Vísir - 18.03.1974, Side 8
8
Visir. Mánudagur 18. marz 1974
Kjósarljónin selja mykju
til aö safna fé
y
1 Kjósinni og á Kjalarnesi er
starfandi Lionsklúbburinn Búi og
starfar hann að fjársöfnun til
liknar- og menningarmála.
Félagarnir hafa fundið sér nokk-
uð nýstárlega fjáröflunaraðferð,
sem eflaust á eftir að afla þeim
gildra sjóða, sem renna til góðra
málefna. Þeir nýta semsé hrá-
efni, sem fellur til hjá bændum
með kúabú. Framleiða þeir
lifrænan og handhægan áburð á
blóm og aðra ræktun i smáum
stil, þurrkaða og kögglaða
kúamykju. Framleiddir eru
kögglarnir i graskögglaverk-
smiðju i Brautarholti. Rétt er að
geta þess, að venjulega fylgir bú-
fjáráburði mikið af flugu og
illgresi, en áburður þessi á að
vera laus við allt slikt. Sölufélag
garðyrkjumanna annast dreif-
ingu á þessari vöru.
Arkitektar gramir vegna
Þingvallaframkvæmda
í bréfi til Alþingis frá Arki-
tektafélagi tslands kemur i ljós
undrun og reiði vegna fram-
kvæmda sem nú eiga sér stað i
þjóðgarðinum á Þingvöllum.
Telja arkitektar það undanleg og
forkastanleg vinnubrögð, að til
samkeppni skyldi efnt um
skipulag Þingvallasvæðisins á
sama tima og undirbúningur var
hafinn að byggingaframkvæmd-
um i þjóðgarðinum. Skorar
almennur fundur i félaginu á
Alþingi að sjá til þess að komið
verði i veg fyrir enn eina
viðbygginguna við Valhöll og
framkvæmdir þar verði stöðvað-
ar, en þeirri stefnu fylgt, sem
mótuð var i dómsniðurstöðum
Þingvallasamkeppninnar.
Hlýja rússneskum kaup-
endum
Samningar um sölu á 140 þús-
und Heklupeysum og 60 þús. Gefj-
unarteppum til Rússlands voru
undirritaðir i siðustu viku.
Samningurinn er upp á 160 millj-
ónir króna.
Æ
Jenny^
Skolavoróustig,
vill segja fra
Það er vel gert sem við gerum sjálfar
Marksblöð og fjöldi af
öðrum hannyrðablöðum
bómullargarni í öllum
litum, CB og METTA.
Póstsendum
Hannyrðavörur frá Jenný prýða hefóiilið
HATTA- OG HANNYRÐAVBRZLUNIN
Jenný
á
Skólavörðustíg 13a - Sfmi 19746 - Pósthólf 58 • Rcykjavfk
Ávextir oa grœnir bílar
Sovézku risavélarnar, sem
lenda öðru hvoru á Keflavik-
urflugvelli og biða þar stundum
sólarhringum saman, vekja að
vonum forvitni manna. Hvað er i
þessum belgviðu vélum, sem taka
sig á loft með allt að 250 tonna
þunga? Um jólin komust menn að
raun um, að i vélunum voru
ávextir, — á austurleiðinni til
Rússlands. En hvað er flutt til
Kúbu? —- Tollgæzlan gerir enga
skoðun, og þess er vandlega gætt
af varðmönnum, að engir
óviðkomandi séu að snuðra við
vélarnar. Einum forvitnum tókst
þó fyrir helgina að komast að
hurðinni og opna hana. Inni sá
hann þrjá stóra vörubila, græna
að lit. Meira sá hann ekki,
varðmaður kom æðandi á vett-
vang og stjakaði manninum burtu
með nokkrum vel völdum orðum.
Myndina af AN-22 vélunum tók
ljósmyndarinn örn.
Snyrtivöruverzlunin Andrea Laugavegi 82
(gengið inn frá Barónsstig)
simi 27310, auglýsir.
Nýkomið frá Mavala, naglaherðir, nagla-
næring. Mavala stopp, naglalakksþynnir,
augndropar, augnháranæring.
Einnig háralitur og kremfestir,
sjúkrasokkabuxur, vax til að eyða hárum.
Hárspennurnar komnar.
PÓSTSENDUM HVERT Á LAND SEM
ER.
SNYRTIVÖRUVE RSIUNIN *»
»VaIMDREA*
*♦* * ' LAUGAVEG 12
Sími 27310
Nefnd um Hundinn
Magnús Kjartansson, iðnaðar-
ráðherra, hefur nú skipað nefnd,
sem hafa á yfirumsjón með bygg-
ingu Hundsins að sunnan, há-
spennulinunnar margumræddu. 1
nefndinni eiga sæti þeir Egill
Skúli Ingibergsson,
verkfræðingur, sem er formaður
n e f n d a r i n n a r , Guðjón
Guðmundsson, skrifstofustjóri
Kristmundur Halldórsson,
fulltrúi og Tryggvi Sigurbjarnar-
son, verkfræðingur. 1 fjárlögum
er heimilað, að lán verði tekin til
linubyggingarinnar að upphæð
samtals 300 milljónir króna.
Laust sýslumannsembætti
Yngva Ólafssyni, sýslumanni
Dalasýslu, hefur verið veitt lausn
frá embætti að eigin ósk frá 15.
mai n.k. að telja.
Konur i öruggum sætum!
,,Menningar- og friðarsamtök
íslenzkra kvenna heita á flokk
yðar að gefa gott fordæmi á sviði
jafnréttismálanna með þvi að
íáta konur skipa virðuleg sæti á
listum flokks yðar við i hönd far-
andi kosninga,” segir i áskorun
stjórnar samtakanna. Er bent á,
að Mannré 11 i ndanefnd
Sameinuðu þjóðanna helgi árið
1975 réttindamálum kvenna.
Verði hlutfallsleg fulltrúatala
kvenna i stjórnum bæja og sveita
hjá þjóðum innan vébanda S.þ.
þvi mjög til umræðu og talinn
nokkur mælikvarði á stjórnmála-
legt jafnrétti eða misrétti, eftir
þvi hvernig á málum verði haldið.
Rikisfyrirtæki í Luxem-
búrg gerist aðili að
Cargolux
Hlutafé Cargolux-flugfélagsins,
sem Loftleiðir er einn aðalhlut-
hafinn i, er sannarlega ekki mikið
að vöxtum. Það var til skamms
tima 9. millj. króna, — en nú er
ákveðið að auka það i 60 milljón-
ir. Fjórir nýir hluthafar koma nú
inn i myndina, — fjórir bankar, og
þar á meðal er rikissparisjóður
Luxembúrgar.