í Staffordshire, að
sögn lögreglunnar.
Það, sem leiddi til líkfundar-
ins í dag var, að lögreglan var
að leita að sex ára gamalli
stúlku, Margaret Reynolds, sem
hvarf frá heimili sínu í Birm-
ingham, um 15 kílómetra frá
Cannock, í september síðast
liðinn.
Rannsókn hefur leitt í ljós,
að margt er svipað í sambandi
við hvarf Margaretu litlu og
hinnar fimm ára gömlu Diana
Tifts. Diana hvarf frá heimili
sínu fyrir 14 dögum. Talið er,
að líkið, sem fannst á miðviku
daginn, sé af henni.
Morðsérfræðingar lögregl-
unnar rannsaka nú mál þessi.
Brezka útvarpið BBC skýrði
frá því í dag, að lögreglan hefði
skorað á foreldra að hafa gætur
á börnum sínum, því að hún
væri að leita að stórhættuleg-
um barnamorðingja á þessu
svæði.