Tíminn - 14.01.1966, Side 13
FÖSTUDAGUR 14. janúar 1966
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
Þrír nýliðar
í landsliðinu
- í körfuknattleik, sem leikur fyrri
landsleikinn gegn Póllandi á sunnudag
IS-
Alf—Reykjavík, fimmtudag
Þrír nýliðar verða í
ienzka landsliðinu, sem leika
á gegn Pótlandi á sunnudag-
FH mæt-
ir Dukla
Prag
Sanikvæmt NTB-frétt, hef
ur FH dregizt á móti einu
sterkasta félagaliðl Evrópu,
Dukla Prag frá Tékkóslóvak
ín, í Evrópubikarkeppninni
í handknattleik. FH var
dregið á undan og fær Því
heimaleikinn á undan, en
leikið er bæði heima og
heiman.
Þessi lið drógust enn
fremur saman:
Zagreb, Júgódk-— Leipzig,
A-Þýzkal.
Redbergslid—Slask, Póll.
Honved, Ungv. — Grashopp-
ers, Sviss.
Ekki er hægt að segja, að
Framhald á bls. 14.
J
inn kemur, í fyrsta landsleikn
um í körfuknattleik, sem háð
ur er hérlendis, en það eru
Kolbeinn Pálsson, KR
Birgir Jakobsson, ÍR og
Hjörtur Hansson, KR. Að
öðru leyti er liðið skipað
margreynum landsliðsmönn-
um, en þannig liðið:
Gunnar Gunnarsson, KR
Kolbeinn Pálsson, KR
Hjörtur Hansson, KR
Einar Bollason, KR
Birgir Jakobsson, ÍR
Agnar Friðriksson, ÍR
Hólmsteinn Sigurðsson, |r
Birgir Birgis, Ármanni
Davíð Helgason, Ármanni,
og Ólafur Thorlacius. KFR.
Segja má, að val landsliðnefnd
ar sé gott, en þó saknar maður
Einars Matthíassonar, sem undan
farið hefur sýnt mjög góða leiki
með KFR og raunar átti hann
stærsta þáttinn í því, að liðið
vann Reykj avíkurmeistaratitilinn.
Þess má geta. að val landsliðs
nefndar á eingöngu við um fyrri
leikinn. Ef nefndin verður ekki
ánægð með frammistöðu liðsins
á sunnudaginn, getur hún gert
breytingar fyrir síðari leikinn,
sem verður leikinn á þriðjudag
inn.
13
Héldu utan í gærdag
Myndina að ofan tók ljósmynd-
ari blaðsins, GE, af íslenzka lands
liðinu í handknattleik í gærdag,
þegar Það lagði af stað með Flug-
félagsvél áleiðis til PóIIands, en
það er á sunnudaginn, sem leikur
inn við Pólverja fer fram í
Gdansk.
Landsliðsmennirnir voru kátir
við brottförina, og gerðu að
gamni sínu. Að sjálfsögðu var
Ásbjörn Sigurjónsson, form. HSÍ,
í sviðsljósinu, eini þátttakandinn í
förinni, sem ekkl var í ljósgráum
buxum við tlökkbláan iakka með
ísl. fánanum ísaumuðum, því
ekki fundust oógu stórar buxur á
hann’ Varð hann því að íklæðast
dökkum buxum. Og auðvitað gerði
Ásbjörn grín að öllu saman.
Fá íslenzkir knattspyrnuddmarar
150 kr fyrir að dæma í 1. deild?
Reglugerð um launagreiðslur til dómara rædd á næstunni.
Alf—Reykjavík, fimmtudag.
Eins og áður hefur komið fram,
liafa íslenzkir knattspyrnudómar
ar mikinn áhuga á því, að tekið
verði upp sérstakt launakerfi fyr
ir knattspyrmidómara. Knatt-
spyrnudómarafélag Reykjavíkur
hefur haft forgöngu u.m þetta mál,
og stóð til, að á síðasta aðalfundi
félagsins yrði málið afgreitt. Ekki
vannst tími til að ganga frá því
þá, en cndanlesa verður það af-
greitt á fundi dómara hinn 19-
ianúar n. k.
Og nú hefur verig samin sér-
stök reglugerð um gjaídskrá fyrir
dómarafélagíð, sem verður lögð
fyrir fundinn. í þessari reglugerð,
sem að öllum líkindum verður sam
þykkt, er getið um það í 1. lið,
Celtic vann Kiev 3:0
Skozku bikarmeistararnir, Celtic
sigruðu í fyrrakvöld sovézka meist
araliðið, Dynamo Kiev, með þrem
ur mörkum gegn engu í fyrri
leik félaganna í Evrópubikar-
keppni bikarhafa. Leikurinn var
háður á Parkhead, Ieikvelli Celtic
í Glasg. og áhorfendur voru yfir
60 þúsund. Skozku leikmennirnir
höfðu yfirburði og með þetta gott
forskot ætti Celtic að hafa alla
möguleika að komast í undanúr-
slit í keppninni.
Síðari leikurinn verður í Kiev,
sennilega eftir viku, en þó kann
einhver dráttur að verða á vegna
| erfiðleikum í sambandi við vega-
bréfaáritun til Sovétríkjanna. Þess
má geta, að Dinamo Kiev er
fyrsta sovézka liðið, sem tekur
þátt í Evrópukeppninni _ og í
annarri umferð í keppninni vann
það norska líðið Rosenborg, sem
reyndist ofjarl KR-inga í fyrstu
umferð.
Þá var háður i Edinborg á Skot
landi leikur milli Hearts og Zara
gozza frá Spáni í borgarkeppni
Evrópu og varð jafntefli 3:3.
Framhald á bls. 14.
að dómarafélaginu skuli heimilað
að taka gjald fyrir alla leiki, sem
aðgangur er seldur að. Þetta er
ekki nýbreytni, því undanfarin ár
hafa héraðsráð á hverjum stað
greitt ákveðið gjald til dómara
félagsins.
Veigamesta breytingin kemur
fram í 5. lið, en þar segir, að
dómarar, sem eru félágsmenn í
KDR, skuli fá greiðslu fyrir þau
dómarastörf, er þeir inna af hendi
og KDR tekur gjald fyrir sam-
kvæmt gildandi gjaldskrá félags
ins á hverjum tíma. Dómari skal
jafnan hafa 25% og línuvörður
12,5% af heildarupphæð þeirri,
er KDR tekur.
Það er þessi liður, sem gerir
knattspyrnudómara að atvinnu-
mönnum í ísl. knattspyrnu, ef
samþykktur verður. En litlar og
rýrar verða tekjur dómara okkar,
ef núverandi gjaldskrá Knatt-
spyrnuráðs Reykjavíkur á að
gilda ,en samkvæmt henni er
greitt eftirfarandi til Knattspyrnu
dómarafélagsins:
a. fyrir landsleiki kr. 2.000.00
b. — erl. heimsóknir — 800.00
c. — 1. deild og lokakeppní
Bikarkeppninnar — 600.00
d. — aukaleikir — 600.00
e. — Reykjavíkurmót — 500.00
f. — 2. deild — 300.00
Af Þessum upphæðum fá svo
Framhald á bls. 14.
BRIDGE
Hsím.—Reykjavík fimmtudag.
Línurnar eru nú mjög farnar
að skýrast í karlaflokki í keppni
Bridgesambands íslands um lands
liðssætin á Norðurlandamótinu,
sem háð verður í Reykjavík í
vor. Sex efstu pörin munu skipa
landsliðssveitirnar tvær, og nú er
svo komið, að sex pör hafa nokk'uð
skorið sig úr og má segja, að
allar líkur séu til að landsliðsmenn
irnir séu fundnir. Staðan er þann
ig, og aðeins ein umferð eftir
1.—2. Benedikt:Jóhann 67
I. —Zr Ásmundur:Hialti 67
3.—4. Símon:Þorgeir 65
3.—4. Jón;Sigurður 65
5. Einar;Gunnar 64
6. Agnar:lngólfur 63
7. Hilmar:Jakob 59
8. Steinþór:Þorsteinn 58
9. —10. Eggert:VilhjáImur 57
9.—10. Stefán:Þórir 57
II. Jón:Gunnar 53
12.13 Ólafur:Sveinn 49
12.—13. JúIíus:Tryggvi 49
14. Jóhann:Lárus 47
15—16. Guðjón:Eiður 38
15. —16. Ragnar:Þórður 38
í kvennaflokki ern þrjár umferð
ir eftir, og verða tvær þær síðustu
spilaðar í kvöld en keppni í báð
um flokkum lýkur á miðvikudags
kvöld að Hótel Sögu. Þrjú efstu
pörin í kvennaflokkum munu
skipta landsliðið, en úrslit er enn
nokkuð óráðin, nema hvað þær
Kristjana Steingrímsdóttir og
Margrét Jensdóttir hafa algerlega
skorið síg úr og eru langefstar.
Staðan er þannig.
1. Kristjana:Margrét 70
2. Ósk:Magnea 57
3. —4. Hugborg:Vigdís 56
3.—4. Ásta:Guðrún 56
5.—6. Elín:Rósa 54
5.—6. Soffía.-Viktoría 54
7. Sigríður:Unnur 52
8—10. Júlíana.-Louise 46
8. —10. Sigríður:Kristrún 46
8.—10. Kristín:Dagbjört 46
11. Steinunn:Þorgerður 43
12. Ingibjörg:Sigríður 40
13. —14 Eggrún:Guðríður 38
13.—14. Rósa:Sigríður 38
15. Ásgerður:Laufey 37
16. Margrét:Guðrún 35
Frá TBR
Innanfélagsmót Tennis- og
Badmlntonsfélags Reykjavíkur,
árið 1966, mun hefjast á næst
unni. Keppt verður í öllum
grelnum badminton. Þátttaka
tilkynnist formanni keppnis-
ráðs, Kristjáni Benjamínssynl
i síma 24366 eða 24368, eigi
síðar en þriðjudaginn 18. þ. m.
Stjórn T-B.R.
Sexþrautarkeppnin haf in
Sexþrautarkeppni KR, i karla-
flokki, hófst í KR-húsinu á mið-
vikudag 12. jan. Fyrsta keppnis
greinin var langstökk án atrennu.
Þátttaka var allgóð, — tíu menn
mættu til leiks. Keppnin var
mjög tvísýn og skemmtileg. Ný-
kiörinn íþróttamaður ársins 1965,
Valbjörn Þorláksson. tók foryst-
una strax í fyrstu umferð keppn-
innar og hélt hcnni allt til loka.
Var sigur hans öruggur og aldrei
í hættu. í öðru og þriðja sæti urðu
hinir landsþekktu iangstökkvarar
Úlfar Teitsson og Einar Frímanns
son. Ungur stúdent, Niels Siemsen,
kom á óvart með ágætum árangri.
Fleiri nýliðar vöktu athygli; þeir
Ólafur og Björn Sigurðssynir ættu
að geta náð langt í framtíðinni,
ef þelr leggja rækt við æfingarn-
ar.
Segja má, að sexþrautarkeppnin
hafi farið vel af stað og árangur
verið athyglisverður og jafn.
Frjálsíþróttadeild KR hvetur alla
þá íþróttamenn, sem tóku þátt í
fyrsta hluta keppninnar að sækja
vel æfingar deildarinnar og mæta
til sexþrautarkeppninnar næstu
fimm miðvikudaga í KR-húsinu kl.
Framhald á bls. 14.